Morgunblaðið - 04.02.1964, Blaðsíða 2
2
MORGUNB l AÐIÐ
T>rlðjiK?agtir 4. febr. 1964
Þoríékshafnarbúar ugg-
andi um hafnargerðina
SELFOSSI, 3. feb. — Sl. sunnu-
dag var haldinn í Þorlákshöfn al
mennur borgarafundur til þess
að ræða hafnarmálin. Kom þar
fram að megn óánægja ríkir í
pálssinu vegna seinkunar þeirr-
ar, sem orðin er á hafnargerð-
inni. Urðu fjörugar umræður á
fundinum um hafnargerðina.
Vildu fundarmenn fá upplýst hjá
réttum aðilum hve miklu fé hafi
verið eytt í hafnargerðina og or-
sakir hinnar óeðlilegu seinkunar
á framkvæmdum miðað við þær
Blnðamaðurinn
snt sem fnst-
nst í kon-
ungsstúkunni
áætlanir sem gerðar voru í upp-
hafi. Ennfremur vítti fundurinn
þær skemmdir sem unnar hafa
verið á malarkambinum sín
hvoru megin við lendingarnar og
grynnkun þá, sem orðin er á leg-
unni, eftir að bæjarhólnum var
í upphafi framkvæmdanna ýtt
ofan í bátalægið.
í stjórn hafnarnefndar Þor-
lákshafnar eru nú Páll Hall-
grímson, sýslumaður, Björn Fr.
Björnson, sýslumaður, Sigurður
Tómasson, bóndi Benedikt Thor
arensen, framkvæmdastjóri, Sig
urðu Óli Ólafsson alþingismaður
og Asgeir Eiríksson, kaupmaður.
— Ól. J.
Þar sem lifnaðarhættir breytast
snöggt er
samband milli krabba-
meins og reykinga Ifósast
Bondevig tekur ísland sem
dæmi í norska þinginu
KANADÍSKI blaðamaðurinn
Michaei Sone var handtekinn í
Innsbruck í gær, mánudag, er
hann neitaði að fara úr sætum
sem frátekin voru fyrir Júlíönu
Hollandsdrottningu og mann
hennar Berhard prins. Blaðamað
urinn fékk ákæru fyrir að trufla
frið og brjóta reglur.
Atvik þetta skeðj er úrslita-
keppni í listhlaupi kvenna á
skautum fór fram og var hol-
lenzka stúlkan Djikstra að vinna
yfirburðarsigur.
Blaðamaðurinn neitaði starfs-
mönnum svæðisins að yfirgefa
konungsstúkuna og þurfti lög-
reglan að flytja hann brott.
r
Arekslm* á
LAUST eftir kl. 11 í gærmorg-
un varð allharður árekstur á
mótum þjóðvegarins og Esju-
brautar. Rákust þarna saman
Skodabíll og Moskvits, og
skemmdust báðir töluvert, eink-
um Moskvitsbíllinn. Ekki urðu
meiðsli á mönnum.
Osló, 3. febrúar (NTB)
í DAG fóru fram í norska þing-
inu umræður um hin skaðlegu
áhrif sigarettureykinga og að-
gerðir af hálfu hins opinbera til
þess að koma í veg fyrir þær.
Það var Kjell Bondevik, formað
ur þingflokks Kristilega þjóðar-
flokksins, sem lagði fram tillögu
þar sem skorað var á ríkisstjóm
ina að grípa til aðgerða með það
fyrir augum að draga úr síga-
rettureykingum landsmanna.
í ræðu sinni lagði Bondevik
áherzlu á mikilvægi upplýsinga-
starfsemi meðal unglinga og áróð
ursherferð gegn sígarettureyk-
ingum almennt, nú þegar vitað
væri hve skaðleg áhrif þær
gætu haft á mannslíkamann. —
Hann sagði, að sambandið milli
sígarettureykinga og krabba-
meins væru augljósast í löndum
þar sem lifnaðarhætir hefðu
breytzt mikið á stuttum tíma
og væri ísland eitt bezta daemið
um slíkt. Fram til 1950 hefði
lugnakrabbameins lítið sem ekk-
ert orðið vart á íslandi, en eftir
það hefði tíðni sjúkdómsins auk
izt mjög. Sígarettureykingar
Alan Ladd látinn
- 50 ára gamall
Lék í meira en 150 myndum um æfina
hefðu einnig aukizt mjög ört
t.d. hefðu íslendingar reykt 14
sígarettur á mann árlega 1914
en 1959 hefðu þeir reykt 1116
sígarettur á mann á ári.
Bondevik sagði síðan, að upp-
lýsingastarfsemi um sígarettu-
reykingar og áhrif þeirra hefðu
borið nokkurn árangur á íslandi,
sérstaklega meðal fullorðinna, en
svo virtist sem reykingar væru
sífellt að aukast meðal unglinga
og jafnvel börn reyktu. Slíka
öfugþróun yrði aC stöðva með
róttækum aðgerðum sagði Bonde
vik og benti á, að Alþingi íslands
hefði lagt ýmis aukagjöld á
sígarettur.
ALAN LADD, hetja ótal
drengja á öllum aldri, lézt að
heimili sínu í Palm Springs,
Kaliforníu, 30. janúar, 50 ára
gamall. Læknar segja, að
banamein hans muni hafa ver
ið hjarta bilun. Kvikmynda-
leikarinn hafði nýverið geng-
izt undir lítilsháttar læknis-
aðgerð vegna meiðsla í hné og
var að ná sér eftir hana.
Kona Ladds, Sue Carol> var
stödd að heimili þeirra hjóna
í vestri Los Angeles, er hún
frétti lát manns síns.
Alan Ladd átti velgengni
sína mjög að þakka Sue Car-
ol, sem var leikkona á æsku-
árum, en gerðist síðan um-
boðsmaður kvikmyndaleikara.
Þegar Ladd fyrst kom í kvik-
myndaver í Hollywood var
hann aðstoðarmaður við hljóð
upptökur og fékk rúma fjöru
tiu dali á viku. En á hátindi
frægðar sinnar hafði hann um
25 þúsund dali í kaup á viku.
Það var árið 1941 eða 42 að
Sue Carol kom hinum nýja
skjólstæðingi sínum á fram-
færi í kvikmyndinni „This
..gun for hire“ (Byssa til leigu
— Leigumorðingi). Aðalleik-
ari í myndinni var Robert
Preston. En það muna víst
fáir. Aftur a móti muna það
allir sem sáu „This Gun for
Hire“ að Alan Ladd lék hinn
kaldrifjaða leigumorðingja-
Og Alan Ladd hélt áfram
að leika kaldrifjaðan leigu-
morðingja og >,kalda karla“
árum saman og fyrir æ meira
fé og frama. Paramount-kvik-
myndafélagið sagðist ekki
hafa af neinum leikara sinna
eins miklar tekjur og af Alan
Ladd, kvikmynd sem hann
léki i gæfi alltaf að minnsta
kosti 3 milljónir dala í aðra
hönd, hvað svo sem hún fjall-
aði um og hvort heldur miklu
eða litlu væri til hennar kost-
að. Enda sagði Ladd sjálfur
um Paramount — „Hvenær
sem Paramount vantar pen-
inga, byrja þeir á nýrri Alan
Ladd mynd.“
Frægasta kvikmynd Ladds
er ,,Shane“ og er leikur hans
í þeirrí mynd talinn vera ein-
hver bezti leikur, sem sézt
hefur í kúreka-mynd nokkru
sinni. Leikstjórinn. George
Stevens, lét svo um mælt að
enginn gæti hafa leikið
„Shane“ betur en Alan Ladd
og leikur hans í myndinni
Alan Ladd
væri sígilt fordæmi. Sjálfur
hafði Alan Ladd einnig mest-
ar mætur á þessu hlutverki.
Alan Ladd fæddist í Hot
Springs, Arkansas, en dvaldi
mestan hluta æfinnar í eða
nálægt Hollywood. Á yngri
árum fékkst hann við ýmis-
légt harla óskylt kvikmynda-
leik, og hafði m-a. verið blaða
maður, sölumaður fyrir pen-
ingakassa, matreiðslumaður
o.fl. en fór svo loks að vinna
sem aðstoðarmaður í kvik-
myndaveri einu og fór upp úr
því að leika dáiítið. Sue Carol
heyrði hann leika í útvarp og
kom honum á framfæri eins
og áður sagði. Þegar svo töku
fyrstu kvikmyndarinnar.
„This Gun for Hire' var lok-
ið, lögðu þau upp í brúðkaups
reisuna, Alan Ladd og Sue
Carol. Þau höfðu verið gift í
22 ár er kvikmyndaleikarinn
lézt. Hjómn áttu tvö börn
saman og sit' hvort frá fyrra
hjónaböndum, því bæði höfðu m
verið gift áðui. 9
Síðasta mynd Alan Ladds 9
var „The Carpetbaggers" sem 1
tekin var síðastliðið sumar.
I /■ NA /5 hnútar i / Sil 50 hr.úter H Snjóimt • /)*( » ' vtf/ \7 Skúrir E Þrumur y///RrgrA^s^j KuUatkil H Hal ri,,/tva%\ Hifsskif L LstS
Kl. 5 í morgun var komin
norðanátt á Hornbjargsvita,
en annars var vestan átt um
land allt, frost um 5 stig og
éljagangur vestan lands. Sjö
tímum seinna snerist vindur
til norðurs í Reykjavík og kl-
14 mátti segja að vindur væri
orðinn norðanstæður um allt
larid. Gera má ráð fyrir að
kólnað hafi að jafnaði um 5
stig við áttarbreytinguna.
Samvinnufélag útgerðarmanna
á ISIorðfirði:
taka upp ákvæðisvinnu
NESKAUPSTAÐ, 3. feb. — Þeir
tveir bátar, Gullfaxi og Hafþór,
sem róið hafa héðan, hafa aflað
um 110 tonn frá áramótum. Mjög
hefur verið erfitt með sjósókn,
þar sem sífelldir stormar hafa
verið og varla hægt að segja að
komið hafi góður dagur hjá bát-
um.
Samvinnufélag útgerðarmanna
er nú að breyta um vinnutilhög-
un í frystihúsi sínu og koma þar
á ákvæðisvinnu við alla flökun.
Þar er einnig verið að koma
fyrir nýjum frystitækjum, sem
einkum mun ætlað að frysta síld
og mun verða hægt að frysta í
þeim um 400 tunnur á sólar-
hring. Þá verður einnig tekmn
í notkun nýr frystiklefi, sem get
ur geymt um 350 tonn.
Enn er ófarið mikið af saltsíld
frá því í sumar, en þrjú skip
voru hér í dag. Tvö þeirra tóku
slatta af saltsíld, en það þriðja
lestar hér um 700 tonn af síldar-
mjöli. — A.
Kommúnistar tapa fylgi
■ „Jötni“ í Eyjum
STJÓRNARKJÖR fór fram í Sjó-
mannafélaginu Jötni í Vest-
mannaeyjum um sl. helgi.
Tveir listar voru í kjöri: A-listi,
er skipaður var kommúnistum og
studdur af fráfarandi stjórn og
B-listi lýðræðissinna.
Úrslit urðu þau, að A-listinn
hlaut 80 atkvæði, en B-Iistinn 63
atkvæði.
Kommúnistar hafa verið sjálf-
kjörnir í stjórn félagsins hátt á
annan áratug og ráðið öllu í fé-
laginu. Lýðræðissinnar hafa aftur
á móti nokkrum sinnum boðið
fram gegn þeim til fulltrúakjörs
á þing ASÍ og gerðu það síðast
1962. Þá urðu úrslit þau, að komm
únistar hlutu 96 atkvæði, en lýð-
ræðissinnar 50 atkvæði. Þá var
atkvæðamunurinn 46 atkvæði, en
nú aðeins 17 atkvæði.
Þessi sigur lýðræðissinna er
þeim mun athyglisverðari fyrir
þá sök, að kommúnistar 1 stjórn
félagsins beittu hvers kyns bola-
brögðum í kosningunum, sem
þeim er títt. Tóku m.a. fylgis-
menn sína inn á kjörskrá eftir að
kosning hófst, en settu andstæð-
inga sína út af skrá.
Það skal tekið fram að for-
maður Jötuns, Sigurður Stefáns-
son, er eitt af þægustu verkfær-
um kommúnistaflokksins í verka
lýðshreyfingunni.
Sjómenn í Vestmannaeyjum
eru staðráðnir í þvi, að halda
baráttunni áfram og frelsa félag'
sitt úr höndum þeirra pólitísku
ævintýramanna, er stjórnað hafa
samtökunum í áratugi með litl-
um sóma.
Gagnfræðaskólanemendur
ó Akranesi kynnast Bach
og skaðsemi reykinga
AKRANESI, 3. febr. — Á slag-
inu kl. 8 á laugardagsmoirgun
voru nemendur Gagnfræðasikól-
ans hér látnir ganga í prosessiu
ofan í kirkju. Þegar allir voru
búnir að taka sér sæti og kyrrð
komin á, hófst kynning á verk-
um hins heimsfræga tónskálds
Johanns Sebastian Bachs. Org-
anleikari var Haukur Guðlaugs-
son, skólastjóri Tónlistarskólans.
Að loknum tæpum tveim klst.
sem tónleikarnir stóðu yfir gengu
nemendurnir í skipulögðum röð-
um aftur upp í skóla.
I skólann kom nokkru síðar
Bragi Nielsson, læknir Oig flutti
gott erindi fyrir nemendur um j
skaðeemi reykinga oig notkun
tóbaks. En þessi dagur var ein-
mitt dagur Bindindisiél. í sk.ou.um
Þorrablót
Þorrablót mikið var haldið s.L
sunnudagskvöid í félagsheimilinu
Fannahlíð í Skilmannahreppi á
vegum Fólksbílastöðvarinnar h.f.
hér i bæ. Þar var vel veitt og
matur borinn fram í trogum, eins
og á Egils dögum.
Það var í frásögur fært er einn
þorrablótsmanna fór heim á lang
ferðabílnum kl. 5 um nóttina. Þá
skeði það óhapp að spánýtt 19,000
kr. viðtæki, tilheyrandi farartæk
inu, eyðilagðist. Ein farþeganria
hafið slegið í það.
— Oddur,