Morgunblaðið - 04.02.1964, Side 8

Morgunblaðið - 04.02.1964, Side 8
MORCUNBLAÐIÐ ÞriSjudagur 4. febr. 1964 NATO-ríki beðin um að taka þátt í lögregluliði Makanos hefur ekki sambykkt tillögu Breta og Bandarikjamanna — Talið að hann beri fram gagntillögu London, Nicosia (Ntb) 3. febrúar. • Vtanríkisráðherra Kýpur, Spyros Kyprianou, flaug í dag til London frá Nicosia og hafði meðferðis svar Makariosar erki- giskups, forseta Kýpur, við til- lögu Breta og Bandaríkjamanna um „alþjóðlegt lögregiuiið“ á Kýpur. Talið er að Makarios hafi ekki samþykkt tillöguna heldur komið með gagntillögu, þar sem gert sé ráð fyrir að herlið undir stjórn Sameinuðu þjóðanna verði sent til Kýpur. • Litlu munaði að til óeirða kæmi á Kýpur í dag, er fimm vopnaðir lögreglumenn af grísk- um stofni fóru inn í hverfi tyrk- neska þjóðarbrotsins í Nicosia, en voru handteknir og afvopnað ir. Brezkir hermenn skárust í leikinn og stilltu til friðar. • Öll meðlimariki Atlantshafs- bandalagsins (NATO) nema ís- land og Luxemburg fengu í dag fyrirspurnir frá Bretum og Bandaríkjamönnum um hvort þau gætu tekið þátt i „alþjóð- lega lögregluliðinu". sem sent verður til Kýpur, ef allir aðilar að Kýpurdeilunni samþykkja. — Grikkir og Tyrkir hafa samþykkt tillöguna en svar Makaríosar er enn ekki kunnugt eins og áður segir. Johngon Bandaríkjaforseti hefiur, sem kunnugt er, fallizt á að senda 1 til 2 þús. hermenn til Kýpur. Leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjanna, Mike Mansfield, gagnrýndi í dag þessa ákvörðun Johnsons. Sagði hann, að Bandaríkin ætfcu ekki að taka þátt í „alþjóðlegu lög- regluliði“ á Kýpur. Hann sagði, að sem aðili að Atlantshafs- bandalaginu yrðu Bandaríkja- menn að aðstoða Breta og aðra, sem hlut ættu að máli, við lausn Kýpurdeilunnar því að annars væri hætta á að upplausn yrði í austuraimi bandalagsins. Hins vegar væri ekki rétta leiðin að senda hermenn til Kýpuir, held- ur ættu Bandaríkjamenn að haf a forgöngu um að herlið undir stjóm Sameinuðu þjóðanna yrði sent til eyjarinnar, þvi að slíkt virtist vænlegra til árangurs. ★ Hér á eftir fara í stuttu máli viðbrögð nokkurra^ Atlantshafs- bandalagsríkja við fyrirspurnum Breta og Bandaríkjamanna um væntanlega þátttöku í „alþjóð- lega lögregluliðinu“: • Kaupmannahöfn: Jens Otto Krag, forsætisráðherra Dana, sagði í dag, að áður en tekin yrði ákvörðun um þátttöku í lög regluliðinu yrði haft samband við nokkrar smænri þjóðir inn- an Atlantshafsbandalagsins t.d. Belgíu og Holland. Stjóm Dan- merkur myndi ræða málið á morgun. Forsætisráðherrann sagði of snemmt að fullyrða hvaða ákvörðun yrði tekin. • Bonn: Stjóm Vestur-Þýzka- lands hélt í dag fund um ástand- ið á Kýpur. Að honum loknum var haft eftir áreiðanlegum heimildum að stjómin styddi tillögu Breta og Bandaríkja- manna, en teldi ýmis tormerki á að Vestur-Þjóðverjar gætu tekið þátt í lögregluliðinu. Sagt er, að vamarmálaráðuneyti landsins hafi varað stjórnina við að senda hermenn til Kýpur því að enn gæti eimt eftir af fjandskap við Þjóðverja frá því á stríðsárun- um. Hins vegar kvaðst vestur- þýzka stjómin fús að leggja fram fé til stuðnings lögreglu- liðinu. • Brflssel: Haft var eftir áreið- anlegum heimildum, að Belgar væru reiðubúnir að senda 500 manna herlið til Kýpur, sam- þykktu allir aðilar tillögu Breta og Bandaríkjamanma. ★ Grískumælandi skólaböm á Kýpur fóru í dag kröfugöngu til þess að mótmæla tillögu Breta og Bandaríkjamanna. Staðnæmd ust þau fýrir uban aðalstöðvar bandarísku f riðarsvei tanna á eyjunni og hrópuðu slagorð. — Makiaríos erkibiskup ók framhjá börnunum í bifreið og ávarpaði þau. Sagði hann, að þau spilltu aðeins fyrir málsbað Kýpur með framferði sínu og bað þau að sýna stillingu. Börnin urðu við beiðni forsetans. Jakob Jakobsson Fæddur 20/4 1937 Dáinn 26/1 1964 í morgun lífs ég fór á fætur þó fundist nár ég gæti í kvöld því eins um daga og dimmar nætur æ, dauðans reidd er höndin köld. Þegar ég heyrði þá harma- fregn að vinur minn Jakob Jakobsson væri látinn, setti mig hljóðan. Það er svo erfitt að skynja þann tilgang, þegar ung- ur maður I blóma lífsins er hrif- inn burtu frá okkur á einu and- artaki. En með því er maður enn einu sinni minntur á það hve bilið er skammt á milli lífs og dauða. Þótt Jakob sé horfinn sjónum okkar, þá eru minning- arnar um þennan góða dreng svo ljúfar og sannar, að þær verða sem smyrsl á opið sár. Snemma kom í ljós að Jakob var mörgum góðum hæfileikum búinn. í Barnakór Akureyrar söng hann sem ungur drengur og hver sem heyrði fallegu barnsröddina syngja „Nú hallar degi“ man það. Þar hljómaði rödd hans með innilegri barns- legri innlifun. Jakob var mikill íþróttamað- ur og sú íþrótt sem átti hug hans allan var kattspyrna. Svo sannur var íþróttaandi hans, að hvort sem hann var samherji eða mót- herji í leik, kom ætíð í Ijós hans drengilega og prúðmannlega framkoma ásamt frábærri knatt meðferð, svo að hann uppskar þá sæmd að leika sem liðsmaður í íslenzka landsliðinu. Jakob varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1957, en lagði síðan leið sína til Þýzkalands til náms í tann- lækningum, sem hann stundaði af miklum dugnaði og áhuga og átti aðeins eftir stuttan náms- tíma, þegar hann var svo skyndi lega burtkallaður. Jakob minn, nú þegar ég kveð þig hinztu kveðju og þakka þér allar liðnar samverustundir, sem ég hefi átt með þér í hópi vina og á heimiþ mínu þá bið ég góð- an guð að leiða þig um hönd ljóss og friðar um alla eilífð. Foreldrum þínum og systkin- um sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur í þeirra þungu sorg. Tryggvi Georgsson, IVBinningarsjóð* ur um Jakob Jakobsson KNATTSPYRNUFÉLAG Ak- úreyrar hefur ákveðið að gangast fyrir stofnun minn- ingarsjóðs um Jakob Jakobs- son, er lézt af slysförum í Þýzkalandi 23. jan. s.l. Sjóðn- um verður varið í samráði við ættingja Jakobs heitins til að styrkja efnilega íþrótta menn til náms í íþróttum. — Útför Jakobs heitins verður gerð frá Akureyrarkirkju, þriðjudaginn 4. febr. kl. 13,30. Gjöfum í minningarsjóð Jakobs Jakobssonar verður fyrst um sinn veitt móttaka á skrifstofu Morgunblaðsins. Stuttir deildarfundir í gœr — björgunarlaun varð*k>na — bún- aðarmálasjóður — hver er með betl og barlóm — nýtt trumvarp um búfjárhald í Reykjarík DEILDAFUNDIR voru á Alþingi í gær. 42. fundur efri deildar og 5i fundur neðri deildar. í efri deild voru 3 mál á dag- skrá. Frumvarpi um samkomu- dag reglulegs Alþingis 1964 var visað til 2. umræðu. Forsætisráð herra, Bjami Benediktsson hafði fraimsögu. Málið er komið frá neðri deild. Og frumvarpi til laga um afnám verðlagsskrár var vísað til 3. umræðu, en mál- ið hefur þegar verið afgreitt frá nefnd. t BJÖRGUNARLAUN VARÐSKIPA Jón Árnason (S) mælti fyrir frumvarpi sínu um breytingu á lögum um varðskip landsins Og skipverja á þeim. Frumivarpið er í tveimur greinum, en önnur greinin er um gildistöku laganna og gerir ráð fyrir, að þau öðlist þegar gildi. 1. gr. hljcðar svo: „Þegar varðskip veitir íslenzku fiskiskipi hjálp úr 1-áska, skal greiðsla fyrir hjálpina fara eftir reglum, er dómsmálaráðiherra setur, að fengnum tillögum land helgisgæzlunnar, Skipstjórafé- lagi íslands, Sjómannasambandi íslands, Samábyrgðar íslands á fiskiskipum, Sambands íslenzkra vátryggingarfélaga og Landissam bands íslenzkra útvegsmanna. Við ákvörðun gjaldsins skal mið að við útgerðarkostnað varðskips ins og þann tíma, er hjálpin tók. Teljist háski sá, sem fiskisikipið er í, stórkostlegur, svo sem elds- voði eða strand, má þó krefjast björgunarlauna eftir reglum sigl ingalaganna." Hliðstætt frumvarp var flutt í fyrra, en dagaði þá uppi og er því endurflutt. í ræðu framsögu- manns, svo og í greinargerð, kemur fram, að tilgangur þess er að lækka björg- unarlaun til varðskipa, þegar þau veita íslenzk um fiskiskipum 'hjálp í háska, sem ekki er „stór kostlegur", eins og segir í frum- varpinu. Er talið eðlilegt, að þar eð ríkið gerir sérstaklega út skip til aðstoðar og björgunar, þá skuli björgunarlaun til slílkra Skipa ekki metin eftir ákvæðum siglingalaganna, heldur eftir sér- stökum taxta, sem dómsmála- ráðuneytið setur. Segir í lok greinargerðar, að það sé föst venja erlendis, að skip, sem hafa björgunarstarf að atvinnu, taki tímakaup fyrir þjónustu sína, en ekki bjarglaun skv. ákvæðum siglingalaganna, sem miða í aðal atriðum við verðmæti skips þess, sem aðstoðað er eða bjargað. »«Máli þessu var vísað til 2. um ræðu og sjávarútvegsnefndar. SKIPTING FJÁR BÚNAÐAR- MÁLASJÓÐS í neðri deild voru 4 mál á dagskrá. Frumvörp um hækkun á bótum almannatrygginga, um breytingar á lyfsölulögum og lögum um lækningaleyfi voru til 2. umræðu. Framsögumenn nefnda lögðu til, að frumvörpin yrðu samþykkt óbreytt og var þessum málum vísað til 3. um- ræðu. Jónas Pétursson (S) mælti fyrir frumvarpi sinu um breyt- ingu á lögum um stofnun búnað armálasjóðs. Frumvarpið gerir ráð fyrir, að Búnaðarfélag ís lands skipti helmingi fjár sjóðsins milli búnaðarsam- banda ef tir höfðatölu, en helmingi eftir framleiðslu- magni afurða á sambandissvæðinu. í núgildandi lögum skal öllu skipt eftir fram leiðslumagni. Flutningsmaður taldi núgild- andi skiptingarreglu óeðlilega í félagsmálastarfi og ekki til þess fallna að styðja þá viðleitni ríkis valdsins, að jafna búrekstrarað- stöðu héraðanna. Björn Pálsson (F) kvaddi sér hljóðs af þessu tilefni. Taldi hann flutningsmanni standa nær að tala kjark í kjósendur sína aust- anlands, kenna þeim að heyja meira og stækka bú sín í stað þess að vera með betl og bar- lóm fyrir þeirra hönd, sem Björn taldi felast í frumvarpinu og vera auðmýkj- andi. — Taldi Björn allan slík- an barlóm til þess fallinn að fæla frá land- búnaðinum. Jonas tók aftur til máls. Þakk aði Birni heilræðin. Kvaðst hann Birni sammála um það, að bar- lómur væri ekki líklegur til þess að efla landbúnaðinn. Hann sagð ist aðeins vona, að þeir skildu sneiðar Björns, sem þær eiga. (Ræðumaður átti við flokksbræð ur Björns). Frumvarpinu var vísað til 2. umræðu og landbúnaðarnefndar. NÝ MÁL — Búfjárhald í Reykjavík. í gær var lagt fram frumvarp til laga um búfjárhald í Reykja- vík. Flutningsmenn eru þau Auð ur Auðuns og Alfreð Gíslasom. Frumvarpið er flutt að beiðni borgarráðs. Frumvarp þetta gerir ráð fyrir því, að borgarstjórn sé heimilað með samþykki ráðherra, að setja reglugerð um búfjárhald í Reykjavík. Megi þar banna eða takmarka tiltekið búfjárhald, að leyfi þurfi til búfjárhalds, að heimilt skuli að taka búfé, selja á uppboði eða slátra, ef það er haldið án leyfis, að leyfisgjald skuli greiða, allt að 1.090,00 kr. og brot varði sektum allt að kr. 5.000,00. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir því, að borgarsjóður skuli greiða bætur, ef aðili verður fyrir at- vinnutjóni vegna banns eða tak- markana á búfjárhaldi, þannig að bótum varði. — Togbraut Framh. af bls. 19 Svig kvenna sek. Árdís Þórðardóttir Sigluf. 87.0 Karolína Guðmundsd. Rvík 102.4 Marta B. Guðmundsd. Rvík 102.7 Sigríður Þ. Júlíusd. Sigluf. 114.5 Brautarlengd 300 m, fallhæð 90 m og hlið 30. Svig drengja 11—15 ára sek. Aðalst. Bernharðss. Ólafsf. 42.1 Árni Óðinsson Akureyri 42.5 Ingi Óðinsson Akureyri 45.8 Brautarlengd 150 m, hlið 16. Sveitakeppni í svigi sek. A-sveit Akureyrer 417.1 A-sveit Siglufjarðar 455.8 A-sveit Ólafsfjarðar 464.3 A-sveit Reykjavíkur 590.7 Bæjakeppni í svigi milli Ólafa fjarðar og Akureyrar. Sveit Akureyrar 464.9 Sveit Ólafsfjarðar 470.8 Veður var fremur óhagstætt, hvasis SV og éljagangur. SRA sá um mótið. ' Mvinna óskast Ungur maður, með verzlunar- skólapróf, óskar eftir atvinnu á kvöldin. Tilboð ásamt uppl. um starf leggist inn á afgr. Mbl. fyrir fimmtudagskvöld, merkt: „Heimavinna — 9878“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.