Morgunblaðið - 08.10.1963, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 08.10.1963, Qupperneq 1
24 siðuí Hugsjónadeilur Kínverja og Rússa Veröur Kínverjum vikiö úr alþjóöasam- tökum kommúnista? Búizt við rdðstefnum um mdlið d næstúnni Moskvu, 7. okt. (AP-NTB). H A F T er eftir heimildum, sem hingað til hafa reynzt á- reiðanlegar, að hráðlega verði boðað til alþjóðaráðstefnu kommúnista í þeim' tilgangi að víkja Kínverjum úr al- þjóðasamtökunum. — Benda heimildirnar á að undirbún- ingur að fundarboði þessu sé þegar hafinn, og að fundar- boðið komi sennilega frá Moskvu. En eftir að ráðstefn- an hefst hafa R;ssar þá þægi- legu aðstöðu að geta skotið sér á bak við kröfur komm- únistaflokkanna í öðrum löndum. »orottvikningu Kina er bent sér- staklega á tvær athyglisverðar greinar, sem birtar hafa verið nýlega. Önnur þeirra er endur- prentun úr tímaritinu „Komm- unist“, sem birtist í Pravda, þar sem Kínverjar eru sakaðir um að kljúfa alþjóðasamtök komm- únista og koma illu orði a komm únismann. Hin greinin birtist í Renascita, vikuriti ítalskra kommúnista. bar er því haldið fram að Kínverjar hafi stutt ötul lega ýms klofningsöfl í flokk- unum í Brasilíu, Belgíu, Ástralíu Ítalíu og víðar. í Renascita Segir m.a.: „Blöð og útvarp í Peking dúsama starf- Framh. á bls. 23 •--------------rp--------------- Torfahúsið á Flateyri í ljósu m loga. — Sjá frétt á bls. 24. — Gífurlegt tjón af völdum fellibyls 4000 Kafa farizt á Haiti Helmingur uppskerunnar á Kúbu eyði- lagðist - Taugaveikifaraldur á Tobago? Þegar leitað var staðfestingar á þessari fregn hjá opinberum aðilum í Moskvu í dag, fékkst hún ekki. Bent er á að ýmsir kommún- lstaflokkar og forustumenn víða um heim hafi að undanförnu lýst yfir fylgi við skoðanir Rússa í hugsjónadeilunni við Kínverja. Og flestar yfirlýsing- arnar fela í sér ádeilur á stjórn- Ina í Kína fyrir að vinna gegn „alþjóða bræðralagi kommún- ismans." begar ráðstefnan verður boð- tið, mun einnig boðið þangað fulltrúum Kína, og þeirra ríkja, eem helzt fylgja Kínverjum að málum, eins og Norður Kóreu, Japan, Nýja Sjálandi og Al- baníu. Jafnframt verður gengið frá dagskrá ráðstefnunnar, en hún er byggð á stefnu kommún- istaflo’dksins í Sovétríkjunum. Er talið að kínversku fulltrú- «rnir, ef þeir mæta á ráðstefn- unni, muni ekki gfeta samþykkt dagskrána, en eftir það verði auðvelt að undirbúa brottvikn- ingu Kína úr samtökunum. í sambandi við fréttirnar um Havana og Miami, 7. okt. — AP-NTB — FELLIBYLURINN „FIora“, sem gert hefur mikinn usla á Karabiska hafinu undanfarna daga, gekk enn í dag yfir Kúbu í fjórða skipti á jafn mörgum dögum. Hefur felli- bylurinn valdið gífurlegu tjóni á Kúbu, og er m.a. ótt- azt að helmingur allrar kaffi-, sykur-, hrís-, baðniullar- og kakóuppskeru hafði eyðilagzt í óveðrinu. Úrhellisrigning samfara storminum hefur orsakað flóð sem hafa hrakið þúsundir manna frá heimilum sínum. Þeirra á meðal eru 40 þúSund íbúar borgarinnar Victoria de las Tunas, sem allir hafa yfir- gefið borgina. Einnig hefur „Flora“ valdið miklu tjóni á Jamaica og Haiti. Um mannslát af völd- um óveðursins er lítt vitað á Kúbu, en á Haiti hafa fundizt lík 400 manna. Óttazt er að fjögur þúsund manns hafi beðið bana á Haiti. Þyrlur og bátar hafa verið not- uð til að færa íbúum V-ictoria de las Tunas og Santiago de Cuba vistir. Eru allir flutningar mikl- um erfiðleikum bundnir, því auk úrkomunnar ganga stormar yfir flóðasvæðinu með allt að 160 kílómetra hraða á klst. Fellibylurinn gekk síðast yfir Kúbu á sunnudagsmorgun, en færðist síðan suður fyrir eyjuna og var þar kyrr í 24 tíma. Tók hann þá að færast norður á bóg- inn, yfir Oriente- og Camaguey- héruðin. Talin er hætta á að felli- bylurinn haldi áfram ferð sinni til Bahamaeyja og Fjoridaskaga. Miðja fellibylsins hefur ekki náð til Jamaica, en þó hefur of- veðrið valdið þar tjóni, sem á- ætlað er að nemi mörgum millj. sterlingspunda. Samfara storm- Framh. á bls. 23 Seldi lóðir ; himnaríki Lima, Perú 1 Lögreglan í Perú hefur haft hendur í hári svikara i nokkurs, sem hafði grætt vel á þvi að selja auðtrúa sálum lóðir í himnaríki. Maður þessi Andreas Oswaldo Campos, útbýtti einnig nafnspjöldum sínum til allra, sem hafa vildu og bar hann á spjaldinu tit- ilinn „Erkiengill". í Lóðirnar í himnaríki seldi í Campos með afborgunum, og J voru þær misjafnar í verði, V allt eftir því hve nærri þær V ® voru „Húsi Guðs“. ‘‘ Vígbúnaður í Alsír en Ben Bella fer til New York Kennedy staðfestir samn- inginn um tilraunabann Samningurinn gengur í gildi á fimmtudag Algeirsborg og Michelet, 7. okt. (NTB-AP). Hersveitir stjórnar Ben Bella hafa í dag unnið að því að koma upp vegatálmunum á þjóðveg- nnum sunnan og suðaustan við Algeirsborg til að hindra frekari útbreiðslu uppreisnarinnar í fjallahéruðunum í Kabylíu. Einn ig hafa herir stjórnarinnar og uppreisnarmanna búið um sig í tjallahéruðunum, og var óttazt að til átaka kæmi þar. Talið er að uppreisnarmenn undir forustu el Hadj ofursta hafi um 6 þústmd manná herlið í fjöllunum. Ekki virðist Ben Bella forseti óttast ófrið í landinu, því hann tilkynnti í dag að hann færi til New York á miðvikudag, þar sen hann hyggst ávarpa Alls- herjarþing S>. Erlendir fréttamenn í Alsír benda á að ef til vill verðí kom- izt hjá borgarastyrjöld í land- inu. Þótt bæði stjórnarherinn og uppreisnarmenn hafi vígbúizt í fjöllunum, og til átaka geti kom ið þar, sé aðeins um staðbundna uppreisn að ræða. Eiga uþp- reisnarmenn erfitt með að sækja út fyrir fjöllin niður á bersvæði, en stjórnarherinn getur ekki hrakið uppreisnarmenn úx fylgsnum þeirra. Ben Bella hefur tilkynnt að áður en hann heldur til New York muni hann fara til Kabyl- íu. Fer hann frá Algeirsborg kl. 11 árdegis á morgun (þriðjudag) en kempr aftur kl. 20 sama dag. Hyggst hann kynna sér ástand- ið af eigin raun. waslhington, 7. okt. (AP-NTB). KENNEDY forseti undirrit- aði í dag samninginn um tak- markað bann við tilraunum með kjarnorkuvopn. Flutti forsetinn ávarp við þetta tækifæri, og sagði m.a. að samningurinn væri f' ýr og heiðvirð skuldbinding þjóðar- innar í þágu afkomu mann- kynns. „Ef samningur þessi bregzt, verður það ekki vegna aðgerða okkar“, sagði Kenne- dy. „Og jafnvel þótt hann bregðist, munum við ekki sjá eftir að hafa tekið á okkur þessar skuldbindingar“. — Sagði hann að samningur þessi táknaði upphaf, sem gæti leitt til frekari sanin- inga austurs og vesturs. Kennedy benti á að fyrstu tveir áratugir kjarnorkuald- arinnar hafi einkennzt af ótta. En vegna samningsins um takmarkað tilraunabann hafi dregið úr óttanum en von irnar glæðst. Framh. á bls. 23

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.