Morgunblaðið - 03.12.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.12.1963, Blaðsíða 2
2 M0RGUNBL4OIÐ Þriðjudagur 3. des. 1963 Þessa mynd tók Bjöm Pálsson af eyjunni nýju meðan hléið langa varð á gosinu á sunnudag' morgun. Þá kom ekki svo inikið sem gufa upp úr gígnum, en ólgaði ofan i honum. IMávarnir námu land á nýju eyjunni Gosið ægifagurt í tunglskini og eldglóð á sunnudagskvöld Prestakjörið 7. des. Fremur dræm kjörsókn GOSVÐ við Vestman.naeyjar lá gjörsamlega niðri kl. 9.22 til 13.05 á sunnudagsmorgun, þannig að ekki kom svo mikið sem gufa upp úr gignum. Fyrstu landnemarnir, mávarn ir, notuðu tækifærið og helg- uðu sér þetta nýja land með því að setjast á eyjuna. En ekki var lengi friður. Skyndi- lega kom geysilegt gos, sem á nokíkrum mánútum var búið að ná sér upp í fyrri kraift og hélzt þannig fram í myrk- ur. Segist fréttaritari blaðsins í Vestmannaeyjum, sem fylgzt hefur með gosinu frá upphafi, aldrei hafa séð það svo stór- kostlegt, þar sem eyjan sást á sunnudagskvöld með berum augum frá Vestmannaeyjum böðuð eldingum, tunglskini og birtu frá glóðinni af eldsúlu, sem stóð langt upp í mökk- inn. Eyjan minnkar Jarðfræðingarnir Sigurður Þórarinsson, Þorleifur Einars- son og Guðmundur Kjartans- son fylgdust með gosinu frá varðskipinu Ægi allan daginn og fram í rökkur. Biðu þeir með skeiðklukku meðan gos- ið lá niðri. Þá sást eyjan vel. Segir Sigurður Þórarinsson að eyjan sé alveg hófmynduð, hóftungan í norður. Er hún farin að styttast, mældist 800 m. löng, 650 m. þar sem hún er breiðust og rétt um 100 m. á hæð á sunnudags- ALEXEI Adzhubel, ritstjóri Is- vestia og tengdasonur Krúsjeffs forsætisráðherra, ræddi við fréttamenn í Bangkok í dag. Sagði hann m. a. að í stjórnartíð Kennedys forseta hafi sambúð Bandarikjanna og Sovétríkianna stöðugt farið batnandi, „og við vonum að sú þróun haldist eftir embættistöku Lyndons B. John- sons.“ Aðspurður hvort hann efaðist um að svo yrði, svaraði Adznu- bei aðeins: „Ég er ekki í beinu simasambandi við Kreml“. morgun. Mæðir mikið á honni brim, enda kominn stallur allt í kringum hana. Af þeim sök- um eirrum hefði verið ógerlegt að komast að eyjunni, þrátt fyrir gott veður og hægan sjó uimihverfis. Eins kom hrinan svo skyndilega, þegar gosið kom eftir þetta lengsta hlé sem orðið hefur á því frá upphafi, að ekkert vit hefði verið að vera þar nærri. Það reif sig upp í stólpa af gjalli og bombum, en var ekki orðið stórgos fyrr en í rökkurbyrj- un, að því er Sigurður sagði. — Hvernig gígurinn er? Spyrjið þið hann Björn Páls- son. Hann stakk sér niður og kíkti niður í hann, sagði Sig- urður að lokum. Og Björn segir að meðan hléið var, hafi ekki komið gutfuvottur úr gígnum, en ólga niðri í hon- um. Hann tók að sjálfsögðu myndir fyrir Mbl. meðan hann var þar yfir. Stórkostlegt sjónarspil á sunnudagskvöld — Á sunnudagskvöldið var gosið svo stórkostlegt, að í samanburði við það finnst mér það hatfa hingað til verið eiins og gúanóreykur, sagði Sigurgeir Jónasson, fréttarit- ari blaðsins í Eyjutn í viðtali við blaðið. Það var líkast þvi að himnarnir væru að opnast. — Tunglskin var fram til kl. 8 um kvöldið og sást gosið vel úr bænum, baðað tungls- Adzhubei sagði að undanifarið hafi komið til nokkurs áigrein- ings milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna vegna umferðar á leiðinni frá Vestur-Þýzkalandi til Berlínar. Sagði hann að sökin lægi hjá bandarískum herfor- ingjum, sém kæmu klaufalega fram í þessu máli. Verið gatur að áframiháldandi árekstrar verði á Berlínarleiðinni, sagði Adzhu- bei, vegna þess að við látum hvergi ganga á rétt okkar. „Við erum engir smástrákar lengur, heldur fullvaxnir menn. Gerið okkur ekki það, sem þið viljið ekki að aðrir geri ykkur.“ skininu öðrum megin og dökkt hinum megin. Strók- inn lagði hvítan upp í fulla hæð og eldstólpi stóð upp í gagnum hann, svo sjá mátti eyjuna baðaða eldglóðinni með berum augum. Einniig voru geysimiklar eldingar í stróknum og ferlegar drunur. Ég hefi beðið eftir þess- ari sundu alltatf síðan gosið byrjaði og þegar hún kom, fannst mér allt annað hverfa í skuggann. Ég vona að eitt- hvað af þessu komi út á mynd unum mínurn. Það er ekkeirt grín þegar náttúran fer af stað, sagði Sigurgeir að lok- um. í gær var austan gola í Eyjum. Um morguninn var gosið ekki mjög krötftugt, en jókst eftir miðjan dag. Ekkert öskutfall var í Vestmannaeyj- uim. Bílar í landi gráir af öskuryki Fréttaritari blaðsins á Eyr- arbakka símaði að í gær hefðu í fyrsta skipti fundist greini- legur brennisteinsþefur atf gos inu þar. Á sunnudag sáusf þar miklar eldglæringar. Fyrir helgina rak dökkan og léttan vikur á fjörur á Eyrarbailtka og aðfaranótt sunnudags var þar þó nokk- urt öskufall, svo mikið að um morguninn var þykkt lag á bílum. í Gaulverjabæ var þann morgun grátt yfir sköfl- um af öskutfalli. Fréttaritarinn í Hveragerði símaði að þar hetfðu bílar einn ig verið gráir af öskuryki á sunnudagsmorgun. Adzhubei hefur dvalið í Bang- kok frá því 24. nóvemiber sl., og setið þar ráðstetfnu nokkurra rit- stjóra, seni haldin er á vegum Sameinuðu þjóðanna. Ráðstetfn- unni lauk á laugardag, en Adz- hubei verður í Thailandi til mið- vikudags í boði Thanat Khoman utanríkisráðherra. Fréttamenn spurðu ritstjóramn hversvegna hann hafi fallizt á að koma til þessa lands, sem svo eindregið fylgir Vesturveldunum ao máluni, o.g til höfuðborgarinn- ar Bangkok, þar sem aðalstöðvar Suðaustur Asíubandalagsins — (SEATO), eru. Svaraði Adahuibei því til að Rússar teldu baráttuna fyrir friði mikilsverðustu baráttu nútímans. Tók ha'nn þó fram að Rússar væru andvígir friðsam- legri sambúð á hugsjónasviðinu, því friðsamleg sambúð gæti ekki átt sér stað milli kommúnismans og auðvaldsstetfnunnar, „en við viljum fr'ðsamtega sambúð ríkj- anna.“ Á SUNNUDAG var kosið milli 13 umsækjenda í sex prestaköll- ium í R-eykjavík. Kosning hófst kl. tíu árdegiis og lauk kl. tíu síðdegis. Kosið var á 8 stöðum. Stuðningsmenn umsækjenda höfðu kosmingaskrifstofur opn- ar, þar sem starfslið þeirra vann allan kjördaginn. —— Atkvæði verða talin á fimmtudag, og hefst talning kl. niu um morgun- iinn. Samkvæmt upplýsingum bisk upsskrifstofunnar var kjörsókn sem hér segir í hverju presta- kalli fyrir sig (fyrsta talan merk ir fjölda á kjörskrá, önnur fjölda greiddra atkvæða og sú þriðja prósenttöluna): Prestkall Á skrá Atkv. % Ás ... 2067 1226 59,31 Bústaða . ... 2537 1181 46,55 Grensás . ... 1336 917 68,64 Háteigs . ... 5791 3101 53,55 Langholts .. 3628 1476 40,68 Nes ... 5076 2984 58,79 Til þess að kosning sé lög- mæt, þarf minnst helmingur at- kvæðisbærra manna að greiða at kvæði. Svo var ekki í Bústaða- prestakalli og Langholtspresta- kalli. Til þess að umsækjandl nái ísafirði, 2. des.: — Um kl. 6,15 í morgun, er varð- skipið Óðinn var að gæzlu út af Vestfjörðum, sást í ratsjá skips ins skip, sem virtist grunsam- lega nærri landi. Voru því tekn- ar nokkrar staðarákvarðanir af því, og kl. 7,05 var komið að skipinu. Reyndist það vera brezki togarinn Carlisle GY 681. Var hann að hifa inn vörpuna um 4,5 sjómílur innan fiskveiðitak- markanna út af Rit. Skipstjóri togarans, Derek Russel Grant, fæddur 1935, var sóttur um borð í togarann, og viðurkenndi hanm þegar staðar- ákvörðun varðskipsins. Sagðist hann hafa verið sofandi, en stýri maður sinn á verði. Var þegar haldið með togarann imn til ísa fjarðar og komið þangað um ki. tiu í morgun. Togari þessi var tekinm við Snæfellsnes í vor, en þá var ekki sami skipstjóri með hamn. Þetta er ellefti togarinn, sem Landhelgisgæzlan tekur í ár. Kviknar í síldar verksmiðjunni í Krossanesi Akureyri, 2. des.: — Slökkvilið Akureyrar var kvatt að síldarverksmiðjunmi í Krossa- nesi í kvöld kl. 17.10. Þar hafði þurrkari ofhitnað svo mjög, að eldur kviknaði í reykháfi, sem liggur frá honum. Svo mikill var hitinn, að rúður í nálægum gluggum sprungu, Nokkur eldur komst í trébita í þaki hússins, sem annars er járngrindarhús. Starfsmenn verksmiðjunnar hófu þegar slökkvistarf, er þeir urðu eldsins varir, em slökkviliðinu tókst að slökkva hamn til fulls á tæpri klukkustumd. Allt slökkvilið bæjarins var kvatt til starfa, þar sem mjög mikil verðmæti eru þama á staðnum og mörg húsanna úr timbri. Skemmdir urðu miklu minmi en á horfðist, t.d. skemmd ist miölið lítið sem ekkert. — Sv. P. logmætri kosningu, þarf hann að fá minnst helmimg greiddm at- kvæða. Inonu seglr af sér Ankara, Tfrklandi, 2. des. (AP-NTB). ISMET INONU, forsætisráðhenra Tyrklands, gekk í dag á fund Ceimal Gursels forseta, og baðst lausnar fyrir sig og ráðumeyti sitt. Að loknum fundi með forset- anum, sem stóð yfir í rúma hálfa klukkustund, kvaddi Inonu með- ráðherra sína til viðræðna. Stjórn Inonus hefur farið með völd í hálft annað ár, og vair samsteypustjórn þriggja flokka. Við þingkosningar hinn 17. nóv- emiber sl. töpuðu allir stjórnar- flokkarnir nokkru fylgi. Meðan Inonu var í Bandaríkjumum í síð ustu viku vegna jarðarfarar Kennedys forseta, lýstu tals- menn beggja samstarfsflokka hans að þeir hyggðust binda enda á stjórnarsamstarfið vegna sig- urs stjórnarandstöðunnar í kosn- ingunum. Togari þessi hafði verið imni á ísafirði í gærkveldi með bilaða ratsjá og fengið viðgerð á henmi. Hélt hann út frá ísafirði um mið nættið. Rétt áður em hamm fór út, kom í ljós, að einn skipverja var orðinn mjög veikur, kominn með 40 st. hita. Var hanm því settur í sjúkrahúsið, og við nán ari athugun kom í ljós, að hann var með inflúenzu. Er togarinn kom svo í morgun, voru fjórir aðrir skipverjar lagztir, og því skipið í n.k. sóttkví, þar sem enginm skipverja fær að fara í land. Réttarhöld hefjast kl. 15,30, og eru lögfræðingar togarans og landhelgisgæzlunnar komnir. — Aðeins 25 Framhald af bls. 1. um ferðaskrifstofa til Banda ríkjanna í tilefni þess, að það hóf ódýrar flugferðir þangað. Varla mun slíkur flutningur teljast arðvænlegur. Flugfélagamemn hér telja því að aðeins eitt geti orðið varðandi hinar ódýru ferðir SAS; þær verði lagðar niður. Hafa raunar þegar borizt fregnir um að ferðumum verði fækkað um eina á viku. Þá álíta flugfélagamenn að þeir fáu farþegar, sem SAS flyt- ur á „billigruten over At- lanten“, séu flestir teknir af þotum félagsins, þar sem far þegarnir myndu ella greiða miklu hærra fargjald. Þykir það æði einkennilegt, að flug félag skuli taka fé úr öðrum vasa sínum til þess að flytja yfir í hinn — og tapa stórlega á því. Og þótt Loftleiðamemm vilji fátt segja um málin á þessu stigi, er það ljóst að ekki gæt ir svartsýni þar. Hinsvegar er ekki vitað hve lemgi SAS kann að halda uppi hinum ódýru samkeppnisferð um sínum, þrátt fyrir að aug ljóst tap sé á þeim. f heimi flugfélaganna getur það verið æði mikils virði að „tapa ekki andLitinu", eins og sagt er. — h. h. Aíexei Adzhubei: Við lálum hvergi ganga á rétt okkar Bankok, Thailandi, 2. des. (AP). Varðskip tekur togara Togaramenn í sóttkví á ísafirði vegna inflúenzu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.