Morgunblaðið - 14.02.1964, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.02.1964, Blaðsíða 22
22 MQRGUNBLAÐÍÐ T’östudagur 14. febr. 1964 Verða um aðra helgi í íþróttahúsinu á Keflavíkurvelli ÍSLAND og Bandaríkin heyja tvo landsleiki í handknattleik * íþróttaliúsinu á Keflavíkurflugvelli, laugardaginn 22. febr. og sunnudaginn 23. febrúar. Samningar um leikina tókust í gærmorgun, en bandaríska liðið kemur hér við á leið sinni til Tékkóslóvakíu, þar sem það er ásamt íslandi meðal 16 liða, sem heyja lokabaráttu um heimsmeistaratitil í hand- knattleik. Það er mikið gleðiefni að áf þessum leikum gat orðið. Liston hræddur Sonny Listan heimsmeistari, sem æfir í Miami Beach fyrir leik ,sinn við Cassius Clay sem fram' fer 25. feb. n.k- virðist vera ■ „töluvert taugaóstyrkur“ eftir, því sem læknir segir er skoðáð hefur hann. Dri.Alexander Robbins sem er læknir hnefaleikaráðsins i Miami Beach hefur rannsakað báða keppendurna. Hann segir Clay’hafa ágætt þrek og hann sé djarfhuga. Hjá Liston fann læknirinn merki um taugaóstyrk leik, fen hann bætti við að aldrei hefði hann séð jafn þrekmikinn mann. íslenzka liðið þarfnast sem beztrar æfingar fyrir átökin í Tékkóslóvakíu og væntan- lega verður hér um skemmti Iega keppni að ræða. Enginn veit hvað Bandaríkjamenn raunverulega geta í þessari grein, utan það að þeir unnu Kanadamenn í undankeppni um það hvort landanna skyldi komast í 16 landa keppnina í Tékkóslóvakíu. Sá sigur var mjög naumur. Bandaríkja- menn unnu fyrri leik land- anna í Kanada með 17 gegn 15. En þann síðari unnu Kan adamenn í New York með 17 gegn 16. Samanlögð marka- tala er því 33:32 fyrir Banda- ríkjamenn og á þessu eina marki sigla þeir til Tékkó- slóvakíu. Sterkir einstaklingar. í bandaríska liðinu eru nokkr ir sterkir einstaklingar. Mark- vörður liðsins er sá sami og varði Framh. á bls. 23 Landsliðsvörnin er vel á verði en Kristján deynir að finna smugu Framfarirnar augljésar — og blaðaliðið gersigrað ÍSLENZKA landsliðið í hand- knattleik hafði sína síðustu alvar legu æfingu fyrir landsleikina við Bandaríkjamenn í íþróttahús inu á Keflavíkurflugvelli á mið- "■ ------ , ^í/ímc, " ':jiW-----& ' é Hjalti ver laglegt skot — Mynd: Sv. Þorm. Real Madrid liðið fór allt í vörn England vann Grikkland 2-1 REAL MADRID, sem unnið hef- ur Evrópubikarinn í knattspyrnu 5 sinnum, er enn einu sinni komið í undanúrslit í þessari mikilsmetnu knattspyrnukeppni milli þjóða. Liðið tapaði í gær- kvöldi fyrir Milan í Mílanó 2 gegn 0, en þrátt fyrir þetta tap bera Real Madridmenn sigurorð af ítölsku meisturunum því í fyrri leik landanna á heimavelli Real Madrid unnu Real-menn með 4 gegn 1. Þeir komast því í undanúrslit m.;ð 4-3 markatölu ! samanlagt. Lodetti skoraði fyrir Milan á 6. min. og á fyrstu mín. síðari hálfleik skoraði Altafini annað mark Milan. í liði Real Madrid voru meðal annars di Stefano og I Gento en þeir eru þeir einu í lið inu sem voru með er liðið vann Evrópubikarinn í fyrsta sinn 1956. Þeir hafa möguleika á að komast í úrslit í 7. sinn. Milan sóttj mjög fast undir leikslok á Siro leikvanginum í Mílanó, en því tókst ekki að skora. Á stundum voru állir leikmenn Real Madrid inni á vítateig sínum, en þessi þétta vörn brást ekki. í Lundúnum fór fram 12. feb. leikur milli Englendinga og Grikkja i undanxeppm Oiympm- leikanna í Tokíó. Englendingar mættu, sem menn muna Isiend- ingum í 1. umferð og unnu samaniagt 10-0 i tveim leikjum. Grikkir voru næstu mótnerjar þeirra og það liðið er vmnur tvo leiki samanlagt ier í ursiita keppnina i Tokíó. Englendingar unnu í gær með 2 morkum gegn 1. í hálfíeiik stóð 2-0. Siðai'i leikurinn fer fram i Grikxiandi 11. marz. vikudagskvöldið. Mætti liðið þa liði er íþróttafréttamenn völdu. Landsliðið hafði algert vald á leiknum og vann með 35 mörkum gegn 19. í hálfleik var staðan 15-9. *• GREINILEG FRAMFÖR Það gleðilegasta við þessa æfingu var, að í ljós kom að landsliðið hefur tekið áber- andi framförum nú síðustu vikurnar. Gætir þess jafnt í sókn sem í vörn. Liðsmenn hafa náð góðum tökum á samleik sín á milli og skilja vel hver annan. Hraði í leik er með ágætum hjá liðinu, leiftursóknir hvenær sem færi gefst og fékk liðið mörg mörk á þann hátt. I vörn vinnur lið- ið einnig vel saman og varnar- veggurinn virðist þéttur vel. ★ ÁGALLAR En lengi getur gott batnað. í fyrri hálfleiknum átti landsliðið 39 upphlaup og skoraði 15 mörk. Það er ekki nægilega gott hlut- fall — mörkin of fá miðað við tilraunirnar og það sem það get- ur kostað að missa knöttinn. í síðari hálfleiknum var þetta betra. Þá átti liðið 33 upphlaup og skoraði 20 mörk. Einnig þarf liðið að athuga vel að „blaðalið- ið“ skoraði 19 mörk í klukku- stundarleik. Það sýnir að vörnin er enn ekki nógu þétt, þó batnað hafi. M0LAR Knattspyrnuliðið Lazio í Róm sem er í 9. sæti í 1. deildinni ítölsku, sigraði í gær danska lið- ið Frem með 2-1 í „vinaleik" í Róm. Lazio-menn skoruðu öll mörkin, tvö bjá rönum og eitt sjálfsmark. Frímann Gunnlaugsson, for- maður landsliðsnefndar, var mjög ánægður með æfinguna og sagði m.a., að þetta væri mesta mót- spyrnan sem landsliðið hefði fengið í æfingaleikum sínum. Karl Benediktsson, þjálfari landsliðsins, var einnig ánægður. Sagði það greinilegt að liðið væri í framför og kvað piltana vel undirbúna undir ferðina. * GOTT ÞREK Til gamans má geta þess að liðsmenn voru þrekmældir nú nýlega hjá Benedikt Jak- obssyni. Kom í ljós að meðal- þrek Iiðsmanna var yfir 60 stig, en í þessari íþróttagreia er talið gott þrek að ná 55 stig um. Margir hafa langt þar yf- ir og meðaltalið er sem sagt betra en „gott þrek“. Frægur dómari DÓMARINN í landsleikjum Islendinga og Bandaríkj a- manna um aðra helgi verður Daninn Knud Knudsen. Hann er kunnasti handknattleiks- dómari sem Danir hafa átt og verið trúað fyrir stórum verkefnum. M.a. dæmdi hann úrslitaleikinn í síðustu heims- meistarakeppni er Rúmenar unnu Tékka í framlengdum leik með 9 gegn 8. HSÍ notar tækifærið við komu þessa kunna dómara að efna til dómaranámskeiðs, sem stendur frá fimmtudegi til sunnudags 23. febrúar. Dómaranefnd HSI undir Íforystu Hannesar Þ. Sigurðs- sonar sér um námskeiðið. MMWHMinMHMHM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.