Morgunblaðið - 25.03.1964, Page 1

Morgunblaðið - 25.03.1964, Page 1
24 siður 51 árjjangur 71. tbL— Miðvikudagur 25. marz 1964 Prentsnúðja Morgunblaðsins Sendiherra Finna, sáttasemjari á Kýpur Hefur hlotið samþykki allra viðkom- andi aðila - Kanadískir hermenn draga fána Sameinuðu þjóðanna að húni á Kýpur. Tilræði við sendiherra Bandaríkjanna í Japan 24. marz (AP-NTB). JAPANSKUK unglingur, Norikazu Shiotani, réðist í dag að Edwin Reischauer, sendiherra Bandaríkjanna í Tókíó. Stakk Shiotani sendiherrann með hníf í lærið, og særði hann 10 sentímetra djúpu sári. Sendi- herrann missti mikið blóð, en er á batavegi. Forsætis- og utan- ríkisráðherrar Japans hafa beðið Bandaríkjastjórn afsökunar á þessu tilræði við sendiherrann. Reischauer hefur verið sendi- herra Bandaríkjanna í Tókió síð- an 1961, en áður var hann pró- fessor við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, og kunnur fyrir bækur sínar og ritgerðir um málefni Austur-Asíu. Kona hans, Haru Matsukata, er af þekktri japanskri ætt og fædd í Tókíó. Nánari tildrög eru þau að Reiscihauer sendiiherra var á leið út úr sendiráði Bandaríkjanna, Og í fylgd með honum var verzl- unarfulltrúi sendiráðsins, Fer- chak að nafni. Ferohak ætlaði að opna útidyrnar fyrir sendiherr- anuim, en Reiohauer varð fyrri til. Segir Ferohak að um leið og sendiiherrann gekk út hafi Shiot- ani undið sér að honum. Reisc- hauer spurði þá hvaða maður þetta væri, og um leið sá Fer- Ohak að Japaninn hélt á hníf í hendinni. Réðst Ferohaik strax á Shiotani, og gat lagt hann til jarðar áður en honum tækist að leggja til sendiherrans ó ný. Kynþáttaóeírðir ■ Bandaríkiunum Jacksonville, Florida,\ 24. marz. (AP). ALLMIKLAR kynþáttaóeirðir hafa verið í Jacksonville í Flor- ida í gær og dag. 36 ára blökku- kona, margra barna móðir, var skotin til bana á götu í gær, og fjórir menn særðust. Um 140 blökkumenn og 80 unglingar voru handteknir. Voru blökku- mennirnir flestir dæmdir til sjö daga varðhalds eða í 25 dollara Bekt fyrir óspektir. Óspektirnar hófust eftir að borgarstjórinn 1 Jaoksonville, Haydon Burns, kom fram í sjón- varpi og útvarpi og bannaði sam- kömur til stuðnings jafnrétti kyn þáttanna á opinberum stöóum. Hafa talsmenn blökkumanna kært þetta bann. Konan, sem drepin var, frú Johnnie Mae Ohappel, var á gangi við vínkró í útjaðri borg- arinnar, þegar bíl var ekið framhjó. Farþegi í bílnum skaut frúna, og var hún lótin þegar komið var með hana í sjúkra- hús. Hvítur maður, sem stóð við vinikrána, særðist á höfði. Annar hvítur maður var tekinn og bund inn við tré, en síðan róðizt að h o n u m með rakvélablöðum. Hlaut hann allmörg sór. Þó særð- ust einnig tveir sjóliðar, annar þeirra hvítur, þegar skotið var ó iþó úr híL Þegar frekari hjólp barst fór Ferchak að kanna sár sendiherr- ans. Blæddi honum mjög, og gekk erfiðlega að stöðva blóð- rennslið. Var Reischauer þó þeg- ar fluttur í sjúkrahús, þar sem Framh. á bls. 23 Nicosia og Genf, 24. marz (AP-NTB) SAKARI S. Tuomioja, fyrr- um forsætisráðherra Finn- lands og núverandi sendi- herra Finna í Stokkhólmi, hefur tekið að sér að bera sáttarorð milli Grikkja og Tyrkja á Kýpur á vegum Sameinuðu þjóðanna. Hafa ríkisstjórnir Brctlands, Grikk lands og Tyrklands samþykkt að hann verði skipaður sátta- semjari, og fulltrúar heggja aðila á Kýpur lýst sig fylgj- andi valinu. Var það U Thant, framkvæmda stjóri SÞ, sem bar fram tillögu um skipan Tuomioja í sáttasemj- araembættið. Samkvæmt ákvörð- un Öryggisráðsins frá 4. marz sl. þurfti samþykki viðkomandi ríkisstjórna óður en sáttasemj- ari var skipaður. Enn er ekki komið formlegt samþykki Kýp- urstjórnar, en bæði Makarios for seti, talsmaður grískra borgara, og Kuchuk varaforseti, talsmað- ur Tyrkja, hafa lýst ánægju yfir valinu og sagt að koma hans til eyjunnar muni draga úr spenn- Andrei Gromyko í Helsingfors ítrekar kröfuna um kjarnorkulaust svæði a Norðurlöndum Helsingfors, 24. marz. (AP-NTB). ANDREI Gromyko, utanríkisráð- herra Sovétríkjanna, er nú í Finnlandi að lokinni heimsókn til Svíþjóðar. Flutti ráðherrann ræðu í Helsingfors í dag þar sem hann hvatti til þess að bönn- uð yrðu kjarnorkuvopn á vissum landsvæðum, m. a. á Norður- löndunum. Einnig aðvaraði ráð- herrann Vestur-Þjóðverja og sagði að ekki gæti verið um neina friðsamlega endurskoðun á landamærum í Evrópu að ræða, sérhver tilraun til breytinga á 17 flóttamenn farast aðeins einn komst af Kingston, Jamaica, 24. marz (NTB) TUTTUGU og níu ára gamall flóttamaður frá Kúbu kom til Grand Cayman-eyjunnar á Karabíska hafinu fyrir fjór- um dögum á litlum. fiskibáti. Ferðin frá Kúbu hafði þá tekið 18 daga og kostað konu flóttam.annsins og 16 föru- nauta þeirra lífið. Flóttamaðurinn liggur nú í sjúkrahúsi. Sagði hann svo frá í dag að lagt hefði verið af stað frá Kúbu í fimm metra löngu'm fiskibáti. Tíu stund- um eftir að ferðin hófst, bil- aði vélin í bátnum, og rak hann um hafið í 18 daga áður en lent var á Grand Cayman- eyju. Þorsti, sultur og steikj- andi hiti þjáði ferðalangana, og létust allir nema þessi eini. Þegar bótinn rak að landi, var lík eiginkonunnar í hon- um. Flóttamaðurinn hafði ekki 'hiaft orku til að ‘varpa því útbyrðis. A næturnar sóu flóttamenn- irnir stundum ljós frá skip-* um, en höfðu engin tseki til að gera vart við sig. landamærum þýddi styrjöld. Gromyko sagði að kjarnorku- laus svæði væru trygging fyrir friði. „Við verðum að kappkosta að tryggja frið 1 heiiminum“, sagði hann, og bætti því við að Sovétríkin mundu berjast fyrir þvi að gera Norðurlöndin að kjarnorkulausu svæði. Þó ræddi hann nokkuð þau orð Enhards, kanzlara Vestur-Þýzkalands, að Vestur-Þjóðverjar krefðust end- urslkoðunar á landamærunum, eins og þau. nú eru. Lagði Gromyko áherzlu á að „það er öllum Mfsnauðsyn að skUja að ekki er unnt að breyta landa- mærunum á friðsamlegan hótt, eins og alltaf er verið að halda fram í Þýzkalandi. Sérhver til- raun til breytingar þýðir styrj- öld.“ Þótt Gromyko væri ákveðinn að því er varðaði landamæri Vestur-Þýzkalands, lagði hann áherzlu á að Sovétríkin ósikuðu eftir bættri samibúð við Þjóð- verja 'þrótt fyrir hönmungarnar á síðustu styrjaldaiórum. NÝR SKIPASKURÐUR Washington, 24. marz (NTB) Viðskiptanefnd Öldunga- deildar Bandaríkjaþings sam- þykkti í dag tillögu um skip- un nýrrar sjö manna nefndar til að athuga möguleika á að grafa nýjan skipaskurð milli Atlantshafs og Kyrrahafs. Á sjö manna nefndin að skila áliti fyrir 31. janúar 1966. unni þar. Tuomioja er sem stend- ur í Genf. U Thant hefur í dag átt við- ræður við Tuomioja, og hefur indverski ljprshöfðinginn Prem Singh Gyani, yfirmaður SÞ-sveit- anna á Kýpur, og Pier Spinelil, sérstakur fuRtrúi U Thants þar, setið fundina. Neituðu þeir allir. að ræða við fréttamenn um ástandið á Kýpur. Búizt er við að U Thant haldi áleiðis til aðalstöðva SÞ í New York á morgun, og ræði þar við. Spyros Kyprianou, utanríkisráð- herra Kýpur, áður en hann til- Framhald á síðu 28 Douglas MacArthur . IMacArthur alvarlega veikur Washington, 24. marz (AP). DOUGLAS MacArthur hers- höfðingi, fyrrverandi yfir- maður bandariska hersins, liggur nú þungt haldinn i sjúkrahúsi í Washington. Hefur hershöfðinginn átt við nokkra vanheilsu að striða að undanförnu. og fyrr í þessum mánuði var hann skorinn upp og tekin úr honum gallblaðr- an. 1 gærkvöldi var gerður á MacArthur annar uppskurður til að auðvelda honum öndun. Talsmaður Walter Reed sjúkra hússins, þar sem MacArthur liggur, sagði í kvöld: „Hann hefur vitneskju um það, sem er í kring um hann. Hann talar, en hann er alvarlega veikur.“ Aðspurður hvort hers höfðinginn væri að berjast við dauðann svaraði talsmaður- inn: „Ég vil ekki segja það. En ástand hans er alvarlegt." Douglas MacArthur varð 84 ára hinn 26. janúar sl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.