Morgunblaðið - 04.04.1963, Side 3

Morgunblaðið - 04.04.1963, Side 3
3 í.'í'SÍ'í’ Fimmtudagur 4. apríl 1963 Si- i i- i ‘H f, -r' "j ,,!i :?:j ’H MORCVNBL4ÐIÐ VIÐ ERUM staddir 1 hinni rúmgóðu og vistlegu skrifstofu Vilhjálms Þ. Gíslasonar, út- varpsstjóra í Fiskifélags- húsinu við Skúlagötu Oig horfum út yfir sundin á Akra- fjall og Esjuua, sem standa að hálfu niður undan skýjahett- unum, sem hvíla þunglama- lega á þ-eim. Á götunni langt fyrir neðan sp'.gspora nokkrir rónar letilega, — entla er mol'luiveður og gróðrarilmur í lofti, næstum vorlegt, þótt enn sé marz. — Við erum stundum í hálí- gerðum vandræðum með róna greyin, segir Viihjálmur. Þeg- ar vont er veður, leita þeir hérna inn í anddyrið. í dag væsir ekki um þá. Auk Vilhjálms er þarna staddur Pétur Sigurðsson, fyrr verandi háskólaritaæi, en nú eru iiðin 40 ár síðan þeir fél- agar luku fyrstir manna meistaraprófi 1 norrænum fræðum frá Háskóla íslands. — Að hugsa sér hvað það er lahgt síðan við vorum í Menntaskólanum, Pétur, segir Vilhjáknur. Ég man vel eftir því, þegar Steingrímur Thor- steinsson, sem þá var rektor, var að segja föður rnínum frá Pétur Sigurðsson og Vilhjálmur Þ. Gíslason glugga saman í bók í skrifstofu Vilhjálms. Á veggnum fyrir aftan hangir málverkið Útvarp eftir Kjarval. Þeir gengu um í með harðan hatt og staf ir menn, einkum stúdentar, verzlunarmenn og kontóristar voru pjattaðir, segir Vilhjálm ur. Mitt fyrsta verk eftir stúdentsprófið var að fá mér sj akket, harðan hatt, staf og hanzka. — Þessi sjafeket-öld hófst í stríðinu, segir Pétur. Þegar ég kom heim frá Kaupmanna- höfn skipaði pabbi mér strax að fá mér sjakket. Allir mín- ir bekkjabræður áttu sjakk- et, og hann sagði, að ég gæti ekki verið þekktur fyrir að ganga öðruvísi kiæddur. Mér rennur til rifja að sjá, hvern- ig stúdentarnir eru til fara nú orðið. — Hvernig voru kennararn ir ykkiar? — Þeir voru lærðir og ágæt- ir menn og hjálpsamir við nemendur sína. — Var námsefni til meistara prófs í norrænum fræðum líikt því, sem nú gerist? — Já, ég held að það sé mjög svipað, segir Vilhjélmur nema hvað við þurftum að skila prófritgerðinni á 6 vik- um. Ég man gerla hvenær við fengum verkefnið í hendur. Það var 16. september 1922. Ég fékk það nefnilega í af- mælisgjöf. — Hvaða verkefni fenguð þér? — Áhrif uppfræðingarstefn unnar á Fjölnismenn og starfi semi þeirra. — En hvert var yðar verk- efni, Pétur? — Hlutur Sturlu Þórðar- sonar í Sturlungasögu og helztu einkenni sagnaritunar hans. —Og það er enniþá hlezta grundvallarrit um það efni, segir Vilhjálmur. — Svo þurftum við að balda fyrirlestra í heyranda hljóði, segir Pétur, Vilhjálmur um aldur Eddukvæðanna, en ég um Vísnabók Guðbrands bisk ups. — Sótti fólk fyrirlestrana „pereatinu“, en hann var sjálf ur einn höfuðpauranna í því. Hann sagði ýmislegt um af- stöðu fólfcs, einkum foreldra skólapilta, til pereatsins. Fjöl- skyldurnar og Stiftyfirvöldin stóðu með strákunum á móti Sveinbirni. — Eruð þið samstúdentar? spyr ég. — Nei, Pétur varð stúdent 1914, en ég 1917, svarar Vil- hjálmur. Pétur var hins veg- ar fjóra vetur í Kaupmanna- höfn hjá Finni Jónssyni. Aðils dó tók Páll Eggert Oiars son við af honum. — Hvernig fór um ykkur þarna í Alþingishúsinu? — Það var þröngt, segir Vil'hjálmur, en ósköp rólegt. Við kunnum vel við okkur í suðurstofunni, sem snýr út að garðinum. — Svo var stundum verið að spila lander í kompunni fyrir framan, skýtur Pétur inn. Við spiluðum upp á kringlur. Þá voru sumarþing, svo að við vorum einir í hús- stúdentafundir, og í „Mensa academica“ fór fyrsta rússa- gildið fram. — Settu stúdentar ekki tals- verðan svip á bæjarlífið á þess um árum? —Jú, en einna helzta ein- kenni þessa tírna er, hvað ung vel? —Já, það var húsfyllir á báðum. — Komuð þið upp í nokkru ólesnu? — Nei, það var ebki verið að fara í neina skanka af efn- inu, heldur það, sem máli skipti, segir Pétur. Ö Fara utan til að unriir — Fjóra vetur alls, segir Pétur, en ekki þó óslitið, sem betur fer. Það hefði verið öm- urlegt að liggja úti í Höfn í spönsku veikinni 1918. — Voruð þið fyrstu nem- endur norrænudeildarinnar? — Nei, þegar hún var stofn uð 1911 komu hingað tveir Norðmenn og var annar hér í eitt ár, hinn í tvö. 1913 inn- ritaðist Geir Einarsson frá Bofig í deildina, en dó skömmu síðar. Voru siðan engir nem- endur í norrænu fram til 1917. Allan þann tíma voru þó haldn ir fyrirlestrar, sem almenning- ur sótti. — Svo byrjuðuð þið 1917. — Já, og ári seinna bætt- ust við Anna Bjarnadóttir, síðar prestkona í Reykholti, og Stefán Einarsson. Prófess- orarnir í deildinni, þegar við byrjuðum, voru Sigurður Nor- dal og Jón Aðils, en Björn M. Ólsen hafði veikzt um haustið. Einnig kenndu þeir Alexander Jóhannesson, Hol- ger Wiehe, sendikennari í dönsku og Bjarni frá Vogi, sem kenndi okkur miðalda- latínu. Jakob J. Smári flutti litoa fyrirlestra um setninga- fræði einn vetur. Eftir að Jón ínu. — Árið 1918 var þing um veturinn, — 180 daga þingið, segir Vúhjálmur. Þá krafðist þingforseti þess, að stúdentarn ir tækju ofan fyrir þingmönn- um. — Við. vorum þingskrifarar þá, Vilhjálmur og ég, segir Pétur. Við gegndum því starfi oft og þótti gaman að. Þar kynntumst við mörgum merk- um mönnum. ■— Hvað voru margir í Há- skólanum á þessum árum? — Um það bil hundrað nem- endur. — Var námið yfirleitt vel stundað? — Já, ég held að óhætt sé að fullyrða það, segir Vil- hjálmur. Þó voru miklar frá- tafir og öflugt félagslif. Við höfðum stúdentafélag, mál- íundafélag norrænt súdenta- félag o.fl. Svo var stúdenta- ráð stofnað árið 1920, og var -ég fyrsti formaður þess. — Hvar fór félagsstarfsem- in fram? — Að mestu í Alþingishús- inu, en oft var líka komið sam an í „Mens’a academica" í Lækjargötu. Þar borðuðu margir, bæði stúdentar og aðr- ir. Stundum voru haldnir þar búa Færeyiaflugið FLUGFÉLAGI fslands hefur nú borizt orðsending frá dönskum stjórnarvöldum og er hún sama eðlis og fréttir þær, sem birtar voru í blöðunum ekki alls fyrir löngu. Danir munu með öðrum orðum veita Flugfélaginu leyfi til að fljúga milli Þórshafnar og Kaupmannahafnar, þ.e.a.s. þegar nauðsynlegum öryggisútbúnaði hefur verið komið fyrir á flug- vellinum í Færeyjum. Ekki er ljóst hve langan tíma það tekur Dani að koma þessum tækjum fyrir og gera aðrar þær endur- bætur, sem þeir telja nauðsyn- legar — og er því enn ekki end- anlega ákveðið hvenær farið verður í fyrsta Færeyjaflugið. í morgun fór sendinefnd frá Flug- félaginu utan, til Kaupmanna- hafnar, til þess að ræða við dönsk flugmálayfirvöld um framkvæmd málsins og kynna sér betur það, sem Danir hyggjast endurbæta í Færeyjum áður en flugferðir verða hafnar. Fundur íslending- anna og Dana ytra verður á föstudaginn. Kammerhljóm- leikar í kvöld Kammermúsikklúbburinn held ur 4. tónleika sína á þessu starfs- ári í samkomusal Melaskólans í kvöld kl. 9. Leikinn verður strengjakvartett í D-dúr K499 eftir 'Mozart og strengjakvartett í C-moll, op. 18, nr. 4 eftir Beet- hoven. Næstu tónleikar verða í maí og verður þá m.a. fluttur einn Brandenborgarkonsert eftir J. S. Baoh. Síðustu tónleikar starfsiársins verða svo um miðjan júní og munu þá Kristinn Hallsson og Árni Kristjánsson flytja ljóða- fiokkinn „Sohwanengesang“ eft- ir Schubei't. Meðlimir eru um 160 og er hægt að bæta við enn. — Klúbb- urinn var stofnaður 1957. STAK8TEIIVAR Deilt um rík ‘sábyrgðil Nokkrar umræður hafa orðið á Alþingi í þessari viku um rík- isábyrgðir. Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, hefur tekið upp þá sjálfsögu stefnu, að reyna að koma reglu á ábyrgðar- skuldbindingar ríkissjóðs. Fram- sóknarmenn og kommúnistar hafa hins vegar talið það sýna fjandskap Viðreisnarstjórnariivn- ax við uppbyggingu og framfar- ir í landinu, að hún hefur reynt að tryggja hag ríkissjóðs betur en áður hefur verið gert. Hér í blaðinu í gær var sagt frá ræðu fjármálaráðherra um þetta mál á Aiþingi, en þar komst hann m.a. að orði á þessa leið: „Núverandi ríkisstjórn er að sjálfsögðu á þeirri skoðun, að nauðsynlegt sé að styðja upp- bygginguna í landinu, bæði sveitarfélaga og einstaklinga, með ríkisábyrgðum, enda hafa margar ábyrgðir verið veittar í tíð núverandi ríkisstjórnar, ekki sízt til framkvæmda í hinni strjálu byggð. En hins vegar að kanna eigi möguleikana til að standa í skilum. Ef þeir eru litlir sem engir, verður að koma framkvæmdunum á með bein- um styrkjum. En að blekkja sig og aðra, þótt augljóst sé að ekki verði staðið í skilum, er siðspill- andi í fjármálum og verður að uppræta“. Undarleg tilkynning Fyrir um það bil einum mán- uði síðan skýrði blað kommún- ista á Siglufirði frá því, að Ragn- ar Arnalds mundi verða efsti maður á framboðslista kommún- ista í Norðurlandskjördæmi vestra. Síðan hefur hvorki heyrzt meira um þennan framboðslista kommúnista né aðra. Finnst mörgum fyrir norðan það ein- kennilegt, að kommúnistablaðið á Siglufirði skuli skýra frá fram boði eins manns á væntanlegum lista flokksins, en síðan skuli ekkert gerast um sköpun hans. Fyrir norðan er þetta talin enn ein sönnun fyrir þeim glund- roða og upplausn, sem ríkir í röðum kommúnista. Eins og kunnugt er stórtöpuðu kommún- istar fylgi á Siglufirði í síðustu bæjarstjómarkosningum. Em engar líkur taldar til þess að þeim takist að rétta hlut sinn í alþingiskosningunum I sumar. Áburður og sement lækkar Það eru vissulega gleðiieg tíð- indi, að verð á tilbúnum áburði og sementi skuli nú lækka. Er það enn einn árangur þeirrar jafnvægisstefnu, sem Viðreisn- arstjórnin hefur markað í efna- hagsmálum landsmanna. Því miður hefur andstaðan gegn jafnvægisstefnunni verið svo hörð af hálfu stjórnarandstöð- unnar, Framsóknarmanna og kommúnista, að hún hefur ekki að öllu leyti náð þeim árangri, sem að var stefnt. Þess vegna hafa hækkanir orðið á ýmsum sviðum, og afkomu bjargræðis- veganna verið stefnt í nokkra hættu. En fleiri og fleiri íslendingum verður það stöðugt ljóst, að raun hæfasta kjarabótastefnan er fólg- in í því að tryggja heilbrigðan grundvöll atvinnulífsins, fast og öruggt gengi íslenzkrar krónu og vaxandi þjóðarframleiðslu. í baráttunni að þessu taikmarfki hefur Viðreisnarstjórninni orðið mikið ágengt. Þess vegna ríkir í dag meiri velmegun á íslandi en nokkru sinni fyrr. En því að- eins tekst að tryggja áframhald þeirrar velmegunar, að þjóðin standi trúan vörð um jafnvægis- stefnuna og komi í veg fyrir það, að óargadýri verðbólgunn- ar verði að nýju hleypt laus- beizluðu á almenning.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.