Morgunblaðið - 08.06.1963, Page 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 8. júní 1963
„Höskuldur lénti í Laxárósi,
lætur þar bera fram af skipi
sínu, en setja _upp skipið fyrir
innan'Laxá og gerir þar hróf að
og sér þar tóftina, sem hann lét
gera hrófið. Þar tjaldaði hann
búðir, og er það kallaður Búðar-
dalur“.
Félagsheimili í Búðardal
bætir úr brýnni þörf
Félagsiieimilið í smíðum
1» áfanga senn lokið —
fyrifhugað að hafa þar greiða>
sölu
i sumar
Svo segir Laxdæla frá því, er
Höskuldur Dala-Kollsson kom
heim úr Noregsferð og hafði út
með sér ambáttina Melkorku.
Og þeir menn, sem lengst hafa
átt heima í Búðardal muna vel
eftir því, sem talin var tóftin
Höskulds.
Sem kauptún á Búðardalur sér
hins vegar ekki langa sögu. Það
var fyrst árið 1899, að félagið
íslands Handels- og Fiskeri-
kompagni reisti þar verzlunar-
hús. Fyrsti verzlunarstjóri varð
Bogi Sigurðsson, sem hafði
stundað verzlunarstörf í Flatey
og að Skarðsstöð. Fyrsta íbúðar-
húsið á staðnum byggði Bogi, en
í kringum 1918 var það flutt suð-
ur á Selfoss. Var útibú Lands-
bankans á Selfossi til húsa þar,
unz nýja bankahúsið var reist.
Bogi Sigurðsson keypti
fljótlega verzlunina af danska
félaginu og rak hana í mörg ár
ásamt búskap á jörðunum Fjós-
um og Saurum. Ennfremur var
hann póstafgreiðslumaður og
síðar símstjóri, er þau embætti
voru sameinuð.
Meðal afkomenda Boga Sig-
urðssonar, sem búsettir eru í
Búðardal og nágrenni, eru dótt-
ursynir hans. Magnús Rögnvalds-
son, sem verið hefur verk-
stjóri hjá Vegagerðinni í hart.
nær 30 ár og Elís Þorsteinsson
bóndi á Hrappsstöðum.
★
Búðardalur var lengi með-
minnstu kauptúnum á landinu,
en á síðustu árum hefur íbúum
fjölgað talsvert og eru þeir nú
nokkuð á annað hundrað. All-
margir hafa sótt um lóðir fyrir
íbúðarhús, bæði heimamenn og
menn, sem enn eru ókomnir, en
hyggjast setjast þar að.
Á síðastliðnu hausti brann
hótelið í Búðardal og kemur það
sér mjög illa, því að ferðamönn-
um fjölgar ört á þessari leið. Er
því allt kapp lagt á að koma með
einhverju móti á fót veitinga-
sölu í þeim hluta nýja félags-
heimilisins, sem þegar er að
verða tilbúinn.
Áætlaður byggingakostnaður
við félagsheimilið fullgert er 6-7
milljónir króna. Verður það 600
ferm. að flatarmáli, ein hæð og
kjallari undir hluta þess. Það
sem senn er fullgert er 300 ferm.
af kjallara og 150 ferm af hæð-
inni og í sumar er fyrirhugað
að steypa upp annað eins af
hæðinni til viðbótar.
í félagsheimilinu fullgerðu
verða* meðal annars veitinga-
salur, samkomusalur með full-
komnum leiksviðsútbúnaði og
búningsaðstöðu, s?mkvæmt til-
lögum Þjóðleikhússins og Banda-
lags íslenzkra leikara, snyrti-
herbergi, fundaherbergi og hús-
næði fyrir héraðsbókasafnið.
Atvinnurekstur í Búðardal hef-
ur verið fábrotinn til þessa og
að mestu leyti í höndum Kaup-
félags Hvammsfjarðar.
Verzlunarhús kaupfélagsins
er nokkuð stórt og nýlegt — og
þar rétt hjá er annað stærra hús
verið tekið í notkun í maí 1959,
það sé 600 ferm. að stærð og
hýsi auk verzluriar, vörulager og
skrifstofur.
— í nýbyggingunni hér við
hliðina, segir Steinþór, verða
vörugeymslur, bílaverkstæði,
smursstöð og vélaverkstæði, á-
samt varahlutalager og aðstöðu
til sölu varahluta, bæði í land-
búnaðarvélar og þær bifreiðar,
sem mest eru notaðar í héraðinu.
í vörugeymslunni er fyrirhugað
að hafa aðstöðu til sölu á máln-
ingu og járnvörum ýmiss konar.
Nýbyggingin er 1000 ferm, að
meiri hluta á einni hæð — en
i 350 ferm. húsrými verður milli-
dilkum s.l. haust. Er sláturhúsið
mjög gamalt og hrörlegt orðið,
enda hluti af því allt frá alda-
mótum. Tvisvar hefur verið
byggt við það, en nú stendur til
að endurnýja það innan skamms.
í nokkur ár hefur Kaupfélagið
rekið bílaverkstæði, en Steinþór
segir lélegt húsnæði hafa háð
starfsemi þess. Þá var komið á
fót dálitlu trésmíðaverkstæði fyr-
ir rúmu ári. Steinþór tjáir okk-
ur, að nú starfi um 15—20 manns
hjá Kaupfélaginu, en þess sé
vænzt , að starfsfólki fjölgi með
bættum húsakosti og auknum
starfsmöguieikum.
Tveir ungir menn stunda sjálf-
Fjölskyldan að Sauðhúsum: Egill Benediktsson, hreppsstj. faðir hans Benedikt Benediktsson,
Pálína Jónsdóttir húsfreyja og synirnir, frá vinstri: Benedikt, Johnný, Jón og Birgir.
smíðum. Við bregðum okkur
nú á fund kaupfélaigsstjórans
Steinþórs Þorsteinssonar, og leit-
um upplýsinga um starfsemi
kaupfélagsins.
Steinþór gefur þær upplýs-
íngar, að verzlunarhúsið hafi
gólf og geymslur á efri hæð- stæðan atvinnurekstur, þeir Rögn
inni. Væntum við þess að taka
húsið að fullu í notkun í vor,
helzt í byrjun júní.
Að sögn Steinþórs rekur Kaup-
félagið einnig frysúhús og slátur
hús, þar sem slátrað var 24 þús.
Byggingar Kaupfélags Hvammsfjarðar
valdur Ólafsson, sem hefur bíla-
verkstæði og Jóhann Guðlaugs-
son sem stundar vöruflutninga.
★
Þorpið Búðardalur heyrir til
Laxárdalshreppi. Hreppstjóri þar
er Egill Benediktsson, bóndi að
Sauðhúsum, sem er fyrsti bær
á vinstri hönd, þegar ekið er
vestur frá Búðardal.
Það fyrsta sem vakti athygli
mína, er við renndum í hlað á
Sauðhúsum, var augljós snyrti-
mennska í hverjum hlut. Það
reyndist reyndar ekkert eins-
dæmi í Dölum, því að a.m.k. þar
sem ég fór um gat hvarvetna
að líta frábæra snyrtimennsku.
Egill hreppstjóri tók við bú-
skap á Sauðhúsum árið 1956 af
föður sínum Benedikt Benedikts
Frh. á bls. 29 ,
Æskan kýs Sjálfstæðisfiokkinn X-D