Morgunblaðið - 14.02.1964, Blaðsíða 1
24 slðuc
51. árgangur
37. tbl. — Föstudagur 14. febrúar 1964
Prentsmiðja MorgunblaSsins
Haröir bardagar á Kýpur
Tyrkneskur þingmaður
skorar á stjórn sína að
skerast í leikinn
Heimssýningin í New York verður opnuð í apríl nk., og er nú
verið að ljúka við frágang sýningarsvæðisins. Var mynd þessi
tekin af sýningarsvæðinu á þriðjudag. Á miðri mynd er tákn
sýningarinnar, hnattlíkan, eða Unisp * .-e. Um 85% sýningar-
hallanna eru nú undir þaki, og eru ýmsir þeirra, sem standa að
stærri sýningunum, þegar farnir að koma fyrir vörum sinum.
Nicosia, Kýpur, 13. febr.
— AP-NTB —
HARÐIR bardagar hafa verið
háðir á Kýpur í dag, aðallega
í borginni Limassol, og ber
fregnum ekki saman um
mannfall. Vitað er að 10 tyrk-
neskir Kýpurbúar hafa fallið
og 8 særzt, en óttast að marg-
falt fleiri hafi látizt í átökun-
um. Talsmenn brezka gæzlu-
liðsins á Kýpur telja ástandið
í Limassol enn mjög alvarlegt
og að tyrkneskir íbúar borg-
arinnar, sem eru í miklum
minnihluta, séu í talsverðri
hættu staddir.
í morgun tókst yfirmanni
brezka gæzluliðsins, Peter Young,
hershöfðingja, að fá deiluaðila í
Limassol til að fallast á vopna-
hlé. Voru Tyrkir þá svo aðþrengd
ir að þeir töldu sér ekki fært að
verjast nema tvo tíma til viðbót-
ar, án utanaðkomandi aðstoðar.
Um hádegið var gefin út til-
kynning þar sem sagt var að svo
virtist sem vopnahléið væri hald
ið, en skömmu seinna var sagt
að bardagar hefðu brotizt út að
nýju.
Er þetta annar dagurinn í röð,
sem barizt er í Limassol. I gær
tókst að stilla til friðar eftir að
Georgiadis, innanríkisráðherra,
hafði rætt við leiðtoga deiluað-
ila. Um sex þúsund brezkir borg-
arar eru búsettir í Limassol, 'og
er hafinn brottflutningur á kon-
um og börnum. Voru 300 konur
og börn flutt burt í kvöld, en
ekki var unnt að hefja brottflutn
inginn meðan á skothríðinni stóð
fyrr um daginn.
Meðan á bardögunum stóð í
Limassol, ræddi Ismet Inönu, for
sætisráðherra Tyrklands, við
yfirmenn hers og flota, og einn
þingmanna stjórnarandsöðunnar
krafðist þess í þinginu að ríkis
stjórnin tæki nú þegar ákvarðan
ir varðamdi Kýpurvandamálið, á
kvarðanir, sem væru sæmandi
stoltri sögu þjóðarinnar. Sagði
þingmaðurinn að tyrkneska þjóð
in væri að missa þolinmæðina.
Það væri tími til kominn að fara
bræðrunum á Kýpur til aðstoð
ar.
George Ball, aðstoðar utanrík
isráðherra Bandaríkjanna, er
kominn til Kýpur, og ræddi hann
í dag við Makarios forseta. Að
fundi þeirra loknum neitaði Ball
að ræða við fréttamenn eða skýra
frá gangi mála. Hinsvegar sagði
útvarpið í Nicosía að Makarios
hafi afhent Ball svar Kýpur-
stjórnar við tillögum Breta og
Bandaríkjamanna um eftirlitsher
frá Atlantshafsbandalaginu á
Kýpur. Ætlunin var að Ball
héldi frá Kýpur í dag, en hann
hefur ákveðið að vera þar áfram.
Fulltrúi brezku stjórnarinnar,
Cyril Pickard, er einnig staddur
á Kýpur,- og hefur hann einnig
átt viðræður við Makarios.
Sjónarvottar að bardögunum í
Limassol sögðu í kvöld að hundr
uð manna hafi tekið þátt í þeim.
Flestir voru ó-einkennisklæddir,
en vel vopnum búnir. Báru marg
ir hríðskotabyssur, og skotið var
af vélbyssum að tyrkneska
"ramh. á bls. 2.
t'.
Lyndon B. Johnson og sir Alec Ðouglas-Home:
Draga verður úr spennunni
og tryggja frið og öryggi
Samningur um tilraunabann
var spor í áttina - halda ber
áfram á þeirri leið
Washington, 13. febrúar.
— AP-NTB —
LOKIÐ
tveggja
er í Washington
daga viðræðum
þeirrá Johnsons forseta ög Sir
Alec Douglas-Home, forsætis-
ráðherra Bretlands. — Utan-
ríkisráðherrar landanna, þeir
Dean Rusk og Richard A.
Butler, tóku þátt í viðræðun-
um. Að fundum loknum gáfu
leiðtogarnir í dag út sameig-
inlega yfirlýsingu þar sem
þeir heita því að leita leiða til
að draga úr spennunni og
berjast fyrir því að tryggja
frið og öryggi í heiminum.
í yfirlýsingunni segir að Bret-
ar styðji stefnu Bandaríkjanna í
Suður-Vietnam, en Bandaríkja-
menn heita hinsvegar stuðningi
við stefnu Breta varðandi Mala-
ysíu, þ.e. að tryggja þar frið og
sjálfstæði rikjasambandsins. —
Leiðtogarnir benda á að samn-
ingurinn, sem gerður var á síð-
asta ái'i um takmarkað bann við
tilraunum með kjarnorkuspreng-
ingar hafi verið spor í áttina til
friðsamlegrar lausnar þeirra
vandamála, sem aðskilja austur
og vestur. Halda beri áfram á
þeirri braut og leita nýrra leiða
til að draga úr spennunni.
Johnson og Sir Alec láta í ljós
þá von að Sovétríkin kynni sér
„gaumgæfilega og af fullri
alvöru“ efni tillagna þeirra, sem
fulltrúar Breta og Bandaríkj-
anna hafa lagt fram á 17 ríkja
Framhald á bls. 2.
Málverk eftir apa
valda málaferlum
Stokkihóúmi, 13. feb. (NTB)
NÝTT listahneyksli er í upp-
siglingu í Svíþjóð. Hafa Iands
samtök sænskra málara
(K. R. O.) kært eiganda sýn-
ingarskála í Gautaborg fyrir
að draga listunnendur á tálar
og falsað höfundanöfn á mál-
verk.
Það er Galerie Ghristinae
í Gautaborg, sem varð fyrir
málsókn málaranna. Þar er
málverkasýning um þessar
mundir, meðal annars á verk-
um eftjr „listmálarann Pierre
Brassau“. Segir í .sýningar-
skrá um þennan Brassau, að
hann hafi stundað nám í
Frakiklandi óg á Spáni, og
eigi myndir á málverkasýning
um víða um heim. En svo
skýrði eitt Gautaborgarblað-
anna nýlega frá því að Brass-
au væri enginn annar en Pet-
Lokið er tveggja daga viðræðum þeirra Johnsons forseta og sir /
herra. Mynd þessi vax tekin við komu sir Alecs til Hvíta hússins á
♦ c Douglas-Home forsætisráð-
miðvikudag.
er, þrig.gja ára simpans-api í
dýragarðin-um í Borás. Þá
hafði eitt af málverikum ap-
ans þegar verið seilt fyrir
400 krónur sænskar (kr.
3.320, — ). Hin málverkin.
runnu svo út eins og heitar
lummur fyrir hækkað verð.
Listamannasamtökin halda
því nú fram að ekki sé allt
með felldu varðandi mynd-
irnar. Se-gja listamennirnir
að apinn hafi fengið aðstoð
við að fullgera myndirnar.
Lögfræðingur samtakanna
hefur stefnt eiganda Galerie
Ohristinae, og krefst þess að
fá úr því skorið með dómi
hvort hér sé ekki um lögbrot
að ræða. Listunnendur eigi að
geta snúið sér til sýningar-
skála fullvissir u-m að ekki sé
verið að draga þá á táilar.
Tíu ára
mamma
Chicago, 13, feb- (NTB)
Tíu ára gömul negratelpa
Chicago eignaðist í dag fimr
punda dóttur. Varð að tak
barnið með keisaraskurði.
Mjög er sjaldgæft að svo ung
ar stúlkur eignist böm, en þ
eignaðist jafnaldra hennar
Mexíkóborg dóttxir fyrir tveim
ur dögum.
Fyrir fæðinguna sagði lækni
einn við fæðingarheimilið
Chicago að teipan virtist þjá«
af taugaáfalli og gerði sér ekl
ljósa grein fyrir því hvað væa
að koma fyrir hana. Bezt væx
að hún fengi alarei að sjá dótl
Framn. a bls. 2