Morgunblaðið - 31.07.1963, Síða 13

Morgunblaðið - 31.07.1963, Síða 13
Miðvikudagur 31. j'ulí 1963 1MORGV1SBLAÐ1Ð 13 FYRIR nokrum dögum fór fram í þjóðþinginu í Pakistan umræða um utanríkismál og lýsti utan- ríkisráðherra Iandsins, Z. A. Bhutto, því þá yfir, að stjórn Pakistan stæði andspænis einu erfiðasta og alvarlegasta vanda- máli, er hún hefði mætt til þessa. Fyrirsjáanlegt væri að víðtækar breytingar yrði að gera á utanrikisstefnu landsins og þyrftu mörg mál endurskoðun- ar við i því sambandi. Lét utan- ríkisráðherrann jafnframt svo um mælt, að kæmi til árásar á Pakistan af hálfu Indverja, gætu Pakistanar reitt sig á að- stoð wstærsta ríkis Asíu“, þ.e. Kína Mikið kapp er lagt á herþjálfun í Pakistan. Hér á myndinni sjást ungir drengir að heræfingu Slítur Pakistan tengzl- In við Vesturveldin? ÍJtlit fyrir vaxandi samstarf við Kínverja Ayub Khan Þessi ummæli utanríkisráð- herrans og þróun mála í Pakist- an undanfarna mánuði telja stjórnmálafréttaritarar benda til þess, að stjórn landsins ætli sér að slíta öll tengzl við banda- lögin SEATO og CENTO (Suð- austur-Asíu-bandalagið og það, sem áður var Bagdadbandalagið) og ganga í hernaðarbandalag með Kínverjum. Lengi hefur ver ið haldið uppi hörðum árásum á bandalögin tvö í dagblöðum í Pakistan og hið hálf-opinbera blað „Dawn“ í Karachki hefur mafgsinnis borið fram kröfur um að Pakistan segi sig úr banda lögunum og geri samninga við „hinn eina trúa vin Pakistan — Kína“, eins og það sagði. Hing- að til hafa þó ráðherrar stjórn- arinnar verið tiltölulega hóg- værir í ummælum sínum og tal- að um, að ekki ætti að vera nauðsynlegt að rjúfa tengzl Vest urveldanna og Pakistan, þótt Pakistan eigi vinsamleg sam- skipti við Kína. Með ummælum utanríkisráð- herrans virðist sem harðari stefna hafi verið tekin af hálfu stjórnarinnar. Hann lét að því liggja í ræðu sinni, að stefna Vesturveldanna gagnvart Ind- verjum hefði verið barnaleg að imdanförnu og sagði, að leið- togar þeirra hefðu ekki treyst sér til að búa svo um hnútana, að Indverjar gætu ekki beitt gegn Pakistönum, þeim vopnum, er þeir fengju frá Vesturveldun- um. Úr því svo væri komið væri ekki annað sýnna, en end- urskoða yrði algerlega utanríkis stefnu Pakistan. Þessi ummæli og sú stefna, sem að baki þeirra virðist liggja, eru að öllum líkindum bein af- leiðing af því samkomulagi milli Bretlands, Bandaríkjanna og Ind- lands, sem nýlega var skýrt frá í fréttum. Samkvæmt því munu Vesturveldin láta Indverjum í té ný ratsjártæki, er komið verði fyrir á landamærum Indlands og Kína. Ennfremur munu haldn ar sameiginlegar æfingar brezkra bandariskra og indverskra flug- sveita. Opinberlega er sagt, að þessi ráðstöfun sé gerð til þess að kenna Indverjum meðferð nýtízku ratsjárbúnaðar, en lítill vafi er talinn, að með þessu sé verið að undirbúa, að Bretar og Bandaríkjamenn geti komið Indverjum til aðstoðar gegn Kín- verjum, ef þurfa þykir. Afstaða Pakistan-stjórnar er sögð byggjast á því nú, að utan- ríkisstefna siðustu níu ára hafi verið á misskilningi byggð. Þeg- ar Pakistan gerðist aðili að SEATO og CENTO á árunum 1954—55 var það fyrst og fremst í þeim tilgangi að fá aðstoð til að -vinna Kashmír úr höndum Indverja, en þeim hefur lítt orð- ið ágengt í því máli, sem kunn- ugt er. Allt frá því Pakistan og Ind- land urðu sjálfstæð ríki árið 1947, hafa þau bitizt um Kashm- ír, sem Pakistanar telja eðlilegt að tilheyri þeim, þar eð yfir- gnæfandi meirihluti íbúanna er múhameðstrúar. En Indverjar hafa ekki viljað gefa sinn hlut eftir. Því var það, að Pakistanbúar hörmuðu ekki á neinn hátt hina ótvíræðu sigra kínversku her- sveitanna yfir Indverjum, fyrst eftir að bardagarnir á landamær- unum hófust. En illa dulin ánægja þeirra snerist brátt upp í áhyggjur og þær alvarlegar, því að afleiðingarnar urðu stór- kostleg efling herbúnaðar Ind- verja, með aðstoð bandalags- ríkja Pakistans. Og þótt Vestur- veldunum tækist að koma á við- ræðum deiluaðilanna um Kashm- ír, var það ekki til neins og þær runnu fljótlega út í sand inn. Áður en kom til bardaga Ind- verja og Kínverja stóð herbún- aður Pakistans hinum indversku tiltölulega miklu framar. Hann var allur betri og nýtízkulegri meðal annars höfðu þeir fengið sveit F-104 orrustuvéla, þeir höfðu fimm fullskipaðar her- deildir á móti ellefu deildum Indverja. Hlutfall þetta hefur stórum breytzt að undanförnu. Vesturveldin hafa heitið Indverj um sex deildum hermanna, er æfðir séu til hernaðar í fjalla- héruðum. Jafnframt hafa Ind- verjar gert róttækar ráðstafanir heima fyrir til þess að efla her- styrk sinn. Gera þeir ráð fyrir því að hafa yfir að ráða 17 her- deildum í árslok 1964 og miða að því að hafa 20 herdeildir ári síðar. Fjárframlög til hernaðar- þarfa hafa verið hækkuð um helming á síðasta ári og margs konar starfsemi komið á fót í þessu sambandi. Og Indverjar hafa ekki aðeins fengið hernaðaraðstoð frá Vesturvéld- unum, heldur einnig Rúss um, m.a. samið um smíði MIG-orrustuþota. Því hef- ur einnig verið fleygt, að ind- versk sendinefnd hafi verið í Moskvu að undanförnu til þess að semja um smíði kafbáta. Marg ir telja ólíklegt, að þessi fregn sé á rökum reist, þar sem Ind- verjar hafi til þessa fengið alla þjálfun í meðferð kafbáta í Bret landi. Við allt þetta bætist, að iðnaður Indverja stendur með mun meiri blóma en iðnaður Pakistana og þeir hafa yfir meiru og betra vinnuafli að ráða. — ★ — Ótti Pakistana er því e.t.v. skiljanlegur, þegar haft er í huga hversu djúpur ágreiningur þjóð- anna er og einnig hvernig hátt- að er legu Pakistans. Landinu er skipt í tvo hluta, er liggja hvor sínu megin við Indland og er fjarlægðin milli þeirra 2000 km. Og milli íbúa Vestur- og Austur-Pakistana ríkir lítil vin- átta. Austur-Pakistan, sem fleygar indverska héraðið Assam frá Indlandi sjálfu, er aðeins fimmt- ungur Vestur-Pakistans að stærð, en þar búa meira en helmingur allra Pakistana, eða rúmar 50 milljónir manna. Helzti atvinnu- vegur A-Pakistana, jutehampur, um 60% af útflutningi Pakistans. Engu að síður er A-Pakistan hinn vanþróaði hluti landsins. Um 80% af útflutningstekjum landshlutans er varið til fram- kvæmda í V-Pakistan. Þar er jafnframt menntunarskilyrði öll miklu betri en í A-Pakistan, og afleiðing þess sú, að allir em- bættismenn og flestir opinberir starfsmenn þar koma frá V-Pak- istan. Þá eru launakjör almenn- ings í austurhlutanum langtum lakari en í vesturhlutanum. Stjórnarleiðtoginn Ayup Khan hefur hin síðari ár reynt að bæta úr þessu ástandi, en róðurinn reynzt erfiður. Straumur fjár- magnsins frá A- til V-Pakistan ítalía — Sviss 6—0 Þýzkaland — Austurríki 6—0 Belgía — Holland 6—0 Úrslit í 11. umferð í kvenna- flokki urðu þessi: Noregur — írland 6—0 Svíþjóð — Finnland 6—0 England — Egyptaland 4—2 Frakkland — Spánn 6—0 Danmörk — Belgía 4—2 Þýzkaland — Sviss 4—2 Finnland - island 5-1 í 14. UMFERÐ í Evrópumótinu í bridge tapaði Island fyrir Finn- landi með 69 stigum gegn 83 eða 1—5. Úrslit í 14 umferð urðu þessi: England — Sviþjóð 5—1 P'innland — ísland 5—1 Pólland — Irland 6—0 Danmörk — Egyptaland 4—2 Frakkland — Noregur 6—0 Spánn — Líbanon 4—2 Austurríki — Holland 6—0 Staðan i kvennaflokki að 11 umferðum loknum er pessi: 1. England 61 stig 2. Frakkland 54 — 3. Sviss 43 — 4. Svíþjóð 39 — 5. Danmörk 39 — 6. írland 38 — 7. Belgía 37 — er þegar orðinn svo þungur, fjár- festingin þar hefur dregið að sér stöðugt meira fé, og fólkið leitar þangað, sem launa- og lífskjaramöguleikar eru bezt- ir. íbúar Austur-Pakistan eru mjög bitrir yfir þessu ástandi og ekki bætir það úr skák, að hinu forna menningarmáli þeirra, bengali, hefur ekki verið gert jafn hátt undir höfði og málinu urdu, sem talað er í V-Pakistan, en Á-Pakistanar skilja alls ekki. Ástæðan til þess, að ekki hef- ur komið til sjálfstæðishreyfinga í Austur-Pakistan, er eingöngu talin óttinn við Indverja, enda hafa leiðtogar Pakistan jafnan alið á ótta og hatri í þeirra garð og Indverjar sjálfir reyndar stuðl að að þeim hræringum með ýms- um aðgerðum sínum. — ★ — Þegar rætt er um þróun mála í Pakistan og vaxandi tilhneig- ingu stjórnarinnar til samstarfs við Kínverja, er tíðum á það bent hve Pakistan er óhemju háð efnahags- og hernaðaraðstoð frá Vesturveldunum. Mun sú að- stoð nema allt að 60% af þjóðar- tekjum landsins og er tiltölulega skammt síðan fór að sjást af henni verulegur árangur. Fimm ára framkvæmdaáætlanir hafa tvívegis verið gerðar í Pakistan. Hin fyrri bar ekki góðan árang ur, en hin síðari, sem byggist að miklu leyti á nær 20 milljarða kr. (ísl.) vestrænni aðstoð hefur allt að því farið fram úr björt- ustu vonum þeirra. Drengur frá Auslur-Pakistan Efnahagsástandið í Kína er ekki þesslegt, að Pekingstjórn- in geti hlaupið í skarðið ef Vest- urveldin draga verulega úr efna- hagsaðstoð við Pakistan. Því er viðbragða þeirra beðið með mikilli eftirvæntingu. Næsta víst þykir, að Vesturveldin reyni eftir mætti að sporna við áhrifum kommúnista í Pakistan, en menn eru mjög uggandi um árangur þeirrar viðleitni, úr því sem kom ið er. 8. Egyptaland 35 — 9. Noregur 34 —i 10. Þýzkaland 32 — 11. Líbanon 31 — 12. Holland 28 — 13. Spánn 27 — 14. Austurríki 22 — 15. Finnland 8 — Staðan í opna flokknum aí 14 umferðum loknum er þessi 1. England 82 stig 2. Itaiía 68 —i 3. Pólland 56 — 4. Belgía 51 ... 5. Frakkland 50 — 6. Finnland 48 — 7. Sviss 47 — 8. Svíþjóð 43 — 9. Island 35 — 10. Noregur 35 — 11. Spánn 35 — 12. Líbanon 34 13. Þýzkaland 33 — 14. Austurríki 30 — 15. Danmörk 30 — 16. Holland 27 17. írland 26 18. Egyptaland 26 —

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.