Morgunblaðið - 25.01.1964, Blaðsíða 15
.
'i.-.
■ *
.-■'*• -í^
■
s 'i
iSssiíí■?
taugardagur 25. jan. 1964
MORCU N BLAÐIÐ
... ^ ••■■-•■•
Þetta er hópurinn sem fer til Tékkóslóvakíu og á að verja 6. sætitf sem fsland hlaut á síð-
ustu heimmeistarakeppni. Frá vinstri Björn Björnsson fararstjóri, Guðjón Jónsson, Jóhann
Einvarðsson, Sigurður Einarsson, Ingólfur Óskarsson, Guðmundur Gústavsson, Hörður Krist-
insson, Karl Jóhannsson, Gunnlaugur Hjálmarsson, Birgir Björnsson, Kart Benediktsson
þjálfari, örn Hallsteinsson, Ásbjörn Sigurjónsson fararstjóri, Ragnar Jónsson og Frímann
Gunniaugsson form. landsliðsnefndar.
I handknattleik eicjum við
HANDKN ATTLEIKURINN
er sú íþrótt sem ísdendingar
standa fremst í nú, ef miðað
er við alþjóðamælikvarða. í
síðustu heimsineistarakeppni
varð ísL landsliðið 16. sæti
eftir frækilega baráttu sem
vakti athygli víða um lönd.
Vegna þess góða árangurs
þuríti hðið ekki að taka þátt
í undankeppni 16 landa um
heimsmieistaratitil. Sú keppni
verður 6.—16. marz í 4 borg-
um í Tékkóslóvakíu. Br liðun
um 16 fyrst skipt í' 4 riðla og
komast 2 úr hverjum riðli í
lokakeppni 8 liða.
ísland er í riðli með Sví-
þjóð, Ungverjalandi og því
liði, sem sigrar í Afríkuriðlin-
um. Má telja# vist að Svíar
fyrv. heimsmeistarar séu
sterkastir í riðlii.um og kom-
izt örugglega áfram en bar-
áttan um 2. sætið mun án efa
standa milli íslands og Ung-
verjalands.
íslenzka liðið Aefur æft vel
undanfarið. Auk þrekæfinga
og félagsæfinga hér í bænum
fer liðið vikulega suður á
Keflavikurvöll til að æfa á
velli, sem er svipaður á stærð
og keppt verður á úti. Siíkan
völl á höfuðborg íslands ekki.
Ljósm. Mbl. Sveinn Þor-
móðsson brá sér suður eftir
með liðinu á miðvikudaginn
og tók þær myndir er hér birt
ast. Það var ánægjuleg feið
— kátína og sigurvilji var
ríkjandi. Margar nýjar leik-
aðferðir eru æfðar, gkemmti-
legar brellur sem áreiðanlega
eiga eftir að bera árangur. —
Piltarnir og þjálfarinn Karl
Benediktsson vinna mjög vel
og samvizkusamlega að þvi
að þessé för til Tékkóslóvakíu
verði árangursrík. Og þar sem
handknattleikurinn er sem
fyrr segir sú íþótt sem við
stöndum fremst í, vonum við
að árangurinn verði upp á við
en ekki niður á viC í röðinni.
Sjötta sætið þarf að verja-—
æsikilegast að ná betra og að
því er stefnt — en allt getur
skeð í harðri keppni við
milljónaþjóðir.
fc,, SS* í §3 -.V f X ^
y Hér hregða þeir á leik Ásbjörn formaður HSÍ og Gunnlaugur
) fijálmarsson. Báðir eru miklir grínistar og setja léttan blæ
1 á hópinn.
Hér eru ráðamennimir að máta búninga á oiltana. Hörður
reyndist í það stærsta fyrir peysuna.
Frá æfingaleik við styrkt lið KR. Gunnlaugur ræðst að Hilmari og allir aðrir esu á verðinum.
Hér eru liðsmenn að athuga leikaðferðir. Gunnlaugur er að færa taflmenn og sýna þá varnar-
taktik sem hann telur árangursríkasta. Þeir ræða á þennan hátt bæði sóknarleik og varnar
leik. •■ Myndir Sveinn Þormóðsson.
sjötta sæti
í heiminum
*