Morgunblaðið - 23.03.1963, Page 12

Morgunblaðið - 23.03.1963, Page 12
12 MORCVNBLAÐ1Ð Laugardágur 23. marz 1963 Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 4.00 eintakió. VALTÝR STEFÁNSSON OG ÍSLENZK BLAÐAMENNSKA l/’altýr Stefánsson var brautryðjandi í íslenzkri blaða- * mennsku. Hann leit á hana stórum augurn og var þess fullviss að hlutverk blaðamannsins í nútíma þjóðfélagi væri í senn auðgandi og ábyrgðarmikið. Hann var sannfærður um, að forsenda góðrar og heilbrigðrar blaðamennsku væri frelsi til orðs og æðis. Hann kappkostaði alla tíð í löngu og fjölþættu starfi sínu að færa okkur heim sanninn um, að hvorugt gæti án annars verið, frelsið og blöðin. Upp úr þess- um akri sannfæringar hans og trúar á yfirburði lýðræðis- Iegrar hugsunar yfir kúgun og ofbeldi hefur sprottið það bezta í íslenzkum blöðum samtíðarinnar. Fyrir brautryðj- andastarf sitt verður Valtýs Stefánssonar ávallt minnzt, þegar þeirra verður getið sem bezt stóðu vörð um frelsi og mannréttindi á íslandi. Þessi trú Valtýs Stefánssonar á arf íslendinga var rtá- fengd starfi hans í þágu íslenzkrar skógræktar og gróður- menningar. Hann var alinn upp við þau orð Jónasar, að dalurinn væri fagur og fylltist skógi, þegar sól nýrrar aldar Ijómaði yfir landinu. — Og hann var sannfærður um, að starf blaðamannsins ætti að renna stoðum undir þá nýju öld framkvæmda og framfara, sem við blasir. Blöðin eiga að vera vopn þjóðarinnar í baráttu hennar að því marki að auka hagsæld og bæta lífsskilyrðin, um þau eiga að leika stormar nýrra hugsjóna, en ekki lognmolla kyrrstöðunnar. I>au eiga að vera skóli, góður skóli. Sú var trú Valtýs. Þegar Valtýr Stefánsson eitt sinn talaði um hlutverl blaðanna, komst hann m.a. svo að orði: „Eins og að líkum Iætur, hef ég oft og einatt hugsað um starf blaðamannsins. í einu fyrsta blaðinu, sem við Jón Kjartansson gáfum út, er fjallað um hlutverk blaðanna, og er ég enn sammála ýmsu því, sem þar segir: „Aðalhlutverk dagblaða er, að greina frá því, sem er að gerast hér og er- lendis, að skýra lesendum sínum sem fljótast og gleggst frá öllum þeim atburðum, er nokkru varða, og þeim straumum í viðskiptum og menningu þjóðanna, er nokkru máli skipta. Og eftir því sem þjóðin er minni og í lífi sínu öllu og viðskiptum háðari umheiminum, eftir því er það nauðsyn- legra að þetta starf sé rækt vel. Þeir, sem hafa haft tækifæri til þess að fylgjast með blaðamennsku landanna síðustu 20 árin, og einkum árin fyrir 1914, þeir bafa bezt getað séð, hvernig hægt er að rekja saman blaðamennskuna og afdrif þjóðanna ... “ Valtýr Stefánsson var þeirrar skoðunar, að þá aðeins gæti blað verið gott, að það væri óháð og lyti engum hús- bónda, nema eigin sannfæringu. Sjálfstæði blaðanna var honum því mikið kappsmál. En samfara þessu sjálfstæði þyrfti að vera rík ábyrgðartilfinning og löngun til að vinna þjóð sinni og landi allt það gagn, sem unnt væri. Með lífi sínu og störfum undirstrikaði hann þessa skoðun sína áblaða- mennskunni og getur engum, sem fylgzt hefur með íslenzku þjóðlífi undanfarna áratugi blandazt hugur um, að það var mikil gæfa fyrir íslenzka blaðamennsku og þjóðina í heild, að Valtýr Stefánsson skyldi hafa þá trú á hlutverki blað- anna, sem raun ber vitni. Hann var í senn brautryðjandi og auðmjúkur þjónn mikilla hugsjóna. í anda hans mun Morg- unblaðið leitast við að halda áfram að þjóna lesendum sín- um og íslenzku þjóðinnL Ræktunar- hugsjónin var grunn- tónninn LÍTILL DRENGUR vakir yfir tún inu norður að Björgum í Hörgár- dal. Stórbýlið og skólasetrið Möðruvellir nytjar þessa litlu jörð. Tún hennar er ógirt svo það verður að gæta þess i gróandan- um. Inni í torfbænum á Björgum er gömul kona að heyja sína síðustu baráttu. Það er hlutverk hins unga vökumanns að líta til með henni á daginn, þar sem hún er ein á bænum. Hann reynir að hlúa að henni og gera henni sitt- hvað til dægrastyttingar meðan hún bíður eftir lausninni. Tæp 50 ár líða. Þá ritar dreng- urinn, sem var sýndur sá trún- aður að vaka yfir túninu og gæta gömlu konunnar, sem lá í bað- stofunni söguna af því „Þegar Guðrún á Björgum dó“. Hann lýs ir því þegar hann kveður hana, tekur varlega í magra hendi henn ar. „Ég gat ekkert sagt, ekkert við mig gert — nema ég hneigði mig“. „Guðrún andaðist um nóttina“. „Næst þegar ég kom að Björg- um stóð Guðrún enn uppi í skál- anum. En þá hvíldi ekki lengur drungi dauðans yfir staðnum. Þá var allt heyskaparfólkið af heima Júninu komið þangað til þess að slá og raka. Þar voru múgar og flekkir. Og það var glaðvært tal röskra verkamanna og kvenna. Þar var líf og fjör um allt. Og skálaþilið var eins og það átti að sér að vera. Þannig gleymast þá þjáningar þeirra, sem eiga bágt, hugsaði ég. Gleymast fyrir öllu pví, sem þarf að gera á vegum lífsins -Það var þó ekki langt. síðan, að einmitt þarna var gömul kona að berjast hljóðlátri baráttu við dauðann. Hún var þarna ennþá inni í skál- anum og beið í kistunni, líkt og hún hafði beðið í rúminu sínu, eftir því að komast niður í kirkju- garðinn. Og þarna hafði líka verið lítill drengur í vandræðum dag eftir dag. Því hann vissi aldrei fyrir víst, nema hann yrði einn í kot- inu og þyrfti að ha.’da í aðra hendina á gömlu konunni, þegar maðurinn með ljáinn tók í hina“. ★ Hversvegna er þessí frásögn nfjuð hér upp? Það er vegna þess að hún bregður upp svo skýrri mynd af höfundi hennar, Valtý Stefáns- syni, sem ritaði þessa bernsku- minningu þegar hann stóð á há- tindi þroskaferils síns. Tvö megineinkenni hins snjalla blaðamanns endurspeglast í þess- ari yfirlætislausu sögu. Annars- vegar hin ríka samúð hans með sögupersónum sínum, djúpur skilningur á baráttu og kjörum lítilmagnans, hinsvegar hin sterku tengsl við gróandi land, ilm úr grasi og skógi, bernsku- slóðirnar fyrir norðan. Hvar sem ég er staddur á hnett- inum er skammt heim í Fagra- skóg, segir Davíð Stefánáson. Valtý Stefánssyni var svipað far- ið. Hvar sem hann fór og að hverju sem hann starfaði leitaði hugur hans norður að Möðruvöll um. Þar mótaðist hans frjói bams hugur og þar auðgaðist ímyndun arafl hans við náttúruskoðun og þjóðsögu. Hann slitnaði aldrei úr tengslum við uppruna sinn. Rækt unarhugsjónin var gmnntónninn í öllu hans lífi og starfi, hvort sem hann ferðaðist um landið og mældi tún og ieiðbeindi um ræktun eða vann á ritstjórnar- skrifstofum og í prentsmiðju. Trú in á landið og næmur skilningur á „öllu því, sem þarf að gera á 1 vegum lífsins“ var leiðarljós hans á erilsamri ævi og í stórbrotnu starfi. ★ Valtýr Stefánsson fæddist að Möðruvöllum í Hörgárdal 26. janúar 1893. Var hann því rúm- lega sjötugur að aldri er hann lézt 16. marz sl. Foreldrar hans voru Stefán Stefánsson, skóia- meistari frá Heiði í Gönguskörð um og kona hans Steinunn Frí- mannsdóttir frá Helgavatni í Vatnsdal. Stefán skálameistari var hið mesta glæsimenni, gáfað ur og fjölfróður náttúruskoðari, grasafræðingur og frábær kenn- ari. Foreldrar hans Stefán Stefáns son á Heiði og Guðrún Sigurðar- Valtýr Stefánsson stúdent dóttir' Guðmundssonar skálds voru einnig stórvel gefið fólk. Dvöldu þau langdvölum á Möðruvöllum á hinum efstu ár- um sínum. Höfðu samvistirnar við þau mikil áhrif á sonarson þeirra. Frú Steinunn Frímannsdóttir stýrði fjölmennu heimili sínu og manns síns af skörungsskap og glæsibrag. Skólaæskan á Möðru- völlum og síðar heimavist gagn- fræðaskólans eftir að skóiinn fluttist til Akureyrar upp úr brun anum 1902 gaf þessu heimili sér- stæðan og þróttmikinn svip. Þar ríkti gleði æskunnar en jafnframt alvara mikillar vinnu við nám og kennslustörf. Þangað komu bænd ur og menntamenn, þar var mið- stöð menningar- og félagslífs. Á- hrif hins norðlenzka skóla, arf- taka hins forna Hólaskóla náðu um land allt. í þessu umhverfi, fyrst á Möðru völlum en síðan á Akureyri ólst Valtýr Stefánsson upp. Hin fagri og gróðursæli Hörgárdalur tók hann ungan í faðm sinn, fræddi hann um grös sín og gróður undir handleiðslu hins ágæta skóla- manns og grasafræðings Að ioknu gagnfræðanámi á Akureyrj hóf Valtýr nám í Menntaskólanum í Reykjavík og lauk þar stúdents- prófi rúmiega 18 ára gamgll. Hugði hann þá á búnaðarnám er- lendis en fór fyrst í bændaskól- ann á Hólum og stundaði nám þar árið 1911—1912 til þess að búa sig undir framhaldsnám í búnaðar- fræðum. Síðan sigldi hann til Kaupmannahafnar og hóf nám við Landbúnaðarháskólann. Lauk hann heimspekiprófi árið 1913 en kandidatsprófi í búnaðarfræðum árið 1914. Síðan stundaði hann framhalds nám við Landbúnaðarháskólann árin 1915 til 1917 og vann þá einn ig við jarðabótadeild danska Heiðafélagsins frá árslokum 1917 til loka ársins 1918. ★ Valtýr Stefánsson stefndi þann- ig í öllu námi sínu rakleitt að lífs starfi í þágu íslenzks landbúnað ar. Að því hnigu í senn uppruni hans, uppeldi og hugsjónir. Hann kom heim fullur af áhuga á bætt um búnaðarháttum, aukinni rækt un, bættum húsakynnum og efna- hagslegri viðreisn landbúnaðar- ins. Gerðist hann nú um skeið sýslubúfræðingur í Skagafirði, en árin 1920—1923 var hann ráðu- nautur Búnaðarfélags íslands. Ferðaðist hann þá um mestan hluta landsins og öðlaðist víð- tæka þekkingu á öllum búnaðar- og landsháttum. Kom sú þekking honum að ómetanlegu gagni I blaðamennskunni síðar. Arin 1923 til 1925 var hann ritstjóri og með útgefandi búnaðarblaðsins ,Freys* og braut þar upp á ýmsum nýung um, sem voru bændum og land- búnaðinum gagnlegar. Þegar Valtýr Stefánsson hóf störf sín í þágu íslenzks land- búnaðar mótaðist barátta hans og leiðbeiningarstarfsemi af eldleg- um áhuga fyrir umbótum og framförum í sveitum landsins. Þótti sumum hann jafnvel fara of geyst er hann boðaði hið nýja landnám og möguleikana í ís- lenzkum sveitum. Einu sinni hafði hann flutt búnaðarerindi í norð lenzkri sveit fyrir ailmörgum bændum. Þótti sumum þeirra framtíðin máluð nokkuð björt- um litum í ræðu hins unga og lítl • reynda háskólamanns. Varð einum þeirra þá að orðií „Hann ætti að vita, hvernig það er að verða heylaus, matar- laus og taðlaus“. Svona stutt er í fátæktina og umkomuleysið á íslandi. En það var einmitt á hendur þessu umkomuleysi, >sem hinn ungi búfræðingur hafði lýst yfir stríði. Einn þátturinn í ræktunar störfum Valtýs Stefánssonar var barátta hans fyrir skógrækt á ís- landi. Skógræktin var ein stærsta hpgsjón hans. Fyrir henni barð- ist hann af eldlegum áhuga og móði, sem jaðraði við ofurkapp. ★ Rétt eftir þrítugsaldur verða þáttaskil í lífi Valtýs Stefánsson ar. Hann gengur blaðamennsk- unni á hönd. Fyrsta apríl 1924 tek ur hann víð ritstjórn Morgun- blaðsins með Jóni KjartanssynL Því starfi gegndi hann í tæp 40 ár. Morgunblaðið er hið mikla lífs verk Valtýs Stefánssonar. Hann gekk að uppbyggingu þess með ótrúlegum dugnaði og hug- kvæmni. Hann var vinnuharður við sjállfan sig og hlífði sér hvergi. Þessvegna hefur hann sennilega enzt verr en skyldL Næturvökur og lýjandi ferðalög voru daglegt brauð. Morgunblað ið skyldi verða fullkomið og gott fréttablað, aflvaki á sviði menn ingar og lista, brunnur fróðleiks og fræðslu. í baráttunni að þessu takmarkl vann Valtýr Stefánsson eins og hamhleypa meðan honum entist heilsa. Og engum er gert rangt tii þótt það sé fullyrt, að hann hafi með þrotlausri vinnu, hugkvæmni og áræði átt langmestan þáttinn í uppbyggingu og útbreiðslu b’.aða ins á ritstjórnartímabili sínu. Hann hóf útgáfu Lesbókar MbL árið 1925 og vann stöðugt að stækkun blaðsins og aukinni fjöl breytni þess. Það var honum mikil gleðl- stund þegar Mbl. flutti í ný og glæsileg húsakynni vorið 1956, enda þótt starfskraftar hana væru þá þverrandi. Valtýr Stefánsson gerði miklar kröfur til blaðamanna sinna. En hann var þeim ljúfur og góður yiirboðari, oft eins og bezti faðir, sem fylgdist með þroska þeirra og persónulegum hag af við- kvæmri umhyggju. Þessvegna þótti þeim öllum vænt um hann, og báru fyrir honum virðingu. Valtý Stefánssyni voru falin fjölmörg trúnaðarstörf í þágu Framh. á bls. 14

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.