Morgunblaðið - 26.05.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.05.1963, Blaðsíða 2
r MÖRCVN B14»1B r Sunnuctagur 26. maí 1963 Bidault vill komast til V-Þýzkalands, en fær ekki dvalarleyfi þar Bonn, 21. maí — AP. V-ÞÝZKA stjórnin hefur hafnað beiðni Georges Bidault, fyrrver- andi forsætisráðherra Frakka, þess efnis, að hann fái að setjast að í V-Þýzkalandi. Frá þessu skýrði talsmaður innanrikisráðu- ney tisins í Bonn í dag. Talsmaðurinn lýsti því yfir, að beiðni Bidault hefði borizt fyrir miUigöngu fransks blaðamanns, sem nú vinnur í Miinchen. Svo sem skýrt hefur verið frá í fréttum, hélt Bidault frá V- Þýzkalandi fyrir tveimur mánuð- um. Þá hafði hann þegar beiðzt þess, að honum yrði veitt hæli Frh. á bls. 23 Mynd tekin við mannhatursmú r kommúnista í Berlínarborg. — Skuggar af veifandi fóiki við Wildenbruchstrasse í NeuköUn. „Smánarveggurinn" Bæklingur um Berlínarmúrinn NÝLEGA er kominn út bækling- ur um múrinn, sem austur-þýzk- ir kommúnistar á hemámssvæði Sovétríkjanna í Berlín létu reisa um borgina miðja í ágústmánuði 1961, — ekki til varnar innrás, heldur útrás, þ.e.a.s. til þess að koma í veg fyrix flótta lands- manna vestur til frelsisins. Bækl ingurinn heitir „SMÁNARVEGG URINN“, og útgefandi er „Sam tök um vestræna samvinnu“. „Smánarveggurinn" inniheldur ummæli stjórnmálamanna og annarra þekktra manna ýmissa þjóða um múrvegginn í Berlín. Má þar m.a. nefna þessa menn: Lyndon B. Johnson, varaforseti Bandaríkjanna; Omer Becu, fram kvæmdastjóri Alþjóðasambands írjálsra verkalýðsfélaga; Nicolas Nabokov, framkvæmdastjóra „Frjálsrar menningar", Raymond Aron; Salvador de Madariaga; J. Robert Oppenheimer; Eguene W. Rostow; Denis de Rougemont; Igriazio Silone; Attlee lávarð; W. H. Auden skáld; Randolph Churchill; Cyril Connolly, Ed- ward Crankshaw; C. A. R. Cross- land; Violet Bonham Carter; Con stantine Fitzgibbon; Dingle Foot; John Gielgud; Joe Grimond; Se- bastian Haffner; Rayer Heppen- stail; Julian Huxley, John Leh- mann; C. S. Lewis; Riehard Löw- enthal; John Mander; Christop- her Mayhew; Malcolm Mugger- ridge; Harold Nioholson; Leonard Schapiro; Stephen Spender; John Stratchey; Hugh Trevor-Roper; John Wain, C. V. Wedgwood; Rebecca West; Angus Wilson; Hubert Humphrey senator frá Minnesota; Luther B. Hodges, við skiptamálaráðherra Bandaríkj- anna; Giuseppe Caron, varafor- seti Efnahagsfoandalags Evrópu; Gagliardone yfirborgarstjóri As- unciós, höfuðborgar Paraguays; Lucius D. Clay; Home lávarður; John J. McCloy; Hugh T. N. Gaitskell; Henry Cravatte frá Lúxembúrg, forseti Evrópuráðs- ins; Paul Reynaud; dr. Joseph Luns, utanríkisráðherra Hol- lands; Robert F. Kennedy; dr. Ali Amini (forsætisráðherra Per- síu) og Maxwell D. Taylor. Ummæli átta íslendinga um Berlínarmúrinn eru birt í „Smán arveggnum". Þeir eru: Gylfi Þ. Gíslason, Kristinn Ármannsson, Ragnhildur Helgadóttir, Ingvar Gíslason, Einar Benediktsson, Benedikt S. Gröndal, Eyjólfur Konráð Jónsson og Ragnar Emils son. Um fimmtíu myndir eru í bækl ingnum. Honum er dreift víðs vegar um land. Hann liggur frammi í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. Áður hafa „Samtök um vest- ræna samvinnu' gefið út bókina „Berlínardeilan". Þar er saga deil unnar rakin ýtarlega og fylgi- skjöl birt í íslenzkri þýðingu. HÖFRUN&AHLAUPSSTEFNANI N 9. Júnúú Nú er bdra spurmnqin: Veriur greinin 238, \ x ; 382 eÖ3L 328, þeyar þeir koma / mark og þversummdh er þó al/taf 73 Sovétríkin vilja atómvopn frá IViiðjarðarhafi — orðsendingin talin gefin út vegna fundar NATO-rdðherra í Ottawa London, Washington, 21. maí AP/NTB Sovétríkin hafa sent stjóm- um Bandaríkjanna, Bretlands ísraels og Sýrlands orðsend- ingu. Þar er lögð á það á- herzla, að framvegis verði ekki höfð kjamorkuvopn í Iöndunum við Miðjarðarhafið í orðsendingunni er því komið á framfæri, hvort ekki sé fyrir því möguleiki, að haf izt verði handa um afvopnun á þessu svæði. Þótt efni orðsendingarinnar hafi hvergi verið birt í heild, þá er haft eftir áreiðanlegum heimildum í London í dag, að sennilega sé hér um að ræða áróðursbragð Sovétstjórnar- innar, vegna ráðherrafundar NATO í Ottawa, sem hefst á morgun. Þar verður fjallað um kjarnorkuher bandalags- ins. í London er skýrt frá því, a8 Sovétríkin hafi lagt fram mót- mæli gegn þvl, að kafbátar, bún- ir Polaris-eldflaugum, skuli nú vera á Miðjarðarhafi. Ummæli opinberra talsmanna í Washington eru á þann veg, að orðsending Sovétríkjanna sé á engan hátt mótmæli, heldur sé hér aðeins um að ræða uppá- stungu, þess efnis, að löndin við Miðjarðarhaf verði ekki búin kj arnorkuvopnum. Stjórnir þeirra landa, sem orð- sendingarnar hafa fengið, hafa ekki viljað ræða málið nánar, að sinnL Á þab er lúns vegar bent, að þótt Bretar séu því hlynntir, a3 lönd í Afríku, Asíu og S-Amer- íku vérði ekki búin kjarnorku- vopnum, þá kunni sjónarmið brezku stjórnarinnar í þessu máli að vera annað. Almennt álit stjórnmálamanna þar mun vera, að það myndi mjög vera kommúnistaríkjun- um í hag, ef sama fyrirkomulag yrði viðhaft í löndunum við Mið- jarðarhaf. Orðsending Sovétríkjanna 1 dag kemur í kjölfar annarrar orðsendingar, sem Sovétríkin sendu 8. apríl sl. Þar var mælt móti sameiginlegum kjarnorku- her NATO. Þeirri orðsendingu var á sínum tíma svárað á þann hátt, að það væri rangt, sem Sovétríkin héldu þá fram, að slíkur NATO-her væri til þess fallinn að herða herbúnaðarkapp hlaupið. Almennt álit, sem komið hef- ur fram í fréttum í dag, er, að svar vesturveldanna við orð- sendingu Sovétríkjanna verði á þann veg, að þau láti ekki ógna sér til að grípa til nauðsynlegra varúðarráðstafana. Sýsíufundur í Stykkishólmi Sýning n þjónnsln og viðgerðor- tækjum í bíln BANDARÍSKA verzlunarmið- stöðin í London í Englandi, mim efna til sýningar á þjónustu- og viðgerðatækjum í bíla, frá 21. maí til 31. maí 1963. 22 banda- rísk fyrirtækl munu þarna sýna mörg og margvisleg tæki, sem mikili .engur er í. Bandaríska verzlunarmiðstöðin, sem er til húsa í St. Jams’ Street 57, Lon- don S.W. veitir innflytjendiun, verzlunarmönnum og kaupend- um einstætt tækifæri til að sjá og kynna sér nýjustu framfarir bandarísks iðnaðar á þessu sviði. Nánari . .dý.L-gar varðandi þær vörur, sem þama verða til sýnis, veitir verzlunardeild bandaríska sendiráðsins, Laufás- vegi 21, Reykjavík. SÝSLUFUNDUR Snæfellsness og Hnappadalssýslu var haldinn í Stykkishólmi dagana 2. til 4. mai s.l. í upphafi fundarins minntist sýslunefndin látinna sýslunefndarmanna, sem létust síðan seinasti fundur var háður þeirra Gests Guðmundsson- ar, Rauðamel, Björns H. Kristj- ánssonar, Kolbeinsstöðum og Gísla Þórðarsonar ölkeldu, en allir þessir menn áttu um lang- an tíma setu á sýslufundum. Til vega í sýslunni veitt ur sýsluvegasjóði til vega í öllum hreppum kr. 229.500.00. Kosin var þriggja manna nefnd til að endurskoða lögreglusamþykkt sýslunnar og reglugerð um lög- gæslu á samkomum í sýslunni. Jafnframt felur nefndin oddvita sínum að koma á fót héraðslög- reglu skv. reglugerð frá 1957 um löggæzlu á samkomum í hérað- inu. Fjárh.áætlun yfirstandandi árs var samin með niðurstöðu- tölum 768.000.00. Helztu tekju- liðir: sýslusjóðsgjald 530 þúsund. Helztu útgjöld til menntamáli 143 þús. Úl atvinnumáila 172 þúsund til hlutafjárkaupa í FIó* bátnum Baldri 75 þús., vegna húsnæðis spítalalæknis 40 þús- und. Sýslunefndin þakkaði stjórn- arvöldunum það sem áunnizt hef ir í raforkumálum sýslunnar og skorar jafnframt á raforkumála ráð að hraða frekari framkvæmd um og láta leggja raforku frá Barðastöðum suður um Staðar- sveit, Miklaholts, Eyjar og Kol- beinsstaðahrepp. Ennfremur að lögð verði lína frá Stykkishólmi til nágrannasveitanna og sé lína tengd háspennulínunni frá Fossá. Þá var samþykkt tillaga um að skora á vegamálastjóra að grafið verði fyrir veginum um Heydal í sumar og á þingmenn kjördæmisins að hlutast til um að koma þeirri vegagerð veru- lega áleiðis. Ýmsar aðrar ályktanir voru gerðar á fundinum. Fundinum stjórnaði oddviti nefndarinnar Hinrik Jónsson sýslumaður Stykkishólmi — FréttaritarL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.