Morgunblaðið - 14.02.1964, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐID
r ~
Fðstudagur 14. febr. 1964
Sír Alec Douglas Hoiue
varar við styrjöld
Washington, 13. febrúar
(AP—NTB)
SIR Alec Douglas-Home,
forsætisráðherra, átti í kvöld
fund með fréttamönnum í
Washington, að loknum
tveggja daga viðræðum við
Johnson forseta. Ræddi for-
sætisráðherrann m.a. um á-
greining Bandaríkjamanna
og Breta varðandi verzlun
við kommúnistaríkin, og einn
ig um ástandið á Kýpur.
Douglas-Home viðurkenndi á
fundinum að ágreiningur ríkti
miUi þjóðanna um verzlun við
Sovétríkiin, Kína og Kúbu. En
„við Bretar verðum að reka
verzlun ... við trúum ekki á
viðskiptabönn."
Um ástandið á Kýpur sagði
sir Alec að ef þar brytist út
borgarastyrjöld, gseti svo farið
að Tyrkir og Grikkir yrðu aðilar
að átökunum, og vaeri þá erfitt
að hindra frekari útbreiðslu styrj
aldarinnar. Sagði ráðherrann að
Bretar vseru reiðubúnir til að
senda aukið herlið til eyjunnar,
ef Kýpurstjómin óskaði þess, og
til að koma í veg fyrir styrjöld
milli tveggja aðildarríkja NATO,
Grikklands og Tyrklands. Allt
yrði að gera, sem unnt væri, nú
á næstu dögum til að koma á
fót alþjóða eftirlitsher á Kýpur,
sem komið gæti á friði á eyj-
unni og haldið þar reglu meðan
verið væri að finna varanlega
lausn á deilum þjóðbrotanna
þar.
9 matadorar á hendi
Á miðvikudagskvöldið fékk
Einar Magnússon, mennta-
skólakennari 9 matadora á
höndina í lomberspili. Einar
hefur spilað við félaga sína
einu sinni í viku í 29-30 ár
og aldrei hefur neinn þeirra
fengið þessi 9 hæstu spil á
eina hönd. Þeir sem spiia við
hann eru Karl Jónasson lækn
ir, Valdemar Sveinbjömsson,
leikfimiskennari, Jón Brynj-
ólfsson, endurskoðandi og
Fétur Jónasson hjá Kíkisskip.
— Einstöku fínir menn
spila ennþá lomber, en þeir
eru orðnir fáir, sagði Einar
er við hringdum til hans.
Þetta er yfirstéttarspil, gömlu
fyrirmennirnir spiluðu lom-
ber og drukku púns, en al-
þýðan og kvenfólkið spilar
bridge. Lomber er gott spil.
Það er svoiítið erfitt að læra
það, en það er tilbreytingar-
ríkt.
Hvemig við héldum upp á
þessa heppni? Þetta kom svo
á óvart að við höfðum ekkert
kampavín. Við vorum alveg
dolfallnir. En þeir greiddu
mér allir 10 kr., skv. gömlum
lögum síðan 10 kr. voru pen-
ingar.
SérverzEun með mllningu
tekur til starfa I Keflavík
NÝLEGA tók til starfa algjör
sérverzlun með málningu ásamt
skiltagerð að Hafnargötu 58 í
Keflavík.
Málning hefur að vísu áður
verið seld í smávöruverzlunum
og byggingarvöruverzlunum. —
Eigendur þessarar verzlunar,
sem ber nafnið Björn & Einar,
eru tveir ungir málarar, þeir
Björn Helgason og Einar Erlends
son og hyggjast þeir hafa á boð-
stólum allar fáanlegar móln-
ingarvörur og nýjungar á því
i sviði og auk þess að laga og út-
búa -málningu fyrir þá, sem óska
að mála sjálfir og veita hvers-
konar leiðbeiningar á því sviði.
í sambandi við verzlunina,
verður einnig skiltagerð, fyrst
um sinn aðeins unnið með máln-
ingu og lökkum, hvað sem síðar
kann að verða og eru að því
mikil þægindi fyrir Suðurnesin
að þurfa ekki að leita lengra
eftir þeirri þjónustu.
Verzlunin virðist nú vera að
færast meira í form sérverzlana
á hinum ýmsu sviðu-m og er það
til mikilla þæginda fyrir almenn
ing að geta fengið fullkomið
úrval ýmsra vöruflokka á ein-
um stað.
— hsj —
Áætlað virkjanlegt vatnsafl
á fslandi 35 þús. GWs á ári
Beatles
í Miami
þrjótíu
særðir
Miami, Florida, 13. feb. <AP)
MIKLAR óspektir urðu á
flugvellinum í Miami í dag
þegar þangað komu brezku
fjórmenningamir The Beatles
(sjá bls. 3). Um fjögur þús-
und unglingar voru mættir
á flugvellinum til að taka á
móti gestunum, og réði lög-
reglan ekkert við þennan
fjölda. Ruddust unglingarnir
gegnum fylkingar lögreglu-
manna, brutu tvær glerhurð-
ir og margar gluggarúður. Að
minnsta kosti 30 unglingar
skárust á handleggjum og and
litum í óspektunum.
f RITINU Raforkumál er birt
kort og tafla yfir áætlað tækni-
lega virkjanlegt vatnsafl á ís-
landi, gefið upp í Gigawatt-
stundum á ári. Þar kemur fram
að í meðalári er áætlað tækni-
lega virkjanlegt afl á landinu, 35
þús. GWs (hver GWs er 1.000.000
Kws), en fer niður í 31 þús.
GWs í þurru ári. Til saman-
burðar er núverandi vinnslugeta
708 GWs á ári.
E£ virkjanlega vatnsaiflinu er
skipt niður eftir landshlutum þá
er mest vatnsaflið á Suðurlandi
eða 14.200 GWs á vesturhlutann
þar af 10 þús. á vatnasvæði Þjórs
ár og 4200 á vatnasvæði Hvítár.
Og á Suðurlandi eystra eru á-
ætlaðar 3.801 GWs.
Á Norðurlandi er tæknilega
virkjanlegt vatnsafl 5.816 GWs
á ári á Norðurlandi eystra, þ.e.
á JökuLársvæðinu, og 2.630 GWs
á Norðurlandi vestra. Að auki
koma svo 614 GW« á Noirða.ust-
urlandi.
Á Vesturlandi er talið virkjan
legt vatnsafl á ári 1.205 GWs og
á Vestfjörðum 1.107 GWs. Og á
Austurlandi eru taldar 5.627
GWs. á ári. Allar tölurnair eru
miðaðar við meðalár.
Núverandi vinnslugeta er
mest á Suðurlandi vestra eða
500 GWs. A norðurlandi eystra
eru 105 GWs á ári og hinar 395
GWs á ári skiptast á aðra staði
landsins.
— Kýpur
Framhald af 1. síðu.
borgarhVerfinu. Á götunum
mátti sjá brynvarðar jarðýtur og
dráttarvélar, sem beitt var eins
og skriðdrekum.
Seint í kvöld tilkynnti Peter
Yong, hershöfðingi, að deiluað-
ilar hafi enn undirritað vopna-
hléssamning, og friður ríki
nú í Limassol, en brezkir her-
menn væru á verði á götunum.
Sagði hershöfðinginn að full á-
stæða væri til að ætla að taia
fallina væri mun hærri en upp
hefur verið gefið.
Árstíðirnar eru fax-nar að
skipta um hlutverk á fslandi.
Þessi mynd var tekin við
Reykjavíkurhöfn í stafalogni
og níu stiga hita, og hefði það
einhvern tíma þótt gott veð-
ur á Miðþorra. Ungur, reyk-
vískur fiskimaður hefur dreg-
ið fram veiðistöng sína, en
afli er ókunnur. — Flutninga
skipið fyrir miðri mynd er
„Reykjafoss".
(Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.).
Almenningsdlit
og ároður
ÞRIÐJUDAGINN 18. feb. kl.
20.30 hefjast í Valhöll v/Suður-
götu fyrirlestrar um þjóðfélags-
mál á vegum Heimdallar FUS.
Þessi fyrirlestur, sem er hinu
fyi-sti í röð sex fyrirlestra um
þessi efni, sem fluttir verða á
vegum Heimdallar næstu vikur,
mun fjalla um Almenningsálit
og áróður. Er Magnús Óskars-
son, lögfræðingur, fyrirlesari að
þessu sinni.
Er ekki að efa að þessi ný-
breytni í starfi Heimdallar mun
mælast vel fyrir og eru félags-
menn, eldri sem yngri hvattir
til þess að fjölmenna.
—Draga verbur . . ,
Framhald af 1. síðu.
afvopnunarráðstefnunni í Genf,
svo orðið geti úr samningum um
raunhæfa afvopnun með eftirliti.
Ríkisstjórnir beggja landa
munu halda áfram að veita Sam-
einuðu þjóðunum fullan stuðn-
ing, se'gir í yfirlýsingunni, og
veita samtökunum alla aðstoð,
svo þau geti innt af hendi skyld-
ur sínar og uppfyllt óskir alls
mannkyns. En stjórnir beggja
ríkjanna eru þess vitandi að eng-
ar framfarir geta orðið á þessu
sviði án öflugrar einingar Vest-
urveldanna. Þessi lönd verði jafn
an að standa sem eitt, reiðubúin
til að hrinda hverri árás.
í yfirlýsingunni er hvorki
minnzt á ástandið á Kýpur, né
viðskiptabann við Kúbu. Um
Kúbuverzlun ríkja skiptar skoð-
anir, og virðist ekki hafa miðað
í samkomulagsátt um það máL
Hinsvegar er óbeint vikið að
Kýpur þar sem segir í yfirlýsing-
unni að leiðtogarnir tveir hafi
rætt viðburði síðustu mánaða
víða í heiminum, sem margir
hverjir hafi krafizt afskipta
Breta og Bandaríkjamanna. Þótt
ekki sé frekar vikið að Kýpur er
vitað að ástandið á eyjunni var
eitt helzta umræðuefni leiðtog-
anna.
Þetta var fyrsti fundur þeirra
Johnsons og Sir Alecs frá því
báðir tóku við leiðtogaembætt-
um sínum í vetur. Leggja þeir
áherzlu á það í yfirlýsingunni að
nauðsynlegt sé að náið persónu-
legt samband haldist þeirra í
milli.