Morgunblaðið - 25.03.1964, Page 6

Morgunblaðið - 25.03.1964, Page 6
MORCUNBLAÐIB MiðvikudagUT 25. marz 1904 Njörður P, Njarðvlk: Fáein orð til leik- ara Þjóðleikhússins MER HEFUR borizt til eyrna að leikarar Þjóðleitehússins hafi kosið að misskilja opið bréf mitt til menntamálaráðherra sem árás á sig. Ég verð að játa að mér er lítt skiljanlegt hvernig slíkt sé unnt. Hins vegar er í sjálfu sér ekkert við því að segja þar sem leikurum Þjóðleikhúss- ins er að sjálfsögðu heimilt sem öðrum mönnum að skilja eða misskilja hluti að eigin geðþótta. En það verð ég að segja að mér finnst þessi misskilningur koma úr hörðustu átt frá leikurum Þj óðleikhússins því að ég var satt að segja svo mikið barn að álíta að greinin væri fremur skrifuð fyrir þá en ekki gegn þeim. Auk þess hef ég vetrar- Nýtt skip hleypur af stokkunum í Vestm.eyjum 1 DAG fór í reynsluf&rð Gull- berg Ns 11, en skip þetta er smíðað hér í Eyjum hjá skipa smíðastöðinni Skipaviðgerðir h.f. og er það þriðji báturinn, sem stöðin skilar fullsmíðuðum, en hún hóf starfsemi sína 1958. Báturinn er 162 brúttólestir að stærð og með 625 h.a. Kromhout- aðalvél auk 52 h.a. Ijósavélar. Skipið er úr eik, lestar eru km- réttaðar með aluminium. Það er búið 111 tonna togvindu 2Vz tommu bómuvindu og skipið er búið þreföldu lensikerfi. Lokaðir þilfarsgangar eru og vatnsþéttar burðir. Báturinn er með færan- legu beitukerfi fyrir útilegu. íbúðir eru fyrir 12 menn þar af 8 frammi í. Á þilfarshæð er frysti- og kæliklefL Skipið er búið ratsjá og fullkomnustu sigl- ingar- og fiskleitartækjum. Tal- kerfi er um allt skipið. Egill Þor- finnsson í Keflavík teiknaði skip ið. Yfirsmiður var Ólafur Jóns- son. Eigandi er.hlutafélagið Gull berg á Seyðisfirði og aðaleigend- ur þess eru skipstjórinn Jón Páls- son og Ólafur Ólafsson útgerðar maður. Báturinn fór í reynsluferð í Skemmtanir á Flateyri FLATEYRI, 18. marz — Barna- og unglingaskólinn hélt sína ár- legu skemmtun um sl. helgi. Skemmtun þessi var var mjög fjölþætt að venju. Um 100 börn komu þarna fram í leikþáttum og skrautsýningum og söng. Skemmtanir þessar voru mjög vel sóttar og að þeim hin bezta skemmtun. Núna nýlega heimsóttu okkur leikflokkur úr Dýrafirði, Ung- mennafélag Mýrarhrepps og hafði tvær sýningar hér á gaman leiknum Grænu lyftunni undir ieikstjóm Ingu Þórðardóttur. Voru sýningar þessar vel sóttar og leikurum og leikstjóra vel fagnað í leikslok. — K.G. dag og reyndist ganghraði rúmar 11 sjómílur og var þó ekki full- keyrður. Með bátnum fóru 30— 40 manns og var m.a. siglt í kringum Surtsey, Báturinn verð- ur formlega afhentur á morgun og mun þá hefja veiðar með þorskanót en fer síðan á net. Sigurgeir Jónsson tók meðfylgj andi myndir af bátnum langt skrifað um leiksýningar Þjóðleikhússins, að vísu af veik- um burðum, en þó nægilega til þess að leikurum Þjóðleikhússins ætti að vera fullkunnugt um þann hug sem ég ber til'þeirra og listrænnar getu þeirra. Hins vegar sný ég ekkj aftur með það sem ég sagði í áður- nefndri grein og hef endurtekið síðan að mér finnst það ein- kennilegt að Þjóðleikhúsið stand ist ekiki samkeppni við Leikfélag Reykjavíkur eins og sakir standa nú eftir fjórtán ára ójafnan leik. En það er líka skýrt tekið fram í fyrrgreindri grein að skýringin sé fólgin í lélegri stjórn Þjóð- leikhússins og óeðlilegum stjórn- arháttum. Það er mergur þessa máls og tilgangur minn með skrifum mínum um Þjóðleikhús- ið er sá einn að reyna að stuðla að því að reglugerðin um Þjóð- leikhúsið verði endurskoðuð og upp teknir Skynsamlegri stjórnar hættir sem leiði til meiri og betri listrænna afreka. Eg er þeirrar skoðunar að þegar búið sé að reisa fullkomið leikihús, setja yfir það 'hálaun- aðan leikhússtjóra og fimm mannaráð og ráða fjölmarga ágæta listamenn á betri laun- um en aðrir listamenn landsins Skipshöfnin á Gullberg. búa almennt við þá verði jafn- framt að gera meira og strangari listrænar kröfur til slíkrar stofn- unar en fámenns áhugamanna- hóps sem heldur uppi leikhúsi við aldamótaaðstæður. Og ég trúi því ekki að almenningi | landinu finnist slíkt ósanngjörn krafa. Allt hefur þetta verið gert fyrir fé fólksins í landinu og er því eign þess. Og það er eins með leikJhús og aðrar stofn- anir sem mikið fé er lagt til að það verður að gefa af sér góðan arð þótt sá arður verði ekki og eigi ekki að vera talinn í krón- um og aurum. Með því að fylgjast gaumgæfi- lega með leiksýningum Þjóð- leikihússins nú um nokkurt skeið hef ég sannfærzt um að óheppi- legir stjórnarhættir og leikrita- val þrengja að listamönnum hússins og valda því að ágætir 'hæfileikar njóta sín ekki til fulls. Ég er þeirrar skoðunar að listamennirnir sjálfir eigi að taka miklu virkari þátt í stjórn leiikhússins. Nú eiga þeir aðeins einn fulltrúa í þjóðleikhúsráði en fjórir meðlimir rá.ðsins eru „skipaðir samkvæmt tillögum fjögurra fjölmennustu stjórn- málaflokka á Alþingi.“ Auk þess er hvergi á það ír.innzt að nokkurn tíma eigi að skipta um menn í þessu ráði. Getur nobkur maður mælt slíku fyrirkomu- lagi bót? Ég mundi vilj a leyfa mér að stinga upp á öðru fyrir- komulagi. Mér fyndist eðlilegt að Félag íslenzlkra leikara réði tveimur mönnum ráðsins, einn yrði valin meðal fastráðinna leikstjóra Þjóðleikhússins, einn af samtökum rithöfunda og einn skipaður af menntamálaráð- herra, enda sé hann þá jafnframt trúnaðarmaður hans. Og mér finnst sjálfsagt að meðlimir ráðs- ins séu valdir til 2-3 ára og alls ekki megi endurkjósa þá oftar en tvisvar sinnum. Svipaða sögu er að segja um þá grein reglugerðarinnar sem fjallar um þjóðleikhiisstjóra. Það er ekki einasta að hann hafi verið ráðinn ævilangt sem mun vera einsdæmi á byggðu bóli baldur er hann auk þess nær einvaldur um alla listræna starf- semi hússins: „Þjóðleikhússtjóri ákveður í samráði við bók- menntaráðunaut hvaða leikrit skuli sýnd. Þjóðleikhússtjóri ræður, hver vera skuli leikstjóri Framh. á bls. 10 Ættu að moka yfir Nú, er borinn umdeildi loks- ins kominn til Vestmannaeyja og þeir eru farnir að bora í gríð og erg. Vestmannaeying- ar sætta sig ekki fyllilega við það, sem hingað til hefur verið drukkið á staðnum — og er það ósköp eðlilegt. Fyrsta flokks drykkjabvatn er í senn heilsubætandi og hressandi. En viti menn. Þeir voru ekki komnir lengra en rétt niður fyrir 200 metrana, þegar hitna fór ískyggilega í holunni. Eftir á að hyggja finnst manni það ekkert óeðlilegt þótt heitt sé undir fótum þeirra í Vest- mannaeyjum — og með hlið- sjón af því, sem Surtur að- hefst í næsta nágrenni, þá legg ég til að þeir flýti sér að moka ofan í holuna aftur. Hvað skal gera? Laglega stóðu frönsku bíl- arnir sig í sparnaðarkappakstr- inum austur fyrir íjall. Ef við eigum að uppfylla samningana um benzínkaup af Rússum, þá er ljóst, að banna verður inn- flutning á þessum sparneytnu bílum. Hrós Kona ein hringdi til blaðsins í gær og bað fyrir sérstakar kveðjur og þakkir til vagnstjór anna, sem aka hjá SVR á leið- inni að Þóroddsstöðum og í Fossvog. Sagði hún, að kurt- eisi þeirra, nærgætni og alúð væri slík, að þeir ættu skilið hrós í blöðunum. Skemmtilegt að heyra allt í einu eitthvað jákvætt frá þeim, sem skrifa og hringja í Velvakanda. Smjörið Svo hringdi önnur og kvart- aði yfir smjörinu. Sagðist hún vera fyrrverandi bóndakona og hefði búið til miklu betra smjör í sínum búskap. — Sjálf ur hef ég aldrei verið bónda- kona og búið til smjör — svo að ég hef ekkert til saman- burðar. En sú, sem hringdi, er ekki hin eina, sem finnst smjörið okkar ekki nógu gott. Fegursti hlynur Svo kemur hér örstutt brél frá lesanda blaðsins: Fyrir helgina var sagt frá því í blaði yðar að það ætti að gera bílastæði á lóðinni við Suð urgötu 5 eftir að búið væri að rífa niður húsið og tré, sem stæði á lóðinni yrði höggvið niður. Þetta tré, sem hér um ræðir er einhver sá fegursti hlynur, sem finnst hér í Reykjavík. Ég hef oft gengið fram hjá þessu tré og dáðst að blaðskrúði þess á sumrin. Mjög fáir hlynir eru til í Reykjavík af þessari stærð. Væri ekki hægt að gera kring um þetta tré og láta það standa áfram á bílastæðinu. Vildi ég beina þessu til garðyrkjuráðu- nauts Reykjavíkurborgar. & ÞURRHIÖDOR ERL ENDINGARBEZIAR BRÆÐURNIR ORMSSON hf. Vesturgötu 3. Sími 11467.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.