Morgunblaðið - 25.01.1964, Side 9
Laugavdagur 25 fan 15ÍÍ4
MCRZUNBLAÐIÐ
9
ÚR DALASÝSLU
Búðardal, 14. jan. 1964.
ÞAÐ má til tíðinda telja, að
fyrir jólin var lögð. hitaveita í
félagsheimilið í Búðardal, þ, e.
þann hluta þess, sem þegar er
risinn af grunni. Var það gert
með þeim hætti, að samloomiulag
náðist um að leiða kælivatn frá
rafstöðinni, sem er skammt frá
félagsheimilinu. Virðist þetta
setla að gefa mjög góða raun, því
að nægur hiti hefur verið í fé-
lagsheimilinu síðan án frekari
upphitunar. Unnið var við bygg-
inguna fram í desember. Þar er
nú Barnaskóli Búðardals til húsa,
nær fúllbúið húsnæði fyrir hér-
aðsbókasafnið og tekinn hefur
verið í notkun stór og vistlegur
aalur, veitingasalurinn, til sam-
koinuhalds. Hefur aðstaða til fé-
lagslífs þegar stórbatnað, þó að
enn sé langt í.land, að öll bygg-
ingin komist upp.
Benedikt Jóhannesson
©ddviti Laxdælinga fimmtugur
Hinn 4. jan. sl. átti Benedikt
Jóhannesson, oddviti á Saurum,
fimmtugsafmæli. Af því tilefni
gekkst umí. Ólafur pó í Laxár-
cal fyrir því, að honuin var hald-
ið samsæti í félagslæimilinu. Hef
ur hann lengi verið áhugasamur
og duglegur ungmennafélagi, og
ei auk þess formaður fram-
kvæmdanefndar við byggingu
félagsins. Samsætinu stjórnaði_
frú Kristjana Agústsdóttir, form.
umf. ólafs pá. Þátttaka var mjög
góð frá nær öllum heimilum í
Laxárdal og hin bezta veizla.
Ræður og ávörp fyrir minni Bene
<3ikts og konu hans, frú Stein-
unnar Gunnarsdóttur, fluttu Frið
jón Þórðarson, Bjami Finnboga-
eon, Herdís Guðmundsdóttir,
Arni Tómasson, ólafur Tómasson
©g Hallgrímur Jónsson, Bárust
afmælisbarninu margar gjafir og
heillaóskir.
Þórhallur Ólafsson.
Læknaskipti
Um þessar mundir verða lækna
skipti í Búðardalslækmshéraði.
Sverrir Goorgsson, sera gegnt
hefur störfum irm eins árs skeið
við góðan orðstír, hverfur nú
brott til frekara náms, en við
tekur á ný Þórhallur Óiafsson,
héraðslæknir okkai, sem dvalizt
hefui- sl. ár í Svíþjóð og Bret-
landi við. framhaldsnám. Það er
liverju héraði ómetanlegt að hafa
traustum lækni á að skipa. Sem
betur fer hafa Dalaanenn lengi
reynzt heppnir,.hvað þetta snert-
ir.
Brynjólfur Sandholt
Þess er og vert að geta, að sl.
haust fluttist hingað Brynjólfur
Sandholt, héraðsdýralæiknir, með
fjölskyldu sina og tók við sínu
fyrra starfi. Hafa þau hjón dval-
izt í Bandáríkjunum undanfárin
3 ár, en er nú. vel fagnað við
heiimkomuna og boðin velkomin
.í nýjan dýralæknisbústað, sem
má nú heita fullbyggður. Meðan
Brynjólfur var erlendis, starfaði
hér dýralæknir Ólafur Gúð-
mundsson frá Hvammi. Hann er
nú 73 ára að aldn og á langan
og farsælan starfsdag að baki,
hvers manns hugljúfi hér í Döl-
um.
Mjólkurbúið
Sagt er, að vélarnar í mjólkur-
búið hafi átt að fara um borð
í skip frá Danmörku um miðjan
Lauritz Jörgensen
sl. mánuð, en þeim seinkaði
vegna verkfallsins. Munu þær nú
komnar til landsins, og verða
væntanlega settar niður mjög
bráðlega. Mjólkurbústjórinn er
fluttur hingað með fjölskyldu
sína. Það er Lauritz Jörgensen.
Hann hefur starfað á Húsavík
undanfarin ár.
Rafmagn
I fyrradag kom vinnuflokkur
frá Rafmagnsveituim Tikisins í
Miðdali. Ætlunin er að ljúka við
að leggja rafmagn tí1 12 býla þar
í sveit. Atti því verki að verá
lokið fyrir jól, en það tafðist,
m. a. út af verkfalli syðra. —
Hugmyndin mun vera að fram-
kvæma siðasta áfanga Miðdala-
línu á þessu ári. Fá þá öll býli í
Miðdölúift, sem eftir eru, raf-
magn, nema eitt, en þaðan mun
engin umsókn háfa borizt. Á
framkvæmdaáætlun þessa árs er
einnig raflína út í Hörðudai, og
ætla verður, að raimagn verði
einpig lagt um Saurbæinn á
þessu ári. Verður þá lokið þeim
áfanga í. rafyæðingu héraðsins,
sen, hin .syokallaða 10 ára áætlun
og seinni samiþykktir taka til,
a. m. k, að mestu lþyti. En áfram
verðúr haldið,
Vegamál
Allir fagna hinni nýju löggjö.f
um vegamáj.,, 8. m k, að því, er
snertir aukið framlag til vega-
og brúargerða. Er þó mála sann-
ast, að sjaldan eð; aldrei hefur
jafnmikið áunnizt i Laxárdal á
einu sumrl og nú í ár. Byggðar
voru brýr yfir Laxá hjá Dönu-
stöðum og Hólkotsá. Auk þess
var Arnargil brúað og nýr vegur
lagður milli Grafar og Dönu-
staða. Kappsamlega var og unn-
ið að vegagerð víða uim sýsluna,
eiida er þess full þörf. En auk
þess verður að hafa í huga að
hraða vegaframkyæmdum á Hey-
dal og um Laxárdalsheiði. Geta
það án efa orðið einhverjir beztu
og öruggustu fjallvegir á land-
inu, er saman tengja fjölmenn
byggðarlög og bæta hag fólksins.
Fréttaritári.
Yfirlýsing
„Af gefnu tilefni vegna fjöl-
margra fyrirspurna til mín um
útkomu kvennablaðsins. „Frúin“,
vil ég upplýsa, að ég sagði af
mér ritstjórastörfum við blaðið
í maímánuði 1963.
Ennfremur vil ég upplýsa, að
ég hefi aldrei verið eigandi að
blaðinu og ber því enga ábyrgð
á útgáfu þess. Eigandi og útgef-
andi blaðsinS er Heimiiisútgáfan,
Grundarstíg 11, Reykjavík, og
rétt að þeir, sem eiga erindi við
blaðið, snúi sér þangað.
Reykjavík, 20. janúar 1964.
Magdalena Thoroddsen“.
Þýzkir náms-
styrkir
■FRESTUR til umsóknar um
sóknar um styrki þá, er boðnir
hafa verið fram handa íslend-
ingum til háskólanáms í Sam-
bandslýðveldinu Þýzkalandi
námsárið 1964.—65 hefur verið
framlengdur til 29. janúar 1964.
Tilskilin umsóknareyðublöð fást
í menntamálaráðuneytinu, Stjórn
arráðshúsinu við Lækjartorg, og
þangað skal umsóknum skilað.
(Frá menntamálaráðuneytinu).
®
® ALlTAF
® F J fi L G A R
® VOLKSWAGEN
®
®
®
Þeir sem œtla að kaupa
VOLKSWAGEN fyrir nœstu
mánaðamót eru vinsamlega
beðnir að hafa samband
við okkur strax
Heildverzlunin H [ K L A h f.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240.
Höfum flutt
Verkfæra- og búsáhaldadeild
vora úr Austurstræti 10 í Hafnarstræti 23 (húsnæði Samvinnu-
* . | " ’ ‘
sparisjóðsins). — Þar verður til sölu fjölbreytt úrval af verkfærum,
búsáhöldum, smærri byggingarvörum, hreinlætistækjum og sport-
vorum.
Gerið svo vel og lítið
inn i nýju búðina
Austurstrœfí