Morgunblaðið - 25.01.1964, Síða 20
20
Mr>*C UNR I AÐIÐ
i
Laugardagur 25. jan. 1964
G A VIN H O L T:
40
ÍZKUSÝNING
gekk yfir þvert gólfið og greip
símann. Eg heyrði í skífunni,
þegar ég fór að snúa henni. Eg
fór laglega að þessu og vissi það
sjálfur. Eg var einn af þessum
sniðugu spæjurum í glæpamynd
unum. En ég var bara að plata.
Eg var alls ekki að hringja, en
ég lauk ekki við það, því að ég
sá þegar, að síminn var alveg
eins öflugt vopn og skammbyssa
hefði verið. Eg stanzaði því, þeg
ar Josette stoð upp og gekk yfir
gólfið. Eg vissi ekki hvert hún
ætláði. En hún fór fram í gang-
inn í íbúðinni og ég gat aðeins
heyrt fótatakið öðru hverju. Svo
heyrði ég úr næsta herbergi, að
skúffa var dregin út. Eg gekk að
vínskápnum og fékk mér í eitt
glas. Þá kom fótatakið inn aftur.
H_ún rétti mér örk af skrif-
pappír. Hún sagði: — Eg var að
geyma þetta til að sýna Clibaud.
En í öllu uppnáminu náði ég
aidrei I hann.
XXII
Þetta var frekar góður pappír
með vatnsmerki í. Eg athugaði
það samt ekkert frekar, því að
áhugi minn var við það, sem vél
ritað var á örkina. Það byrjaði
eins og kvörtun:
„Eg reyndi að ná í þig á
þriðjudaginn á venjulega
staðnum. Eg beið eftir að geta
náð í þig í einkasímanum, en
það mistókst. Hvað er að ger-
ast? Ef við getum ekki fengið
vetrartízkurnar í vélarnar í
tæka tíð, getum við eins vel
gefið það alveg frá okkur.
Nú, þetta leit ósköp sakleysis-
lega út. Þetta hefði getað verið
venjuleg orðsending, en þá hefði
það verið með nafni viðtakanda
og undirritað. En að hvorttveggja
vantaði, gerði það einmitt grun-
samlegt, og undirstrikaði, að
þetta stefnumót, sem var sett en
ekki haldið, var eitthvað grun-
samlegt. Þar sem ég viSsi nú þeg
ar um sitthvað, sem fram fór í
fyrirtækinu, gat ég varla verið
í vafa um að það snerist um þjófn
að á teikningum — einn í viðbót.
Sjálfúr þóttist ég vita, að svo
væri og Selina hefði komizt að
öllu saman.
Og Thelby hafði komið niður,
rétt eftir fjögur. Ef til vill hafði
frænka hans sent eftir honum.
Ef til vill hafði hún ákveðið að
bera það upp á hann, áður en
hún færi úr skrifstofunni, og út
koman orðið sú, að hún kömst
þaðan aldrei. Svo hefði hann síð
ar reynt að myrða Sally Dutton,
út frá þeirri forsendu, að hún
hefði með höndum þetta hættu-
lega skjal. En á meðan hafði Jos
ie haft það lokað niðrþ,í skúffu
hjá sér.
Þetta pappírsblað var auðvitað
stórhættulegt, sökum morðsins,
serh það hafði gefið tilefni til. En
þessi nafnaskortur, sem gerði
það grunsamlegt, gerði það jafn
framt einskisvirði, sem vitnis-
burð. Það var ekki stílað á neinn
en það vissi morðinginn vitan-
iega ekki. En þó að það væri
nafnlaust, hafði það getað sagt
Selinu alla söguna. Eða hafði það
það? í gærkvöldi, þegar ég var
heima hjá henni, hafði hún helzt
verið á því að láta mig hætta
við allt saman, þar eð hún hélt
vafalaust, að hún væri maður til
að fást við málið sjálf. En svo
hafði hún verið á báðum áttum
og að lokum ákveðið að láta mig
halda áfram, en í dag, svo að
segja á síðustu mínú.tu, hafði
henni aftur snúizt hugur. Kann-
ski líka fyrr — jafnvel strax um
morguninn? Morðið leit ekki út
eins og neitt augnabliks uppá-
tæki. Það var vandlega undirbú-
ið og skipulagt.
Eg las blaðið aftur, en var engu
nær. Eg leit á Josie.
— Vissuð þér, að þetta var
sent til frú Thelby? spurði ég.
-— Eg veit ekkert meira en á
því stendur, svaraði hún.
Út úr svip hennar skein ekk-
ert annað en hræðsla. Þessi ró-
semi, sem hún hafði lágt sér til,
var nú rokin út í veður og vind.
—*• Hvernig vissuð þér, að það
var í skrifborðinu?
— Eg var ekki viss um það, en
ég sá Linu með það.
— Hvenær var það?
— Seinnipartinn í gær. Eg fór
í skrifstofuna hennar í einhverj
um erindum, og hún lét mig bíða
meðan hún var að fara gegn um
síðdegispóstinn. Bréfin voru ný-
komin og þetta var þar á meðal.
Eg vissi, að það var eitthvað á-
ríðandi jafnskjótt sem hún opn-
aði það, því að hún tók viðbragð
í stólnum. En svo bölváði hún
hressilega og fór að kveina.
— Munið þér nákvæmlega,
hvað hún sagði?
— Jáj hún sagði: „Helvízkur
fanturinn! Eftir allt, sem ég er
búin að geia fyrir hann!“ Svo
tautaði hún eitthvað fleira, sem
ég gat ekki greínt.
•— Sáuð þér umslagið?
— Aðeins efra hornið á því.
Það var merkt einkamál. En ann
ars lá annað umslag ofan á því.
— Já, en það getur ekki hafa
verið áritað til hennar! Opnar
hún kannski öll bréf, sem koma
í hú'sið? Má enginn hafa neinn
einkapóst?
— Jú. Hún hlýtur að hafa opn
að það af misgáningi.
— Eða viljandi. Hana kann að
hafa grunað eitthvað.
— Já. Röddin í Josie varð æ
aumingjalegri.
— Lætur Thelby oft senda sér
bréf til Clibaud?
— Það veit ég ekki.
— Hvað varð af umslaginu?
— Það veit ég ekki, endqrtók
hún. — Eg gáði að því, en gat
hvergi fundið það. Eg fór inn í
skrifstofuna henr/ar eftir að hún'
var farin heim. Það var ekki í
bréfakörfunni innan um ruslið.
Mér datt í hug, að hún hefði læst
það niður í skúffu. Þessvegna
kom ég þangað í nótt til að leita
að því.
— Hvernig stóð á, að þér höfð
uð lykla?
Eg hef haft skrifstofulykilinn
JUMBO
MORA
pTb\
Þegar allt ,var orðið rólegt og
hvergi hreyfingu að sjá, maurarnir
á bak og burt, Jumbo með prófessor
Mökk og Spora út á sléttuna. „Nú
■kulum við ganga grejtt, vinir mín-
ir“, sagði hann, „við eigum langa
leið fyrir höndum“.
Galdramaðurinn kom auga á þá,
þar sem hann stóð við rústimar og
varð öskuvondur. — „Hvað á þetta
eiginlega að þýða?“ urraði hann,
„óvinir mínir spásséra sig bara burt
eins og og ekkert væri! Mauramir
hafa svikið mig!“ ...... Hann sner-
ist á hæli......
og fór í loftköstum að finna banda-
menn sína. —
„Er það þá svona, sem þið þykist
efna gefin heit?“. æpti hann. „Hvar
er drottningin? I>ið eruð svosem
ekki að láta það dragast á langinn
að fá ykkar hluta samningsins fram-
kvæmdan! En þannig háttalag geng-
ur bara ekki, það ætla ég að láta
ykkur vita........
KALLI KUREKI
Teiknari; FRED HARMAN
— Náðirðu nú góðu taki á henni?
— Farðu á bak. Ég get ekki haldið
henni svona lengi.
Þetta verður eins og að sitja
fjallakött, hugsar indíáninn, þegar
asninn tekur sprettinn, en Gamli er
ekki á því að gefa sig og segir:
„Láttu eins og þig lystir, asni minn,
nú er ég við öllu búinn“.
3. — Blessaður, kallar indíáninn
en hugsar með sér að sjaldan hafi
rauðskinni komið betri hefndum á
hvítan mann en í þetta skipti.
— Og áfram þá! Sýndu nú hvað
þú getur, fjallakötturinn þinn!
lengi. Lina glopraði honum ein-
hverntíma niður. Það voru fleiri
lyklar til.
— Eigið þér við, að þér hafið
hirt lykilinn?
— Já. Hún leit niður á tærnar
á sér og síðan á vínskápinn.
— Eg hafði engan lykil að
skrifborðinu, en einn af mínum
lyklum gekk að því.
Eg trúði henni. Svona skrár
má opna með hverju sem er.
— Hlustið þér nú á, sagði ég.
— Þegar Lina nefntfi þennan hel-
vízkan fant, vissuð þér þá nokk
uð, hvern hún átti við?
— Hún hikaði. — Líklega hef
ég gert það?
— Yður datt Benny í hug?
— Já, hún notaði þetta orð
venjulega um hann.
— Svo að grunur yðar hefur
fengið staðfestingu. Var það þesa
vegna, sem þér voruð svo æst að
ná í bréfið?
Sflíltvarpió
Laugardagur 25. Janúar
7.00 Morgunútvarp (Veðurfregnir
Tónleikar — 7.30 Fréttír — Tón.
leikar — Morgunleikfimi — 8.00
Bæn — Veðurfregnir — Tón-
leikar — 8.30 Fréttir — Tónleikar
— 9.00 Úrdráttur úr forustu-
greinum dagblaðanna — 9.10
Veðurfregnir —- 9.20 Tónleikar
10.00 Fréttir).
Hádegisútvarp (Tónleikar — 12.25
Fréttir og tilkynningar).
Óskalög sjúklinga (Kristín Anna
Þórarinsdóttir).
í vikulokin (Jónas Jónasson):
Tónleikar — 15.00 Fréttijr
Samtalsþættir — íþróttaspjall v
Kynning á vikunni framundan.
Veðurfregnir — Laugardagslögin
Danskennsla (Heiðar Ástvalds-
son).
Fréttir
Þetta vil ég heyra: Sveinn Elías-
son skrifstofustjóri velur sér
hljómplötur
Útvarpssaga barnanna: .Skemmtl
legir skóladagar' eftir Kára
Tryggvason; III. (Þorsteinn Ö.
Stephensen).
Veðurfregnir.
Tómstundaþáttur barna og unj«
linga (Jón Pálsson).
Tilkynningar.
Fréttir.
Leikrit: „Barbara majór" eftir
George Bernard Shaw. Þýðandi:
Árni Guðnason. — Leikstjóri;
Gísli Haldórsson.
Persónur og leikendur:
Andrew Underhaft Þorsteinn
Ö. Stephensen
Kona hans Guðbjörg Þor-
• bjarnardóttip
Stefán sonur þeirra .... Erlingur
Gíslason
Barbara dóttir þeirra .... Krist-
björg Kjeld
Sara dóttir þeirra .... Jónína
ÓlafsdóttiP
Adolf Cusins, unnusti Barböru
Rúrik Haraldsson
Karl Lomax( unnusti Söru
Þorsteinn Gunnarsson
Aðrir leikendur: Guðrún Ás-
mundsdóttir, Gestur Pálsson*
Helga Valtýrsdóttir, Árni
Tryggvason, Guðrún Stephen-
sen, Valdimar Lárusson og Karl
Sigurðsson.
Fréttir og veðurfregnir
Framhald leikritsins „Barböru
majórs" eftir Shaw.
Þorradans útvarpsins — þ.á.m.
leikur hljómsveit Jóhanns Mor-
avek Jóhannssonar gömlu dans-
ana, og tríó Sigurðar Guðmunds-
sonar hina nýrri. Söngkona:
Ellý Vilhjálms. — (2400 Veður-
fregnir).
02.00 Dagskrárlok.
12.00
13.00
14.30
16.00
16.30
17.00
18.00
18.20
18.30
18.50
19.30
20.00
22.00
22.10
23.00
r