Morgunblaðið - 04.02.1964, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.02.1964, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 4. febr. 1 ð64 MORGUNBLAÐIÐ 3 ' ' s "v \ fc víSSiÍ^v 5.'Í',U' wl™ <•. Ekið á gagnbrautuvi báðuiu uiegin Hringbrautar og eftir „eyj unni“, sem skilur að akreinaruar. Ófærð á götum Reykjavíkur inn gat að líta menn vopnaða skóflum, sem ýmist unnu að því að grafa bíia sína úr fönn eða setja á þá snjókeðjur. í gærmorgun var búið að ryðja helztu umferðaæðar Reykjavíkur, og voru víða háir snjóskafiar meðfram þeim. í úthverfunum var ill- fært á stöku stað. Margir festu bíla sína, er þeir óku of djarf lega út á vegarbrúnir, jafn- vel í miðbænum. S* •* - Iþrótiir Framihald af bls. 26. heimsmeistarakeppninni fyrir 10 árum, þá 15 ára gamall. En ég er ekki hættur. Ég held áfram skíðakeppni svo lengi sem ég get eitthvað. Norðurlandabúar sóttu ekki gull í greipar Mið-Evrópumann- anna.' Norðmaðurinn Överland fór brautina mjög vel ofan til og var þar aðeins 1.5 sek. lakari en Bonlieu, en síðan gekk honum illa. Beztur Norðurlandabúa var Finninn Raimo Manninen, sem varð 10. á 1.55.14. Bjuggmann, Svíþjóð var 22. á 1.55.30, Över- land 23. á 1.55.51, Holm, Noregi 24. 1.55.72, Sunfe, Noregi 26., Lindström, Svíþjóð 33., Grahn, Svíþjóð 38. og Ekstam, Finnl. 40. á 2.01.78. tlRSLIT: OL.-meistari F. Bonlieu, Frakkl... 1.46.71 2. Karl Schranz, Austurr. 1.47.09 3. P. Stiegler, Austurr. . . 1.48.05 4. W. Fave, Sviss ...... 1.48.69 5. J. Huega, USA ....... 1.48.76 6. Jean Killy, Frakkl. .. 1.48.92 7. Nenning, Austurr.....1.49.68 8. B. Kidd, USA......... 1.49.97 9. L. Leitner, Þýzkal...1.50.04 10. J. Minsch, Sviss .... 1.50.6 STAKSIEINáR ÞÓTT Vetur karlinn léti lengi ekki á sér kræla í þetta sinn, þá var hann stórbrotinn og forn í skapi, þegar hann loks ins hélt innreið sína. Það var eins og hann vildi sýna Reyk- víkingum, að hann væri ekki dauður úr ölium æðum, held- ur væri alltaf á næstu grös- um á þessum tíma árs, og það aðeins duttlungum hans háð, hvort hann nennti að hrella mannfólkið. Um helgina gerði skafbyl slíkan í Reykjavík, að margar götur tepptust. Stóðu bifreið- ar víða fastar í sköflum jafn- vel á helztu umferðargötun- um. Á sunnudag lokaðist t.d. u.þb. 200 metra kafli syðri akreinar Hringbrautar. svo að aka varð uppi á „eyjunni“, sem skilur að akreinarnar- Keðjulausir bílar stöðvuðust víða og vörnuðu öðrum betur útbúnum farartækjum vegarins. Hvarvetna um bæ- Bifreiðalest föst á Reykjanesbraut. Fremsti bíllinn stöðvaðist og komust hinir því ekki af stað aftur- 'X'X-X-íýX-Xv.'ýýlK Strætisvagn fastur á Bústaðavegi. Gangandi fólk reynir að að stoða aðra bíla við að komast fram hjá honum. Hverjir viljr upp- bótakerfi? í forystugrein í Tímanum sl. sunnudag segir m.a.: „Ef menn rifja það upp, sem sungið var af stjórnarblöðunum og frambjóðeudum stjórnarflokk anna fyrir þingkosningarnar í vor, mun mönnum ekki koma annað fyrr í hug en loforð og svardagar um, að ekki skyidi aft ur horfið til hins fordæmda upp bótakerfis, ef stjómarflokkarnir héldu meirihluta sínum áfram. Enginn, sem þá trúði stjómar- flokkunum, gat látið sér detta í hug, að það yrði aðalverk þeirra á fyrsta þinginu eftir kosningar að taka upp nýtt stórfelt uppbóta kerfi. í öllum þingræðislöndum þykir það hjálfsögð hefð, að rík isstjóm segi af sér, þegar flokk ar hennar telja sig ekki geta framfylgt þeirri stefnu, sem þeir lofuðu kjósendum". Tíminn skýrir þannig rétti- lega frá því, að báðir stjómar- flokkarnir og stuðningsmenn þeirra séu andvígir uppbótakerf inu og hafi fordæmt hinar skað vænlegu afleiðingar þess. Hitt er einnig rétt, að nú hefur um sinn verið vegið svo illilega að viðreisninni, að sú heillavænlega efnahagsstefna, sem mörkuð var 1960 og síðan hefur verið fylgt, hefur orðið að þoka nokkuð, þótt auðvitað séu þær ráðstafanir, sem nýbúið er að gera, ekkert í líkingu við uppbótafarganið, eins og það var, þegar það var í algleymingi. Dómur kosninganna Það er einnig rétt hjá Tím- anum, að í kosningunum í sum- ar var kosið um viðreisnarstefn- una. Þjóðin vottaði henni fyllsta traust sitt og kaus gegn uppbóta- stefnunni eins og tíminn skýrir frá. En sú röksemdarfærsla Tím ans, að Viðreisnarstjórnin eigi að segja af sér, vegna þess að hún hefur um sinn ekki að fullu get- að framkvæmt viðreisnarstefn- una er hinsvegar alröng. Þjóð- in kaus þá flokka, sem hún bezt treysti til þess að forðast upp- bætur og spillingu eins og frek- ast væri unnt. Hún kaus gegn þeim flokkum, sem það kerfi vilja. Enn í dag eru það Sjálf- stæðisflokkur og Alþýðuflokkur- inn, sem gera sér fulla grein fyrir bölvun uppbótakerfisins og kostum frjáls og heilbrigðs efna hagskerfis, og enn í dag em það Framsóknarmenn og kommún- istar, sem hatrammlega deila á heilbrigða efnahagsstefnu og krefjast þess að uppbótafargan- ið verði inieitt á ný eins og það var þegar þeir hrökkluðust frá völdum. Stefnan í framtíðinni Þótt stjórnarflokkarnir hafi gert tiltölulega smávægilegar ráðstafanir til að létta byrðum af útflutningsframleiðslunni, vegna þeirra hækkana, sem urðu á launum í desember, gera þeir sér fulla grein fyrir því að framtíðarskipulagið getur ekki verið annað en frjálst og heil- brigt efnahagskerfi, ef þjóðinni á vel að farnast. Þjóðin hefur falið þessum flokkum að framkvæma þá stefnu eins vel og þeim er unnt. Þeir játa að vísu að þeir hafi orðið að láta nokkuð undan síga í bili, en þeir hljóta að berj- ast áfram gegn því að uppbóta- kerfið hef ji innreið sína í algleym ingi. Þjóðin fól þeim það hlut- verk í kosningunum eins og Tíminn skýrir réttilega frá. Kjósendur kusu gegn uppbóta- stefnunni og þeim flokkum, sem hana vilja. Þess vegna væru það svik við ef uppbótaflokkunum yrðu feng in völdin og viðreisnarflokkarn- ir gæfust upp við að tryggja þjóð inni eins farsæla efnahagsstefnu og kostur er á hverjnm tima

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.