Morgunblaðið - 05.07.1963, Síða 2
MORGVNBL'AÐIB
Föstudagur 5. júlí 196i>
Reikníngur Reykjavskurbcrgar 1963 afgreiddur:
Skuldaaukning aðeins stundarfyrir-
brigði vegna breyttra starfsaðferða
Skiptameðferð á Faxa sf. iýkur senn
REIKNINGUR Reykjavíkur-
borgar fyrir árið 1962 var sam
þykktur á fundi borgarstjórn
ar Reykjavíkur í gær að lok-
inni 2. umræðu um reikning-
inn. Svaraði Geir Hallgríms-
son borgarstjóri við umræð-
una nokkrum athugasemdum,
sem fram höfðu komið hjá
borgarfulltrúum minnihluta-
flokkanna við reikninginn og
um afkomu borgarsjóðs og
einstakra fyrirtækja borgar-
innar.
f ræðu borgarstjóra í gær
kom m.a. fram, að skulda-
aukningin á borgarreikningn-
um fyrir sl. ár, sem nam 36.6
millj. kr., mun aðeins vera
stundarfyrirbrigði vegna
breyttra starfsaðferða, þar
sem reikningnum er nú lokað
um áramót, en ekki í lok
febrúar, eins og áður tíðkað-
ist. Á jafnvægi að komast á
að nýju þegar við uppgjör
reikningsins fyrir yfirstand-
andi ár.
Borgarstjóri skýrði frá því,
að skiptaloka hjá Faxa sf.
mætti vænta áður en langt
um liði, en fyrirtækið hefur
verið til skiptameðferðar hjá
skilanefnd alllengi í sam-
bandi við undirbúning á slit-
um þess.
Reikningur Reykjavikurborgar
fyrir árið 1962 kom til 1. umræðu
í borgarstjórn 20. júní sl. Gerði
borgarstjóri þá grein fyrir nokkr-
um niðurstöðum hans, sem í meg-
indráttum eru þessar:
1. Gjaldaáætlun borgarsjóðs
stóðst nákvæmlega þrátt fyrir
þær kauphækkanir, sem urðu á
árinu og ekki var unnt að reikna
með við samningu fjárhagsáætl-
unar.
2. Eignir borgarinnar jukust á
árinu um 96.7 millj. kr., og nemur
hrein eign hennar nú rúmum
900 millj. kr.
3. Greiðslujöfnuður borgar-
sjóðs varð hagstæður um 1.030
þús. kr.
4. Tekjur borgarsjóðs fóru 13.8
millj. kr. fram úr áætlun, og var
þessum umframtekjum varið til
ýmiss konar verklegra fram-
kvæmda
í ræðu sinni í gær sagði Geir
Hallgrímsson borgarstjóri, að í
fljótu bragði virtist aðeins eitt
skyggja á hina góðu afkomu borg
arsjóðs. Hækkuðu skuldir hans út
á við um 36.6 millj. kr., en auk
þess eru 17.5 millj. kr af fjár-
veitirigu ársins 1962 til sundlaug-
ar í Laugardal geymdar til fram-
kvæmda við það mannvirki síð-
ar. Af skuldaaukningunni vega
mest 11.1 millj. kr. hækkun
lausaskulda og hækkaðar inneign
ir lánardrottna um 22.8 millj. kr.,
eða samtals tæplega 34 millj. kr.
ir Skuldaaukningin stundar-
fyrirbrigði vegna breyttra
starfsaðferða
En þegar nánar er að gætt, er
hér ekki um að ræða varasama
skuldaaukningu, sagði borgar-
stjóri.
Hækkun þessi stafar að lang-
mestu eða öllu leyti af því, að
lokað var fyrir innborganir út-
svara og aðstöðugjalda í borgar-
sjóð 31. des. 1962. Það, sem inn-
borgað var eftir þann tíma af
þessum gjöldum, álögðum 1962 og
áður, var talið sem innborgun í
sjóð 1963. Af þessum sökum varð
ekki hjá því komizt að færa sér-
stakan viðskiptamannareikning
fyrir þau útgjöld, sem heyrðu til
árinu 1962, en ekki voru greidd
fyrr en á árinu 1963.
Af þessari sömu ástæðu koma
fram eignaliðir hjá borgarsjóði,
sem nema svipaðri upphæð og
skuldaaukningunni. Nefndi borg-
arstjóri þrjá liði, aukningu á
sjóðseign, hækkun eftirstöðva og
hækkun á skuldum skuldunauta,
sem nema samtals 36.4 millj. kr.
Sést á þessu, að borgarsjóður
hefur undir höndum eignir, sem
ekki voru allar handjsærar sem
fé við reikningslok, en nú hefur
verið varið til niðurgreiðslu á
skuldunum.
Skuldaaukningin í borgarreikn
ingnum 1962 er því nánast stund-
arfyrirbrigði vegna breyttra
starfsaðferða, þar sem reikning-
um er nú lokað um áramót, en
ekki í lok febrúar, eins og áður,
sagði borgarstjóri. Jafnvægi
kemst á að þessu leyti strax við
uppgjör reikningsins fyrir yfir-
standandi ár.
★ Eðlilegt að taka ný ián
til langs tima
í sambandi við skuldaaukning-
una sl. ár benti borgarstjóri á, að
eignir borgarinnar eru 1.043
millj. kr., en skuldirnar tæpar
143 millj. kr. Kvað hann þær
skuldir verða að teljast furðu lág
ar, þegar hafðar eru í huga hin-
ar miklu framkvæmdir á vegum
borgarfélagsins og árleg eigna-
aukning hennar. Eðlilegt virtist
vera, ef á því væru nokkur tök,
að hækka skuldirnar með öflun
nýrra lána til langs tíma, svo að
unnt væri að dreifa kostnaðinum
við hinar miklu framkvæmdir á
mörg ár.
ir Framlag til eignabreytinga
hækkuða um 5.7 millj. kr.
Guðmundur Vigfússon (K)
hafði haldið því fram, að fram-
lög borgarsjóðs til eignabreytinga
hafi á sl. ári lækkað um 2 millj.
kr. miðað við árið á undan. f
borgarreikningnum er kostnaður
við nýbyggingu gatna og holræsa
talinn meðal rekstrargjalda. En
hér er um að ræða varanleg
mannvirki, sem full ástæða væri
til að telja með þeim framkvæmd
um, sem færðar eru á eignabreyt-
ingar, enda er það gert í öðrum
samböndum, t. d. þegar gerð er
upp fjárfesting borgarsjóðs. Væri
kostnaður við þessar framkvæmd
ir færður á eignabreytingu
mundu rekstrargjöld árið. 1961
lækka um 34.3 millj. kr. og yfir-
færsla á eignabreytingu hækka
að sama skapi. Yrðu rekstrar-
gjöldin þá það ár 214.5 millj. kr..
og yfirfærsla á eignabreytingu
97.7 millj. kr. Árið 1962 mundu
rekstrargjöldin lækka um 42
millj. kr. og verða 246.5 millj
kr., en yfirfærsla á eignabreyt
ingu hækka að sama skapi og
verða 103.4 millj. kr. Framlag til
eignabreytinga hefur þannig
hækkað um 5.7 millj. kr. milli
þessara ára, en ekki lækkað um
2 millj. kr.
BÚR skuldar Framkvæmda'
sjóði 59.7 millj. kr.
Borgarstjóri vék í ræðu sinni
að fjárhag þriggja fyrirtækja,
sem hann kvað borgarstjórn
þurfa að gefa sérstakan gaum að.
1. Skuldaaukning Bæjarútgerð
ar Reykjavíkur við Framkvæmda
sjóð nam á sl. ári 6 millj. kr., og
nemur nú heildarskuld hennar
við sjóðinn 59.7 millj. kr. Hefur
skuld þessi farið sívaxandi á und-
anförnum árum. Taldi borgar-
stjóri einsýnt, að ógerlegt væri
að halda áfram á þeirri braut,
að BÚR auki sífellt skuld sína
við sjóðinn án þess að honum
séu ætlaðar tekjur til að standa
undir slíkum greiðslum. Bæri
nauðsyn til að greina skuld BÚR
við sjóðinn í stofnfé, er sé vaxta-
og afborgunarlaust, og aðrar
skuldir, er lúti venjulegum regl-
um um greiðslu vaxta og afborg-
ana.
ir Skiptalok Faxa senn
væntanleg
2. Skuld Faxa sf. við Fram-
kvæmdasjóð nam um sl. áramót
6 millj. kr., en árlegur reksturs-
halli fyrirtækisins er færður til
gjalda á rekstrarreikningi sjóðs-
ins. Árin 1960 og 1961 nam hluti
sjóðsins af hallanum 2.5 millj. kr.
Eins og kunnugt er hefur sérstök
skilanefnd haft fyrirtækið til
skiptameðferðar, og kvað borgar-
stjóri mega vænta skiptaloka
áður en langt um líður.
i
ir SVR: 1.6 millj. kr. halli 1962
3. Samkvæmt reikningum Stræt
isvagna Reykjavíkur fyrir sl. ár
urðu gjöld þeirra rúmlega 1,6
millj. kr. umfram tekjur, enda
þótt fyrirtækinu væri veitt 3
millj. kr. óendurkræft framlag úr
borgarsjóði. Hafði SVR við mjög
þröngan fjárhag að stríða á sL
ári, og veitti borgarsjóður fyrir-
tækinu af þeim sökum 3 millj.
kr. lán auk fyrrnefnds framlags.
I lok sl. árs voru fargjöld stræt-
isvagnanna hækkuð nokkuð, og
kvað borgarstjóri vonir standa til,
að hagur fyrirtækisins hafi vænk
azt nokkuð við þær ráðstafanir.
Auk borgarstjóra tóku til mála
við umræðuna borgarfulltrúarnir
Guðmundur Vigfússon (K),
Björn Guðmundsson (F), Óskar
Hallgrimsson (A) og Alfreð Gísla
son (K). Fluttu borgarfulltrúar
kommúnista nokkrar tillögur 1
sambandi við afgreiðslu borgar-
reikningsins, en þeim var öllum
vísað frá.
Dr. Póll ísólfsson stjórnor Lnðra-
svei: Reykjovíkur ó snnnndnginn
Afmælisdagur Lúðrasveitar
Reykjavíkur er 7. júli, eða á
sunnudaginn kemur. Þá er liðið
41 ár frá stofnun sveitarinnar.
Vegna afmælisins leikur Lúðra
sveitin á Austurvelli kl hálftvö
á sunnudag. Dr. Páll ísólfsson
stjórnandi hennar í tólf ár, fram
stjórnandi hennar í ólf ár, fram
til ársins 1936. Mun mörgum
Reykvíkingum enn minnisstætt,
þegar dr. Páll stjórnaði horna-
Háskólafyrir-
lestur efnaliags-
málaráðherra
Dana í dag
Efnahagsmálaráðherra Dana
prófessor dr. Kjeld Philip flyt-
ur fyrirlestur í háskólanum í dag
kl. 5.30 síðdegis.
Fjallar fyrirlesturinn um af-
leiðingar aukinnar efnahags-
samvinnu Evrópu. Öllum er heim
ill aðgangur að fyrirlestrinum,
sem fluttur er í boði Háskóla
íslands.
Þurrkur alla daga
KÓPASKERI, 4. júlí. — Hér um
slóðir hefur verið einmuna tíð
undanfarið ög hafa bændur geng
að að miklum dugnaði að hey-
skap. Þurrkur hefur verið alla
daga og það svo góður að grasið
hefur þornað jafnóðum og slegið
hefur verið. Er nú fyrri slætti
allvíða það langt komið, að
bændur eru búnir að flytja heim
talsvert af heyi. — josep.
Dr. Páll ísólfsson
flokknum á tyllidögum borgar-
búa.
Einleikari með Lúðrasveit
(
Útgerð kættir
d Kópnskeri
KÓPASKERI, 4. júlí: Ekki
ætlar tilraun til bátaútgerðar
héðan, ætla að gefa góða raun,
í þetta skipti a.m.k. Héðan
hefur róið 9 tonna bátur, á
venjuleg mið Húsavíkur- og
Raufarhafnabáta, en þar er
nú algjör ördeyða. — Hefur
þetta haft í för með sér, að
’forráðamenn útgerðarinnar
hafa ákveðið að hætta útgerð
bátsins og ætla að selja hann
innan skamms.
Þykir mönnum hér þetta
illa farið, sem vonlegt er.
— jósep.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur í
Austurvelli 17. júní í fyrra. Dr.
Páll Pampichler Pálsson stjórnar
Reykjavíkur verður Björn Guð-
jónsson. Efnisvalið verður svip-
að og tíðkaðist fyrir 30 árum. Er
þess að vænta, að Reykvíkingar
noti sér sumarveðrið á sunnu-
daginn og fjölmenni á Ausur-
völl með fjölskyldur sínar.
- USSR
Framhald af bls. 1.
ast sovézkir kommúnistar ganga
til fundar við Kínverja með
þeim ásetningi að reyna að jafna
deilurnar.
Kínverjar svöruðu yfirlýsingu
sovézku kommúnistanna í kvöld
og kváðu ekkert hæft í ásökun-
um þeim, sem þar komu fram
Segja Kínverjar Rússa fótum-
troða staðreyndir og hafa í
frammi rógburð og niðurrifsstarf
semL í lok svarsins segir þó, að
Kínverjar komi sáttfúsir til
fundarins á morgun og vonizt
til þess að hann muni bæta
sambúð kommúnistaríkjanna og
styrkja aðstöðu þeirra í barátt-
unni við heimsvaldasinna og
kapitalista.
Franska fréttastofan AFP hafði
það eftir fréttamönnum i
Moskvu, að fundinum, sem hefst
á morgun geti lyklað á þrenn-
an hátt: 1. Að fullur fjandskap-
ur verði með kommúnistaflokk-
um Kína og Sovétríkjanna. 2,
Bráðabirgðalausn verði fundin,
3. Að engin breyting verði á á-
standinu. Flestir fréttamannanna
eru þeirrar skoðunar, að fullur
fjandskapur verði með þessum
tveimur stærstu kommúnista-
flokkúm heims.
Fréttaritari Reuters segir, að
ágreiningur kommúnistaflokk-
anna hafi aldrei verið meiri en
nú, þegar samningafundurioa
hefsL