Morgunblaðið - 13.02.1964, Page 23

Morgunblaðið - 13.02.1964, Page 23
Fimmtudagur 13. febr. 1964 MORGU N BLAÐIÐ 23 BLAÐRUKDAFÓLK \ ÓSKAST i þessi blaðahverfi vantar Morgunblaðið nii þegrar unj-Imga, roska krakka eða eldra fólk, til þess að bera blaðið til kaupenda þess. frá Bíldudal fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. þ.m. H. 10,30 f.h. — Jarðsett verður frá Bíldudalskirkju í næstu viku. — Fyrir hönd vandamanna. Margrét Magnúsdóttir, Ásthildur Magnúsdóttir, Marinó Magnússon. Árbokin „ísland“ KOMIN er út á vegum Germ- aníu í samvinnu við íslands- vinafélögin í Ilamborg og Köln árbókin „ísland“ (Deutsch-Is- lándisches Jahrbuch), og verður bókin send lit til félagsmanna Germaníu næstu daga. Bókin er 128 siður og fiytur margvís- legan fróðleik. Fyrst eru kveðjur frá borgar- stjórum Reykjavíkur, Bremen, Hamborgar, Köinar og Liibeck, en síðan greinar um margvísleg efni. Gylfi Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra, ritar um stjórn- málaflokka á íslandi, Helgi P. Brim, fyrrum ambassador, um ferðir íslenzkra víkinga til Vín- lands, Davíð Ólafsson, fiskimála- stjóri, um fiskveiðar íslendinga, og Hákon Bjarnason, skógræktar stjóri, um skógrækt á íslandi. Fleiri markverðar greinár eru í árbókinni, sem er hin athyglis- verðasta — fyrir þá sem lesa þýzku. — Sálfræðingur Framh. af bls. 24 bandaríska krabbameinsfélags- íns árið 1954. Snnleikurinn ekki ætíð Sagna beztur. ' Dr. Bard hefur náið samstarf við lækna í starfi sínu, sem er' aðallega falið í sálfraéðilegri að- stoð við sjúklinga. Segir hann að á undanförnum árum hafi náðst talsverður árangur varðandi lækningar á sviði sálfræðinnar. Er það verkefni sálfræðinga að búa sjúklinga undir meiri hátt- ar læknisaðgerðir og aðstoða þá við að ná bata á eftir, eða jafn- vel sætta sig við önnur og verri örlög, sem þeirra kunna að bíða. Bæði hjá Sloan Kettering stofnuninni og við Metropolitan sjúkrahúsið hefur dr. Bard haft mikil afskipti af krabbameins- sjúklingum. Segir hann að nokkr ir áhrifamenn í Bandaríkjunum séu fylgjandi því að sjúklingum sé jafnan sagt hvað að þeim geng ur, og hverjar horfur séu á því að þeir nái fullum bata. En al- mennt er það svo, segir dr. Bard, að læknar í Bandaríkjunum fara varlega í þessi mál. Nefndi hann nokkur dæmi þess að sannleikur inn gat haft misjöfn áhrif á sjúkl inga, bæði lamandi og bætandi. — Að mínu áliti, sagði dr. Bard, fer það algjörlega eftir hverjum einstaklingi fyrir sig, hvað hann má vita um sjúkdóm sinn. Allir óttast til dæmis krabbamein. En af þeim sjúk- dómi eru rúmlega 300 afbrigði, sum banvæn, önnur alls ekki. En að segja sjúklingi að hann sé með krabbamein getur haft al varlegar afleiðingar, þótt sjúk- dómurinn sjálfur sé læknanleg- ur. Telur dr. Bard að lækni beri að segja sjúklingi sínum það eitt, er leitt geti til skjótari bata. í fylgd með dr. Bard er kona hans, frú Arlene Bard, og tvær dætur, Erica og Pamela. Frú Arlene er heiðursfélagi í Ameri- can Scandinavian Foundation, og kennari að atvinnu. Kennir hún við barna- og unglingaskóla í New York, þar sem yfir 90% nemenda eru innflytjendur frá Puerto Rico og hafa í fyrstu yfir lítilli eða engri enskukunnáttu að ráða. Er það verkefni frú Bard að kenna þessum börnum, sem eru á aldrinum 6—12 ára, að meta bókmenntir og fagrar listir. I starfi sínu hefur frú Bard feng ið mikinn áhuga á orðblindu, sem háir mörgum lestrarnámið, og gerir sumum jafnvel ókleift að læra að lesa. Segir frúin að mikill fjöldi nemenda hennar þurfi á læknisaðstoð að halda við lestrarnámið vegna orðblindu. en engu að síður sé allt að fjórðungur nemenda lítt læs við brottför. Rannsóknir á orðblindu eru víðast skammt á veg komnar, en Danir og Svíar eru framarlega í þessum málum. Hyggst frúin kynna ér nýjustu rannsóknir þeirra í ferð fjölskyldunnar um Norðurlönd. Tvö innhrot í FYRRINÓTT voru framin tvö innbrot í Reykjavík. Brotizt var inn í verzlunina Austurver við Háaleitisibraut. Braut þjófurinn hurð og olli þannig talsverðum s'kemmdum. Stolið var um 3.000 kr. í reiðufé og 20-30 lengjum af sígarettum Er hér um allt að 10.000 kr. verðmæti að ræða. — Þá var brotist inn um glugga mötuneytis Bæjarútgerðarinnar við Grandaveg, og þaðan sbolið um 300 kr. Nicosia, 12. febr. — NTB: — Enn kom til bardaga í dag á Kýpur. Áttust þar við Grikkir og Tyrkir, sem búa í bænum Limma sol. Óstaðfestar fréttir herma, að 2 Tyrkir hafi týnt lífi, og 3 særzt. — Varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, George Ball, ræddi í dag við Makarios, erki- biskup og forseta Kýpur. Ræðo hagsmunamól ræktunor- sambandanna í GÆR hófst í Hótel Sögu fundur formanna og fram- kvæmdastjóra ræktunarsam- bandanna í landinu. Stjórn Búnaðarfélags íslands og véla nefnd boðuðu til þcssa fund- ar, til að ræða alls konar og vélusjóðs vandamál og hagsmunamál ræktunarsambandanna og vélasjóðs. Fundinn sitja 50 manns, þar af rúmlega 40 fulltrúar rækt unarsambandanna víðs vegar um landið. í gærkvöldi störf uðu nefndir og í dag eiga að fara fram framhaldsumræð- ur. Myndin hér fyrir ofan var tekin á fundinum í gær. Ket iU Guðjónsson úr Eyjafirði er í ræðustól. Vð hlið hans sitja talið frá vinstri: fundarstjór inn Steinþór Gestsson á Hæli, formaður vélanefndar og fundarritararnir Eggert Ól- afsson á Þorvaldseyri og Egill Bjarnason frá Sauðárkróki. Nokkrir listamenn og umboðsmenn málara sækja verk sin, er verið hafa í Vestur Þýzkalandi und- anfarna mánuði. Talið frá vinstri: Pétur Friðrik S igu(;ðsson, Bragi Ásgeirsson, Sveinn Þórarinsson, frú Bjarnveig Bjarnadóttir, Jón Engilberts, Ásgei r Bjarnþórsson, frú Elisabet Blöndal. Barónsstígur, lægri töluij Lindargata Gjörið svo vel að tala við afgreiðslu blaðsin eða skrifstofu. 17 íslenzk málverk seld til Þyzkalands FRÁ því í júní 1962 þar til nú I fyrir skömmu hafa 77 málverk eftir 16 íslenzka listamenn verið sýnd í 10 borgum Vestur-Þýzka- lands á vegum félagsins German íu. Á sýningum. þessum seldust 17 myndir af 49, sem til sölu voru. Listaverkin eru nú komin heim og voru afhent listamönn- unum í gær. Aðsókn að sýningumim var allsstaðar góð, og blaðadómar yfirleitt vinsaimlegir. Gefin var út sérstök sýningarskrá. og rit- aðj Birgir Kjaran formála uim listir á íslandi. Einnig eru þar notokrar myndir af íslenzikum mál'vertouTO, og stubborð ævi- ágrip listamannanna. Það var árið 1961 að stjórn Germaníu ákvað að freista þess að koma saman málverkasýn- ingu tiil að senda til Þýzikalands. Snéri stjórnin sér því til fors- varsroanna samtaka listamanna, sem höfðu svo samtoand við fé- laga sína. Viðbrögð listamann- anna voru mjög góð, og var sýn- ingin send utan hinn 19. maí 1962. Voru þar myndir eftir- talda listamenn: Ásgeir Bjarnþórsson, Ásgrím Jónsson^ Barböru Árnason, Braga Ásgeirsson, Eggert Guð- mundsson, Finn Jónsson, Guð- mund Einarsson, Gunnlaug Blöndal, Hafstein Austmann, Jón Engilberts, Pétur Friðrik Sig- urðsson, Ragnar Pál Einarsson, Rítoharð Jónsson, Sigurð Sig- urðsson, Svein Þórarinsson og Veturliða Gunnarsson. Sýningin var opnuð í Kiel í júní ’62 í sambandi við hina þetoktu Kielarviku, og þangað kom sendiherra íslands í Bonn, ’hr. Pétur Eggertz, til að opna sýninguna. Seinna voru svo sýningar í Meldorf, Hamborg, Harborg, Liibeok, Köln, Giessen, Gosslar, Berlín og Bielefeld. — Mayerling Framihald af bls. 13. er alls engin sönnun fyrir henni. Mögulegt er, að um sjálfsmorð hafi verið að ræða, en líklegra er þó, að það hafi verið morð. Við dauða Rúdolfs var úti um þá von, að einveldið risi aftur úr láginni. I meira en aldarfjórðung eftir þetta, réði gamli póstmeist- arakeisarinn, Franz Jósef, enn ríkjum án þess að hafa minnstu hugmynd um, hvað í húfi var. Honum virtist sama um allt ann- að en hirðsiðina, en þeir voru hans hjartans mál. Einu sinni á ári, 30. janúar, fór hann til grafar sonar síns, tuldraði stutta bæn og flýtti sér síðan burtu. Enginn mátti nokkru sinni nefna Rúdolf á nafn við hirðina. 84 ára að aldri sagði Franz Jósep Serbíu stríð á hendur í einhverju fljótræði, vegna þess að Franz Ferdinand, ríkisarfiinn, hafði verið myrtur af serbnesk- um þjóðernissinna. Þetta stríð kom af stað skriðu ófriðar og varð mikil ógæfa fyrir mann- kynið. Ekkki er víst að svona hefði farið, hefði Rúdolf verið á lífi. Kveðjuathöfn um föður okkar MAGNÚS GÍSLASON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.