Morgunblaðið - 23.04.1964, Blaðsíða 32
Barátta tekin upp gegn hjarta og æða-
sjúkdómum, mannskæðustu sjúk-
dómum hérlendis
Samtök stofnuð næsta laugardag
SKORIN hefnr verið upp her-
ör gegn hjarta- og æðasjúk-
dómum, sem hafa auki/t geig-
vænlega hér á landi hin síð-
ari ár. Eru þeir nú mannskæð
astir allra sjúkdóma hér-
lendis. — Fyrirhugað er að
stofna til samtaka á laugar-
daginn kemur, sem hafi á
stefnuskrá sinni haráttu gegn
þessum sjúkdómum, varnir
gegn þeim, afleiðingum þeirra
og útbreiðslu.
Fréttamenn voru í gærmorgun
boðaðir á fund Sigurðar Samú-
elssonar, prófessors, Valdimars
Stefánssonar, saksóknara, og
Eggerts Kristjánssonar, stórkaup
manns. Hafði Sigurður orð fyrir
þeim og skýrði frá því, að kl. tvö
á laugardag yrði haldinn í Tjarn-
arbæ stofnfundur samtaka, sem
beittu sér fyrir framangreindu
máli. Þeir, sem beita sér fyrir
þessari félagsstofnun, eru auk
hinna þriggja fyrrnefndra: Bjarni
Benediktsson, forsætisráðherra,
Geir Hallgrimsson, borgarstjóri,
Davíð Davíðsson, prófessor, Eð-
varð Sigurðsson, alþingismaður,
Jóhannes Elíasson, bankastjóri,
og Sigtryggur Klemenzson, ráðu-
neytisstjóri.
Sigurður Samúelsson kvað
IUekkir í SnæfellsJÖkli?
í GÆR sáu menn frá vitamála-
skrifstofunni, sem voru að vinna
við Rifshöfnina reykjarmekki í
ótt til Snæfellsjökuls. Þar sem
gos hafa verið alltíð að undan-
Jörnu á landinu, datt þeim í hug
að jökulinn væri nú líka farinn
að bæra á sér eftir 2000 ára
svefn.
Mlbl. hafði símasamband við
Jóhann P. Jónasson, sem lýsti
því svo að kl. 2.45 hafði hann
og verkstjóri hans litið til fjalla
og séð eins og reyk leggja upp
úr Geldingafelli, og bera í austan
verðan Snæfellsjökul. Hjaðnaði
reykurinn á milli, eins og gufu-
mökkum skyti þar upp bak við
fjailstindinn. Spurðu þeir bónda
á staðnum hvort þarna gæti. ver-
ið um jarðhita að ræða og sagði
hann að þar fyndist enginn jarð-
varmi. Kváðust þeir félagar hafa
séð þetta af og til nokkra stund.
Möl. átti síðan tal við frétta-
ritara sína á Hellissandi og í
Ólafsvík. Frá Hellissandi sást þá
Salt,
sem fara átti til
FæreYÍa., kemur til
Reykjavíkur á
föstudagskvöld
I GÆR festi Ölafur Gíslason &
Co. kaup á saltfarmi, seim fara
áttá til Færeyja, og verður skipið
inér á föstudagskvöld. Verður það
fyrsta saltið, sem kemur til lands
ine, eftir að allt salt þraut í
þorskveiðihrotunni, sem staðið
hefur yfir undanfarna daga.
Saltskipið er þýzfct og heitir
Heiuan. Það er með 2300 æstir
af salti frá Ibiza, sem er ein af
Balear-eyjunum austanvert við
Spán. Skipið losar fyrst í Repkja
vik, en síðam er gert ráð fyrir
það losi í Keflavík og Akranesi.
Eins og áður hefur verið sagt
fná hér í blaðinu kemur saltskip
á veguim Kol & Salt með 1600 lest
jx af salti nú um helgina, og losar
í Vestmannaeyjum, Keflavík og
Reykjavík.
jökulinn heiður og ekkert óvana-
legt., En frá Ólafsvík sáust dala-
lœður, eins og oft er þarna á
milli jökulsins og Geldingafells.
Taldi fréttaritarinn líklegt að
þær hefðu getað borið svo við
fjallið í góðviðrinu að það lí'kt-
ist gufumökkum. Eins lagði
vei'ksmiðjureykinn frá Ólafsvík
í þess átt og hugsaniegt að
reykjarbólstrar hafi slitnag og
rekið þarna yfir.
Ekki bárust neinar frekari
fregnir af þessu í gærkvöldi.
hjartasjúkdóma hafa farið mjög
í vöxt undanfarna áratugi, aðal-
lega erlendis, en einnig hérlend-
is. Ekki væri hægt að benda á
neitt sérstakt, sem þessu ylli, en
ýmsar blikur væru á lofti. Hlið-
stæð samtök væru gömul erlend-
is og hefðu gefið góða raun. Ætl-
unin væri að stofna fyrst félag
hér í Reykjavik, en síðar deildir
úti um land.
Algengasti hjartasjúkdómurinn
væri kranzæðakölkun og stífla.
Byrjaði hann að herja fólk á
fimmtugsaldri og oft áður, og
þegar komið væri yfir sextugs-
aldur, væri hann í algleymingi.
Karlmenn verða aðallega fyrir
barðinu á honum, þ.e.a.s. atíhug-
anir hafa sannað, að kvenfólk er
tíu árum á eftir karlmönnum að
þessu leyti, hvarvetna í heimin-
um. Kvenfólk um sextugt ihefur
því sömu líkur á að taka sjúk-
dtóminn og karlar um fimmtugt.
Ætlunin er að fylgjast vel með
fólki, taka hjartalínurit á viss-
um fresti. Aðrar ráðstafanir yrðu
svo gerðar, ef eitthvað amaði að,
svo sem breytingai á mataræði,
og þá sérstaklega varað við of-
fitu, sem er ávallt hætuleg.
Gerðar yrðu hóiprannsóknir á
fólki. Aðalatriðið er að finna
sjúkdcminn, áður en hann gerir
vart við sig. Þá er hægt að gera
þær ráðstafanir, sem að gagni
mættu koma.
Ávarpið
Hér fer á eftir ávarp frá þeim
níu mönnum, sem að framan eru
greindir:
„Við undirritaðir leyfum okk-
ur hér með að skora á aknenning
að taka þátt í stofnun samtaka
um baráttu við hjarta- og æða-
sjúkdóma og um eflingu varna
gegm þeim. Meginástæða þessa er
sú staðreynd, að þessir sijúkdóm-
ar eru nú mannskæðastir allra
sjúkdóma hérlendis. Sa.mkvæmt
íslenzkum heilbrigðisskýrslum
hafa dauðsföll af völdiuim þeirra
aukizt miklu rneira á síðari árum
hérlendis en af yöldum annarra
sjúkdóma, ef miðað er við greind
dánarmein. Dánartíðni af þessum
sökum er þó enn, miðað við
skýrslur, lægri en í nágranna-
löndunum, en líklegt er, að bætt
Framhald á bls. 31.
Sigurður Saimielsson,
prófessor.
Sigurpáll fékk 90
tonn í einu kasti
f FYRRADAG fékk Sigurpáll
úr Garði 90 lestir í einu kasti
rétt við Þrídrang. Er það algert
metkast. Næststærsta kast sem
vitað er um' mun vera 70 tonna
kast, sem Víðir II fékk í fyrra.
— Ég var búinn að segja Eggerti
að hann mætti ekki koma með
meira inn en 30 lestir, því við
gætum ekki annað meiru, en þá
fökk hann bara 90 lestir í fyrsta
kastinu um morguninn, sagði
Guðmundur á Rafnkelsstöðum í
símtali við blaðið í gær.
Skipverjum á Sigurpáli gekk
vel að innbyrða aflann, nótin rifn
aði ekiki, en það tók meiri hluta
dagsins að háfa þetta magn um
borð. Þegar í Íand kom, voru
60 lestir teknar í fyrstihúsið og
vann fólk vig hann fram á nótt.
Um 170 lestir bárust á land í
Nýja gosið sást frá
Eyrarbakka í gærkvöldi
Tveir bátar og Herjólfur
urðu þess varir
í GÆRKVÖLDI símaði fréttarit
ari blaðsins á Eyrarbakka að
þaðan sæist geysilegt gos í Surts
ey og virtust mekkirnir vera
tveir, annar vestan við gamla
gosið álíka kraftmikill, miklir
gufumekkir og eldglæringar í
því eystra. Var mikill eldgang
ur neðan í því.
Herjólfur varð þessa nýja goss
fyrst var á þriðjudagsmorgun.
Garðar Þorsteinsson, 2. stýri-
maður, segir svo frá:
— Við vorum tveir á vakt um
morguninn. Kl. 05.47, þegar við
vorum staddir 18 sjómílur A-NV
af Vestmannaeyjum sáum ég og
hásetinn sem var á vakt, Jóhann
Marteinsson, ljósan og þykkan
gufumökk stíga upp úr sjónum.
Við athugun reyndist þetta vera
gos, en ekki frá Surtsey. Gos
KÓPAVOGUR
SJÁLFSTÆÐISFÉILAG Kópa-
vogs efnir til félagsfundar nk.
þriðjudagskvöld i Sjálfstæðis-
húsinu, Borganholtsbraut 6.
Ræðurmaður verður Mattbías Á.
Mathiesen.
þetta var mjög líkt Surtseyjar
gosinu á íyrstu dögum þess, og
lagði ca. 200—300 m í loft upp
frá okkur séð. Aska og aur sáust
mjög greinilega neðst í gufumekk
inum. Þetta stóð stöðugt í 15—20
mínútur, en dvínaði þá og kom
síðan í smúgusum næstu ca. 40
minúturnar. Virtist þetta vera
um það bil 2—3 sjómílur SV af
Surtsey. Við fylgdumst með
þessu þar til það gekk undir
Surtsey. Þannig er frásögn Garð
ars.
Þennan sama morgun sáu
menn á bátnum Ófeigi einmg
þetta gos. Allan daginn voru
menn í Vestmannaeyjum að aka
út á höfðann til að reyna að sjá
það, en komu ekki auga á það,
svo það skildi sig frá aðalgosinu.
En síðdegis kl. 16—17 var bátur
inn Sigurfari þarna á ferð og sá
þá gosið.
Þess skal getið að sjávargosið,
sem varð í febrúar og hjaðnaði
eftir einn dag var um 1% sjó-
mílu NA af Surtsey, en þetta 2—3
mílur SV af henni, svo þarna gýs
sennilega í sprungu sem liggur
á milli þessara staða. Ekki var
tekin nákvæm staðarákvörðun á
nýja gosinu.
fyrrakvöld, af netabátum og 3
notabátum, en Víðir II reif nót-
ina. Stærsti fiskurinn er valinn
úr og saltaður, því lítið er um
salt, en minni fiskur, sem nú er
að verða meira af innan um,
er hengdur upp. Og vakað er í
frystihúsnum fram á nætur.
— Fólkið er orðið ósköp
þreytt, sagði Guðmundur. Við
erum nú að fá skólafólk. Ein
dama kom úr Háskólanum í
Reykjavik í dag, ætlar að vinna
nokkra daga fram að prófi. Okk-
ur hefur gengið nokkuð vel að
ná í fólk, en þó erum við í vand-
ræðum. Þetta er ósköp erfitt hjá
fólkinu, en það vinnur sér inn
góðan pening, því mikið af
þessu er' unnið í dagvinnu og
næturvinnu. Skrifstofumaðurinn
minn, sem hefur 12 þús. kr. á
mánuði, vann t. d. á laugardag
og sunnudag og sagðist hafa
tekið upp meira en vikukaupið
sitt. Hann og skrifstofustúlkan
fara núna daglega í fiskvinnu kL.
5 á daginn. Það er virðingarvert
þegar fólk vill bjarga eins miklu
af aflanum og hægt er. Og reynd
ar munum við bjarga þessu, af
ekki stæði á saltinu sagði, Guð-
mundur að lokum.
Etrra hefur
hækkað um
10 m á 8
cJögum
Róm, 22. apríl. — NTB:
ELDFJALLIÐ Etna á Sikiley
hefur hækkað um 10 metra á
síðustu 8 dögum, að þvi er
ítölsk blöð segja í dag. 14.
apríl sl. hafði aðalgígurinn
mælzt 3.320 metrar á hæð, en
í gær mældist hann 3.330 m.
Allra bezti vetur á þessari öld
TVEIR fréttaritarar blaðsins á
norðlægum slóðum kvöddu í gær
veturinn með því að síma Mlbl.
að þetta hefði verið einbver mild
asti og bezti vetur sem elzu
rtienn muna. Fara skeyti þeirra
hér á eftir:
★
ÞÚFUM, N-ís. — Siðasta vetrar-
dag 1964 — í dag kveður einn
hinn allra bezti vetur á þessari
öld. Góðviðri hefur verið dag
bvern og jörð snjólaus og klaka-
laus alls staðar í byggð. Útlit er
fyrir að miklar heyfyrningar
verði. Geldíénaður er kominn
alveg af fóðri.
Ráðgert er að moka Þorska-
fjarðai'heiði bráðlega, en heiðin
er snjólítil, svo umferð bila mun
hefjast á næstunni yfir heiðina.
Svolítið hefur verið kaldara í
lofti síðustu nætur en sólfar og
hiti á daginn — PP.
★
HÚSAVÍK, 22. apríl — Síðasti
vetrardagur er hér stilltur o.g
heiðrikur. Þannig kveður sá
mildasti vetur sem elztu menn
muna. En þrátt fyrir góða tíð o.g
mikla sjósókn hefur verið afla-
leysi hér í allan vetur og engu
betra en sl. ár, sem var frámuna-
lega lélegt — Fiéttaritari.