Morgunblaðið - 12.05.1964, Side 8
8
MORCU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. maí 1964
— Útvarpsumræður
Framhald af 1. síðu.
Ölafur Thors, gerði hana ein-
mitt að aðalumræðuefni í ræðu
sinni í árslok 1962 og sjálfur
ræddi ég þennan vanda á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins í
apríl 1963 og sagði þá m. a.:
„Að sjálfsögðu bitnax það
jafnt á allra flokka mönnum í
hinum miklu almannasamtökum,
- af þeim er beitt til að efla verð-
bólgu, auka dýrtíð og torvelda
löglega lýðræðisetjóm í land-
inu. Verðbólgumeinið verður
vafalaust seinlæknað á meðan
vald þessara mikiu samtaka er
notað heilbrigðum stjórnarhátt-
um til hindrunar. Hitt yrði þó
enn skaðsamlegra, ef látið væri
undan ofbeldinu og meirihluti
þjóðarinnar kúgaður til að láta
af stefnu sinni. Slíkt má aldrei
verða“.
í lýðræðisþjóðfélagi hlýtur
meiri hluti kjósenda að ráða
steifnunni, en Alþingi og ríkis-
stjórn ber að taka hæfilegt til-
Ut til hinna miklu almennings-
samtaka í landinu. Enn hefur
okkur íslendingum ekki tekizt
að rata í þessu hið rétta meðal-
' hóf.
Við skulum hreinskilnings-
lega játa, að ein af orsökum
þess, hversu erfitt hefur reynzt
að ráða við verðbólguna, er að
alltof margir, sem í orði kveðnu
eru henni andvígir, óttast hana
ekki í hjarta sínu og stuðla að
henni með gerðum sínum. Jafn-
vei ýmsir, sem andúð hafa á
öiLu braski, ímynda sér, að þeir
geti komizt yfir eignir, t. d.
húsnæði handa sjálfum sér, með
þessu móti.
Aðrir kjósa verðbólguna frem
ur en atvinnuleysi, sem sárlega
bitnaði á mönnum á árunum
1930-1940 vegna þeirrar stefnu
í efnahagsmálum, sem þá var
fylgt og þeir umfram allt vilja
forðast. En langvinn, vaxandi
verðbólga, slík sem við eigum
við að búa, horfir almenningi
sízt til góðs. Hún eykur mun
á fátækum og ríkum og gefur
“'þeám, sem óprúttnir eru, færi á
að afla sér óverðskuldaðra fjár-
muna. Ef svo fer fram hlýtur
áður en yfir lýkur ranglætið,
sem af verðbólgunni stafar, að
leiða til endurmats á eignum og
skuldum, er komi í veg fyrir
sLíka óheilbrigða gróðamyndun.
Bftir standa þá erfiðleikar, sem
atvinnurekstur í landinu hefur
hlotið af verðbólgunni, erfiðleik-
ar, sem áður en varir, geta leitt
til atvinnuleysis og örbirgðar.
Einmitt þess, sem allir vilja um-
fram allt forðast.
f sjálfu sér skiptir ekki öllu
máli, hvort menn segja, að
verðlagshækkanir eða kaup-
hækkanir ráði meir um vöxt
verðbólgunnar. Aðalatriðið er,
'að hér er um víxlaáhrif að ræða.
Ef kauphækkanir fara fram úr
raiunverulegri greiðslugetu at-
vinnuvega og eru ekki í sam-
ræmi við vöxt þjóðartekna,
'hljóta þær að leiða til verðlags-
hækkana og verðlagshækkanir
ýta mjög á eftir kauphækkun-
um. Þegar kauphækkanir voru
umsamdar í desember s. 1. var
þegar á það bent, að þeim hlyti
að fylgja margskonar verðlags-
hækkanir. Þetta var "að mestu
hægt að reikna út fyrirfram, þó
að stjómarandstæðingar virtust
þá hafa furðulega lítinn áhuga
á að kynna sér hina fyrirsjáan-
legu þróun.
» Mönnum blöskrar að vonum
verðlagshækkanirnar. sem urðu
á árinu 1963 og það sem af er
þessu ári. Þesis vegna er fróð-
legt fyrir alla, að kynna sér or-
sakir þessarar hækkunar. Ég
hefi með höndum áætlun um
skiptingu vísitöluhækkunar eftir
orsökuim frá 1. janúar 1963 til 1.
apríl 1964. sem samin er af Hag-
stofunni. Þessi áætkin hljóðar
svo:
Hækkun fobverðs á kaffi og
sykri 3.1 stig.
ríiðuæíelling á niðurgreiðsAu á
kaffi, fóðurbæti og áburði
0.6 stig
Hækkun söluskatts úr 3% í
í 514% 2.3 stig.
Hækkun tekjuskatts, útsvars,
almannatr.gjalds og sjúkra-
samlagsgjalds og lækkun fjöl-
skyldubóta úr 3.077 í 3.000
kr 3.9 stig.
Hækkun prósentuálagningar
(vegna launaihækkana o. fl.)
1.0 stig.
Hækkun fiskverðs 1.1 stig.
Hækkun á áfengi og tóbaki
0.8 stig.
Stéttarfélagsgjöld 0.5 stig.
Hækkun landbúnaðarvöru-
verðs vegna hækkunar á tekj
um atvinnustétta 2.3 stig.
Almennar launahækkanir
14.0 stig.
Ymislegt (lagfæringar á verð
lagsgrundvelli, ýmsar verð-
lagshækkanir ,sem ekki er
hægt að rekja beint til launa
hækkana, hækkun benzín-
verðs, hækkun á fragt, leið-
rétting á húsnæðislið, og
ýmsar aðrar hækkanir. Frá
dregst lækkun á tollum
o. fl.) 3,7 stig.
Samtals gera þetta 33.3 stig.
Af öllum þeim orsökum sem
Hagstofan telur, ber almennar
launahækkanir lang hæst, eða
beinlínis 14 stig af 33.
En hækkanir kauptaxta eða
tekna eru þó bein eða óbein
orsök hækkanna margra annará
liða. Þannig stafar hækkun tekju
skatts og útsvars ekki af
hækkuðum skattstigum, heldur
af meiri tekjum skattgreiðenda
á árinu 1962 en á árinu 1961.
En þær vaxandi tekjur eiga á
hinn bóginn rót sína að rekja
sumpart til góðærisins 1962 og
sumpart til kauphækkana á því
ári. Hækkun almannatrygginga
gjalds og sjúkrasamlagsgjalds
stafar beinlínis af kauphækkun-
um. Kauphækkanir á síðastliðnu
ári gerðu hækkun söluskatts úr
3% í 514% óumflýjanlega. Þær
eru því bein orsök þeirrar verð-
hækkunar, sem hækkun sölu-
skattsins leiddi af sér. Svipuðu
rnáli gegnir um ýmsa aðra liði,
svo sem hækkun prósentuálagn
ingar, hækkun fiskverðs, hækk-
un stéttarfélagsgjalda, hækkun
farmgjalda í millilandasiglingum
o. fl. Að baki allra þessara
hækkana -liggja kauphækkan-
imar, ef ekki að öllu, þá að
langmestu leyti. Loks hefur sú
tekjuhækkun, sem varð á árinu
1962 umfram hækkun kauptaxta,
leitt til hækkunar á verði land-
búnaðarafurða um 2.3 stig.
Hækkanir þeirra liða, sem ég
hefi nú nefnt, nema samtals um
12 stigum, er koma til viðbótar
þeim 14 stigum, sem áður eru
nefnd, og beinlínis voru al-
mennar launahækkanir. Þá eru
eftir um 7 stig af 33 stiga
hækkuninni, sem ekki verða
rakin beint eða óbeint til
hækkunar kauptaxta eða tekna,
nema þá að litlu leyti. Hverjar
eru orsakir þessarar 7 stiga
hækkunar? Þær eru ýmsar og
flestar þess eðlis, að stjórnar-
völdin hafa ekki getað haft tök
að ráða við þær. Hækkun á
fobverði kaffis og sykurs hefur
t. d. valdið 3 stiga hækkun og
lagfæringar á verðlagsgrund-
velli landbúnaðarafurða 1-114
stigi.
Allt er þetta samanslungið.
Víxlaáhrifin eru greinileg, en
óumdeilanleet er, hvaða úrslita-
þýðingu sjálfar kauphækkanirn-
ar hafa, hvemig þær áður en
varir eyða þeim ávinningi, searrt
ætlað var að ná.
Þeir. sem ásaka ríkisstiórn-
ina fyrir þessar verðlagshækk-
anir, verða að svara nokkrum
snurningum:
Telia þeir hlut bænda nú vera
of mikinn? Ef svo. hveriar ráð-
stafanir vilja þeir gera til að
rýra hann?
Er bað rétt. að Itmirmmn o"
kaupfélög þ. á. m» KROTST hafi
lagt fram óyggiandi gögn fyrir.
að á1a«ning hafi verið orðin of
lág? Er það rangt, að fulltrúar
Framsóknarflokksins hafj nú í
vetur í verðlagsnefnd lagt til,
að álagning yrði hækkuð meira
en fulltrúar stjórnarflokkaxuia
samþykktu?
Hverjir telja það horfa til
heilla fyrir sjómenn, verka-
menn og íslenzku þjóðina í
heild, að alþjóðarfyrirtæki eins
og Eim&kipafélag íslands sé látið
hanga á horrim vegna ranglátra
farmgjaldsákvarðana og þar
með hindrað í eðlilegri endur-
nýjun skipastóls síns?
Hveriir vom það ,sem á síð-
astliðnu ári töldu tilboð ríkis-
stjórnarinnar um launaihækkun
opinberra starfsmanna alltotf
lágt? Og hverjir voru það, sem
býsnuðust yfir, að þeir skyldu
ekki enn fá hækkanir með úr-
skurði Kjaradóms um mánaða-
mótin marz-apríl? Kemur nokkr
um til hugar, að hægt sé að
greiða hundruð milljóna í aukn-
ar kaupgreiðslur opinberra
starfsmanna, án þess að opin-
berir sjóðir fái einhvers staðar
að fé til þess?
Þeir, sem halda því fram, að
atvinnurekendur og ríkissjóður
hefðu getað tekið á sig kaup-
hækkanirnar, án þess þær kæmu
fram í verðlagi og sköttum,
verða að svara þessum spum-
ingum og raunar ýmsum fleiri.
Hugleiðum aðeins hækkun
söluskattsins. Etf ríkissjóður
hefði ekki þurft að taka á sig
auknar byrðar vegna launa opin
berra starfsmanna og greiðslna
úr almannatryggingum, er
leiddu atf almennum launahækk
unum, hefði ekki þurft að
hækka hann upp úr áramótum
eins og gert var. Úr því sem
komið var; varð það ekki um-
flúið, ef veita átti sjávarútvegn-
um þá aðstoð, sem var óhjá-
kvæmileg afleiðing kauphækk-
ananna í desember óg stjómar
andstæðingar töldu þá of litla,
þótt þeir væru andvigir hækkun
söluskattsins af því, að þeir
sögðu ærna fjármuni fyrir hendi
í ríkissjóði. Alveg samtímis voru
þeir hinsvegar eindregnir
fylgismenn þess, að leggja á nýj-
an skatt til aukinna vega-
framkvæmda. Þar var um að
ræða ópólitiskt mál, sem allir
töldu sér hag atf að styðja. Þá
blindaði pólitískt ofstæki stjórn
arandstæðinga ekki fyrir þeirri
staðreynd, að úr ríkissjóði verð-
ur ekki goldið fé nema þess sé
áður í hann aflað.
Látum þetta allt vera. Afleið-
ingar verðbólgunnar eru hinar
sömu hvort sem menn telja, að
hún eigi fremur rætur sínar að
rekja til vöruverðsihækkana eða
kauphækkana. Óvissan og vand-
ræðin, sem af henni stafa bitna
hvort heidur er jafnt á öllum
almenningi. Verkamenn dæma
sjálfir um það, hvert gagn þeir
hafi af kaupdeilum, verkföllum
og kauphækkunum, sem áður
en varir eyðast að mestu eða
öllu. Atvinnurekendur segja til
um hver áhrif það hetfur á at-
hafnir og framkvæmdir, að al-
drei er hægt að gera áætlanir
fyrirfram á meðan ný og ný
verkföll skella á áður en varir
með stórkostlega auknum til-
kostnaði.
Sjálfur þekki ég hverjir erfið-
leikar eru á stjórnartframkvæmd
meðan svo stendur. Megintími
bæði ríkisstjórnar og margra
aðstoðarmanna hennar fer í að
reyna að leysa úr daglegum
vandamálum, afstýra atvinnu-
stöðvun og yfirvofandi öng-
þveiti. Alltof lítill tími gefst til
að sinna þeim Verkefnum, sem
varanlega þýðingu hatfa og öll-
um mundi verða til góðs, etf
stjórnvöjldin. hver sem þau eru
á hverjum tíma gætu, getfið sig
að.
Sem dæmi um afleiðingar
þeirrar óvissu, sem ríkjandi
væri í efnahagsmálunum, benti
ráð'herrann á framkvæmda-
áætlun ríkisstjórnarinnar, sem
mikið starf hefði verið unnið
við en ómögulegt væri að ljúka
á viðhlýtandi hátt við slíkar að-
stæður. Sama gegndi um áætl-
anir einstaklinga.
Ef ekki yrði á ný hafið kapp-
hlaup milli kaupgjalds og verð-
lags, sagði Bjami Benedikts-
son, að unnt mætti verða að
komast hjá þeim allsherjar
neyðarráðstöfunum, gengislækk-
un eða kaupgjalds- og verðlags-
lækkunum, sem menn hefðu um
skeið óttast. Væri þetta að
þakka gjaldeyrissjóðunum og
þeim varúðarráðstöfunum, sem
gerðar hefðu verið sumarið
1961. Fagna bæri þeim undir-
búningsviðræðum, sem átt hefðu
sér stað milli fulltrúa ríkisstjórn
arinnar og launþegasamtakanna.
Ef ekki kæmi á ný til grunn-
kaupshækkana, teldi ríkisstjórn-
in fyllilega athugandi að settar
yrðu reglur um verðtryggingu
kaups. Frá því fyrirkomulagi
hetfði verið horfið af því að
kauphækkanir hefðu verið
knúnar fram án nokkurs sam-
ræmis við greiðslugetu atvinnu-
veganna, en af því hetfði sprottið
sá vandi, sem vinstri stjórnin
hafði vikið af hólmi fyrir, þ.á.m.
Lúðv. Jósefsison, sem nú við
þessar umræður hefði engu að
síður talað digúrbarkalega.
Ráðherrann lauk ræðu sinni á
þessa leið:
„Ef tekst að semja til langs
tíma um vinnufrið, þá horfir
málið allt öðru visi við en áður.
Jatfnframt er eðlilegt að kann-
að sé, hvort samkomulag næst
um frekari ráðstafanir almenn-
ingi til heilla, svo sem aukið fé
til húsnæðismála, um raunveru-
legar aðgerðir til styttingar
vinnutíma o. fl. Þar koma einnig
til greina þau skattalækkunar-
frumvörp, sem ríkisstjómin
hefur nú fengið samþykkt á
Alþingi.
Samningar um þetta takast
ekki nema því aðeins, að góðvild
og skilningur ríki á alla vegu.
Bæði skilningur á þjóðarhag og
hvað hverjum einstökum er
fyrir beztu. í sjálfu sér þarf
ekki að biðja neinn um að gera
neitt sjálfum sér til óhagræðis
eða fórna neinu, heldur einungis
að íhuga vendilega hvað honum
sjálfum er fyrir beztu. — Við
þurfum umtfram allt að leita
orsaka þess, sem aflaga hefur far
ið, og láta okkur skiliast, að hin
volduvu almannasamtök og rík-
isvaldið verða sameiginlega og
af gagnkvæmri góðvild að finna
þá leið, hvernig árekstraminnst
verður framfylgt þeirri stefnu,
sem kjósendur marka við kosn-'
ingar hverju sinni. Ef menn
aldrei læra, hvað er framkvæm-
anlegt og eyða orku sinni í
tilgangslausa togstreitu, er eigi
kynlegt, bótt margt fari miður en
skyldi. En ef allir þeir, sem
vel vilia og hver hefur miklu
verkefni að gegna á sínum
vettvangi, læra að þeir eru ekki
hver um sig einn í heiminum,
heldur þunfa þeir hver og einn
að vinna með öðrum og virða
einnig þeirra verketfni, þá mun
vel fara. Þá munu menn hætta
að metast um hver. verði eða
hafi orðið ofan á í einskisverð-
um erium, en leggja sig fram
um að levsa þann vanda, sem
biakað hefur þjóðfélagið nú í
aldarfiórðung, en auðnevstur er.
ef þekking, reynsla og samhugur
fá að ráða.
★
Lúðvík Jósefsson (K) sagði
að nú hefði fengizt full reynsla
af viðreisnarstetfnunni ,eftir
fjögurra ára valdatímabil henn-
ar. Tollar og skattar hefðu
margfaldast, húsnæðisvandræði
stóraukizt og mikil lánsfjár-
kreppa skapast. Dýrtíðin væri
ekkert undarlegt fyrirbæri, hún
hefði skapast skv. ákvörðun
ríkisstjórnarinnar, sem beitti
henni sem vonni í deilunni um
skiptingu þjóðarteknanna. Þetta
vopn væri nú að snúast í hönd-
urrt hennar og yrði hennar bana-
biti. Vandamál efnahagslítfsins
væri ekki úrelt atvinnutæki og
otf lágar þjóðartekjur heldur
röng efnahagsstefna. Nú þyrfti
að taka upp nýja stefnu í efna-
hagsmálum, gera ýamkomulag
við launastéttir um kjarabætur,
kauptryggingu, styttingu vinnu-
tíma án launaskerðingar, stór-
átak í húsnæðismálum lækkuB
vöruverðs með lækkun tolla og
afnámi söluskatts o. fL
Guðlaugur Gislasou
Guðlaugur Gíslason (S)
rakti í upphafi ræðu sinnar hina
öru uppbyggingu, sem orðið
hefði hér á landi síðan heims-
styrjöldinni síðari lauk, en i
þeim tíma hefðu íslendingar
endurbyggt og endurskipulagt
atvinnúháttu sína og þjóðfélag-
ið í heild. Þegar litið væri til
hinna miklu framfara, sem orð-
ið hefðu í atvinnuvegum lands-
manna yrði ljóst að margendur-
teknar staðhæfingar stjórnarand
stöðunnar um að allt væri að
fara forgörðum í landinu, væru
harla fávíslegar og óraunhæfar.
Ræðumaður vék síðan að af-
stöðu stjórnarandstöðunnar til
lausnar landhelgisdeilunnar við
Breta veturinn 1961. Kommún-
istar með stuðningi Framsókn-
armanna hefðu haldið svo á land
helgismálinu, að þegar vinstri
stjórnin fór frá völdum í árs-
lok 1958 veiddu Bretar enn við
strendur íslands allt inn að þrem
ur mílunum gömlu án þess að
íslendingar hefðu fengið við
nokkuð ráðið. Hefði ekkert ver-
ið aðhafzt hefði án efa stórslys
hlotizt af því ástandi sem þá
ríkti. Fyrir kommúnistum hefði
fyrst og fremst vakað að íslend-
ingar og Bretar lentu í harð-
vítugum deilum, svo að íslend-
ingar neyddust til að biðja
Bandaríkjamenn um hervernd,
sem leitt hefði til átaka milli
Breta og Bandaríkjamanna.
Núverandi ríkisstjórn kom I
veg fyrir að þessi draumur
kommúnista rættist, sagði Guð-
laugur Gíslason. Ríkisstjórnin
hélt svo á málum að við kom-
umst út úr deilunni með fullri
sæmd og verulegum ávinningL
Lausn fiskveiðideilunnar er
án efa einhver stærsti sigur sem
íslendingar hafa unnið í sam-
skiptum sínum við aðrar þjóðir.
Með henni fékkst full og
óafturkallanleg viðurkenning
Breta á 12 mílna fiskveiðilög-
sögunni og það sem ekki er síður
mikils um vert landhelgi íslend-
inga stækkaði um rúmlega fimm
þúsund ferkílómetra á þýðing-
armestu veiðisvæðum vélbáta-
flotans.
Nú væri árangurinn kominn
í ljós. Erlendum fiskiskipum við
strendur íslands hefði fækkað
mjög og væru nú sárafáir er-
lendir togarar að veiðum kring-
um landið.
Fyrir vélbátaflotann var sam
komulagið alveg ómetanlegt,
sagði Guðlaugur Gíslason. Fiski-
gengdin við suður og suðvestur
ströndina hefur aldrei verið
meiri en nú. Sjómönnum ber
saman um að meiri fiskigengnd
hefur verið innan hinnar nýju
landhelgi á þessu svæði en mprg
undanfarin ár.
Ég held að það hafi verið
gæfa þjóðarinnar að núverandi
ríkisstjórn og þeir flokkar sem
hana styðja hopuðu hvergi og
létu í engu undan síga í sam-
bandi við lausn dei'lunnar þrátt
fyrir linnulausan áróður komm-
únista og Framsóknar fyrir þvi
að halda deilunni áfram, sagði
Guðlaugur Gíslason að lokum.
Eysteinn Jónsson (F) sagði að
ríkisstjórnin héldi dauðahaldi í
þá stefnu, að þegar almenningur
Eramh. á bls. 21 ,