Morgunblaðið - 13.02.1964, Side 2

Morgunblaðið - 13.02.1964, Side 2
2 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 13. febr. 1964 Si Strákarnir á vagninum. f GÆR mátti víða sjá karla og konur spígspora um bæinn með öskupoka dinglandi aft- an í sér. Aðrir vegfarendur áttu það til að kíma, en þreif- uðu um leið laumulega aftur fyrir sig — rétt si svona til þess að athuga, hvort þeii hefðu sjálfir fengið poka. Blaðamaður og ljósmyndari Mbl. brugðu sér í bæinn eftir -hádegið til að smella af nokkr um öskudags-myndum. Reynd — Á hverja hafið þið helzt hengt? spurðum við. — Hina og þessa, svöruðu þær og bættu við — við þekkt um þá ekkert. Á Laufásveginum stóðu nokkrir krakkar í hnapp og athuguðu öskupoka gaum- gæfilega. — Hvað er eiginlega í hon- um? sagði einhver. — Ætli það sé ekki steinn, sagði lítil stúlka og sló pok- anum í stéttina. — Nei, hann hefur brotnað, þá er það ekki steinn. Svo var gáð í pokann. — Hvað vár í honum? spurð um við. — Brjóstsykur, nei — tveir • brjóstsykurmolar. — Engin aska? — Nei, alls engin aska, bara brjóstsykur. — Hvar fenguð þið svona skemmtilegan öskupoka? — Maðurinn þarna í svarta frakkanum hengdi hann aftan í mig, sagði stúlkan. — Ég á þrjá öskupoka, sagði önnur minni hnáta. — Ég á engan, sagði sú þriðja, og bætti við: — En kannski hengir einhver aftan í mig líka. Við komum þar að vestur í bæ, sem stór hópur barna var að leik. Við héldum auðvitað fyrst þð þetta væru öskupoka- krakkár, en í ljós kom, að þau voru í bílaleik með stærð- ar vagn á hjólum. Þau ýttu vagninum upp bratta götuna og settust svo upp á og létu hann renna niður aftur. — Hvar náðuð þið í þennan vagn? — Þeir eiga hann mennirnir, sem eru að vinna þarna í skurð inum, sagði einn drengjanna, — dökkhærður, snaggaralegur strákur á að gizka 10—11 ára. — Leyfðu mennirnir ykkur að hafa vagninn? — Ja — nei, þeir eru marg- búnir að taka hann af okkur. — Verða þeir þá ekki reið- ir, þegar þið takið hann aftur? — Nei-nei, — ja, jú kannski, sögðu þessir litlu prakkarar og stukku burt. í Kirkjustrætinu sáum við hvar lítil stúlka stóð ein sér uppi í tröppum og horfði á umferðina fyrir neðan — og litfagrir öskupokar hengu í kápunni hennar. Hún sagðist heita Björg Gunnsteinsdóttir og vera að bíða eftir mömmu sinni, sem væri að vinna. — Hvar fékkstu svona fal- lega öskupoka? spurðum við Björgu. — Þennan bláa saumaði ég sjálf, þennan gaf stelpa mér og einhver hengdi þennan rauða aftan í mig. — Hefur þú hengt aftan í marga? — Nei, engan — ég finn engan. — Lízt þér kannski ekkert á fólkið á götunni? •— Æ, ég veit það ekki, svar aði Björg litla og smeygði sér feimnislega inn í húsið, þar sem mamma hennar var að vinna. Helga Ingibjörg og Anna Sigríð- ur að verki — Bruní Framhald af 1. síðu. liði skipasmíðastöövarinnar. Sakaði þá ekki. Við eldinn sprakk olíu- geymir, og við þrýstinginn þeyttust fjórir slökkviliðs- menn burt. Komust þeir við illan leik upp úr vélarrúm- inu, föt þeirra gegndrepa af olíu. Varð það þeim til bjarg- ar, að eldurinn náði ekki til þeirra. Mennirnir fengu tauga áfall, en voru að öðru leyti heilir. Eftir sprenginguna var ekki árætt að senda fleiri niður í vélarrúmið, og gaf slökkvi- liðsstjórinn skipun um að rjúfa gat á hlið skipsins. Því verki varð þó ekki lokið, því að áður tókst að ráða niður- lögum eldsins, með því að dæla kvoðu niður í vélarrúm- ið. Víst er talið, að eldurinn hafi kviknað, er neisti frá log- suðutæki féll í olíubleytu. Svo mikill var viðbúnaður slökkvi liðsins í Kaupmannahöfn, að út voru kvaddir 17 slökkviliðs bílar. Er þeir héldu brott, rakst einn þeirra á sporvagn, og skemmdist, en enginn meiddist þó við áreksturinn. Washington, 12. febr. — NTB: — Bandaríkin beindu í dag þeim tilmælum til stjórna Eþíópíu og Sómalílands, að gert yrði algert hlé á bardögum, við landamæra- héruð ríkjanna. — Franskar frétt ir hermdu þó í kvöld, að bardag ar hefðu brotizt út á hýjan leik. Áður hafði verið talið, að vopna hlé hefði verði tryggt. ar þurfti ekki langt að leita efnisins, því að á leiðinni nið- ur stigann gekk einn af blaða- mönnunum á undan okkur með tvær litlar telpur á hæl- unum — og fór ekki á milli mála, hvað þær voru að bralla. Þær söðust heita Helga Ingibjörg og Anna Sigríður og vera 9 og 8 ára. í gærmorg- un höfðu þær farið að heim- an með meira en tíu öskupoka og áttu aðeins tvo eftir. Björg litla Gunnsteinsdóttir horfir á umferðina Engin aska - bara brjóstsykur 150 - 200 Ijósn- penu biotnoi RAFVEITAN hefur kvart- að við lögregluna undan því að stofnunin hafi varla haft við að setja nýjar perur á ljósastaurana á svæðinu milli Vesturgötu, Hringbrautar, Bræðraborgarstígs og Garða- strætis. Einkum hafi borið á þessu síðan um mánaðamót. Er í febrúar búið að setja í 150-200 nýjar perur og hver pera kostar 30 kr. Þarna hafa semsagt verið eyðilögð verð- mæti fyrir 4500—6000 kr. Sennilega hefur það verið leikið að hrista staurana eða lemja þá að utan þar til þræð irnir í perunum hrökkva sund ur. Hafa sumar götur verið alveg ljóslausar af þessum sökum. Biður lögreglan þá sem kynnu að vita um slíka söku- dólga að tilkynna það raf- veitunni eða rannsóknarlög- reglunni. Svo furðulega af- skiþtalausir eru vegfarendur oft að þeir láta sem þeir sjái ekki þessi afbrot, en gera þó kröfur til að hafa göturnar upplýstar. Rafmagnsveitan hefur stund um leitað til skólastjóra barna- og unglingaskólanna með að tala við börnin og oft með góðum árangri. Rafmagnsveita Reykjavíkur hefur nú fengið nýjan bíl, útbúinn sérstakri vökvakörfu, til afnota við viðgerðir götu ljósa og að skipta um perur. Með því að nota þennan bíl geta viðgerðarmenn farið upp í körfunni með áhöld sín, haft hendurnar lausar til viðgerða, því körfunni er stjómað með hnjám og fót- um, og auk þess er nær engin slysahætta af að fara upp í staurana. Þessi viðgerðarbíll, sem er sá eini hér á landi af þeirri gerð, er notaður til viðgerða í Mið og Vesturbæ, frá Klapparstig og út á Seltjarnar nes og er á ferðinni frá kl 7.20 á morgnana og fram á kvöld- Ásakar Framh. af bls. 1. skyldi beina skeytum sínum að svissneskum yfirvöldum, ekki bandarískum, vegna atburðar þessa. Er það mál þessara full- trúa, að Sovétríkin vilji ekki gera neitt til að styggja Vestur- veldin nú, er vel horfir með af- vopnunarmálin. Er kvatt var til síðdegisfundar í gær, þriðjudag, forðaðist Tsdrapkin að minnast á Nossenko. Enginn fundur var í dag. Fréttamenn velta því nú fyrir sér, hverjar upplýsingar Nossen- ko kunni að hafa fært bandarísk um yfirvöldum. Er haft eftir á- reiðanlegum heimildum, að yfir- völd vestra séu ekki enn sann- færð um einlægni Nossenkos. — Enginn veit hvar hann er nú staddur, né hvaða upplýsingar hann hefur látið af hendi. Talið er, að Nossenko sé með- limur öryggisdeildar sovézka ríkisins. Kann hann því aðeins að hafa verið lögreglumaður, þ.e. átt að hafa eftirlit með sovézk um samningamönnum á ráðstefn- unni. Sé svo, er ólíklegt, að hann hafi í fórum sínum upplýsingar, sem svipt geti hulunni af sov- ézkri samningatækni. Yfirlýsing bankaráðs Verzlunarbanka Islands í TILEFNI af skrifum í dag- blaðinu Tíminn hinn 12. þ. m. undir fyrirsögninni „Keypti 1.3 millj. króna veð vegna Vallarmálsins“, þar, sem fram koma mjög rætnar aðdrótt- anir að Verzlunarbanka ís- lands h. f. og stjórn hans v/viðskipta við ísfélag Kefla- víkur h.f. vill bankaráð Verzl- unarbanka íslands h.f. taka fram eftirfarandi: Öll frásögnin í greininni, af viðskiptum bankans við ísfélag Keflavíkur h.f. allar tölur nefndar í sambandi við viðskipti þessi, allt tal um ónýt eða léleg veð, eða við- skipti milli Verzlunarbanka íslands h.f. og Landbanka íslands með veð í eignum ís- félags Keflavíkur, eru hreinn uppspuni frá rótum, og er ekki fótur fyrir neinni af stað- hæfingum þeim og fullyrð- ingum, sem fram koma í greininni. Lýsir bankará.ð Verzlunar- banka íslands h.f. furðu sinni yfir þessum ósanninda skrif- um, sem virðast hafa þann tilgang einan að sverta Verzl- unarbanka íslands h.f. og stjórn hans í auguni við- skiptamanna bankans og al- mennings. Bankaráð Verzlunarbanka íslands h.f.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.