Morgunblaðið - 03.12.1963, Side 31
í>riðjudf'gur 3. des. 1963
MORGUN*'AÐÍÐ
31
Farþegum SAS fjölgaði um
250 þús. á síðasta reikningsári
175 milljón króna hagnaður ó rekstrinum
Stokkhólmi, 2. des. (NTB)
Súgspjald þeyttist á útvegg kyndiklefans og stóð fast í ein-
angruninni. Egill Hjörnar eldvarnareftirlitsxnaður, stendur við
að, svo og loftrásarstokkar.
Olíukynditækin sjálf munu litt
skeimmd, en rannsókn á orsök
sprengingarinnaiT er ekki að fullu
lokið.
Sprenging sem þessi er ekki
hættuileg, nema að því leyti að
fólk gæti orðið fyrir hlutum, sem
þeyttust til“.
KARL Nilsson, fram-
kvæmdastjóri flugfélagasam-
steypunnar SAS, skýrði
fréttamönnum frá því í dag
að á reikningsárinu 1. okt
1962 til 30. september í ár
hefði hagnaður SAS numið
175 millj. krónum (ísl). Á
sama tíma árið áður var hins
vegar kr. 204 millj. tap á
rekstri samsteypunnar. Sagði
Nilsson að SAS væri fyrsta
flugfélagið í Evrópu, sem
hefði komið rekstri sínum í
rétt horf eftir að skipt var
úr skrúfuvélum í þotuy.
Harðfisksgerð brenn-
ur í Hnífsdal
Taldi forstjórinn að þennan
góða árangur bæri fyrst og
fremst að þakka aukinni sölu
farseðla, samfara stöðugu eftir-
liti með kostnaðarliðum, áfram-
haldandi endurbótum á rekstri
og betri notkun farkostanna.
— Takmark okkar er að ná
að minnsta kosti jafn góðum
árangri á yfirstandandi reiknings
ári, sagði Nilsson, og lagði á-
herzlu á að starfsmenn SAS
hefðu sýnt einstakan áhuga á
að koma SAS á réltan kjöl að
nýju.
Við lok síðasta reikningsárs
störfuðu alls hjá SAS 11.990
manns eða nokkurn vegin jafn
margir og reikningsárið á und-
an. Ekki taldi hann nauðsynlegt
að fjölga starfsfólki fyrst um
sinn, því reynt yrði að koma á
auknum afköstum jafnhliða
fjölgun farþega. Nam afkasta-
aukning starfsmanna SAS á síð-
asta ári að meðaltali um 10%.
Á síðasta reikningsári nam
farþegafjöldi SAS 2.358.000, og
hafði aukizt um fjórðung millj-
ónar frá árinu áður. Hafði
sætanýting aukizt úr 51,5% í
53,2%. Heildartekjur félagsins
jukust um 685 milljónir, og
voru alls 7.765 milljónir (isl.)
króna.
Miðstöðvarketill
tekinn við hús í
Kópavogi
í SÍÐASTLIÐINNI viku vair mið
stöðvarkatli stolið frá húsi, sem
er í byggingu við Kópavogsbrauit.
Ketillinn stóð úti fyrir húsinu
og var tekinn þaðan.
Vegfarandi, sem þekkir eig-
endur hússins og átti af tilviljun
leið þarna framihjá, sá menn með
bíl við húsið. Telur hann sig
muni þekkja bílinn aftur. Ekki
er ótrúlegt að hér hafi verið
utm mistök að ræða og viðkom-
andi skili katlinum aftur, þegar
þeir komast að þvi. Ketillinn'er
grár að lit, 2,5 ferm., smiðaður
af verksm. ól. Olsen í Njarðvík-
um.
Lítill síldarafli sl. viku
súgspjaldið. — Ljusm.: Sv. Þ.
— Sprengingin
Framihald af bls. 32
nefna, að vængjahurðir, sem eru
í urn 20 metra fjarlægð, slógust
öfugar í gegnum dyragáttina.
Þar er um ca. 4 fermetra átaks-
flöt að ræða. Þá sprungu út úr
dyragáttum a.m.k. tvær • aðrar
hurðir á næstu göngum í kjall-
aranum.
Við sprenginguna fauk stórt
súgspjald í kyndiklefanum og
stakkst í gegnum múrhúðun á
útvegg og stóð fast í einangrun-
inni. Reykgöng löskuðust nokk-
— Fiskimálaráðsf.
Fram/hald af bls. 32
uð verði nefnd að ráðstefnuninni
lokinni til að vinna að frekari
framgangi málanna.
Bretar hafa látið uppi ósk um
að færa fiskveiðilögsöguna við
strendur Bretlands út í 12 sjómíl-
ur, en hún er nú aðeins þrjár.
Hvað hún verður fer eftir undir-
tektum á ráðstefnunni undir sam
eiginlega fiskimálastefnu. Ef önn
ur ríki, sem senda fulltrúa á ráð-
stefnuna, samþykkja ekki útvíkk
un landhelginnar við Bretland,
teljast Bretar óbundnir miðað við
aðgerðir annarra ríkja, og geta
því einhliða ákveðið útfærsluna.
Ekki eru allir útgerðarmenn í
Bretlandi einhuga um útfærsl-
una, því eigendur togara, sem
stunda úthafsveiðar, óttast að
með útfærslu í 12 mílur fái hinir
útgerðarmennirnirí sem reka fisk
veiðar við strendurnar, bætta að-
stöðu á þeirra kostnað. Hafa eig-
endur úthafstogara áður óskað
eftir því að útfærslan verði tak-
mörkuð við 6 sjómílur.
Það snertir fyrst og fremst
fiskimenn frá Frakklandi, Vest-
ur-Þýzkalandi, Belgíu, Póllandi
og Sovétríkjunum, ef Bretar
færa út fiskveiðilögsöguna. Má í
því sambandi benda á að þar
sem Ermarsundið er mjóst milli
Frakklands og Englands er það
innan við 24 mílur. Ef þannig að
bæði Frakkar og Bretar færðu
lögsöguna út í 12 mílur, næðu
yfirráðasvæði þeirra saman.
Þegar Bretar tilkynntu á síð-
asta vori að þeir hyggðust boða
til fiskimálaráðstefnu í London,
var það m.a. á þeim grundvelli
að alþjóða vandamál í sambandi
við fiskveiðar hefðu á seinni ár-
um orðið alvarlegri og flóknari
en áður. Sérstaklega ætti þetta
Við um aðgang að fiskimiðum og
að fiskmörkuðunum í Evrópu. —
Telja þeir að helzta verkefni ráð-
stefnunnar sé að ræða þessi mál
og reyna að finna þá lausn, sem
réttlát sé gagnvart Evrópulönd-
unum. Einnig benda þeir á að út-
færsla fiskveiðilögsögunnar við
strendur annarra landa hafi haft
mikil töp í för með sér fyrir
brezka fiskimenn, og þessvegna
réttlátt að Bretar sjálfir færi út
lögsögu sína. Varðandi markaðs-
aðstöðu i Bretlandi benda Bretar
á að aðrar fiskveiðiþjóðir geti
ekki ætlazt til að hafa ótakmark-
aða sölumöguleika á fiski og
fiskafurðum í Bretlandi meðan
Bretar njótg ekki sömu hlunn-
inda í viðkomandi landi.
Hnífsdal, 2. des.: —
Um kl. 17 veitti fólk því athygli
hér í Hnífsdal, að kominin var
upp eldur í harðfisksgerðinni
„Reykur“ s.f., sem þeir Óskar
Friðbjörnisson og Högni Stur-
laugsson eiga. Ekki var verið að
vinna í harðfisksgerðinni, þegar
eldurinn kom upp, en er að var
Sáttafundir um
helgina
Á LAUGARDAG ræddu aðiljar
að kjaradeilunni við sáttasemj-
ara og fulltrúa rikisstjórnarinn-
ar. Á sunnudag stóðu fundir
deiluaðilja við sáttasemjara og
sáttanefndina frá því kl. 14 og
fram yfir miðnætti. Var ræðzt
við í hópum um svonefndar sér
kröfur verkalýðssamtakanna.
Símaviðgerðar-
skipið á staðn-
um í gærkvöldi
Símaviðgerðarskipið, sem gera
á við Scotice símastrenginn, sem
slitinn er skammt sunnan við
Þórshöfn í Færeyjum, var vænt-
anlegt þangað í gærkvöldi og
sólarhringsviðgerð áætluð. Str-
engurnn kemst því í fyrsta lagi
í lag I kvöld.
Nýju Delhi, 2. des. (AP):
Talsmaður indverska varnar
málaráðuneytisins sagði í dag
að rússnesku Mig-21 orustu-
þoturnar, seim settar verða
saman í Indlandi, verði búnar
fjarsíýrðum eldflaugum. —
Byggð verður ný verksmiðja
í Hyderabad til að smíða eld-
flaugarnar. Fyrstu flugvélarn
ar eiga að verða tilbúnar á
árinu 1965.
Miami, Florida,
2. des. (AP):
Grant Stockdale, fyrrum
sendiherra Bandaríkjanna á
írlandi og náinn, persónuleg-
ur vinur Kennedys forseta,
beið bana í dag eftir fall út
um glugga á 13. hæð Dupont
byggingarinnar í Miami. —
Segir lögreglan að sennilega
hafi verið um sjálfsmorð að
ræða, og bendir á að Stock
dale hafi tekið morðið á
Kennedy mjög nærri sér.
komið, hafði hann læst sig um
allt húsið, sem var allstórt timb
urhús, lágreist. Stóð það rétt
framan við mitt plássið. Hvíta-
logn var á. Nokkur tími leið,
áður en slökkviliðið kom á vett-
vang. Brann húsið að heita má
til ösku, en nokkur hluti þess
hangir þó uppi. Næstu hús þarna
við eru fjárhús, þar sem 30—40
kindur eru geymdar, og tókst að
verja þau.
Mjög lítið af fiski var í hús-
inu, en hins vegar eyðilagðist
þarna mikið af áhöldum, vélum
og umbúðum. Allt var þetta lágt
vátryggt, og er tjón eigendanna
tilfinnanlegt, enda er ekki í önn
ur hús að venda fyrir þennan
atvinnurekstur fyrst um sinn. Eig
andi hússinis var Jón Kristjáns-
son, trésmiður í Reykjavík.
Hér fer á eftir skýrsla Fiski-
félags íslands um síldvedðarnar
sunnan lands og vestan:
Miklar ógæftir voru s.1. viku
og bárust einungis á land 11.157
uppm. tn. og var þá heildarafl-
inn á land kominn frá vertiðar-
byrjun til laugardagsins 30. nóv.
s.l. 202.032 uppm. tn.
Aflahaestu bátarnir vair Hrafn
Sveinbjarnarson III. f rá Grinda-
vík með 8.106 uppm. tn. Höfr-
ungur II frá Akranesi með 6.780
uppm. tn. og Engey, Reykjavík
með 6.562 uppm. tn.
Hæstu veiðstöðvar eru þessar:
Uppm. tn.
Grindavík ............. 10.283
Sandgerði ............. 13.859
Keflavík .............. 37.359
Hafnarfjörður ......... 16.416
Reykjavík ............. 69.515
Akranes ............. 29.941
Ólafsvík .............. 15.248
110 skip háfa tilkynnt um afla
og af þeim hafa 65 skip aflað
1000 uppm. tn. eða meira.
„Þegar ég
var 17 ára“
RÍKISIJTVARPIÐ hefur áhveð
ið að efna til samkeppni um frá-
sagnir frá hlustendum, er nefn-
ist: „Þegar ég var 17 ára”. Er
ætlazt til þess að þar sé fjallað
um minningar frá þessu aldurs-
skeiði, eða sagt frá lífsviðhorfi,
áætlunum, umhverfi eða öðru
slíku, sem hverjum höfundi þyk-
ir frásagnarverðast.
Flutningslengd frásagnanna í
útvarpi skal vera 20—25 mínút-
ur og æskilegt að höfundur flytji
erindið ejálfur, en einnig getur
útvarpið lagt til flytjanda, ef
óskað er. Fyrir bezta þáttinn
greiðir útvarpið 5.000 kr. verð-
laun og flutningsgjald í útvarp að
auki. En fyrir næstbezta þáttinn
3.000 kr. og flutningsgjald að
auki.
Ríkisútvarpið áskilur sér rétt
til að kaupa allar þær frásagnir,
sem því berast, gegn venjúlegu
gjaldi. Frestur til þess að skila
frásögunum er til 31. janúar n.k.
Skulu handritin send í lokuðu
umslagi, merkitu höfundarheiti
eða auðkenni, og í öðru lokuðu
umslagi meðfylgjandi, merktu
á sama hátt, fylgi rétt nafn og
heimilisfang höfunda.
Haag, 2. des. (NTB):
Tveir Hollendingar, sem ját-
uðu á sig njósnir í Sovétríkj-
unum voru dæmdir til 13 ára
fangelsisvistar 19. ágúst 1961,
hafa verið látnir lausir. Verða
þeir sendir heim til Hollands
á miðvikudag.
Eldsupptök eru með öllu ó-
kunn. — Sat.
Tímarit á
kynningar
Ritinu mjög vel tekið erlendis
ÚT ER komið annað hefti árs-
fjórðungsritsins Iceland Review,
en þetta er fyrsta timáritið, sem
hér er gefið út á ensku til kynn
ingar á íslenzkum atvinnuveg-
um, útflutningsafurðum, þjóð-
lífi og menningu íslendinga.
Hingað til hefur verið brýn
öþrf fyrir slíkt kynningarrit til
dreifingar erlendis og hlaut
fyrsta heftið mjög góðar viðtök
ur. Því er dreift erlendis bæði af
opinberum aðilum, fyrirtækjum
og einstakiingum og þegar hafa
ritinu safnazt margir erlendir á-
skrifendur.
Umsagnir um Iceland Review
birtust í mörgum erlendum blöð
um bæði vestan hafs og austan
og hefur útkomu ritsins verið
fagnað mjög af þeim, sem áhuga
hafa á íslenzkum málefnum og
vilja fylgjast með þróuninni hér
á landi.
Iceland Review er prentað á
góðan pappír, mjög myndskreytt
og vandað hvað útlit og frágang
snertir. Annað eintakið er að
nokkru leyti helgað heimsókn
forseta íslands til Bretlands og
var dreift þar ytra á meðan heim
sókninni stóð. Grein er um for-
setahjónin, sendiherra Íslands í
ensku til
á Islandi
London, Henrik Sv. Björnsson,
og helztu fulltrúa okkar í Eng-
landi. Þá er grein um efnahags-
mál, sauðfjárrækt, íslenzka hest
inn. Þá er fjalliað um nokkra
þætti sjávarútvegsins, greinar
um útflutningsafurðir okkar og
siðast en ekki sízt leiðbeiningar
fyrir útlendinga, sem hug hafa á
að heimsækja landið.
Að flestra áliti stenst Iceland
Review samanburð við sambæri
leg erlend rit enda virðist ekkert
sparað til að gera það vel úr
garði. Ritstjórar eru þeir Harald
ur J. Hamar og Heimir Hannes
son .Gísli B. Bjömsson hefur séð
um útlitið, en ritið er prentað í
Stebergi.
ANNA MARIA MAGNÚSDÓTTIR
frá Brennistöðum,
andaðist 25. nóvember sl. Hugheilar þakkir til allra er
auðsýndu henni vináttu í veikindum hennar og hlut-
tekningu við jarðarför hennar, sem hefur farið fram.
Fyrir hönd móður og systkina.
Soffía og Svanhvít Magnúsdætur.