Morgunblaðið - 31.07.1963, Síða 12

Morgunblaðið - 31.07.1963, Síða 12
12 MOJtCVWTíLAÐIÐ Miðvlkudagur 31. júlí 1963 J®|i0r0WEMaM!» Utgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthias Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Útbreiðsiustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Að\lstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Atkriftargjald kr. 65.00 á mánuði innaniands. 1 lausasölu kr. 4.00 eintakió. MAGRAR KÝR OG FEITAR Afganistan skortir nálega allt nema sterkan vilja til framfara Eins og kunnugt er, sam- þykkti Alþingi ári§ 1932 lög um jöfnunarsjóð. Komst Jón Þorláksson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þá að orði um þau, að í þeim fælust „þær grundvallarreglur, sem þsirf að fylgja til þess að f jár- málastjórnin verði heilbrigð hér í okkar landi, þar sem af- koma atvinnuveganna og rík- issjóðs er mismunandi frá ári til árs“. Þremur árum áður en lögin um jöfnunarsjóð voru sett var svipuð hugmynd flutt á Al- þingi af Jóni Sigurðssyni á Keynistað. Hann flutti árið 1929 frumvarp, þar sem rætt var um að taka af tekjum góðu áranna til hallærisár- anna. Um þessar mundir tóku ungir Sjálfstæðismenn upp í stefnuskrá sína tillögu um „að nokkur hluti af tekjum góð- æra verði lagður í viðlaga- sjóð, er síðar verði varið til að bæta afkomu erfiðu áranna“. Árið 1930 fluttu svo þing- menn Alþýðuflokksins frum- varp til laga um Jöfnunarsjóð ríkisins. Náði það ekki sam- þykki. En árið 1932 eru eins og áður sagt samþykkt lögin um jöfnunarsjóð. En síðan líða rúm 30 ár, og þessi skyn- samlega löggjöf er aldrei framkvæmd. ★ Hinn 23. janúar síðastlið- inn, ritaði Gunnar Thorodd- sen fjármálaráðherra grein í Vísi, undir fyrirsögninni: í góðæri. Bendir hann þar á, að það hafi jafnan verið hygg- inna manna háttur, allt frá dögum Faraós og Jósefs að geyma frá góðæri til mögru áranna. — Faraó konung dreymdi draum um hinar feitu kýr og hinar mögru. Jósef réði drauminn svo, að sjö vænu kýrnar merktu sjö góð ár og mundu þá verða miklar nægtir um allt Eg- yptaland. En sjö mögru kýrn- ar merktu sjö hallærisár, sem mundu eftir þau koma og mundi þá hungrið eyða allt landið. Réði Jósef konungi Egypta til þess að safna vist- um á nægtarárunum, og vist- imar skyldu vera forði fyrir fólkið og landið á hallærisár- unum, sem á eftir mundu koma. Konungur fylgdi þessum ráðum, sem varð til þess að hann bjargaði þjóð sinni frá hungurdauða. Síðan hefur sagan um hinar feitu og mögru kýr lifað og aðferð Faraós konungs jafnan þótt hin hyggilegasta. Gunnar Thoroddsen lýkur grein sinni með þessum orð- um. „Lögin frá 1932 um jöfnun- arsjóð hafa aldrei komið til framkvæmda. Á árinu 1962, þegar 30 ár voru liðin frá lög- festingu þessarar hyggilegu hugmyndar varð töluverður tekjuafgangur hjá ríkissjóði. Það væri ráð að leggja nú á- litlega fúlgu af þessum tekju- afgangi í jöfnunarsjóðinn og safna þannig í kornhlöður til mögru áranna“. í framhaldi af þessu hefur svo ríkissjóður lagt hundrað milljónir króna af tekjuaf- gangi ársins 1962 í jöfnunar- sjóð. Hefur sú ráðstöfun vak- ið almenna ánægju. Á íslandi ríkir nú góðæri. En engum dylst að þrátt fyrir það geta ógæftir, aflaleysi, markaðs- tregða, verðfall og ýmiskonar vandræði skapað þjóðinni erfiðleika á komandi árum. Slíkt hefur oft gerzt áður og getur borið að höndum í fram tíðinni, þrátt fyrir það, að bjargræðisvegir þjóðarinnar eiga nú fullkomnari tæki en nokkru sinni fyrr. Gæti þá komið sér vel, að eiga gilda sjóði til þess að grípa til á hin um erfiðu árum, til þess að auka atvinnu og halda uppi nauðsynlegum framkvæmd- um í landinu. DEILUR RÚSSA OG KÍNVERJA Dússneskir og kínverskir kommúnistar ásaka nú hver aðra harðlega eftir hina árangurslausu ráðstefnu, sem haldin var í Moskvu, þar sem rætt var um hinn hugsjóna- lega ágreining kommúnista- flokkanna. En það verður nú ljósara með hverjum degin- um sem líður, að þarna er ekki aðeins um að ræða á- greining um túlkun á stefnu þeirra Marx og Lenins heldur djúptækan hagsmunaágrein- ing Kínverja og Ý ássa. Bak við átök kínverskra og rúss- neskra kommúnista liggur alda gömul deila. — Stefna Rússa gagnvart Kínverjum hefur alltaf verið sú, hvort sem keisarinn eða Stalín hafa mótað hana, að halda Kína sundruðu, veiku og varnar- litlu. Það er ekki lengra síðan en rúm 30 ár, að til blóðugra vopnaviðskipta kom milli Kínverja og Rússa vegna á- greinings um Mansjúríu. Þeg- ar kommúnistar náðu völdum í Kína árið 1949 rann upp nýtt Rréttir frá SÞ utan úr heimi5555 EINN AF atkvæðamestu sérfræð- ingum Norðurlanda um málefni þróunarlandanna, Svíinn Sixten Heppling, er nýkominn í heim- sókn til Svíþjóðar frá Afganist- an, „landinu, sem skortir næst- um allt nema sterkan vilja til framfara“. Hann fór þangað fyr- ir rúmu ári til að vera „resident representative" Sameinuðu þjóð- anna, en komst fljótlega að raun um, að hin víðtæka hjálparstanf semi Sameinuðu þjóðanna í Afganistan krafðist þess bein- línis, að hann tækist einnig á hendur önnur verkefnL Sixten Heppling hafði árum saman setið í stjórn hinnar sænsku hjálparstarfsemi við þró- unarlöndin, gefið út margar bæk- ur um efnið og haldið yfir þúsund fyrirlestra víðs vegar um Norðurlönd, þeg- ar honum var falið starf- ið í Afganistan vorið 1962 í hlutfalli við íbúafjölda þiggur þetta land meiri aðstoð frá Sam- einuðu þjóðunum en flest önn- ur lönd. Aðeins sú hjálp, sem Sameinuðu þjóðirnar og níu sérstofnanir þeirra veita í sam- bandi við áætlunina um aukna tæknilhjálp, tekur til 100 sérfræð- inga hvaðanæva úr heiminum og 125 Afgana. Verkefni Sixtens Hepplings er fólgið í því að samræma og hafa eftirlit með allri þessari margþættu hjálpar- starfsemi. Hann er líka forstjóri þeirrar starfsemi, sem kostuð er af Framkvæmdasjóði Sameinuðu þjóðanna (þar er um að ræða rannsóknir, fræðslustofnanir o.þ. u.l.), og er ennfremur í nánum tengslum við Barnahjálp Sam- einuðu þjóðanna. Upplýsingastjóri En ekki nóg með þetta! Hann er forstjóri upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í höfuðborg inni — og svo er hann þar á ofan gestgjafi og verzlunareig- andi. — Gistihúsið er ætlað starfs- fólki Sameinuðu þjóðanna, ný- komnum sérfræðingum og gest- komandi embættismönnum Sam- einuðu þjóðanna, og þar eru 20 rúm, segir Heppling. Þar er full- tímabil. í sambúð þessara þjóða. Fyrst í stað virtist góð vinátta með rússneskum og kínverskum kommúnistum. En það kom fljótlega í ljós, að Mao Tse-tung er ekki að- eins kommúnisti, heldur einn- ig kínverskur þjóðernissinni. Hann neitaði að sækja allar fyrirskipanir til Moskvu, og vildi heldur ekki sætta sig við heimsveldisstefnu rússneskra kommúnista gagnvart Kína og stórum hluta Asíu. Rússar ráða yfir meginhluta Norður- Asíu, strjálbýjum en auðug- um landsvæðum. Kínverjum fjölgar gífurlega og búa við stórkostleg landþrengsli. Þessar einföldu staðreyndir fela í sér miklu raunhæfari skýringu á deilum Kínverja og Rússa um þessar mundir, en hinn hugsjónalegi ágrein- ingur um kennisetningar kommúnismans. búið eldhús og" borðsalur — og þessa dagana er verið að leggja síðustu hönd á sundlaug. Verzl- unin er líka ætluð starfsfólki Sameinuðu þjóðanna. Þar eru seldar vörur, sem erfitt er að fá í Afganistan en teljast verða nauðsynlegar, eins og t.d. þurr- mjólk, kjöt, niðursuðuvörur og þvottaefni. Sixten Heppling — Hvað eru Sameinuðu þjóð- irnar að gera núna í Afganistan? Hvaða vandamál er helzt við að stríða? — Meginvandamál Afganistans er það, að landsmenn vita allt- of litið um land sitt; þá skortir mikilvægar upplýsingar um íbúa fjöldann og hlutföll ýmissa hópa í landinu, um auðlindir landsins o.s.frv. Fyrsta verkefnið er því að bæta úr þessum þekkingar- skorti. Sameinuðu þjóðirnar hafa gert manntalsskráningu á nokkrum stöðum í landinu. Eitt slíkt manntal leiddi í ljós, að á svæð- inu voru færri íbúar en gert hafði verið ráð fyrir. Ekki er úti- lokað, að svipuðu máli gegni um landið íheild. íbúatalan sem gef- in er upp opinberlega — 13 millj- ónir — er hrein getgáta. Níu af hverjum tíu ólæsir Þegar búið er að afla skjal- festra upplýsinga um aðstæð- urnar í landinu, ætlar Sixten Heppling að setja skólamálin efst á lista hjá sér. Menntun í öllum greinum og á öllum sviðum, ekki sízt iðnmenntun. Talið er, að 90 af hundraði allra landsmanna yf- ir 10 ára aldur séu ólæsir. Mik- ill skortur er á skólahúsum, en þó fyrst og fremst á kennurum. — Við leggjum nú alla áherzlu á menntun og þjálfun kennara. Framkvæmdasjóðurinn veitti ný- lega fé til kennaraskóla, sem á að mennta kennara í gagnfræða- skólum, en á þeim er tilfinnan- legur skortur. Hin aukna tækni- aðstoð hefur samvinnu við Barnahjálpina um menntun barnakennara og kennara sem þjálfa barnakennara. Því næst mun Sixten Heppling leggja áherzlu á samgönguvanda- málin. Eins og stendur vantar að miklu leyti vegi og fjarskipta- samband í landinu. Þegar úr því hefur verið bætt, verður fyrir al- vöru hægt að einbeina kröftun- um og fjármunum að þróun land búnaðar og atvinnulífs yfirleitt. An samgönguleiða og fjarskipta- möguleika yrði næsta lítið um athafnir á þeim vettvangL — f rauninni mætti endalaust benda á ný verkefni, sem verð- skulda fjárhagsaðstoð, segir Heppling. Landið skortir nálega alla hluti, næstum allt nema sterkan vilja til framfara. Það hefur verið mín jákvæðasta og eftirminnilegasta reynsla-á þessu ári að kynnast stálvilja fólksina til að bæta lífskjör sín. Þessi vilji er ekki einungis fyrir hendi hjá takmörkuðum hópi manna í æðstu embættum, heldur líka hjá almúganum. Gertæk bylting — í Afganistan á sér nú stað gertæk bylting, segir Heppling ennfremur. Hún nær inn á öll svið mannlífsins. Afganistan hef ur jafnan verið landbúnaðarland — sauðfjárræktin þar er fræg fyr ir hinar ágætu karakúl-gærur — en nú er líka að rísa þar iðn- aður. Til sementsframleiðslu hef- ur Afganistan hráefni, sem gerir hina fullkomnu vöru samkeppn- ishæfa á heimsmarkaðnum, en framleiðslan fulinægir aðein3 innanlandsþörfum enn sem kom- ið er. Þá er þar einnig klæða- iðnaður, og ein af klæðaverk- smiðjunum í Afganistan er lik- lega sú nýtízkulegasta sinnar teg undar í gervallri Asíu. Ennfrem- ur er farið að nýta hina miklu og óvenjulega góðu ávaxta- uppskeru til iðnaðar. Enn er ekki vitað með vissu hvað leynist í jarðvegi Afganist- ans. Með rússneskri aðstoð hefur fundizt mikið magn af náttúru- gasi í jörðinni. Nú er verið að leita að olíu. Margir eru sann- færðir um, að þessar auðlindir séu fyrir hendi og menn vonast líka til að finna dýra málma i fjöllunum, segir Sixten Hepp- ling að lokum. 40.000 manns deyja árlega eftir höggormsbit Alþjóðaheilbrigðismála stofn- unin telur, að vægt reiknað láti árlega 40.000 manns lífið eftir höggormsbit, segir í tímariti stofnunarinnar, „World Health". Flestir eða kringum 70 af hundr- aði þeirra, sem þannig láta lífið, eiga heima í Asíu, en þar er að finna nálega allar tegundir af eitumöðrum. Af þeim 2500 nöðru tegundum, sem til eru í heimin- um, em tæpar 200 lífshættulegar mönnum. Ýmis lönd og land- svæði eru algerlega laus við eit- urslöngur, t.d. Chile, Nýja Sjá- land, írland, Madagaskar og margar aðrar eyjar. í Afríku er mikið um höggorma. Þar hafa m.a. fundizt tvær tegundir af gleraugnaslöngum, sem spýta frá sér eitrinu. Þær geta báðar hæft mann í andlitið með eitur- gusu í 3-4 metra fjaflægð. Nú orðið eru til góð lyf gegn höggormsbiti; þegar búið er að ná eitri úr nöðrunum og gera það óvirkt, er því dælt í eitthvert dýr, t.d. hest, sem síðan vinnur úr því móteitur. Úr blóði þessa dýrs fá menn blóðvatn, sem not- að er til að hjálpa mönnum og vernda þá. Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin sendi slíkt blóð- vatn til Burma, þegar lands- mönnum var ógnað af höggorm- Frh. á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.