Morgunblaðið - 01.05.1964, Blaðsíða 28
Snjókoma fyrir norian
AlSir vegir þó færir
BI.ADIí) IvafAi í gær samband
■við nokkra fréttarilara sína á
Norðurlandi og spurðist fyrir um
veður og færð. Nokkur snjókoma
hefur verið tvo siðustu daga, en
þó eru ailir vegir færir, þótt
nokkur þyngsli hafi verið, eink-
nm austur í Þingeyjarsýslu.
Húsavík, 30. apríl.
Hér er alhvít jörð en hiti um
frostmark og slydduhríð. Ekki
er ófærð hér í bænum en krapa-
sull á götum. Þungfært var í dag
á Tjörnesi einkum fyri-r litla bíla,
eia þó var verst hversu blindað
var, jafnfallinn-blautur snjór og
lentu 6 bílar út af veginum, þótt
esngim slys yrðu.
Bozar
í Kópavogi
Sjálístæðiskvennafélagið Edda
í Kópavogi heldur bazar sunnu-
daginn 3. maí kl. 15.30 í Sjálf-
stæðishúsinu í Kópavogi. Þar
verður fjölbreytt vöruúrval á
hagstæðu verði.
Gæftir hafa verið slaemar að
undanförnu og afli mjög lélegur
þegar gefið hefur. Hrognkelsa-
veiði hefur hins vegar verið
sæmilega góð og engin skakka-
föll á netum, því veðurstofan
hefur spáð fyrir um áföll þau
sem komið hafa.
Aðalfundur kaupfélagsins byrj
aði hér í gær.
Préttaritari.
Siglufirði, 30. apríl.
Hér hefur verið bleytuhrið í
gær og dag. önnur tilraun var
gerð til að koma okkur í vega-
samiband og fóru tvær jarðýtur
s.l. mánudag upp á Skarð og
mokuðu þann dag, nóttina og
þriðjudaginn, en á þriðjudags-
kvöldið var skollin á hríð svo
hætt varð aðgerðum. Erum við
því jafn einangraðir og áður.
Hór hefur verið lélegt fiskirí
en nokkrir bátar eru hér gerðir
út. Er vonast eftir að afli glæðist
eftir þetta áhlaup.
Stefán.
Akureyri, 30. apríl.
Hór er snjór niður í miðjar
hlíðar og má segja að orðið sé
haustlegt um að litast eftir veð-
urblíðuna í vetur. Allir vegir
eru færir, þótt nokkur hálka
kunni að vera á fjallvegum. Litið
snjóar í innsveitum.
Sv. P.
Stykkishólmi, 30. apríl.
Landlega hefur verið í þrjá
daga vegna veðurs, hvassviöri
hefur verið að norð-austan og
jafnvel éljagangur öðru hverju.
í síðustu viku var afli góður.
f>á hafði mestan afla m.b. Svan-
ur 135 tonn. — Fróttaritari.
Myndir úr Surtseyjarferð
Vestmannaeyjum 30. aprfl. j ir nokkra þeirra, sem í eyjunni'| Minni myndin sýnir hvar ísra-
EINS og skýrt var frá í blaðinu dvöldust þar sem þeir eru komnir elska fánanum hefir verið komið
í gær. dvöldust 9 piltar í Surtsey I með blinað sinn niður | f jöru og ' fyrir skammt frá gígnum. en
í fyrrinótt og voru þeir sóttir út _ , I hraunleðjan skvettist gloandi upp
. j; . . _ v ' eru að fara ut í batinn, sem bið- ' - .
i Eyjuna í gær. Þessar myndir , honum.
voru þá teknar. ur “f*11 vl® eyna> sest bann í bak j gja einnig mynd á forsíðu.
Jhriegja dálka myndin sýn- sýn- I Ljósm.: Sigurgeir Jónsson.
Fiskframleiðendur
ræða um oflíuhreins
unarstöð,
en hafa ekkert
EINS og kunnugt er af blaða-
skrifum hefur að undanförnu
verið unnið að undirbúningi
að byggingu olíuhreinsunar-
stöðvar hér á landi. Forgöngu
menn þessa máls hafa m.a.
gert fiskframleiðendum grein
fyrir þvi, sem gert hefur ver-
ið, en þeir hafa af sinni hálfu
skipað nefnd, sem einnig hef-
nr rætt málið við ráðherra.
í nefnd fiskframleiðenda
eiga sæti Guðmundur H. Garð
arsson frá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna, Gunnar Flóv-
entz, Sildarútvegsnefnd,
álit láfið uppi
Sveinn Beneditksson fyrir síld
arsaltendur, Sigurður Egilsson
frá Landssambandi íslenzkra
útvegsmanna og Bjarni Magn-
ússon, SÍS.
Morgunblaðið sneri sér til
Guðm. H. Garðarssonar og
spurði hann um störf nefnd-
arinnar. Hann kvað nefndina
hafa rætt við fulltrúa þeirra,
sem hafa haft forgöngu um
byggingu olíuhreinsunarstöðv
ar og ráðherra um málið, en
enn hefði nefndin ekkert sent
frá sér um það.
141 tonn tíl
Akrnnes
Akranesi, 30. apríl.
HEILDARAFLI löndunarlotunn-
ar í gær og i morgun var 141
tonn. Höfrungur III fiskaði í nót
61 tonn, svo og Sigurður 38 tonn.
Aðeins tveir þorskanetjabátar
lönduðu, Sigurfari 21 tonn og
Sólfari 21 tonn.
M.s. Tungufoss lestaði hér
skreið í morgun.
Bankarnir hafa
opið ril liádes;is
BANKARNIR í Reykjavík verða
opnir í dag til hádegis, en hins
vegar hafa þeir lokað eftir
hádegi.
Verzlanir verð lokaðar í dag,
] en þó verða mjókurbúðir opn-
i ar til hádegis.
1. maí ávarp
Fulltruaráðs verkalýðs-
félaganna ■ Reykjavík
f DAG, 1. maí, á alþjóðlegum
þaráttudegi verkalýðsstéttar
heimsins, fylkja íslenzk verka-
lýðssamtök liði sínu til einhuga
sóknar fyrir bættum kjörum og
betra lífi vinnandi fólks.
Við minnumst frumherja
verkalýðshreyfingarinnar, heima
og erlendis, þeirra, sem fyrstir
kröfðust réttar hvers vinnandi
manns til lausnar úr fátækt og
kenndu stéttarbræðrum sínum að
skilja og meta ósigrandi afl ein-
huga samtaka.
Við minnum á, að hagsmunir
verkalýðsins um heim allan eru
sameiginlegir og möguleikarnir
til mannsæmandi lífs allra barna
jarðarinnar eru augljósir við þær
aðstæður, sem nútíma vísindi og
tækni bjóða. Engu að síður situr
bölvun skortsins enn við dyr
nær tveggja af hverjum þrem
fjölskyldum heimsins og storkar
samvizku hvers heiðarlegs manns.
Það er krafa hinnar alþjóðlegu
verkalýðshreyfingar, að fátækt-
inni og því ólýsanlega böli, sem
henni fylgir, verði á okkar dög-
um bægt frá sérhverju heimili
þessa hnattar með þeim breyting
um á þjóðfélagsháttum, sem til
þess eru óhjákvæmilegar. ísienzk
verkalýðshreyfing tekur undir
þá kröfu af alhug.
Við minnum á, að krafa um
frið, útrýmingu allra kjarnorku-
vopna og algera afvopnun er lífs-
hagsmunamál allra manna. Við
fögnum samkomulagi þjóðanna
um takmarkað bann við kjarn-
orkusprengingum, sem skrefi í
rétta átt, en við leggjum áherzlu
á, að í alþjóðlegum samskiptum
verður trúin á valdið að víkja
fyrir óhjákvæmilegri nauðsyn
friðsamlegrar lausnar vandamál-
anna.
Við samfögnum hinum ný-
frjálsu þjóðum með fengið sjáif-
stæði og krefjumst þess, að ailri
| nýlendukúgun verði aflétt og að
hver þjóð fái fullt frelsi til að
stjórna eigin málum.
Við fordæmum alla kynþátta-
kúgun og höldum því ákveðið
fram, að allir menn, hvaða hör-
undslit sem þeir hafa, eigi jafnan
rétt til lífsins gæða, orða og at-
hafna, stöðu og starfs.
íslenzk verkalýðshreyfing vill
á þessum baráttudegi strengja
þess heit, að standa trúan vörð
um sjálfstæði íslenzku þjóðarinn-
ar, vernda þjóðerni og menningu
hennar og tryggja að íslendingar
Framhald á bls. 8.
*
Asherg Sigurðs*
son skipaður
sýslumaður
A fundi ríkisráðs í gær var
Asberg Sigurðsson skrifstofu-
stjóri skipaður sýslumaffur í
Baröastrandasýslu frá I. ágúst
að telja.