Morgunblaðið - 22.10.1963, Side 17
Þriðjuðagur 22. okt. 1963
MORGUNBLAÐIÐ
17
Þórdís Jónsdóttir
Minning
í DAG verður borin til moldar
vestur á Patreksfirði Þórdís Jóns-
dóttir. Hún andaðist 15. október
á heimili Jórunnar dóttur sinnar,
Framnesvegi 36, Reykjavík.
Þórdís var fædd 6. sept. 1874
í Hænuvík við Patreksfjörð. For-
eldrar hennar, er þar bjuggu,
voru Jón Sigurðsson og Helga
Ólafsdóttir. Jón var stórbrotinn
maður, skapstór, en vel greindur.
Hann fylgdist af lífi og sál með
öllum atburðum og framförum í
samtíð sinni og sögu þjóðarinnar.
Hann naut sín þó ekki seinni
hluta ævinnar, vegna sjúkdóms,
er þjáði hann árum saman og
varð að lokum banamein hans.
Helga var hin góða, blíðlynda
kona, sem allt bætti og öllum
vildi gott gjöra, er hún náði til.
Þau hjón áttu fjögur börn, er
upp komust: Ingveldi, Einar, Sig-
urð og Þórdísi, og var hún yngst
þeirra. Erfðu systkinin greind
föður síns og gæði móður sinnar
og voru vinsæl og vel metin. Ing-
veldur var sérstaklega dugleg
kona, bliðlynd og ástúðleg. Hún
þurfti líka á dugnaði sinum að
halda, því hún varð ung ekkja
með tvö börn.
Þau hjón, Jón og Helga, tóku
á efri árum sínum vandalaust og
móðurlaust barn og voru því eins
góð eða betri en sínum eigin
börnum. Þetta tökubarn fann
aldrei til síns munaðarleysis,
meðan þau og dætur þeirra náðu
til hennar. Þessari stúlku kenndi
Helga að lesa, þannig að hún var
orðin fluglæs sjö ára gömul. Hún
kenndi einnig fleiri börnum lest-
ur.
Þórdís ólst upp í Hænuvík, en
fór að heiman um tvítugt. Þá
tóku þau Ingveldur systir henn-
ar og Einar Guðmundsson frá
Tungu, maður hennar, við búi í
Hænuvík með foreldrum henn-
ar. En Einar dó eftir fá ár og
leystist þá upp heimilið í Hænu-
vík.
Nokkru eftir aldamót giftist
Þórdís Guðjóni Jósepssyni, ætt-
uðum úr Múlasveit, mesta snyrti-
og sæmdarmanni. Reyndist hann
henni alla ævi ástríkur eiginmað
ur og' umhyggjusamur \heimilis-
faðir. Bjuggu þau á Patreksfirði
þar til hann andaðist 1935. Þang-
að tók Þórdís fyrrnefndá fóstur-
dóttur foreldra sinna, er þau
gátu sökum elli ekki sinnt henni
lengur. Hún styrkti hana og
Studdi á allan hátt til náms í
barnaskóla, sem þá var nýstofn-
aður á Patreksfirði og fylgdi
henni í anda alla ævi, þó leiðir
skildu. Á þessum árum tók Þór-
dís oft gamalmenni og einstæð-
inga á heimili sitt, eða hlynnti
að þeim á annan hátt.
Þau Guðjón og Þórdís áttu
fjögur börn: Kristjönu, Jóhannes,
Jórunni og Helgu.
Þau eru öll á lífi og gift og
búsett í Reykjavík. Þangað
fylgdi hún einnig Jórunni dóttir
sinni, þegar hún var orðin ekkja
með fimm börn og var hjá
henni í 17 ár alls. Þar lifði hún
elli sína í kærleika og virðingu
barna, tengdabarna og barna-
barna. Það samlíf gæti verið
lærdómsríkt á þessum tímum og
væri efni í langt mál. Þórdís var
snemma hneigð fyrir sauma og
handavinnu og hafði mikið yndi
af öllu þesskonar fram á elliár.
Hún var einnig og ekki síður
skarpgreind og bókhneigð kona,
las mikið og unni alls konar
fróðleik eins og faðir hennar.
Hún var draumspök, víðsýn og
frjálslynd í skoðunum og fylgd-
ist vel með æskunni og skildi
hana, nærri því níræð.
Frjálslyndi hennar og skiln-
ingur á málum æskunnar hefur
vafalaust átt sinn þátt í því, hvað
tveir yngri ættliðir hennar, börn,
tengdabörn og ekki sízt barna-
börn litu upp til hennar og virtu
hana. Þau þágu ráð hennar í
blíðu og stríðu og voru eins og
einn maður í því að sýna henni
ástúð og virðingu. Dætur hennar
og tengdadætur komu til hennar
eins oft og þær gátu og léttu
henni sjúkdómsbölið á allan
hátt.
Og nú fylgja börnin henni
vestur á æskustöðvarnar, þar
sem hún er lögð til hinztu hvíld-
ar við hlið manns síns. Blessuð
veri minning hennar. 3. Jóh.
Konur 02 karimenn
vantar okkur á komandi síldarvertíð.
Talið við verkstjórann.
Sænsk-íslenzka frystihúsið hf.
Rýmingarsala
Vegna breytinga á verzluninni seljum við
mikið af drengja- og telpnaúlpum með miklum
afslætti. Einnig kvengæruúlpur aðeins kr. 690.—,
Karlmannatweed j akkar kr. 500,—
Amerískar kvenblússur kr. 55,—
Barnagammosíubuxur kr. 25.—
MiklatorgL
BLUE BELL
WRANGLER
BUXUR
JAKKAR
Fram-
leitt
af
Núna
framleitl
úr 14 oz.
Denim
Gæðin
eru
tryggð
af Blue Bell
verksmiðjunum
í Bandaríkjunum
Söluumboð
Kaupfélag Suðurnesja
Kef lavík- Sandgerði.
Verxlun Björns Guðmundss.
V estmannaey jum.
Verzlunin Amaróbúðin
Akureyri.
Verzlunin Ásgeir, Siglufirði.
Kaupfélag Þingeyinga
Húsavík.
Verzlun E. J. Waage
Seyðisfjörður.
Kaupfélagið Björk, Eskifirði.
Kaupfélagið Þór, Hellu.
Kaupfélag Rangæinga
Rauðalæk.
Verzlunin Skemman, ólafsvík.
Verzlunin Aðalsteinn Halldórs
son, Neskaupstað.
Tilboð óskasf í R5EO 1054
með 12 manna húsi og palli. Bifreiðin er með 137
ha. diesel mótor (sem nýjum). Bifreiðin verður til
sýnis á geymslusvæði Þungavinnuvéla h.f., Krossa-
mýri til 31/10 n.k. Tilboð óskast send skrifstofu
Samvinnutrygginga herbergi 214 fyrir 31. október
næstkomandi.
Til sölu
5 herb. íbúð á 2. hæð við Stórholt, selst tilbúirvn
undir tréverk, fullunnin að utan með tvöföldu
gleri. — BílskúrsréttindL — Hitaveita.
MÁLFLUTNINGS OG FASTEIGNASTOFA
Agnar Gústafsson, hrl.,
Björn Pétursson, fasteignaviðskipti.
Austurstræti 14, símar 22870 og 17994.
Utan skrifstofutíma 35455.
Norðurmýri
5 herb. íbúðarhæð. 130 ferm. við Kjartansgðtu til
sölu. Skipti á 3ja herb. íbúð kemur til greina.
Steinn Jónsson
lögfr.stofa — fasteignasala, Kirkjuhvoli.
Símar: 14951 og 19090.
Tónlistaskóli Kópavogs
Innritun fer fram í félagsheimili Kópavogs mið-
vikudaginn 23. og fimmtudaginn 24. okt. kl. 5—7
báða dagana.
SKÓLASTJÓRINN.
m ./j i. v
CHAMPION
KRAFT-
KVEIKJU-
KERTI.
1. 5 grófa ceramic
einangrun.
2. Eru ryðvarin.
3. .,KRAFTKVEIKJU“
neistaoddar eru úr NICKEL-
ALLOY málmi, sem endast
mun lengur en venjulegir
oddar.
I*eir auka endingu
i
kertisins um 63%.
MY CHAMIPSOM
KRAFTKVEIKJIJKERTI
HAFA ÞESSA KOSTI: