Morgunblaðið - 23.04.1964, Síða 30
WCR CtS N BLA-OID
Fimmtudagur 23. apríl 1964
KR og Þróttur Eeika fyrsta leikinn
KNATTSPYRNUMÓT Reykja-
víkur hefst í dag kl. 4,30 á Mela
vellinum. Fyrsti leikur mótsins
verður milli K. R. og Þróttar, ís-
landsmeistaranna í 1. og 2.
deild.
í Reykjavíkúrmótinu taka
þátt öll Reykjavíkurfélögin 5,
KR, Valur, Víkingur og Þróttur.
Næstu leikir verða Fram—Vík-
ingur á sunnudag kl. 14.00 og
KR—Valur á mánudag kl. 20.00.
Mótinu lýkur 14. maí með leik
Vals og Þróttar.
Á vegum K.R.R. og K.S.Í. er
komin út skrá yfir alla knatt-
spyrnuleiki í Reykjavikur- og
íslandsmótum sumarsins og fæst
hún í veitingasölunni á Mela-
velli og í bókabúð Lárusar
Blöndals, Vesturveri.
Knattspyrnan
hefst í dag
Fámennt víöavangs-
hlaup ÍR í dag
— Haldið nú i 49. slnn
VÍÐAVANGSHLAUP ÍR fer
fram í dag í 49. sinn. Þetta hlaup
er elzta erfðavenja sem íslenzkar
frjálsíþróttir geta státað af og
ber það vissulega nokkurn vott
um blómlegheit frjálsíþrótta í
dag, að keppendur eru aðeins
þrír í hlaupinu. Hlaupið hefst í
Hljómskálagarðinum kl. 2 síð-
degis og lýkur við Hljómskál-
ann.
í 49. ár óslitið hefur þetta
hlaup farið fram, stundum við
glæsibrag, stundum við minni
reisn. En takmarkið hefur verið
það er stofnendur settu, að
hlaupið færi fram, hverju sem
tautaði.
Hin síðari ár hefur ÍR átt erfitt
um framkvæmd hlaupsins. Kem-
ur til tvennt, fyrst það að ýmis
bæjarfélög í nágrenni Reykjavík
ur hafa tekið upp víðavangshlaup
á eigin spýtur. Er ekki nema
gott eitt við því að segja, nema
það eitt að þeir hafa engan dag
íundið til að framkvæma hlaup
sitt nema Sumardaginn fyrsta,
sama dag og ÍR helgaði sér fyrir
slíkt hlaup fyrst allra félaga fyr-
ir 49 árum. Væri þó sízt ofaukið
þó víðavangshlaupið með al-
mennri þátttöku færu fram oftar
á ári. En nú hafa Hafnfirðingar
sitt hlaup, Selfyssingar sitt
hlaup og hver veit hver — allir
sama daginn. Lítil hugmynda-
auðgi það að fara í sama farveg
og reyndur hefur verið með mis-
jöfnum árangri í 49 ár.
Annar kapituii er svo það að
okkar beztu langhlauparar taka
ekki þátt í hlaupinu og er ekki
að vita nema það sé af félagsríg
runnið — nema annað komi á
daginn.
En hlaupið fer fram í dag að
venju, hefst kl. 2 í Hljómskálan-
um og lýkur við Hljómskálann.
Áhorfendur eru hvattir til að
koma að hylla hlauparanna.
Gunnlaugur Hjalmarsson tekur her vitakast a norska liðið Fredensborg, en skot Gunu-
laugs lenti í markstönginni.
Hvort er sterkara Fram
eia Fredensborg?
tJr því fæst skorið í kvöld
I KVÖLD er nanst síðasti leikur
norska handknattleiksliðsins
Fredensborg sem hér er í heim-
sókn í boði Víkings. Mætir liðið
í kvöld íslands- og Reykjavíkur-
meisturum Fram og mjunu bæði
lið hyggja á sigur og þykja hann
sætur ef fæst.
Fram hefur nú tilkynnt þátt-
töku í Evrópubikarkeppni í hand
knattleik og þarf að leika við
erlent lið í haust. Álit um getu
Fram verður á efa mjög dæmt
eftir þessum síðasta leik við er-
lent lið. Fram mun að sjálfsögðu
leggja allt kapp á að vinna leik-
inn með seom mestum mun og
verða þannig hátt skrifað.
Fredenborg mætti í Evrópu-
bikarkeppninni sl. ár. Svo vildi
til að Fram og Skovbakken (Dan
mörku) voru dregin sa.man í
Afmælismót TBR tjölmennasta
badmintonmót á íslandi til þessa
í TILEFNI af 25 ára afmæli
Tennis -og badmintonfélags
Reykjavíkur, var haldið afmæl-
ismót í badminton '18. og 19.
apríl sl. í íþróttahúsi Vals. 58
keppendur tóku þátt í keppninni
og er þetta fjölmennasta bad-
mintonmót sem haldið hefur ver
ið hér á landi. Keppt var ein-
göngu í tvíliðaleika, í meistara-
flokki I. fl. og nýliðafl.
URSLIT:
í meistarafl. karla sigruðu
Lárus Guðmundsson og Karl
Maaok, þá Magnús Elíasson og
Walter Hjaltested 15 : 6 og 15 : 6.
I meistarafl. kvenna sigrauðu
Halldóra Thoroddsen og Jónína
Nieljóhníusardóttir þæir Rann-
veigu Magnúsdóttur og Huldu
Guðmundsdóttur 15:9 og 15:7.
f I. flokki sigruðu Steinar
Bændarúður
Hver vill æfa róður?
Brynjólfsson og Ingi Ingimund-
arson þá Matthías Guðmundsson
og Þorbjörn Pétursson 15:10 og
15:10.
I nýliðafl. sigruðu Bergur Jóns
son og Kristinn EyjÓlfsson þá
Gunnlaug Lárusson og Páil Jóns-
son 8:15 — 17:15 — 15:9.
(Frá mótanefnd).
fyrstu umferð keppninnar og
vann Skovbakken með 1 marki
eftir framiengdan leik. í næsta
leik mætti Skovbakken Fredens
bong og vann þann leik með 1
marki (án framlengingar). Nú
fæst því úr því skorið hvort lið-
anna sem Skovbakken vann nieð
marksmun er ster.kara, Fram eða
Fredensborg. Það verður án efa
ekkert gamanmál leikurinn að
Hálogalandi í kvöld.
RÓÐRARFÉLAG Reykjavíkur
hefur starfsemj sína með sum-
arkomu og efnis til „bænda-
róðurs“ í dag í Nauthólsvík.
Þetta gerir félagið fyrir hádeg-
ið, svo það er ágæt skemmtun
þeim sem vilja taka sér bíl- eða
gönguferð að morgni og horfa á
knáar sveitir keppa í róðri.
Róðrarfélagið hefur sumarstarf
ið með því að efna til bænda-
róðurs. Veirður skipt í tvö lið
á staðnum kl. 10.30 árdegis og
kappróðrarbátar lagðir á sjó og
keppni hafin. Æfðir og óæfðir
félagar geta tekið þátt — en að
sjálfsögðu er takmarkað rúm í
hverjum kappróðrarbát. Keppt
verður á stuttri vegalengd.
Róðrarfélagið vill sérstaklega
vekja áhuga manna er viija létta
létta og skemmtilega hreyfingu
! dag
til að koma á æfingar og reyna
sig í góðu veðri og við fagurt
umhverfi.
Fyrst um sinn verða æfingar
róðrarfélagsins í Nauthólsvík á
þriðjudögum og fimmtudögum
kl. 8 síðd. í Nauthólsvík.
Félagið á 3 kappróðrabáta,
Hrafnaflóka og Ingólf, sem ætl-
aðir eru til æfinga og svo Hjör-
leif, sem ekki er farandi i nema
fyrir fullþjálfað Hð.
r"
Jdn Þ. Ololsson
keppir ytrn
JÓN Þ. Ólafsson hefur tekið
þátt í tveimur mótum vestur
í Kaliforníu nú nýverið —
reyndar sama daginn eða sl.
laugardag.
Fyrst keppti hann á móti í
Oxygental. Úrslit í hástökki
þar urðu þau að Rambo vann
á 2 m sléttum. Annar varð
Zuluisky með 2.00 og Jón Þ.
varð 3. með 1.95.
Síðar sama dag keppti Jón
á móti í Coliseum í Los Ange-
les. Sigurvegari varð Rambo
2.03, 2. Cm. Dumas 2.03, 3. Jón
Þ. Ólafsson 1.98 og 4. Durby
1.98. —
Karl Jóhannsson reiðir hér
til skots — og skorar.
(Myndir: Sveinn Þorm.)
Víðavangshlaup
Hafnarfjarðar
VÍÐAVANGSHLAUP Hafnar-
fjarðar hefst í dag kl. 4 við
barnaskólahúsið. — Lúðrasveit
Hafnarfjarðar leikur frá kl. 3.30
og skemmtir áhorfe-ndum.
Yfir 30 þátttakendur eru skráð
ir í hina ýmsu flokka hlaupsins,
þar af 6 stúlkur. Keppendur eru
beðnir að mæta við leikfimishús
ið kl. 3.30.
Víðavangshlaup Hafnarfjarðar
hefur átt vinsældum að fagna í
bænum og vonndi verður svo
enn.