Morgunblaðið - 08.06.1963, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 08.06.1963, Qupperneq 3
^ Laugarclagur 8. iúní 1963 MORGUISBLAÐIÐ 3 Hvoð verður ef Framsókn og kommúnlstar ná völdum? HVER hugsandi maður, sem geng ur til kosninga 9. júní, hlýtur að taka tillit til margra augljósra staðreynda. Vinstri stjórnin var kosin af alþýðunni í þes9u landi. Hún fékk hreinan meirihluta á Alþingi. Hún réði launþega og bændasam- tökunum. Hún fékk öll völd í sínar hendur. Hún lofaði mjö.g miklu, en efndirnar urðu minni en engar, og endirinn varð hin fræga yfirlýsing forsætisráð- herra, að allt væri að fara á bóla- kaf í skuldafen og óreiðu og ósam komulag væri svo mikið innan stjórnarinnar, að ekkert væri hægt að gera annað en gefast upp og biðjast lausnar. Við tekur önnur stjórn. Hún boðar, að þjóðin öll taki á sig nokkrar byrðar til þess að hún komist úr vinstristjórnaróreiðu- feninu. Eg held, að stjórnin, sem nú situr hafi með hjálp þjóðar- innar, látið meira gott af sér leiða en bjartsýnustu menn þorðu að búast við. Þessar einföldu staðreyndir held ég, að flestir við urkenni, sem ekki eru haldnir blindu flokksofstæki. Framsókn- arflokkurinn hefir að undanförnu stutt kommúnista í verkalýðsfé- lögum og víðar. Á Alþýðusam- bandsþingi ómerktu þeir í félagi æðsta dóm9tól þjóðarinnar í fé- lagsmálum. Með stuðningi sínum við kommúnista hefir framsókn skapað sér fyrirlitningu allra frjálshuga manna. Sá sem styður kommúnista, hann styður: Berlín armúrinn, verkalýðsmorðin í Ung veralandi og víðar; mannrán og morð víða um heim; uppgröft dauðra manna, njósnir og fjöl- margt fleira. Allt þetta hlýtur að vekja ólýs- anlegan viðbjóð og hrylling í hug um flestra íslendinga. Hvað gerist, af framsókn og kommar komast til valda á ís- landi? Ég þarf ekkert að segja þér kjósandi góður. Báðir þessir flokkar Svífast einskis til að vinna þessar kosningar. Það munu þeir líka gera, ef þeir ná meirihluta á Alþingi. fslenzkur kjósandi: Settu þig i spor fólksins beggja megin við Berlínarmúrinn: Hjón skilin, mega aldrei sjást framar; elsk- endur, systkini og vinir skildir sundur og skotnir eins og hundar, ef einhverjir gera tilraun til flótta. Maður stendur agndofa. Hvernig getur þetta átt sér stað á 20. öldinni. Þeir sem styðja kommúnista og framsóknarmenn, þeir eru að kalla yfir sig og sína sams kon- ar ástand. íslenzk alþýða: Ég veit, óefað skapa sams konar múr að þú styður ekki flokka, sem huga og handa, nái þeir völdun- um. Hrindum af okkur Berlínar- miúnsófétinu 9. júní. I. J. Þvottakona Ásm.undar. NÝLEGA birti Morgunblaðið myndir af nokkrum listaverk- um, sem á að steypa í málm eða er verið að steypa og á í framtíðinni að setja upp á ýms um stöðum í Reykjavíkur- borg. STÚLKUBARN EFTIR ÓLÖFU PÁLSDÓTTUR Reykjavíkurborg hefur keypt höggmynd eftir Ólöfu Pálsdóttur, myndhöggvara, og mun henni á næstunni verða ákveðinn staður. Borgin keypti þetta listaverk fyrir nokkru og hefur það verið steypt í brons í Danmörku. Höggmynd þessi er af krjúpandi stúlkubarni í lík- amsstærð. Mun hún standa á granítsstalli, sem þegar hefur verið höggvinn. Árósaborg hefur keypt þetta sama listaverk og var því kom ið fyrir á einum fegursta stað borgarinnar, einnig steyptu í brons. Þá er Mbl. einnig kunnugt um, að Ólöfu Pálsdóttur hefur verið falið að gera listaverk fyrir dómkirkjuna í Skálholti. Hefur hún þegar gert stóra Kristmynd, sem nú er nær fullgerð og mun vérða steypt í brons erlendis eins fljótt og unnt er. Ennfremur vinnur listakonan að öðru listaverki fyrir sömu aðila. ÞORFINNUR KARLSEFNI EKriR EINAR JÓNSSON Styttan af Þorfinni karls- efni eftir Einar Jónsáon hefur verið í hólmanum í litlu tjörn inni í Hljómskálagarðinum sem kunnugt er og réð lista- maðuiinn því á sínum tíma að Björgun eftir Ásmund. ■ ■ BJÖRGUN EFTIR ÁSMUND SVEINSSON Væntanlega mun myndinni Björgun eftir Ásmund Sveins- son einnig komið fyrir á góð- Þorfinnur Karlsefni eftir Einar Jónsson. ■ Stúlkubarn eftir Ólöfu Pálsdóttur. um stað í bænum. Verzlunin O. Ellingsen hefur kostað stækkun á myndinni, en hún er ennþá úr steinsteypu og þyrfti að steypa hana í varan- legt efni. í fyrra var Þvottakonu Ás- mundar Sveinssonar valinn staður og henni komið fyrir á hól við gömlu þvottalaug- arnar í Laugardalnum, en þá var gerð upp gamla laugin, sem konurnar þvoðu í. í vor hefur svo verið unnið að því að ganga frá undirstöðunni. Kringum styttuna er kringlótt skál og á vatn að renna í balann og út af börmunum. Vegna þess að styttan er úr steinsteypu þykir ekki óhætt áð láta renna þar heitt vatn, en í ytri hringnum er heitt vatn, sem myndar gufu. Á því að vera hægt að sjá þvottakon una standa við balann sinn gegnum gufuna, en vatn renn- ur út af börmum balans. Búið er að tengja bæði kalda og heita vatnið Og á að hleypa því á núna einhvern daginn. henni yrði þar fyrir komið. Grundvöllurinn undir stytt- unni var orðinn ótraustur og þótti ekki óhætt að hafa hana þarna lengur. Var styttan því flutt í geymslu. Einar mun hafa verið orðinn óánægður með staðsetningu hennar, en ekki er hægt að velja mynd- inni nýjan stað nema í sam- ráði við ekkju hans, frú Önnu. Hún er erlendis og hefur því endanleg staðsetning styttunn ar ekki verið ákveðin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.