Morgunblaðið - 23.03.1963, Síða 10

Morgunblaðið - 23.03.1963, Síða 10
M o n C IJ TS n J. A Ð i Ð ILsugardaguf 29. >marf 1983 * anna“ vestan við Kyjar, og til síldarinnar stendur löngum hugur Haraldar. Hann geíur skipun um að sigla suður fyrir Reykjanesið og heldur í átt- ina til Vestmannaeyja. Honum er ekkert að vanbúnaði með veiðarfæri, því nótin, sem hann hefur um borð, er stór- riðin síldarnót. Á leiðinni austur siglir hann grunnt og leitar fiskjar, en verður einskis var. Brátt fara að berast fréttir um að aðrir þorskanótarbátar, sem höfðu verið í Röstinni, hafi kastað á ýsu grunnt út af Stafnesi, þar sé talsverður fiskur og næði til veiða. Upp úr hádeginu ákveð ur Haraldur að snúa við, enda er veður að spillast við Eyjar, og við erum komnir aftur í Röstina laust fyrir klukkan fjögur, -- XXX ---- Ekki má farast hjá að skýra aðeins frá þrettánda skipverj- anum, skipshundinum, sem ber nafnið Depill, en það er engu líkara en að hundar séu orðnir eins algengir á fiskiflotanum og upp til sveita. Depill nýtur greinilega hylli allrar skips- hafnarinnar og stendur að virð ingu til einna næst skipstjór- anum sjálfum, enda veitir Dep ill honum margvíslegar ráð- Haraldur og skömmu síðarr — Látið fara! Nótin rennur út stjórnborðs megin, um leið og báturinn tekur krappa beygju í þá stefnu. Nótin er ekki fyrr komin út en byrjað er að snurpa. Neðri teinninn er dreginn inn á dekk spilinu, og jafnframt er byrj- að að draga saman nótina að ofan og korkteinninn, eins og efri teinninn er kallaður, dreg inn inn á akkerisvindunni uppi á hvalbak og línuspili á dekk inu. Þegar búið er að loka nót inni, er annar endi hennar settur fastur frammi á skip- inu en hinn endinn er dreg- inn inn með kastblökkinni, sem er á bátadekkinu, rétt fyr ir aftan brúarvæng. Eftir að nótin hefur verið dregin inn og hún myndar þröngan poka utan á skipshlið inni, kemur í ljós, að kastið hefur mistekizt, því það eru ekki nema 40—50 þorskar, að vísu vænir, í nótinni. Þegar búið er að háfa úr nótinni er kveikt á fisksjánni aftur og farið að leita að ann- arri torfu. — xxx — Það hefur löngum verið al- mannarómur, að fiskni skip- stjóra og formanna væri að miklu leyti samofin hjátrú þeirra, og hafa verið sagðar ýmsar sögur um mikla fiski- menn, sem skyndilega hafa misst þann hæfileika að geta dregið bein úr sjó. Ekki er mér grunlaust um, að enn á öld tækninnar, þegar ratsjár, fisksjár, miðunartæki og talstöðvar hafa rutt sér til rúms í stýrishúsunum á skip- um fiskiflotans, haldi afla- mennirnir fast við sína hjá- trú, þótt ekki séu þeir marg- málir um hana. Haraldur svaraði því reynd- ar til, þegar við spurðum hann, hvort hann væri ekkert bang- inn við hafa skipshundinn sem þrettánda skipverjann um borð, að hann héldi að hann hefði sízt orðið sér til óheilla. En þess ber líka að gæta, að þótt allur þorri manna líti á töluna 13, sem óhappatölu, eru þeir margir, sem telja hana sína happatölu. Eftir þetta fyrsta kast, þeg- ar straumurinn í Reykjanes- Svona fdr um sjóferð þá Skroppið á þorskanót með m.b. Guðmundi Þórðarsyni Þegar við komum um borð í Guðmund Þórðarson, er Har- aldur Ágústsson, skipstjóri, að fá sér kaffisopa aftur í matsal, og þegar við berum upp við hann erindið, kveðst hann en ekki hafa neitað blaðamönn- um að fljóta með. — Það rifnaði hjá' okkur nótin í dag, en ætli við verð- um ekki búnir að gera við hana um þrjú leytið. Þið getið þá komið hingað. — x x x — Þegar við komum niður á Granda laust fyrir kl. 3, er Haraldur kominn upp í brú, al búinn að leggja úr höfn. Við siglum í kjölfarið á smærri bát út úr höfninni, en strax og við erum komnir út fyrir Sund in, skilja leiðir. Hann stefnir nor'ður undir Jökul, en við suður í Reykjanesröst, þar sem þorskanótarbátarnir hafa und- anfarið fengið feiknamikinn afla. — X X X ----- Um áttaleytið erum við komnir í Röstina, og þar eru þegar fyrir bátar úr Keflavík og Sandgerði — og Reykjavík urbátar og bátar frá Akranesi eru óðum að koma á miðin. Bátarnir sigla fram og til baka, en skipstjórarnir standa í glugga á stýrishúsunum og skima eftir fuglahópum. — Stjórn, segir Haraldur, hægir á vélinni og snýr sér að fisksjánni, sem er komið fyrir á vegg í stýrishúsinu. Hún sýn ir ekkert annað en loðnuna, sem þarna er uppi um allan sjó, en undir henni sést eng- in torfa af stærri fiski, þótt fugl hafi hópað sig yfir. — Hún er farin að drepast, loðnan, og þá lítur þorskur- inn ekki við henni, enda sjálf- sagt búinn að fá nóg undan- farið, segir Haraldur. -- XXX ----- Á tíunda tímanum verður vart við allþykka þorsktorfu á um 30 faðma dýpi. Skip- stjórinn siglir nokkrum sinn- um yfir torfuna og umhverfis hana, unz hann ákveður, hvern ig skuli kasta á hana. — Klárir, segir hann við há- setann, sem er á stýrisvakt, og hann fer og ber boðin um skipið. Skipverjarnir tínast upp á þilfarið og færa sig í galla, og hver tekur sína stöðu. — Út með baujuna, segir Það er verið að draga inn nótina sjálfa a kastblokkinni, og það urgar í henni, því nótin er stór og þung, ekki hvað sízt ef einhver afli er i henni. Fiskurinn er háfaður sprelllifandi úr nótinni og blóðgaður jafnóðum og hann kemur inn á dekkið. í nótinni er iðandi kös af fallegri ýsu og loðnu. röstinni bar hann ofurliði, og eftir' að hafa lónað um mið- in skimandi út á sjóinn og rýn andi á fisksjána — og eftir að hafa borið saman bækur sín- ar við fleiri alkunna afla- menn þarna á miðunum, sendi Haraldur niður í káetu sína eft ir peysu, þótt þá væri heldur að hlýna í veðri með hækkandi sól, og seinna, þegar hann hafði enn lónað órangurslaust um miðin drykklanga stund, dró hann ofan af talstöðinni ljósbleika silkislæðu, sem ekki virtist vera mikið notuð, og hnýtti um háls sér. Sögur um hjátrú íslendinga og hindurvitni hafa flogið yfir höfin að undanförnu, og mörg um þótt miður, en hins mætti einnig minnast, að trúlega hef ur hjátrúin jafnframt lagt fram sinn skerf í þjóðarbú okk ar íslendinga. — xxx — Loks gefst Haraldur upp á leitinni, enda hefur hann þá heyrt ávæning af að nokkrir Eyjabátar hafi fengið stóra og fallega hafsíld „milli Drang- ar honum að skima út á sjóinn, jafnvel úr stól skipstjórans, og fylgjast með ferðum og hátt erni hinna skipverjanna. Auk þess hvílir á honum það starf að halda uppi he^ðri skips ins gagnvart öðrum skipum á miðunum. Þannig kemst eng- inn bátur í geltfæri, svo hann haldi ekki stíft fram hlut síns farkosts, sinnar skipshafnar og aflabragða þeirra, og lætur Depill ekki kveða sig í kútinn í þeirri viðureign. Ekki vantar það heldur, þeg ar mikið liggur við og erfið- lega gengur að draga inn nót- ina, að hann leggi fram aðstoð skolta sinna, auk þess sem hann kemur áleiðis boðum skipstjórans. Depill fer allra sinna ferða um skipið án að- stoðar og lætur ekki hurðir tefja ferðir sínar, heldur bít- ur í húnana og opnar þær þannig, hvort sem þær opn- ast að honum eða frá. Depill er eins og sjá má í miklum metum um borð, enda nýtur hann þess fullkomlega á Framhald á bls. 15. ÞAÐ ER að nálgast miðnætti, þegar við komum að Hafnar- voginni vestur á Grandagarði, til að leita fregna af aflabrögð um. Þó liðið sé langt á kvöldið er enn nóg að gera, eða ef til vill er réttara að segja, að vinn an standi sem hæst. Bátarnir eru sem óðast að koma að landi, bæði neta- og þorska- nótarbátar; aflinn er misjafn, en vigtarmennirnir sjá það gleggst, að safnast þegar sam an kemur. Fáir fylgjast ein vel með aflabrögðum Reykjavíkurbát- anna og vigtarmennirnir 4 Grandagarði, og þegar við spyrjum þá, hvert sé bezt að leita til að komast í sjóferð með þorskanótarbát, ljúka þeir upp einum munni: — Þegar nót er annars veg- ar, er sjálfsagt að fara með Guðmundi Þórðarsyni. Hann liggur hérna úti á Granda núna. — xxx — Haraldur Ágústsson, skipstjóri, var fyrstur manna til að nota kastblökkina hér á landi á bátnum Guðmundi Þórðarsyni. Framan af var hún eingöngu notuð á síld, fyrst á sumarsíld- veiðum fyrir norðan, síðan á vetrarsíldveiðum við Suðurland og nú er að lokum farið að nota hana í allmiklum mæli við þorsk og ýsu veiðar. Þetta hefur því reynzt hinn mesti happagripur, og hér sjást saman, kraftblökkin. Haraldur og farkosturinn. 9 k'J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.