Morgunblaðið - 08.10.1963, Qupperneq 5
Þriðjudagur 8. okt. 1963
MQRGUNBLAÐíÐ
tJM síðustu helgi lauk sýningu
á listaverkum Páls Steingríms
sonar í Vestmannaeyjuom. —
Yfir 800 manns sóttu sýning-
una, sem stóð í 3 daga. Mynd-
irnar voru 33 og seldust 30
þeirra. Hvorttveggja mun al-
gert einsdæmi í Eyjum.
Fréttamaður Morgunblaðs-
ins heimsótti Pál að lokinni
sýningu og átti við hann stutt
samtal.
— Það rætist ekki á þér, að
enginn sé spámaður í sínu
heimalandi.
— Ég ann Vestmannaeyj-
um meira en nokkrum öðrum
„Skál fyrir Kjarval“ heitir þessi hraunmynd.
Seldi 30 myndir af 33
Spjallað v/ð Pál Steingrlmsson
listmálara frá Vestmannaeyjum
bletti á jarðkringlunni, og á
skerþjóðinni, sem þar býr,
margt gott að gjalda.
— Sækir þú abstrakt motív
þín að einhverju leyti til um-
hverfisins?
■— Já, það er langoftast eitt-
hvað í náttúrunni, sem hvet-
ur mig til myndgerðar, en er
svo blandað geðhrifum, sem
ég verð fyrir.
— Er þetta ekki óvenjuleg
Við opnun sýningarinnar. Á fyrsta klukkutímanum seldust 7
Imyndir. Listamaðurinn situr við skriftir.
braut myndlistar, sem þú hef-
ur vaiið?
— Ég er ekki nógu fróður
um myndlist yfirleitt, til þess
að svara því. í listaverkum er
oftast stór hluti af höfundin-
um sjálfum og persónuein-
kenni mjög glögg. Hvað efnið
snertir, held ég að enginn noti
það á sama hátt. Annars skipt
ir þetta engu meginmáli, því
gæði myndarinnar fullgerðrar
hljóta að vera það, sem dæmt
er um.
— Gerir þú eingöngu stein-
myndir?
— Á sumrin, meðan sólin er
stór og kringlótt. Á veturna
teikna ég og mála. Teiknun er
afar þýðingarmikil. Form-
skynið skerpist við aukna
teikniþjálfun.
■— Ertu ekki orðinn ríkur?
— Ég veit það ekki, en ég
á eftir nokkrar ágætar mynd-
ir.
— Ertu að hugsa um að sigla
til útlanda í vetur?
— Líklega ekki, en margt
er að brjótast um í okkur
hjónunum. Mig dreymir stóra
drauma.
Nú kveður fréttamaður og
skilur listamanninn eftir hjá
draumum sínum. — Sigurgeir.
ELDVARNARVIKA:
Gætið varúðar við lakkburb
i»EGAR þið eruð að lakk
bera gólf eða vinna með
eldfim lím þá gætið þess
að hafa góða loftræstingu,
því mikil uppgufun er frá
þessum efnum.
Aldrei má hafa opinn
eld svo sem gasloga, raf-
magnsofn eða sígarettu ná
lægt, þegar verið er að
lakkbeia góif, því vegna
mikillar uppgufunar frá
lakkinu, má búast við að
kvikni í lofttegundunum,
eins konar sprenging verð
ur og eldurinn hleypur um
allt herbergið á svip-
stundu.
Nauðsynlegt er að kynna
sér vel, hvaða ábendingar
framleiðandi gefur um
meðferð á lakki og lími.
Samband brunatryggj-
enda á íslandi.
Múlacafé
vantar stúlkur til af-
greiðslustarfa nú þegar. —
Uppl. í síma 37737.
Hafnarfjörður
Dugieg stúlka óskast til
afgreiðslustarfa strax.
Boðabúð,
Sjónarhól.
Ráðskona óskast
á gott sveitaheimili í Vest-
ur-Sk’aftafellssýslu. Þrennt
fullorðið í heimili, sími og
rafmagn, sér herbergi. Má
hafa með sér barn. Uppl.
í sima 22966.
Plast handlistar
set plasthandlista á handrið
(úti og inni). Utvega efni,
ef óskað er. Uppl. í síma
16193.
Barnavagn
Til sölu barnavagn (Zek-
uva). Einnig hvítir kven-
skautar nr. 37. Sími 3aS45.
BÍLSKÚR — ÞAKJÁRN
Timburbílskúr, múrhúðað-
ur til sölu, heppilegur fyrir
htið verkstæði, færanleg-
ur. Einnig selzt lítið notað
þakjárn á sama stað. Uppl.
í sima 32455 milli 12 og 1.
Ellilífeyrir
í almannatryggingalögum nr. 40 frá 1963, sem taka
gildi 1. janúar 1964, er ákveðið, að allir, sem eru
67 ára eða eldri þann 1. janúar 1964, eigi rétt til
ehihféyris.
Með hliðsjón af ofangreindum breytingum auglýs-
ist eftir umsóknum þeirra, sem kunna að öðlast rétt
til ellilífeyris er ofangreind lög taka gildi 1. jan-
úar 1964.
í Reykjavík fást umsóknareyðublöð á skrifstofu
vorri Laugavegi 114, og óskast þau útfyllt eins og
form þeirra segir til um, ef eftir lífeyrinum er ósk-
að og send oss fyrir 1. nóvember 1963. Utan Reykja-
víkur fást umsóknareyðublöð hjá umboðsmönnum
vorum, sýsiumönnum og. bæjarfógetum.
Tvygg'ogastofnun ríkisins
— Lífeyrisdeild —
StyrlCTarfélag lamaðra og fatlaðra.
Sveinspróf í húsasmiði
Þeir meistarar, er ætla sér að láta nema ganga und
ir sveinspróf á þessu hausti, sendi umsókn fyrir
10. október, til formanns prófnefndar Gissurar
Símonarsonar, Bólstaðarhlíð 34, ásamt eftirtöldum
gögnum.
1. Námssamningum
2. , Burtfararprófi frá Iðnskóla.
3. Yfirlýsingu frá meistara um að
námstíma sé lokið.
4. Fæðingarvottorði.
5. Próftökugjaldi.
Prófnefndin.
Skrifstofustarf óskast
Úngur maður með verzílunarskólapróf og góða
reynsiu í almennum skrifstofustörfum, óskar eftir
vinnu strax. Tilboð, merkt: „Skrifstofustarf —
3505“ sendist afgr. Mbl. fyrir 10. þ.m.
Skuldabré?
Ef þér viljið kaupa eða selja húsatrvggð eða rík-
istryggð skuldabréf, þá leitið til okkar.
FYRIRGREIÐSLUSKRIFSTOFAN
Fasteigna og verðbréfasala
Austurstræti 14. — Sími 16223 (opið kl. 5-7)
(Heimasími 12469).