Morgunblaðið - 26.05.1963, Blaðsíða 22
22
MORGVNBLAÐ1B
Sunnudagur 26. maí 1963
VERTÍDfiRLðK
Koma á Hólel Borg
PRINCE systur nefnast l>ess- þær í Reykjavík í tvo daga í
ar tvær skozku systur, og ausandi rigningu og fen<gu
]>ær eru væntanlegar til ís- jafn slæmt sjóveður á leið-
lands í annað sinn, hefur lík inni til baka. Mbl. hafði þá
lega þrátt fyrir allt litizt stutt viðtal við þær, ásamt
svona vel á land og þjóð í öðrum farþegum. Og nú eru
fyrrasumar. Þær tóku sér þá þær væntanlegar aftur um
far í sumarleyfinu sínu með mánaðamótin og ætla að
Gullfossi til íslands og lentu hafa lengri viðdvöl og
í einhverju versta veðrinu er skemmta á Hótel Borg með
skipið hreppti. Síðan dvöldu hljómsveit Jóns Páls.
Á ÞRIÐJUDAG skýrði Mbl.
írá vertíðarlokum í Vest-
mannaeyjum, Hafnarfirði,
Akranesi, Grundarfirði, Patr
eksfirði, Bíldudal, Hólmavík,
og Eskifirði.
Hér er skýrt frá aflabrögð-
um á síðustu vertíð í eftir
töldum verstöðvum: Horna-
firði, Stokkseyri, Eyrar-
bakka, Þorlákshöfn, Grinda-
vík, Keflavík, Hellissandi, Ól-
afssvík, ísafirði og Neskaup-
stað
3.483 tonn til Hornafjarðar.
Höfn í Hornafirði, 16. maí:
Á Hornafirði lauk vertíð neta-
báta 10. maí, og línubátar hættu
í gær. Heildarafli, kominn á land
í Hornafirði, var þá 3.482 tonn og
800 kg.
Netabátarnir þrír höfðu sam-
tals 2.280 lestir. Aflahæstur var
vb. Ólafur Xryggvason með 872,7
lestir í 67 sjóferðum, Skipstjóri
Tryggvi Sigurjónsson. Annar
var Gissur hvíti með 718,9 og
Hvanney með 688,4 lestir. Línu-
báturinn Svanur hafði 359,8 lest
ir.
Seinni hluti vertíðarinnar var
mjög erfiður fyrir línuveiðar, og
handfærafiskur kom aldrei frá
byrjun marz, enda tæplega nokk
urn tíma gæftir fyrir handfæra-
íiskirí. — Gunnar.
Aldrei aflazt meira en nú á
Stokkseyri: 2.387 tonn.
Stokkseyri, 16. maí:
Heildarafli 4 báta hér á vertíð-
inni varð 2.387 tonn. Flestir bát-
anna hafa um 70 róðra.
Aflahæstur varð Hásteinn II.
með 674 tonn. Skipstjóri er
Hörður Pálsson. Næstur er Hólm
steinn með 657 tonn, svo Fróði
með 595 tonn og loks Hásteinn I.
með 461 tonn. Aflinn nú er tals-
vert meiri en í fyrra. Aldrei fyrr
hefur aflast eins vel hér og á þess
ari vertíð.
Nú eru bátarnir að búa sig út
á humarveiðar. — Á. E.
1.576 tonn til Eyrarbakka.
Eyrarbakka, 16. maí:
Fjórir bátar reru héðan í vetur.
Heildarafli þeirra varð 1576 tonn
í 207 róðrum. í fyrra var aflinn
1022 tonn hjá þrem bátum í 165
róðrum.
Aflahæstur varð Kristján Guð-
mundsson með 661 tonn í 67 róðr
um. Skipstjóri er Þorbjörn Guð-
mundsson. Næstur varð öðlingur
með 458 tonn í 69 róðrum, svo
Jóhann Þorkelsson með 346 tonn
í 50 róðrum og loks Björn með
111 tonn í 21 róðri, þar af eru
nokkur tonn af humar. — Óskar.
6.558 tonn til Þorlákshafnar —
bátarnir allir á humar.
Þorlákshöfn, 16. maí:
Heildaraflinn á vertíðinni nú
varð 6.558 tonn, en var um 5.800
í fyrra. Sjö bátar voru gerðir út
héðan, en auk þeirra landaði Leó
frá Vestmannaeyjum mestöllu af
afla sínum hér.
Aflahæstur var vb. Friðrik Sig
urðsson með 985 tonn. Skipstjóri
er Guðmundur Friðriksson (son
ur þess, er báturinn heitir eftir).
Næst var Guðbjörg með 828 tonn,
skipstjóri Sigurður Guðmunds-
son, og þá vb. Páll Jónsson með
727 tonn, skipstjóri Pétur Frið-
riksson (bróðir Guðmundar, sem
fyrr er nefndur).
Bátarnir búast nú allir á hum-
arveiðar. — M. Bj.
21.462 tonn til Grindavíkur.
Grindavík, 16. maí:
Hér lauk vetrarvertíð í gær. Bát-
ar hafa verið að taka upp net
sín undanfama daga. Alls reru
héðan 33 bátar í vetur með línu
og net og fengu samtals 21.462
tonn í 2077 róðrum, eða rúm 10
tonn í róðri að meðaltali.
í fyrra fengu 35 Grindavíkur-
bátar samtals 20.217 tonn í 1978
róðrum.
í vetur varð Þorbjöm aflahæst
ur með 1186,2 tonn, og er þetta
þriðja vertíðin í röð, sem hann
er aflahæstur hér. í fyrra fékk
hann 946,5 tonn. Skipstjóri á
Þorbirni er Þórarinn Ólafsson,
36 ára gamall Grindvíkingur.
Hann hefur verið skipstjóri á
bátnum undanfarin ár.
Næsti báturinn var Þorkatla
með 1088,1 tonn. Skipstjóri er
Erlingur Kristjánsson. Báðir þess
ir bátar eru eign Hraðfrystihúss
Þorkötlustaða.
Þriðji varð Hrafn Sveinbjamar
sou IL með 972,5 tonn. Skipstjóri
þessir þrír aflahæstu bátar fengu
nokkur þúsund tunnur af síld
hver eftir áramót. Engin síld er
talin með í fyrrgreindu afla-
magni. — G. Þ.
22.722 tonn til Keflavíkur.
Keflavík, 16. maí:
Vetrarvertíðinni hér lauk í gær.
Alls stunduðu 45 bátar línu- og
netaveiðar, þar af 9 bátar ein-
göngu línuveiðar alla vertíðina.
Famir voru alls 2725 róðrar og
heildaraflinn varð 22.722 tonn. 1
fyrra voru 50 bátar hér sem fóra
2630 róðra og öfluðu þá 21.460
tonn, svo meðalafli er nokkru
betri i ár.
Aflahæstur er Jón Finnsson
með 950 tonn í 78 róðrum. Skip-
stjóri er Gísli Jóhannesson. Ann-
ar er Hilmir, 949 tonn í 79 róðr-
um, svo Eldey með 917 tonn í 70
rórðum, Fram fékk 855 tonn i
84 róðrum og Manni 851 tonn í
74 róðrum.
Þrettán bátanna stunduðu auk
þess síldveiðar fram í janúarlok
og öfluðu vel. Auk þessa voru
eingöngu þrír bátar eingöngu á
síld alla vertíðina. Var afli þeirra
sæmilegur. — hjs.
2.992 tonn til Hellissands.
Hellissandi, 16. maí:
Fjórir vertíðarbátar rera frá Rifi
í vetur og fengu samtals 2.630
tonn í 284 róðrum, eða að meðal
tali 9 tonn og 264 kg á bát.
Auk þess lagði Dröfn frá Dal-
vík hér upp 87 tonn úr 13 róðr
um. Skarðsvík lagði inn 24 tonn
úr tveimur lögnum og 74 tonn
af síld. Trillubátar lögðu upp 177
tonn. Heildaraflinn var því 2.992
tonn.
Aflahæstur varð Hamar með
Skyndihappdrætti SjáIfstæðisflokksins
D
50
2
5
tn
áSSá
MIÚGIJLEIKAC
ASTÆÐUR
til þess að kaupa miða
• Dráttur fer fram eftir iáeina
daga.
v • Allir vilja eignast nýjan bíl.
.;.’;X;!v • Til ellingar Sjálfstæðisflokknum.
•*•*•"•*•*•**
* Til þess að gera sigur hans í kosningunum sem
glæsilegastan.
• Efling Sjálfstæðisflokksins er efling þjóðarhags.
ekki tœkifœrinu — kaupið miða strax í dag