Morgunblaðið - 01.05.1964, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.05.1964, Blaðsíða 6
3 MORCU N BLAÐIÐ Föstudagur 1. rháí 1064 Starfsemi Fulbright-stofn- unarinnar á Isl andi Islenzkt framlag til starfseminnar ÁRIÐ 1057 var gerður samn- ingur milli Islendinga og Bandaríkjamanna um ýmis samskipti þjóðanna á sviðí menningarmála, en líka samn inga hafa Bandarílkjamenn gert við fjölmargar þjóðir, þ. á. m. öll Norðurlöndin, Bretland, Fratekland, Þýzka- land og margar aðrar þjóðir. Fyrsta heimildin í lögum til slíkra samningsgerðar er frá stjórnarárum Harry S. Tru- man, en öldungadeildarþing- maðurinn J. William Ful- bright beitti sér eirakum fyrir lagasetningunni, og eru þessir samningar oft við hann kenndir og kallaðir Fulbright- samningar. Samkvæmt Ful- brightsamninigum milli ís- lands og Bandaríkjanna frá 1957 var komið á fót stofn- un, sem nefnist Menntastofn- un Bandarikjanna á íslandi (The United States Edu- cational Foundation in Ice- land) og hefur sú stofnun starfað síðan. Þegar samningstímabilið rann út, var hafinn undirbún- ingur að endurnýjun samn ingsins og var undirritaður nýr samningur 13. febrúar 1964. Þær breytingar sem nýi samningurinn felur í sér, eru einkum þær, að stjórn stofn- unarinnar, sem áður var skip- uð þremur Íslendingum, skip- uðum af menntamálaráðherra og þremur Bandaríkjamönn- um, skipuðum af sendi'herra Bandarífcjanna, sem síðan skipaði einn þsirra formann, er nú skipuð fimm íslending- um og fimm Bandaríkjamönn- um og kýs stjórnin sjálf for- mann, en menntamálaráð- herra og sendilherra Banda- ríkjanna eru heiðursformenn. Hin aðalbreytingin er sú, . að í nýja samningnum er gert ráð fyrir að Ísland leggi nokkurt fé af mörkum til starfseminnar, en hingað til hafa fjárframlögin eingöngu verið af hálfu Bandaríkja- stjórnar. Fjárframlag íslands hefur ekki enn verið ákveðið og verður það væntanlega gert í samibandi við næstu fjárlög. Menntastofnunin ger- ir árlega tillögur í samræmi við það ákvæði samningsins um ráðstöfun þeirrar fjár- hæðar, sem hún hefur til um- ráða á hverjum tíma, en endanlegar ákvarðanir eru í höndum tíu manna ráðs í Bandaríkjunum, sem Banda- ríkjaforseti skipar og fjallar um styrkveitingar til allra samningslandanna. í Ful- bright-samningnum sjálfum eru engin bein ákvæði um það til hvers má verja styrkjum Ful'brigiht-stofnunarinnar, en í því efni gilda hins vegar all- ítarlegar reglur og starfsvenj- ur styrkjanefndarinnar banda rísku (Board of Foreign Sciholarships). Þann tíma, sem Fulbright-samnin.gur mil'li Bandaríkjanna og Is- lands hefur gilt, hefur styrk- veitingum í höfuðatriðum verið 'hagað þannig: (1) Rannsóknastyrkir. Þess- ir styrkir eru ætlaðir vísinda- mönnum, aðallega raunvís- indamönnum, sem hafa hug á að stunda mjög sér'næfðar rannsóknir, annað hvort til undirbúnings doktorsprófi eða til framhaldsrannsóikna. Hingað til hafa þrír ís- lendingar notið slikra styrkja. (2) Kandidatastyrkir. Það eru styrkir handa kandidöt- um, sem lokið hafa háskóla- prófi hér eða einhverju öðru landi utan Bandaríkjanna og hyggja á framhaldsnám vestra. Samtals hafa 33 ís- lenzkir námsmenn hlotið kandidatastyrkina. (3) Kennarastyrkir. Hér er um að ræða styrki til starf- andi kennara til 6 mánaða námsdvalar vestanhafs og hafa 24 íslenzfcir kennarar hlotið þessa styrki fram til þessa. (4) Ferðastyrkir, og er þar einungis um að ræða greiðslu á fargjöldum fram og aftur milli íslands og Bandaríkj- anna fyrir þá, sem fengið hafa styrki til náms vestra hjá öðrurn en Ful'bright-stofn- uninni, og nemur tala slíkra styrkveitinga nú 24. Samtals hafa 94 íslending- ar notið styrks fyrir milli- göngu Menntastofnunarinnar frá því að Fulbright-samning urinn var gerður fyrst árið 1957. En starfsemi stofnunarinn- ar er tvíþætt, hún veitir einn- ig Bandaríkjamönnum styrk til fslandsd'valdar, og hafa þær styrkveitingar verið sem hér segir: (1) Sendikennaratyrkir. Ful bright-stofnunin 'hefur greitt kostnað við dvöl bandarísku sendikennaranna við Háskóla íslands, og eru þeir nú orðnir 8 að tölu síðan starfsemin hófst. (2) Rannsóknir. Fjórir Bandarí'kjamenn hafa hlotið styrk til vísindarannsökna hér á landi. (3) Kennarastyrkir. Hingað hafa komið tveir bandarískir kennarar til náms og starfa á vegum Fulbright-stofnunar- innar. (4) Kandidatastyrkir. Átta bandarískir háskólamenn hafa fengið styrk til náms í íslenzku og íslenzkum bók- menntum við Háskóla Íslands. (5) Ferðastyrkir. Tveir ferðastyrkir hafa verið veitt- ir bandarískum nemendum, sem hafa haft námsstyrki annars staðar að en frá Ful- bright-stofnuninni. Tala Bandaríkjamanna, sem framangreindra styrkja hafa notið er því samtals 24, en alls 'hefur stofnunin út- vegað 117 styrki til íslend- inga og Bandaríkjamanna á því sjö ár timabili, sem hún, hefur starfað. Yfirleitt hafa 12 íslendingar dvalizt í Banda ríkjunum á vegum Fulbright- stofnunarinnar árlega, en þó hefur þessi tala farið hækk- andi og nú í vetur dveljast alls 22 Íslendingar vig nám og störf vestanhafs á vegum stofnunarirmar.. Tveir til átta Bandaríkjamenn hafa árlega komið hingað til lands á ein- hvers konar styrkjum frá Fullbright-stofnuninni. Islend ingar þeir, sem farið hafa vestur um haf á Fulbright- styrk, hafa stundað nám í 37 mismunandi greinum, þ. á.m. má nefna læknisfræði (12), verkfræði (6), hagfræði og viðskiptafræði (5), ensk tunga og bókmenntir (4), stærðfræði (4), lögfræði (3), blaðamennska (3) og hús- mæðrafræðsla (5). Þá 'hafa 9 einstaklingar, sem starfa á sviði æskulýðs- og félgsmála, farið vestur um haf fyrir milligöngu þessarar stofnun- ar. Bandaríkjamenn, sem dvalið hafa vig nám hér á landi, hafa aðallega lagt stund á íslenzku og íslenzkar bók- menntir og eru sumir þeirra nú starfandi háskólakennarar í forníslenzku og íslenzkum bókmenntum við háskóla í Bandaríkjunum. Amerískir háskólakennarar, sem hér hafa starfað, hafa aðallega kennt enska tungu og amer- ískar bókmenntir, en einnig Framhald á bls. 11 að vera minningargrein. — Að öðru leyti er ég fyllilega sam- þykkur því, sem bréfritari seg- ir — þ. e. a. s. að taka eigi hart á því, ef skepnum er stofnað í voða með ógætni eða hættu- lega lélegum útbúnaði í úti- húsum. NÚ ER skúffan mín orðin full af bréfum svo að ég held að bezt sé að birta eitthvað af þeim að þessu sinni. Hér er fyrst bréf frá Sigurlaugu Björnsdóttur: Búfjárbrunar og blaðaskrif „Það mega vissulega teljast mi'kil sorgartíðindi, er það frétt ist að skepnur brenna inni, hverrar tegundar sem þær annars kunna að vera, eða mun vera til öllu ömurlegri dauð- dagi, en sá að stikna lifandi, bundnar og lokaðar inni í vistarverum sínum .... Það sýnist vera bæði heimskulegt og fullkomlega villimannlegt að neita þeirri staðreynd, að þjáningar dýranna við allri kvöl séu minni, en okkar manna. Nú hafa með stuttu millibili, í sömu viku, orðið tvennir brunar á búfénaði. Um þau tíðindi farast frétta- mönnum þannig orð. 1. Bruni í Skagafirði. Kinda- kofi brennur, tíu kindur og nokikur hænsni brenna inni. Óvátryggt. Tjón ungra hjóna tilfinnanlegt. Eldsupptö'k: rör- garmur frá eldstæði í slæmu standi. 2. Fjós brennur til kaldra kola, sjö kýr drepast, tjón bónd ands tilfinnanlegt. Eldsupptök: neisti frá kertisskari. eða eld- spýta úr hendi fullorðins manns. Punktum og basta. Bkki eru hönmuð afdrif hinna ólánsömu dýra, ekki hvatt til varúðar í umgengni og viðhaldi gripahúsa, né rætt um það með hverjum hætti mætti koma í veg fyrir, að því- líkir atburðir gerist. Þótt þau gróðasjónarmið, er virðat nú nær allsráðandi í landi okkar, geti ef til vill í sumum tilfellum átt nokkurn rétt á sér, þá eru þau hér ógeðs leg og er slíkur gapaháttur í frásögn átakanlegra atíburða, óþolandi. íslendiragar hafa löngum far- ið illa með skepnur sínar, og óvíða mun sjást mikil breyting á því til batnaðar, en blaða- mönnum hlýtur að vera það ljóst, að blöð þeirra, frétta- flutningur og túlkun á hinum ýmsu málefnum, eru nú líklega sá aðili er mestan þátt á í því, að skapa s'koðanir manna og og almenningisálit, um eitt og annað, svo að ábyrgð þeirra er hreint ekki svo lítil, og ekki stendur alveg á sama hvernig á málum er haldið. 20. apríl Sigurlaug Björnsdóttir“. Frétt er frétt Satt er það. Aldrei er of mik- ið gert af því að vara fólk við ýmsum hættum, sem jafnan steðja að mönnum og málleys- ingjum. En frétt er frétt — og það er ekki fréttamannanna að hnýta aftan við fréttir sínar að- vörunum og ábendingum — eða ákúrum. Ég geri ráð fyrir að fólk yrði þreytt á blöðunum, ef fréttadálkarnir væru að hálfu leyti heilræði og áminn- ingar. — En ég er ekki þar með ag segja að blöðunum beri ekki að ráðast gegn hvers kyns ósóma. Þetta er hins vegar ekki í fyrsta skiptið, sem ég bið fólk að gera greinarmun á frétt um og öðru efni blaðanna. Minniragargrein á ekki að vera aflafrétt — og aflafrétt á aldrei Köld sturta Og hér koma nokkrar línur frá V. O. Hann segist vona, að þær verki eins og köklsturta á hina heitu menningarvita — og veki þá e. t. v. til eirahverrar umbugsunar: „Fín glæpasaga og ófín. Það vantar uppskrift af menn ingu, því allrahanda menning- fígúrur eru margsaga í menn- ingarvernd. Glæpareyfarar eft- ir Shakespeare, Verdi o. fl. klingja í eyrum manns, huldir í ljóðum og tónum, með há- stemmdum skýringum um að þetta sé menning og „mjög fínt“, en varast skuli létta músík og kúrekamyndir, eink- um í sjónvarpi. Helzti munur- inn er sá, að kúrekinn er nýrri framleiðsla og ekki sönglandi, með sinfóníu'hljómsveit á hæl- um sér, eða þyljandi kjánaleg kvæði, meðan hann tæmir byssuna á einhverri vinstúk- unni. Hjá Verdi og Shake- speare hættir leikurinn af sjálfu sér þegar flestar aðal- persónurnar hafa skorið sig eða aðra á eggjárni, gleypt eitur eða þvílíkt, með tilþrifum r Oí ( RFnEt— Sjé- og bægslagangi. Hvort tveggja er hvimleitt. 60 í sjálfheldu. Hvens vegna eru sóðalegir manndrápsleikir (eftir fyrr- nefnda höf. t. d.) sagðir „fínir?“ Er það ekki „vansænv.nd! fyrir íslendinga, sem sjálfstæða menningarþjóð“ — að gleypa við þessari útlendu morð-menn ingu og hún flutt vikum saman í útvarpi og leikhúsum, auk blaðagreina. Þótt margt í ís- lendingasögunum sé það klúr- asta sem mannleg hugsun hefur hefur framleitt, amast fáir við ‘þessari „þjóðlegu menningu“. Því virðist sóðaskapurinn þurfa að vera gamall til að vera menningarauki. Hláturinn lengir lífið. „Ég held að þag sé nóg af endemis fýlunni í heiminum, þótt ekki sé verið að kaupa hana líka“, sagði kona noikkur þegar verið var að telja hana á að sjá einhverja „góða kvik- mynd sem endaði illa. Þessi menningar-meinlæta ástríða virðist hafa heltekið marga góða borgara á hinn brosleg- asta 'hátt og nálgast oft að vera sjúkleg ágengni við friðsamt fólk. Þeir virðast vera í von- lausu reiptogi við framtíðina, framfarir og Sköpunargleði 'komandi kynslóða sem munu marka sín sjónarmið, framveg- is sem hingað ti’l. V. O." ÞURRHLODUR ERL ENDINGARBEZTAR BRÆÐURNIR ORMSSON hf. Vesturgötu 3. Simi 11467.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.