Morgunblaðið - 01.05.1964, Síða 21

Morgunblaðið - 01.05.1964, Síða 21
Fostudagur 1. maí 1964 MORGUNBLAÐIÐ 21 AKUREYRARYFIRLVSI^G ungra Sjálfstæðismanna samþykkt á helgsrráðstefnu 5US á Akureyri fyrir skömmu UNGIR SJÁLFSTÆÐISMENN, samankomnir til fundar á Norðurlandi, telja einsýnt að efnahagslegar framfarir og efnahagslegt sjálfstæði íslenzkrar þjóðar verði ekki tryggt í heimi örra breytinga og stærri markaðsheilda, nema gagn- gerðai umbætur verði í skipulagi atvinnumála og ákvörðun kaupgjalds á íslandi. UNGIR SJÁLFSTÆÐISMENN skora á launþega og atvinnu- rekendur í landinu að fella niður tilgangslausar deilur en taka höndum saman um eflingu atvinnuvega og efnahags landsmanna í samræmi við kröfur nýrrar aldar, tækni og vísinda. UNGIR SJÁLFSTÆÐISMENN vekja athygli þjóðarinnar á þeirri staðreynd, að í nútíma þjóðfélagi er hagnýting nýrrar tækni sá þáttur, sem ræður úrslitum um stöðugar efnahags- legar framfarir og því er höfuðnauðsyn að stórefla vísinda- og rannsóknastarfsemi, auka og endurskipuleggja tækni- menntun og tæknilega upplýsingaöflun og taka upp kerfis- bundna hagræðingarstarfsemi í atvinnurekstri landsmanna. UNGIR SJÁLFSTÆÐISMENN lýsa yfir óskoruðum stuðningl við stóriðjuframkvæmdir á íslandi með byggingu olíuhreins- unarstöðvar, kísilgúrverksmiðju og aluminiumverksmiðju. UNGIR SJÁLFSTÆÐISMENN Ieggja áherzlu á, að almenn- ingi á íslandi verði veitt tækifæri til þátttöku í þessum at- vinnurekstri og aðild ríkisins að honum sé ekki meiri en brýn nauðsyn krefur. UNGIR SJÁLFSTÆÐISMENN benda á, að tryggur markað- ur er undanfari aukinnar framleiðslu og því verður rótgróið skilningsleysi á nauðsyn sölutækni og markaðsþekkingar er- lendis fyrir íslenzkar framleiðsluvörur að víkja fyrir nýju mati á mikilvægi þessarar starfsemi. UNGIR SJÁLFSTÆÐISMENN Iýsa stríði á hendur fjármála- spillingu í landinu og skora á Alþingi íslendinga að taka upp einarða baráttu gegn henni, m. a. með setningu réttlátrar skattalöggjafar, sem útiloki skattsvik og aðra spillingu í skjóli hennar. UNGIR SJÁLFSTÆÐISMENN heita á alla þjóðholla ís- lendinga að fylkja sér að baki ríkisstjórn landsins til lausn- ar þeim vandamálum, sem nú steðja að og taka höndum saman um að beina kröftum þjóðarinnar að raunhæfu starfl til bættra lífskjara hennar á næstu áratugum. Frá Borgarnesi. ÍFyrirlestrar um þjóðfélagsmál ólafur Björnsson Þátttakendur úr Reykjavík og Suðurnesjum munu leggja af stað kl. 13.30 á laugardag frá Valhöll við Suðurgötu, en gert er ráð fyrir að ráðstefnan hefjist kl. 17.00 í Hótel Borgarnesi, þeg- ar að loknum fundi Kjördæmis- ráðs Vesturlandskjördæmis. Ásgeir Pétursson Þórir Einarssor Þeir sem ekki hafa þegar til- kynnt þátttöku en hyggjast fara til ráðstefnunnar eru vinsam- lega beðnir að tilkynna það skrif stofu SUS í Reykjavík eða félög- um ungra Sjálfstæðismanna í N Efnahagsvandamálin hafa reynzt íslendingum þung í skauti og erfið úrlausnar allt frá því lýð- veidi var stofnað á íslandi 1944. Á þeim tíma sem -síðan er liðinn hefur jafnvægisleysi í efnahags- NK. þriðjudag, 5. maí, flytur Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, alþm., fyrirlestur á veg- um Heimdallar FUS um stjórn málaflokka, hlutverk þeirra og mismunandi skipulag. Er þetta sjötta og síðasta erindi í fyrirlestraflokki Heimdallar um þjóðfélagsmál, sem flutt hafa verið í vetur. Hafa erindi þessi verið mjög vönduð og vakið mikla athygli þeirra, sem á hafa hlýtt og verið fjöl- sótt. Eru Heimdallarfélagar eindregið hvattir til þess að fjölmenna á fyrirlestur Þor- valdar Garðars á þriðjudag- inn kemur kl. 8.30 í Valhöll. Ráöstef na um helgina í Borgarnesi um jafnvægi í efnahagsmálum fsviði efnahagsmála, þeir próf. Ólafur Björnsson, sem mun ræða um peninga- og verðlagsmál, Bjarni Bragi Jónsson, hagfræð- j.ngur, sem mun ræða um ríkis- búskapinn og Þórir Einarsson, viðskiptafræðingur, sem mun fjalla um kaupgjaldsmál. Árni Grétar Finnsson, formað- ur Sambands ungra Sjálfstæðis- manna, setur ráðstefnuna, en Ás- geir Pétursson, sýslumaður í Borgarnesi, flytur ávarp. Störf ráðstefnunnar munu fara fram í Hótel Borgarnesi og munu sækja hana ungir Sjálf- stæðismenn úr Vesturlandskjör- dæmi öllu, Reykjavík og Reykja- Árni Grétar Finnsson NÚ UM helgina, 2.—3. maí, efnir Samband ungra Sjálfstæðis- manna og Félag ungra Sjálfstæð- ismanna í Mýrarsýslu til helgar- ráðstefnu í Borgarnesi, um jafn- vægi í efnahagsmálum. Til ráðstefnu þessarar hefur mjög verið vandað og flytja þar erindi þekktir sérfræðingar á Bjarni Bragi Jónsson málum hrjáð þjóðina mjög. Það er því vissulega tímabært að ungir Sjálfstæðismenn taka þetta vandamál nú til umræðu og er þess að vænta að af því geti orð- ið nokkurt gagn. - - * • “* — — - **■•* ■ **• Tilkynniö þátttöku í Borgarnes- ráðstefnunni í sima 17103

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.