Morgunblaðið - 23.03.1963, Síða 8
8
UOKCTnSBtABIB
Laugardagur 23. marz 1963
Skiptar skoöanir um
afhendingu Skálholts
Öliklegt að />or verbi biskupssetur
gegrt vilja kirkjuvalda
Á FtTNDI neðri deildar Alþingis
í gær var frumvarp ríkisstjóm-
arinnar um, að Skálholtsstaður
yrði afhentur þjóðkirkjunni tek-
ið til 2. umræðu, en ekki hafði
náðst eining innan menntamála-
nefndar um málið og lýsti einn
nefndarmanna, Einar Olgeirsson,
sig andvígan frumvarpinu.
Ekki nafnið eitt
Alfreð Gíslason (S) gerði
grein fyrir áliti meirihluta nefnd-
arinnar. Sagði hann m. a., að
nefndin hefði talið sjálfsagt, að
leitað yrði upplýsinga um, hver
verðmæti ríkissjóður vaeri hér að
láta af hendi endurgjaldslaust og
gerði því fyrirspurn til landbún-
Somkomur
Hjálpræðisherinn
í kvöld kl. 8.a0: Hermanna-
samkoma.
Sunnudag: Samkomur kl.
11 Og 8.30. Hermannavígsla.
Velkomin.
aðarráðuneytisins um stærð jarð-
arinnar, jarðgæði og húsakosti.
Land staðarins mun vera um 18
ha og nær allt grasi vaxið. Sumt
af því er mjög auðræktanlegt en
annað erfitt til ræktunar. Húsa-
kostir jarðarinnar er íbúðarhús,
fjárhús fyrir 350
fjár, fjós fyrir 20
kýr auk mjólk-
urhúss, hesthúss
yfir 6 hesta, auk
þess hlöður fyrir
téðan búpening,
þar á meðal tvær
votheygryfjur
við fjóshlöðu.
Verkfærahús um
200 fermetrar að stærð. Felst af
þessu eða allt nema fjárhúsið eru
vandaðar byggingar, auk þess er
svo prestsbústaður og kirkja í
smíðum.
Um hlunnindi jarðarinnar
segir, að lax og silungsveiði sé
bæði í Hvítá og Brúará, en þó
ekki í stórum stíl. Jarðhiti er
a. m. k. á fjórum stöðum í iandi
Skálholts. Þar af eru tveir á landi,
*
Iftgerðarmenní
Að gefnu tilefni bendum vér
yður á, að láta oss annast út-
vegun á skipsskrúfum fyrir
báta með Mannheimvélum.
Fjórblaða Zeise skrúfur með grönnum blöðum óg
hæfilegri stigningu hæfa bezt fyrir úthafssjávar-
lag íslenzkra fiskimiða.
Stu&laugur Jónsson & Co
Sími 14680. — Vesturgötu 16.
LONDON
Dömudeild —
— Austurstræti 14
Fermingargjafirnar
í ár eru vatteruðu
nylonsopparnir frá
okkur.
Verð kr.: 560,00.
10 Hl D 0 l\l dömudeilk
Glæsilegt 500 ferm
iðnaðarhúsnæði
til leigu. — Tilboð sendist í pósthólf 126.
einn við Hvítá og einn úti i
sjáifri ánni. Fyrir tveim til þrem
árum var byrjað að bora eftir
heitu vatni heima í Skálholti, og
náði sú borhola 142 m að dýpt
og kom þar upp 50° heitt vatn,
en talið er, að bora þurfi a.m.k.
niður 500 m dýpi til þess að veru-
legur hiti komi upp. Af þessu
sést, að það er ekki nafnið eitt,
sem ríkissjóður afhendir þjóð-
kirkjunni endurgjaldslaust.
Endurreisn biskupsstóls
Við 1. umræðu hefðu margir
tekið til máls og lýst stuðningi
sínum við frumvarpið í því formi,
sem það er borið fram, en aðrir
virtust harma, að í frumvarpinu
skyldu ekki felast ákvæði þess
efnis, að biskupsstóll yrði endur-
reistur á Skálholtsstað og staður-
inn afhentur þjóðkirkjunni með
þeim forsendum, að þar yrði
biskupssetur í framtíðinni. í at-
hugasemdum við frumvarpið
segir, að það sé fram komið vegna
eindreginna óska 3. kirkjuþings
þjóðkirkju íslands s.l. haust sam-
kvæmt ályktun, sem einróma var
samþykkt á kirkjuþinginu. Hins
vegar hefur engin ósk eða tilmæli
komið frá kirkjuþinginu þess
efnis, að biskupsstóll yrði þar
endurreistur, enda er frumvarp-
ið í algeru samræmi við óskir
kirkjuþings.
Hvað snertir endurreisn
biskupsstóls í Skálholti þá er það
ijóst, að frumvarpið útilokar
ekki, að svo megi verða. Þvert á
móti er það sett á vald kirkju-
valda, hvort svo verður eða ekki,
sem verður að kalla eðlilega lausn
á málinu því að með ólíkindum
er, að Alþingi samþykki nokkru
sinni biskupssetur í Skálholti
þvert ofan í vilja kirkjuþings og
annarra kirkjuyfirvalda. Það ec
og eðlilegast, að sú eina starf-
ræksla eða stofnun verði í Skál-
holtsstað, sem kirkjan sjálf eða
yfirstjórn hennar vilja hafa þar.
Einar Olgeirsson (K) kvaðst
andvígur afhendingu Skálholts-
staðar og boðaði sérálit. Vill
hann, að í Skálholti verði komið
upp skólabæ og menntasetri og
tilefndi hann alls konar fræðslu
og visindastofnanir í því sam-
bandi.
Óskar Jónsson (F) mælti fyrir
breytingartillögu við frumvarp-
ið þess efnis, að þegar biskup
verður aftur í Skálholti, falll
staðurinn og stofnanir hans undic
þann biskup.
Að ræðu hans lokinni var um-
ræðu frestað.
Hluti Kjalarneshrepps
scmeinisf MosfelIshreppi
Á FUNDI neðri deildar Alþingis
í gær gerði Guðmundur í Guð-
mundsson utanríkisráðherra
grein fyrir frumvarpi sínu þess
efnis, að sá hluti Kjalarnes-
hrepps, sem liggur austan Kleifa
á Kjalarnesi, skuli innlimaður í
Mosfellshrepp.
AÐ ÓSK ÍBÚANNA.
Guðmundur f Guðmundssson,
utanríkisráðherra kvað frumvarp
ið flutt að ósk íbúa þess hluta
Kjalarneshrepps sem liggur aust-
an Kleifa. Vegna legu þess hrepps
hluta hafi mestöll félagsleg sam-
skipti íbúanna þar fyrr og síð-
ar verið við íbúana í Mosfells-
hreppi enda í rauninni enginn
önnur tengsl milli hreppsihlut-
anna en þau sem
eru þeirri stað-
reynd samfara,
að þeir tilheyra
að formi til
sama sveitarfé-
lagi. En land-
fræðileg lega
umrædds hluta
K j a i a rneshr epps
og náin sívax-
andi félagsleg samskipti fólksins
austan Kleifa við fólk í næsta
nágrannahreppnum að sunnan,
Mosfellshreppi, gera það í alla
staði eðlilegt og sjálfsagt, að
sá hluti Kjalarneshrepps, sem
er austan Kleifa, verði samein
aður Mosfellshreppi svo sem
ráð er fyrir gert í frumvarpinu.
í lok ræðu sinnar mœltist ráð-
herrann til þess, að frumvarpið
yrði sent til umsagnar hrepps-
nefndum Kjalarnes- og Mosfells-
hrepps og svo sýslunefnd Kjósar-
sýslu.
Frumvarpið er illa undirbúið.
Matthias Á. Mathiesen (S)
kvað það rétt vera, að deilur
hefðu risið í Kjaiarneshreppi
vegna staðsetningar félagsheimil-
is þar. Mál þetta hefði verið
lengi á döfinni og reynt að ná
samkomulagi, en hins vegar því
ekki á móti mælt, að ákvörðun-
in um staðsetningu félagsheim-
ilisins hefði verið löglega tekin.
Benti alþingismaðurinn á vill-
andi og rangar upplýsingar í
greinargerðinni, og að þar væri
reynt að færa
félagsleg og
landfræðileg rök
að skiptingu
hreppsins og
með því reynt
að dylja hina
raunverulegu á-
stæðu fyrir flutn
Wk ingi frumvarps-
ins, sem er deila
sú, er risið hefur vegna stað-
setningar félagsheimilisins.
Að sjálfsögðu er ekki hægt á
þessu stigi málsins að taka af-
stöðu til frumvarpsins, því að
hvorki liggur fyrir umsögn
hreppsnefndar þess hrepps, sem
lagt er til að kljúfa, né þess, sem
ætlað er að taka við fólkinu og
þaðan af síður sýslunefndar, sem
að sjálísögðu mun fjalla um mál-
ið. En áður en þessir aðilar hafa
fjallað um frumvarpið og um-
sögn þeirra liggur fyrir, verð-
ur efnisafstaða ekki tekin. Eðli-
legast hafði verið og rétt máls-
meðferð, að flutningsmaður hef'ði
aflað þessara gagna, enda hefði
það flýtt fyrir afgreiðsu frum-
varpsins, hafi flutningsmanni
það þá verið nokkurt kappsmál.
Jón Skaftason (F) sagði að
þetta væri furðulegasta mál, sem
komið hefði fyrir alþingi þau
fjögur ár, sem hann hefði setið
á þingi. Hélt hann því fram, að
frumvarpið gengi gegn sveitar-
stj órnarlögunum, en í þeim væri
meðal annars gert ráð fyrir að
viðkomandi hreppsnefndir fjöll-
uðu um slík mál, áður en loka-
ákvörðun yrði tekin í þeim. Tók
hann undir það með MÁM, að
eðlilegra hefði verið að umsagn-
ir hreppsnefndanna og sýslu-
nefndar hefðu fylgt frumvarp-
inu og kvaðst þess fullviss, að
frumvarpið kæmi ekki aftur úc
þeirri nefnd, sem því yrði vísað
til. —
Þdtttako síldarverksmiðjanna í
útgerðarfélagi ú Sigluíirði
RÍKISSTJÓRNIN hefur Iagt
fram á Alþingi frumvarp þess
efnis, að Síldarverksmiðjum
ríkisins sé heimilt að leggja fram
allt að tveim millj. kr. sem hluta
fé í hlutafélagi, sent. stofnað yrði
á Siglufirði í samvinnu við Siglu
fjarðarkaupstað til að eiga og
reka vélbáta frá Siglufirði, svo
og botnvörpunginn Hafiiða, sem
nú er í eigu Siglufjarðarkaup-
staðar. Framlag sildarverksmiðj-
anna verði 55%.
í athugasemduim við frum-
varpið segir m.a., að með því
að síldarverksmiðjunum sé hag-
kvæmt að reka frystihúsið í
Siglufirði og halda þannig í slaifs
fólk, sem þær nauðsynlega þurfa
á að haida sumarmánuðina, og
sú ráðstöfun styrkir almennt at-
vinnuástand í Siglufirði, sé eðli-
legt, að síldarverksmiðjurnar
taki þátt í þeirri útgerð, sem
nauðsynleg er til að frystilhúsið
fái nægilegt hráefni.
Leiðréttinfl;
ÞESSI tvö nöfn féllu niður i
gær í upptalningu á þeim sem
Alþingi hefur samþykkt að veita
ríkisborgararétt: Csillag, Rozália,
f. Szatmári, Reykjavík og Hor-
váth, Gabriela (Þórðarson),
Reykjavík.
Félagslíi
Knattspyrnufélagið Valur
Knattspyrnudeild
2. og 3. flokkur.
Fjölmenn útiæfing verður
í dag kl. 5. Notið góða veðrið.
Þjálfarar.
Valsmenn
Fjölmennum í skálann um
helgina. Ferðir frá B.S.R. á
laugardag kl. 2 og 6 og á
sunnudag kl. 10 og 1.
Skíðadeildin.
K.R. knattspymumenn
Æfingar í dag, laugardag,
verða á Háskólavellinum, sem
hér segir:
3. flokkur kl. 3.30.
4. flokkur kl. 4.30.
Munið að mæta al-lir á
Háskólavellinum.
Þjálfarinn.
Glimumenn — Ármann
Aríðandi æfing í kvöld kl. 7.
Fjölmennið.
Stjórn G.G.A.
Víkingar, knattspyrnudeild
Útiæfingar verða fyrst um
sinn sem hér segir:
2. og 1. fl. laugardag kl. 4.
3. fl. laugardag kl. 4.
4. fl. sunnudag kl. 10.30.
5. fl. laugardag kl. 3.
Mætið vel búnir.
Verið með frá byjun.
Stjórnin.
TBR — Valshús
Reykjavíkurmeistaramót I
Badminton hefst kl. 2.30.
Þróttarar, knattspymumenn
Útiæfing á Melavellinum í
dag kl. 2.00 fyrir meistara-,
1. og 2. flokk. Áríðandi að
þeir mæti, sem ætla að vera
með í sumar.
Mætið stundvíslega.
Knattspyrnunefndin.