Morgunblaðið - 03.12.1963, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.12.1963, Blaðsíða 21
f Þriðjudasfur 3. des. 1963 MORGUNBLAÐIÐ 21 Frú Oswald vill við- urkenna sannleikann — en krefst Jbess oð sjá sannanir Dallas, Texas, 2. des. (NTB-AP) WAGGONER Carr, ríltissaksókn- ari í Texas, kom í dag til Dallas til að ræSa þar við yfirvöld lög- reglu og dómsvalds um rannsókn ina á morðinu á Kennedy forseta hinn 22. nóvember sl. Frá flug- vellinum ók Carr rakleitt til Park land-sjúkrahússins tii viðræðna við John Connally ríkisstjóra, sem særðist í morðárásinni á Kennedy, en er nú á batavegi. — Lánasjóður Framh. af bls. 12 rælcslu fyrr en fiskigangan væri gengin hjá í það sinn. Ef í ljós kæmi, að tiltækilegt þætti að koma á þeirri samstjóm er hér um ræðir, þyrfti það ekki að skerða sjálfstæði þeirra stofnana, sem hér hafa verið nefndar. Þær hefðu nokkúð að- skilin hlutverk, svo sem fisk- veiðasjóður, er lánar fyrst og fremst til veiðiskipakaupa, svo og stofnlánasjóðir, er lána að- eins til fiskvinnslufyrirtækja. 1 Ekki mundi heldur breytast, eð leitað yrði til annarra stofn- ana um lán til uppbyggingar ejávarútvegsins, nema athugan- ir þessar leiddu í ljós, að tiltæki legt þætti að stofna „Fiskiskipa- og fasteignalánastofnun sjávarút vegsins“, sem séð yrði fyrir nægu fjármagni til að svara eðlilegri lánaþörf sjávarútvegsins tii bygginga og endurbóta". Haft er eftir áreiðanlegum heimildum í Washington að ríkis- lögreglan, FBI, vonist til þess að geta í næstu viku afhent Johnson forseta skýrslu um morðið á Kennedy. Þar mun lögreglan lýsa því yfir að Lee Harvey Os- wald hafi einn og án aðstoðar myrt forsetann, og næturklúbba- eigandinn Jack Ruby einn og án aðstoðar myrt Oswald. Móðir Oswalds, frú Marguerite Oswald, hefur rætt við frétta- menn frá blaðinu Fort Worth Star-Telegram. 'Segir hún þar að það eina sem hún óski eftir að heyra sé sannleikurinn. Hún kveðst ekki vera móðir, sem sé að reyna að verja gjörðir sonar síns, en vilji fá sannanir fyrir því að hann hafi í rauninni verið sekur. — Ef það eru staðfestar sann- anir, mun ég viðurkenna þær, sagði frú Oswald. En, bætti hún við, ég vil fá að ganga úr skugga úm að sannanirnar séu staðreynd ir. Þá benti frú Oswald á að son- ur hennar hafi flutzt til Sovét- ríkjanna, en snúið aftur heim, og varpaði fram þeirri spurningu hvers vegna ríkislögreglan hafi ekki haft eftirlit með honum eft- ir heimkomuna. Einnig hélt hún því fram að einn af fulltrúum ríkislögreglunnar hafi sýnt henni mynd af Ruby daginn eftir morðið á Kennedy, en degi áður en Ruby myrti son hennar. Sagði frú Oswald að klukkan hálf sjö síðdegis á laugardag hinn 23. nóvember hefðu tveir menn barið að dyrum íbúðarinnar, þar sem hún dvaldi ásamt tengdadótt ur sinni. Annar þeirra var full- trúi frá ríkislögreglunni, og ósk- aði hann eftir að tala við tengda- dótturina. Hún kvaðst hafa til- kynnt mönnunum að tengdadótt- irin væri þreytt, og þeir fengju því ekki að ónáða hana. Létu mennirnir sér þetta vel lynda, og kváðust koma seinna. En þegar þeir voru að fara, sneri rikislög- reglumaðurinn sér að frú Oswald og sýndi henni mynd, sem hann hélt á í lófa sínum og spurði hvort hún hefði nokkurn tima séð manninn á myndinni. Hún svaraði að hún hefði aldrei litið manninn augum, og með það fóru lögreglumennirnir. — „Nokkru seinna gekk ég inn- í stofuna þar sem ég bjó og tók þar upp dagblað í viðurvist sonar míns, Roberts, og fleiri vitna. Ég sneri blaðinu við og sagði: Þetta er mynd af manninum, sem ríkis- lögreglufulltrúinn sýndi mér. Ég vissi ekki einu sinni þá að þetta var maðurinn sem myrti son minn. Sagði mér einhver að myndin væri af Jack Ruby“. Lciksýning í Hornarfirði Höfn í Hornarfirði, 2. des. Leikfélag Hafnarhrepps sýndi í gær kl. 4 og 8 gamanleikinn „Klerkar í klípú” í Sindrabæ. Húsfyllir var í bæði skiptin, og leikendum var mjög vel fagnað. Leikstjóri er Bjarni Steingríms- son. — Gunnar. Háskólanum gefið tannlæknarit DR. FILIP Pálsson, tannlæknir í Málmey, hefir nýlega gef- ið tannlæknadeild Háskólans Svensk tandlákara tidskrift frá upphafi, en það hóf útkomu árið 1900. Metur Háskólinn mikils þessa ágætu gjöf. (Frá Háskóla tslands). Seltjarnames AÐALFUNDCR Sjálfstæðisfé- lags Seltirninga verður haldinn í Valhöll fimmtudaginn 5. des. kl. 20,30. Saumastofa Bergljótar Ólafsd. Til sölu nú fyrir jólin, með tæki- færisverði nokkrir: DAGKJÓLAR TÆKIFÆRISKJÓLAR KVÖLDKJÓLAR, síðir og stuttir BRÚÐARKJÓLAR STÖK PILS Kjólarnir verða til sýnis á stofunni næstu daga kl. 5—7 e.h. og laugardag kl. 1—5. Saumastofan Laugarnesveg 62 epoca kúlupenninn sem er nýjung á heimsmarkaðinum Sex blekrásir kulunnar tryggja jafna skrift til síðasta blekdropa. EPOCA-penninn er byggður fyrir höndina og hefir því hið rétta lag. 'k EPOCA-skiptilásinn er því sem næst óbilandi. ★ Blekkúlan er hörð eins og demantur og skrifar á harða og fituga fleti. Verð frá 60 kr. 3 ára ábyrgð blekhylki eru stór og vönduð BLEKLITIR: blátt, rautt, grænt, svart. 5 mismunandi blekoddar. E.A.BEEG Verkfærin sem endast Umbob: Þórður Sveinsson & Co. hf. -7\ bj Stúlka óskast ðfatstofan Vík, Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.