Morgunblaðið - 25.01.1964, Blaðsíða 16
16
Laugardagur 25. jan. 4-984.
MORGUNBLADID
Hopmynd ur sal.
Árshátíð Sjálfstæðis-
manna í Borgarnesi
ÁRSHÁTÍÐ Sjálfsstæðisfélaganna í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
fór fram í Hótel Borgarnesi í Borgarnesi sl. Iaugardagskvöld og
hófst með borðhaldi kl. 8.
Guðmundur Jónsson, skólastjóri, Hvanneyri, Þorbjörn Ólafsson,
Borgarnesi, og konur þeirra.
Þátttaka í hátíðinni var mikil
og varð að láta borðhald fara
fram í veitingasal á annarri hæð
hótelsins, þar sem eigi var rúm
fyrir alla gestina í veitingasaln-
um á fyrstu hæð.
Á dagskrá hátíðahaldsins var
.ávarp Ásgeirs Péturssonar, sem
istjórnaði hátíðinni. Síðan flutti
Bjarni Benediktsson, forsætisráð-
herra, ræðu. Þá lék Rögnvaldur
Sigurjónsson píanóleikari á hljóð
færi. Að lokum fór Jón Gunn-
laugsson með gamanþátt. Að lok-
um var dansað. Hljómsveit úr
Borgarnesi lék fyrir dansinum.
Skemmtun þessi þótti takast
með ágætum og fara vel fram í
alla staðL
Á myndinni sjást m. a. Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra,
Sigurður Ágústsson, alþingismaður, Ásgeir Pétursson, sýslu-
maður, og konur þeirra.
— Utan úr heimi
Framh. aí bls. 12
1962 metár í fiskveiðum
í „Yearbook of Fishery
Statistics“, sem út kom 23. des.
sl. hjá FAO (Matvæla- og
landbúnaðarstofnun SÞ) segir
að aldrei hafi veiðzt eins mik-
ið af fiski og árið 1962, en þá
veiddust samtals 44.720.000
smálestir af fiski. Var hér um
að ræða hækkun frá 1961 sem
nam 7 a fhundraði. Eins og
áður var mesta fiskveiðiþjóð
heims árið 1962 Japan með
afla sem nam 6.863.700 lest-
um. Næst kom Perú með
6.830.000 smálestir, þá Kín-
verska alþýðulýðveldíð með
ca. 5.000.000 smálestir. Þar
næst komu Sovétríkin og
Bandaríkin, en Noregur var í
sjötta sæti með 1.338.000 smá-
lestir, Danmörk og Færeyjar
í 13. sæti með 928.400 smálest-
ir, ísland í 14. sæti með
832.600 smálestir, Svíþjóð í 27.
sæti með 290.900 smálestir og
Finnland í 50. sæti með 64.700
*#málestir.
Húsnæðisskorturinn
æ tilfinnanlegri
Húsnæðisskortur er ekkert
einkenni háþróaðra landa. —
Vandamálið er a.m.k. eins að-
kallandi I þróunarlöndunum,
ef ekki mun verra viðureign-
ar. Af skýrslu sem Sameinuðu
þjóðirnar hafa nýskeð birt um
þessi mál, má sjá að til þess
að vinna 1 á vandamálinu
væri n ulegt að reisa 24
milljó -yrra íþúða árlega í
Afi-i u, Asíu og Latnesku
A. .uiku frá árinu 1965, og
Kennsla
Lærið ensku 1 mettima
i hutu pægiíega tioteli okkar við
.javarsíöuna naiægt Oover. I’a-
neonar öekkjadeildrr. B’imm
tiukkuatundir a dag. Engin ald-
rrstakmörk. Stjórnaö al Kennur-
um ménntuðum 1 Oxíord. Sérstök
námskeiö fyrir Chambridge Certi-
iic'srtes’. -
England.
The ..Regency, Ram3gate.
kringum 26 milljónir árlega
frá árinu 1975. Þetta jafngildir
því að árlega væru reistar 10
nýjar íbúðir á hverja 1000
íbúa þessara landa. Eins og
stendur er hlutfallstalan 2 á
móti 1000, og fer ástandið sí-
versnandi,
Skýrslan verður tekin til
umræðu á annarri ráðstefnu
hinnar nýju nefndar Sameín-
uðu þjóðanna um húsnæðis-
og byggingamál, sem haldin
verður í New York á tímabil-
inu 22. jan. til 4. febr.
Fólksfjölgunin er örari í þró
unarlöndunum en þeim lönd-
um sem þróuð eru. Milli 1950
og 1960 nam fjölgunin í Af-
ríku 2,2 af hundraði, íAsíu
1,9 af hundraði og í Rómönsku
Ameríku 2,3 af hundraði, en í
Evrópu nam hún einungis 0,8
af hundraði. Af þessari ástæðu
éinni er brýn þörf á víðtæk-
um byggingaframkvæmdum
hið bráðasta. Auk þess gerir
flóttinn í þéttbýlið ekki síður
vart við sig í þróunarlöndun-
um en annars staðar. Sam-
kvæmt síðustu fáanlegum töl-
um jókst íbúatala borga ár-
lega í Arabíska sambands-
lýðveldinu um 3,7 af hundraði,
í Kínverska alþýðulýðveldinu
um 6,5, í íran um 7,2, í Venezú
Ný starfræksla á
Suðurnesjum
SIGURÐUR Sumarliðason á
Akurbraut 2 í Innri Njarðvík
hefur hafið nýja starfrækslu.
sem mun koma sér mjög vel og
verða mikið notuð. Þessi þjón-
usta er gufuhreinsun á hvers-
konar vélurn, bílum og skipum.
Til þessara verka er notuð ný
gerg af gufuhreinsivél, sem heit-
ir KISMET, vélin er Jiituð með
olíu og er hægt að stjórna hita-
stigi og þrýsting gufunnar og
einnig að nota í þessu sambandi
ýmsa hreinsilegi, sem auðvelda
verkið ef um gamla þykka fitu
er að ræða. Hreinsa má alla
undirvagna á bílum og vélar
þeirra, einnig er táeki þetta hand
hægt við hreinsun iesta á skip-
um og sérstaklega lestarinnrétt-
ingar úr aluminíum, einnig færi-
bönd, borð og stíur í frystihús-
um og verksmiðjum.
Mikill ávinningur er að fá
þessa starfraekslu til Suður-
nesja, því áður hefur þurft að
saekja þessa þjónustu til Reykja-
vikur með miklum kostnaði og
fyirhöfn.
— hsj —
ela um 5,8 og í Columbíu um
5,4 af hundraði. Þetta gerir
miklar kröfur til bygginga-
framkvæmda í borgum. Þar
við bætist svo að þörf. er á
víðtækum endurbótum og
endurnýjum á þeim húsum
sem fyrir eru.
Skýrsla Sameinuðu þjóð-
ánna sýhir, að fá hinna há-
þróuðu landa reisa ibúðir með
þeim hraða sem náuðsynleg-
ur væri í þróunarlöndunum.
Sovétríkin reistu á árinu 1960
14 íbúðir á hverja 1000 íbúa,
Vestur-Þýzkalánd 10,5, Sviss
9,3 og Svíþjóð 9,1. Önnur lönd
Vestur-Evrópu og Bandariki
Norður-Ameríku reistu minna
en 8 íbúðir á hverja 1000 íbúa.
Þróunarlöndin þyrftu að
reisa a.m.k. 10 íbúðir árlega
á hverja 1000 íbúa, en eins
og stendur eru reistar þar
u.þ.b. 2 íbúðir árlega á 1000
íbúa (t.d. í Indlandi og Indó-
nesíu) eða þaðan af minna.
BIFREID AEIGENDUR
Við bjóðum yður:
Kaskotryggingar
Ábyrgðartryggingar
Rúðutryggingar
Farþegatryggingar
Brunatryggingar
^ 4 ^ . . .
Alls staðor era sömu kjör, en þjónustan er bezt hjó
..... • . i . . í .*•■ • . ' • V ■„ ; »•. -• ■ . ’ ■ • ’ > .' 1 ’
„ALMENNUM"
Almennar Tryggingar hf.
I i •• • • • .. •« •• \x ./.•:•• :