Morgunblaðið - 02.02.1964, Síða 32

Morgunblaðið - 02.02.1964, Síða 32
Aitgfýsingar á blfa Lftanhuss-augtýsingar aBskonar skilti ofl 27. tbl. — Sunnudagur 2. febrúar 1964 \7t TVÖFALT u. einangrunargler ^Oára reynsla hérlendlg , ■3W»l3;i«a:lbiiOiT3bfcW?H«l»l!ia FISKIÞING SETT I GÆRMORGUN Tveggja fyrrverandi fulltrúa þingsins minnzt FISKIÞING hið 27 í röðinni var sett kl. 10.30 í gær í húsi rann- sóknarstofnunar sjávarútvegsins að viðstöddum sjávarútvegsmála- ráðherra, þingfulltrúum, gestum og starfsmönnum félagsins. Fiskimálastjóri Davíð Ólafsson, setti þingið með stuttu ávarpi, bauð ráðherra, fulltrúa og gesti velkomna til þings. Kaflar úr ávarpi fiskimálastjóra fara hér á eftir: „Frá því Fiskiþing sat síðast hafa látizt tveir af fyrrverandi fulltrúum á Fiskiþingi, þeir Arn- grímur Fr. Bjarnason, frá fsa- firði og Gísli Magnússon, frá Vestmannaeyjum. Arngrímur Bjarnason var nær 76 ára þegar hann lézt og um 45 ára skeið hafði hann tekið þátt í störfum Fiskifélagsins, ýmist heima í hér- aði eða á Fiskiþingum. Var hann fyrst kjörinn á Fiskiþing árið 1917 og sat þá á þinginu til árs- ins 1930 og síðan aftur á árun- um 1942 til 1960, eða alls 18 þingum. Hann var einlægur á- hugamaður um málefni Fiskifé- lagsins og sjávarútvegsins og lét jafnan til sín taka á Fiskiþing- um um afgreiðslu mála. Þegar Fiskiþing var sett síð- ast, í byrjun febrúar 1962, skýrði ég frá því, að þá um næstliðin áramót hefði skrifstofustjóri fé- lagsins Arnór Guðmundsson lát- ið af störfum, eftir 37 ára starf í þjónustu félagsins. Eftir að hann lét af störfum skrifstofu- stjóra starfaði hann áfram með okkur að ýmsum þýðingarmikl- um verkefnum og við höfðum vonazt eftir, að honum mundi auðnast að starfa með okkur enn um hríð. En enginn þekkir sitt skapadægur. Fyrir minna en ein- um sólarhring vorum við Arnór að ræða undirbúning þessa Fiski- þings og ræddi hann það af þeim áhuga, sem einkenndi hann svo mjög. Minna en klukkustundu síð ar var hann allur og nú minn- umst við hans hér í dag. Arnór Guðmundsson var fædd- ur að Einfætingsgili í Stranda- Framhald á bls. 2. KVÖLDVAKA Norræna félagsins í kvöld NORRÆNA félagið í Reykjavík efnir til kvöldvöku í Þjóðleikhús kjallaranum í kvöld, sunnudags- kvöld, og hefst hún kl. 20.30. Þar mun Lars Elmer, sendiikennari, flytja erindi um sænska skáldið Gustaf Fröding, Guðjón Ingi Sig urðsson, leikari, lesa sænsk ljóð í þýðingu Magnúsar Ásgeirsson- ar, sýnd verður litkvikmynd frá Svíþjóð og rnargt annað verður til skemrntunar. Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn og I gesti þeirra. Áfengi og tóbak hækka vegna söluskattsins íþróttahreYÍingin og Slysavarnafélagið fá nú 45 aura af hverium sígarettupakka t GÆR hækkaði álfengi og tó- bak hjá Áfengis- og tóbaksverzl un ríkisins- Hækkar áfengi að meðaltali um 5%- Er hækkun þessi m. a. vegna hækkunar á söluskatti. Varðandi tóbakið er það að segja að það hækkar um Landsleik- Skota TIL viðbótar þeim landsleikjum í knattspyrnu, sem þegar eru ákveðnir á komandi sumri og blöðum og útvarpi hefur þegar verið skýrt frá, hefur nú verið staðfest, að háður verður lands- leikur við áhugamannalið Skota hér í Reykjavík hinn 27. júlí n.k. og verður það fyrsti landsleik- urinn í knattspyrnu milli Islend- inga og Skota. 214% en sígarettur hækka hlut- fallslega meira en annað tóbak. Auk fyrrgreindra 214% bætist við gjald á hvern pakka af síga- rettum, sem rennur til íþrótta- hreyfingarinnar og Slysavarna- félags íslands, frá og með þess- um mánaðamótum. Mbl. fékk þær upplýsingar hjá Áfengis og tóbaksverzluninni í gær að sterk vín hafi hækkað um 10 — 15 kr. á flösku eftir tegundum. Viský hækkar þannig úr 240 kr. í 255 kr., vodka og gin hækkar um 10 kr. á flösku og genever um 15 kr. Létt vín hækka um 10 kr. á heilflösku og 5 kr. á hálfflösku. Eins og fyrr getur nemur tó- bakshækkun vegna söluskatts- ins 214% en sígarettur hækka nokkru meira. Fá íþróttahreyf- ingin og Slysavarnafélagið 45 aura af hverjum pakka, sem skiptast jafnt a milli þeirra. Hér er átt við hækkun frá tóbaks- verzluninni, en 10 aurar bætast við í smásöluverzlunum, þannig að raunveruleg hækkun er 55 aurar á pakka. Kostar pakki af Camelsígarettum nú kr. 25-20. — Söluskattshækkunin nær til alls þess varnings. sem Áfengis- og tóbaksverzlun rikisins verziar með, og má þar telja ilmvötn, sprittvörur (rakspíra) etc. Loks um miðja síðustu viku gafst börnunum kostur á að draga fram sleða sína. — Myndin er af þeim, Tjörninni og öndunum. Ljósm.: ÓI.K.M. Hvítartes kemur til Keflavíkur HINN 2. októ'ber s.l. var Kaup- skip h.f., afhent í Hamiborg flutn ingaskip, sem félagið festi kaup á með samningi undirrituðum hinn 9. júlií s.l. Skip þetta hlaut nafnig Hvítanes og er heimahöfn þess Keflavík. Skipið er 2574 D.W. tonn sem lokað hlífðarþilfarsskip. Rúm- mál lestanna er 110 til 120 þús. kubikfet. Skipið er búið fullkomnum siglingartækjum og hið vandað- asta að öliuim frágangi. Skipshöfnin er 22 menn. Skip- stjóri er Sigurður Þorsteinsson, 1. stýrimaður Harry Steinsson og 1. vélstjóri Reynir Jónsson. Hlutafélagið Kaupskip var stofnað seint á árinu 1962. Samn inga í Þýzkalandi af hálfu félags ins hefur Vigfús Friðjónsson út- Valt ofan í skurð RÉTT fyrir hádegi í gær varð það óhapp í Fosisvogi, að bíll valt á hiiðina ofan í þröngan skurð. Gerðist þetta á mótum Fossvogsvegar og Klifvegar, og mun bíllinn hafa runnið í hálku. Fjórir voru í bílnum, og kvart- aði einn fairþeganna urn þrautir í baki. Var h»r>- fluttur i silysa- varðötofuna. gerðarmaður Sigilufirði annast, en auk hans eru í stjórn félags- ins Árni Guðjónsson hrl. formað ur, Steinþór Marteinsson, Reykja vík, Jón G. Pálsson, Keflavík, Haukur H. Magnússon, Keflavík og Karl Sæmundsson, Reykjavíik. Strax eftir afhendingu fór skipið í leiguferð á vegum franska Atlantshafsfélagsins til hjálenda Frakka í Vestur-Indíum og Suður-Ameríku. Eftir tæplega 4ra mánaða útivist kemur skipið nú fullhlaðið tómtunnum og salti til íslands. Héðan fer það með saltsíld til Póllands. Framkvæmdastjóri Kaupskips h.f., er Úlfur Sigurmundsson. Það er mikill viðburður að hingað kemur nýtt og glæsilegt flutningaskip, sem skiráð er frá Keflavík, til sinnar heim-abafnar. Að því máli hafa bæði Kefl- víkingar og aðrir ekki slakari, unnið ósleitilega, og nú hefur starf þeirra og fjármunir borið árangur, í glæsilegu skipi, sem klýfur heimsins höf og stingur við nöf í Keflavík, rétt til að láta vita að „Hvítanes“ sé komið heim. Við göngu um skipið verðu/r ekki séð að nokkru sé áfátt, all- ur útbúnaður þess er hinn full- komnasti, sem nú þekkist um örygigi í sigJingum og varðandi skipshöfn eins og best verðuir ákosið. Þegar svo vel er útbúið skiptir ekki máli hvort menn eru á landi eða sjó, því alls er vel gætt, sem til öryggis má verða. Það var mannmairgt um borð í „Hvítanesi“ að kvöldi föstu* dags í Keflavík, þar var bæjar- stjórn og bæjarstjóri, svo og aðrir fyrirmenn Keflavíkur, glað ir og reifir yfir þessu nýja frairu taki og færðu forustumönnum, yfirmönum og áhöfn skipsins, sínar innilegustu óskir um giftu- ríka framtíð til heilla heilbrigð um viðskiptum og vaxandi styrk Keflvíkurbæjar. — hsj — Mikið urn árekstra í gær MIKIÐ bar á árekstrum í Rvík í gær vegna mikillar umferðar og hálku. Frá kl. 11:30—-13:30 urðu 8 árekstrar í borginni, flestir vegna hálku. Skemmdir urðu talsverðar í sumurn þess- ara áirekstra en engin slys. Gerðahreppur STOFNFUNDUR Sjálfstæðis- fél. í Gerðahreppi verður hald- inn í samikomuhúsinu Gerðum í dag og hefst kl. 4. e. h. Alþingis- menn Reykjænesk.iördæmis mæta á fundinam.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.