Morgunblaðið - 22.10.1963, Page 12
12
MORGUNBLADIÐ
Þrlðjudagur 22. okt. 1963
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannesseri,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglysingar: Arm Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðsdstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 80.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 emtakiö.
FRAMLEIÐSLAN OG
VIÐREISNARSTEFNAN
Tlöfuðmarkmið viðreisnar-
ráðstafana núverandi
ríkisstjórnar, þegar hún hóf
störf sín, var að koma í veg
fyrir stöðvun framleiðslunn-
ar, sem yfir vofði eftir upp-
gjöf vinstri stjórnarinnar.
Jafnvægi í efnahagsmálunum
varð að nást, ella var stöðv-
un útflutningsframleiðslunn-
ar óhjákvæmileg. Uppbóta-
kerfið hafði gersamlega geng-
ið sér til húðar. Það var ekki
lengur fært um það að halda
framleiðslutækjunum í gangi.
Með hinum víðtæku við-
reisnarráðstöfunum ríkis-
stjórnarinnar tókst ekki að-
eins að afstýra því hruni, sem
við.blasti þegar vinstri stjórn
in hrökklaðist frá völdum.
Viðreisnarstjórninni tókst að
tryggja þróttmikinn rekstur
atvinnutækjannd og síðan all
verulega framleiðsluaukn-
ingu.
Þannig hafði verið brotið
í blað í íslenzkum efnahags-
málum. Grundvöllur var lagð
ur að áframhaldandi fram-
leiðsluaukningu og þar íneð
bættum lífskjörum alls al-
mennings í landinu.
Það er staðreynd, sem allir
íslendingar þekkja, að það
voru fyrst og fremst stjórn-
arandstæðingar, Framsóknar-
menn og kommúnistar, sem
ekki vildu una þessari þró-
un. Þeir sögðu fólkinu að það
varðaði ekkert um greiðslu-
getu atvinnuveganna. Það
þyrfti ekki að miða kröfur
sínar um hækkað kaupgjald
við afkomu framleiðslunnar.
Kommúnistar og Framsókn-
armenn, sém nýlega voru bún
ir að leiða verðbólguflóð yfir
þjóðina og allt að því stöðv-
un framleiðslutækjanna
vegna of mikils tilkostnaðar,
sögðu nú, að útflutningsfram-
leiðslan gæti borið stórkost-
lega aukinn tilkostnað.
Heildarsamtökum verka-
lýðsins var svo beitt harka-
lega fyrir hinum óhóflegu
kröfum á hendur framleiðslu-
tækjunum.
STÖÐUGT GENGI
¥slendingar verða að skilja
*■ það, að lífskjör þeirra
byggjast öll á því, að útflutn-
ingsatvinnuvegir þeirra séu
reknir á heilbrigðum og
traustum grundvelli. Ef út-
gerðin og hraðfrystihúsin eru
rekin með halla, er skammt
yfir í stöðvun og gengisfell-
ingu.
Hagur framleiðslunnar hef-
ur þrengzt verulega vegna
kaupphlaupsins milli kaup-
gjalds og verðlags undanfar-
in misseri. Þó standa vonir til
þess að unnt verði að tryggja
rekstur tækja hennar með
ýmsum samræmdum aðgerð-
um á sviði efnahagsmála. Rík-
isstjórnin hefur lýst því yfir,
að hún muni leggja höfuð-
kapp á að tryggja stöðugt
gengi krónunnar og hindra
gengisfellingu. En engum
hugsandi manni getur dulizt
að því aðeins er það mögu-
legt að þjóðin stingi nú við
fótum, stöðvi kaupphlaupið
milli kaupgjalds og verðlags
og freisti raunhæfra leiða til
þess að tryggja hag sinn.
íslenzkir kjósendur sýndu
á sl. vori mikinn þjóðmála-
þroska þegar þeir veittu við-
reisnarstjórninni ótvíræða
traustsyfirlýsingu fyrir starf
hennar og stefnu. Nú veltur
mikið á því að almenningur
standi fast með ríkisstjórn-
inni í viðleitni hennar til þess
að tryggja rekstur fram-
leiðslutækjanna og áfram-
haldandi aukningu útflutn-
ingsframleiðslunnar. Það er
eina leiðin til þess að bæta
lífskjörin og koma í veg fyrir
að hinn mikli árangur við-
reisnarstarfsins renni út í
sand verðbólgu og upplausn-
ar. —
NÝR FORSÆTIS-
RÁÐHERRA
BRETLANDS
Niðurstaða átakanna innan
íhaldsflokksins um eftir-
mann Macmillans varð sú, að
Home lávarður var valinn til
þess að mynda nýja ríkis-
stjórn. Eftir er svo að vita,
hvernig sú ákvörðun gefst.
Viðurkennt er, að Home
lávarður sé mikilhæfur og
þaulreyndur stjórnmálamað-
ur. Hann hefur getið sér góð-
an orðstír sem utanríkisráð-
herra og hvarvetna komið
fram af festu og virðuleik.
En ýmislegt bendir til þess
að hann sé ekki sigurstrang-
iegur leiðtogi til þess að leiða
íhaldsflokkinn fram til sigurs
í næstu kosningum, sem fram
eiga að fara í Bretlandi á
næsta ári. Sú staðreynd að
hann tilheyrir lávarðadeild-
inni veldur honum og flokki
hans áreiðanlega miklum
vandkvæðum. Stór hluti
brezku þjóðarinnar lítur á
lávarðadeildina sem úreltar
leifar frá liðnum tíma, þrátt
fyrir það þótt hún sé virðu-
Miklir liðsflutningar yfir
til hvaða staðar sem er á
jörðinni, ef Bandaríkjamenn
eða bandamenn þeirra verða
Framh. á bls. 23.
f DAG hefjast miklir liðs-
flutningar frá Bandaríkjun-
um til Evrópu. Á þremur dög--
um verða 16. þús. menn úr
bandaríska flughernum og
landhernum fluttir loftleiðis
til Vestur-Þýzkalands, en þar
taka þeir þátt í heræfingum
á vegum Atlantshafsbanda-
lagsins.
Fyrir skömmu skýrði Ro-
bert McNamara, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna frá
liðsflutningunum og sagði, að
aldrei hefðu eins margir
bandarískir hermenn verið
fluttir með flugvélum yfir
Atlantshaf á jafn skömmum
tíma.
Bandarísku hermennirnir
verða fluttir til Evrópu frá
herstöðvum í Texas og á aust-
urströnd Bandaríkjanna. Með
al þeirra eru menn úr sér-
stakri herdeild, sem nefnd er
„The Striking Command" og
var stofnuð 1961. Er sú her-
deild aUtaf viðbúin að leggja
af stað með stuttum fyrirvara
lég stofnun sem gegni enn
þann dag í dag mikilvægu
hlutverki.
Hin hörðu átök um val eft-
irmanns Macmillans innan
íhaldsflokksins skilja eftir
spor, sem að öllum líkindum
mást ekki út á þeim skamma
tíma, sem eftir er til kosn-
inga.
Þótt Home lávarður sé heið-
arlegur og mikilhæfur stjórn-
málamaður, er hann ekki sá
baráttumaður, sem líklegt er
að fái skapað nýja trú á sig-
urmöguleika íhaldsflokksins,
eftir 12 ára óslitið valdatíma-
bil hans. Bfezka þjóðin, sem
margir telja þroskuðustu lýð-
ræðisþjóð veraldar, telur sér
gjarnan henta, að skipta um
forystu og láta ekki sama
flokkinn fara allt of lengi
með völd. Þess vegna virðist
nú, sem sigurmöguleikar
Verkamannaflokksins séu
miklir og vaxandL
240 herflutningaflugvélar (1) og fjöldi orustuflugvéla (2) flytja
16 þúsund hermenn til Evrópu á þremur dögum.