Morgunblaðið - 23.03.1963, Page 24
SUPUR
69. tbl. — Laugardagfur 23. marz 1963
Formaður danska sjómannasamLandsins segir:
Korkeinangruð skip
eru púðurfunnur
Rætt vii> Hjálmar Bárðarson,
skipaskoðunarstjóra
DÖNSKU blöffin hafa skrifað mik
ið um brunann í Gullfossi og
sum haldið bví fram, að kork-
einangrun, eins og er í kælilest
skipsins, sé hættuleg.
Árhúsablaðið Demokraten hef
ur það eftir formanni danska
sjómannasambandsins, Svend
From Andersen, að korkeinangr
uð skip séu beinlínis púðurtunn
ur og mikil hætta í vændum
brjótist út eldur í slíkri einangr
un á hafi úti.
Annars brennur korkur ekki
auðveldlega, en hins vegar er erf
itt að slökkva eld í honum eins
og allri einangrun yfirleitt. Kork
ur er algengur í kælilestum, en
sjaldgæft er að þar komi upp
eldur, nema bá helzt í farmi,
sagði skipaskoðunarstjóri.
Hann sagði ennfremur, að þeg
ar Gullfoss var bygigður hafi
ekki veriö um aðra einangrun að
ræða en kork. Hins vegar hafi
engir gert ráð fyrir því, að
kveikt yrði í 50 tonnum af Olíu
undir- skipinu. Ekki sé hægt að
reikna með slíku. Öll einangrun
arefni hefðu látið undan slíku
báli.
Það hefur sýnt siig, að korkur
inn kemur alltaf aftur og aftur,
þó aðrar einangrunartegundir
hafi verið reyndar í skipum,
sagði Hjálmar Bárðarson.
Frumvarp rikisstjórnarinnar um
Hefur blaðið það eftir for-
manninum, að sambandið muni
leggja til að korkeinangrun verði
bönnuð í skipum.
Talsmaður danska skipaeftir-
litsins hefur skýrt frá því, að
mjög algengt sé að korkur sé
notaður sem einanigrunarefni í
skipum, en hins vegar sé hægt
að nota ýmis önnur efni, t.d. ýms
ar tegundir af plasti.
Morgunblaðið hefur snúið sér
til Hjálmars Bárðarsonar, skipa
skoðunarstjóra, og leitað álits
hans á þessu máli.
Hjálmar sagði, að korkur sé
algengur sem einangruharefni í
íslenzkum skipum. Hér ha." ver
ið reynd ýmis önnur efni til ein
angrunar t.d. ýmis plastefni og
steinull. Plastefriin hafi hins veg
ar reynzt misjafnlega, sum séu
ekki hættuleg, en dragi til sín
raka og bleytu og því slæm
fyrir fiskiskip. önnur séu hins
vegar eldfim.
Steinull er ekki eldfim, sagði
skipaskoðunarstjóri en hún dreg
ur mjög til sín raka og hefur
ýmsa aðra ókosti. Reynt hafi ver
ið að húða steinull með asfalti
til varnar rakanum, en þá sé
eldhættan aftur til staðar.
☆ ■ ■
ÍSLENDINGUBINN Guðmund
ur Helgason var meðal þeirra
sem björguðust af norska skip-
inu Höegh-Aronde undan
strönd Marokko aðfaranótt sl.
fimmtudags, eins og skýrt var
frá í blaðinu í gær.
Guðmundur er Keflvíking-
ur, sonur Helga Kristinssonar
stofnun Tækni-
skóla Islands
RÍKTSST J ÓRNIN hefur lagt
fram á Alþingi frumvarp um
stofnun Tækniskóla ísilands, en
markmið hans skal vera það að
veita nemendum tæknilega og
almenna menntun, sem gerir þá
hæfa til að takast sjálfstætt á
hendur tæknileg störf og ábyrgð-
arstöður í þágu. þjóðarinnar.
Námstími er þrjú ár og skulu
deildirnar vera þessar: Rafmagns
deild, véladeild, byggingadeild,
fiskideild óg Vélstjóraskóli. Heim
ilt er að stofnun skólans fari
fram í áföngum.
Stofnun tækniskóla tímabær.
í athugasemdum við frumvarp-
ið segir m.a. :
„Nefndin telur, að fyrir lig'gi
tvær grundvallarstaðreyndir,
sem sanni betur en annað nauð-
synina á því að stofna þennan
skóla. Önnur er sú, að atvinnu-
vegina vantar í sívaxandi mœli
tæknimenntað fólk, hin er sú,
að þörf unglinga á aukinni og
fjölbreyttari menntun er stöðugt
vaxandi. Af þessum staðreyndum
verður dregin sú ályktun, að
tímabært sé nú að koma -hét
upp tækniskóla, sem leysi úr
þessum þjóðfélagsþörfum. Þessar
staðreyndir, athugaðar hvor um
sig og báðar í sameiningu, sýna,
að þörfin á stofnun tækniskóla
er svo mikil, að dráttur á stofn-
un hans mundi verða til alvar-
legrar hindrunar á tæknilegri
og fjárhaglegri þróun þjóðfélags-
ins. Einn alvarlegasti gallinn á
hinu íslenzka skólakerfi er ein-
mitt fólginn í því, hversu einhliða
fræðslan er, það vantar einn þýð-
ingarmesta þáttinn í nútima
framíhaldsnám, tækninámið.
Frumvarpið er samið af nefnd
er Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra skipaði háustið
1961, en í henni áttu sæti: Ás-
geir Pétursson, deildarstjóri í
menntamálaráðuneytinu, formað
ur, Gunnar Bjarnason, skóla-
stjóri Vélstjóraskólans og próf-
essor Finnbogi R. Þorvaldsson.
Guðmundur Helgasonar
Guðmundur HeBgason í
þriðja skipti skipreika
og Inger Nilsen, sem þar búa.
Hann fór í siglingar í fyrsta
skipti árið 1941, 16 ára gamall.
Var hann þá á norska skipinu
To’-denskjold. Hefur hann
rerið í siglingum alltaf síðan,
aðeins komið tvisvar sinnum
heim, en festi hér ekki yndi
og fór aftur í siglingar.
Þetta mun vera í þriðja
skiptið sem Guðmundur lend
ir í skipreika, því á stríðsár-
unum var tvisvar sinnum
sökkt skipum sem hann var á,
en hann hjargaðist.
Árið 1961 fór hann á skipið
Höegh-Aronde frá Bergen, en
það hefur mest verið í Afríku-
siglingum og var það enn þeg
ar það fórst á fimmtudag.
í gær fengu foreldrar Guð-
mundar skeyti frá útgerðar-
félaginu A/S Ocean Trans-
port í Bergen, þar sem skýrt
var frá því að Guðmundur
hefði bjargast. Hann mun
vera einn þeirra 14 manna,
sem björguðust af skipinu, en
annarra 14 er enn saknað.
f FYRRINÓTT tók varðskipið
Óðinn brezka togarann Carlisle
frá Grimsby að ólöglegum veið
um 1,1 sjómílu inni í einu frið
aða hólfinu út af Faxaflóa, en
3 sjómílur iiyian 12 mílna mark
anna. Var skipstjóri togarans
tekinn til yfirheyrzlu um horð
í Óðin, en var hinn hortugasti.
Meðan yfirheyrslan stóð yfir
versnaði mjög veðrið en þarna
var suðaustan rok, svo að Óð-
inn varð að fara með togarann
um 30 mílna leið nörður á Skarðs
vík, til að koma skipstjóranum
aftur um borð.
Óðinn kom með toigarann- til
Reykjavíkur kl. 3 í gær, og í
dag eiga að hefjast réttarhöld í
máli hans. Þórarinn Björnsson,
skipherra á Óðni, og aðrir af
skipshöfninni koma í land til að
geta verið við réttarhöldin, en
á meðan verður önnur skips-
höfn flutt yfir á Óðin.
Vísitalan
KAUPbA GSNEFND hefur reikn
að vísitölu framfærslukostnaðar
í byrjun marzmánaðar 1963 oig
reyndist hún vera 129 stig eða 1
stigi hærri en í febrúarbyrjun
1963.
Brezki háset
inn faldi sig
meðan leitað var
O’FLAGHERTY, brezki háset-
inn, sem saknað var af togaran-
um Maohbeth, er fundinn. Hafði
honum litizt vel á sig á Islandi
og ætlaði að fela sig þangað til
togarinn væri farinn, gefa sig
þá fram og fá atvinnu og dval-
arleyfi.
í gærmorgun var froskmaður
látinn leita í höfninni, þar sem
togarinn hafði legið, og síðdegis
var áformað að slæða höfnina.
En þá hringdi maður til brezka
sendiráðsins og sagði að maður-
inn væri á lífi og ekki þyrfti
að leita dauðaleit að honum. En
hann hafði lofað sjómanninum
að segja ekki til hans og gerði
ekki.
Vill hann ekki strokumanninn,
sem verður því sennilega sendur
utan við fyrsta tækifæri.
Líkams-
árás
RÁÐIZT var á drukkinn mann
um kl. 4 í fyrrinótt í Austur-
stræti. Kom hann allblóðugur
Útlendingaeftirlitið hafði svo
upp á manninum „eftir króka-
leiðum“, eins og Jón Sigurpáls-
son orðaði það í viðtali við blað-
ið. Var pilturinn á Hverfisgötu
hjá brezkum og dönskum piltum.
En situr nú í Steininum á Skóla-
vörðustíg.
Nýir menn frá Englandi.
Skipstjórinn á togaranum var
búinn að gera ráðstafanir til að
fá 2—3 menn frá Englandi, því
auk þess sem einn háseta vant-
aði, voru aðrir með influenzu,
og koma nýju mennirnir í dag.
inn á lögraglustöð og kærði verkn
aðinn og kvaðst hafa verið bar-
inn í götuna.
Lögreglan fór & staðinn, en
varð ekki vör við neitt grunsam
legt. Maðurinn vissi ekki hver
hafði ráðizt á hann og var flutt
ur á Slysavarðstofunar, þar sem
gert var að áverkum hans.
Málið er enn I rannsókn, en
lögreglan hefur fengið upplýs-
ingar um mann, sem vai á ferli
í Austurstræti um þetta leyti,
sem er talinn liklegur til að hafa
framið verkinaðinn.
S/álfstœðisfólk!
munið Varðarkaffið í Valhöll
í dag kl. 3—5 e.h.