Morgunblaðið - 12.05.1964, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. maí 1964
ÞAÐ LENDA ekki öll brúð-
hjón í eins hættulegum ævin-
týrum á brúðkaupsferð sinni
og írena Hollandsprinsessa og
Carlos Hugo prins af Bourbon
Parma. Fyrstu dagana eftir
brúðkaupið dvöldust ungu
hjónin á Ítaiíu og í Suður-
Brúðhjónin hsett
flugvellinum í
1 Daginn dður lentu þau í drekstri
í Frakklandi en sakaði ekki
Frakklandi, en á leið þaðan
til Spánar lentu þau í árekstri
og bifreið þeirra skemmdist
töluvert, en þau sluppu
ómeidd og einnig farþegar
hinnar bifreiðarinnar.
Eftir þelta ævintýri héldu
brúðhjónin áfram til Madrid,
og næsta dag var haldinn
landsfundur Carlista á Spáni
við Jurra-fjall. Um 50 þús. Car
listar mættu til fundarins, en
það eru þeir, sem vilja að
Carlos Hugo verði konungur
Spánar. Gert hafði verið ráð
fyrir að brúðhjónin kæmu til
fundarins, og á fundarstaðn-
um hafði verið komið fyrir
mörgum spjöidum með áletr-
unum þar sem þau voru boðin
velkomin. írena og Carlos Hu-
go lögðu af stað frá Madrid
fundardaginn í einkaflugvél
prinsins af Stinson-gerð og
var talið að þau ætluðu til
Jurra-fjalls, en hálfri 'klukku-
stund eftir að fiugvélin hóf
sig á loft, sneri hún við. Ekki
lcomSn ú
Madrid
hefur verið tiikynnt af hvaða
ástæðu. Carlos Hugo fiaug
vélinm sjáifur. Þegar hann
kom að flugvellinum í Madrid
á ný, bjó hann sig undir lend-
ingu, en tók ekki eftir lítilli
blárri flugvél, sem var að
taka sig á loft, Bláa flugvél-
in var á braut, sem skar braut-
ina, er Carios ætlaði að nota.
Allt leit út fyrir að þarna yrði
árékstur, en á síðustu stundu
gat flugvallarstarfsmaður skot
ið fltigeldi tii aðvörunar, Car-
los Hugo varð hans var og
tókst að beygja framhjá hinni
flugvélinni.
Carlistarnir við Jurra-fjall
M——CMWÍMWI
urðu mjög vonsviknir þegar
fréttist að Carlos Hugo og ír-
ena myndu ekki koma til
fundarins, en yngri systir Car-
losar Hugos. Maria Cecilia las
kveðju frá brúðhjónunum.
Meðan sem mest var skrifað
um trúlofun írenu og Carlos-
ar Hugos og væntanlegt brúð-
kaup, komu oft fram þær skoð
anir, að ungu hjónin myndu
koma til Carlistafundarins á
Spáni vegna þess hve mikið
áróðursgildi nærvera þeirra
hefði fyrir Carlista og kröfur
þeirra um að Carlos Hugo
verði konungur. Var meira að
segja látið að því liggja að
brúðkaupinu í Róm hefði ver-
ið flýtt til þess að Carlos
Hugo yrði kvæntur þegar
landsfundurinn færi fram og
gæti kynnt konu sína fyrir
fundarmönnum.
BRIDGE
AÐ 23 umferðum loknum í opna
flokknum á Ólympíumótinu i
New York er staðan þessi:
1. England 128 st.
2. Ítalía 120 —
3. Bandaríkin 117 —
4. Sviss 116 —
5. Kanada 106 —
6. Belgía 104 —
7. Ástralía 102 —
8. Brasilía 101 —
9. ísrael 94 —
10. Pólland 93 —
11. Venezúela 93 —
12. Svíþjóð 90 —
13. Argentína 90 —
14. Frakkland 89 —.
15. Filippseyjar 89 —
16. Thailand 89 —
17. Spánn 82 —
18. írland 77 —
19. Suðuy-Afríka 77 —
20. Formósa 75 —
21. Egyptaland 71 —
22. Holland 67 —
23. Líbanon 61 —
24. Jamaiea 59 —
25. Bermúda 58 —
26. Þýzkaland 53 —
27. Mexíkó 50 —
28. Chile 47 —
29. Hollenzku Ant.eyjar 11 —
Að 10 umferðum loknum I
kvennaflokki er staðan þessi:
Nýja Farfuglaheimilið
Farfuglar festa
kaup á húseign
og hyggjast koma þar upp Farfuglaheimili
AÐALFUNDUR Farfugladeildar
Reykjavíkur var haldinn ný-
lega. í skýrslu formanns kom
það m. a. fram, að Farfuglar
hafa fest kaup á húseigninni nr.
41 og 41A við Laufásveg, þar
sem ætlunin er að starfrækt
verði farfuglaheimili í framtíð-
inni.
Farfuglar efndu til fjölmargra
ferða á síðasta ári að venju og
greiddu veg erlendra Farfugla,
sém hingað komu, en þeim fer
fjölgandi ár frá ári.
í sumar verður haldið hér í
fyrsta sinn mót norrænna Far-
fuglaleiðtoga. Stendur það dag-
ana 21. — 23. júní.
i Ragnar Guðmundsson var ein
róma endurkjörinn formaður
Farfugladeildarinnar. Aðrir í
stjórn eru: Þorsteinn Magnús-
son, Sigurður Blöndal, Þórður
Eiríksson, Þórhallur Aðalsteins-
son, Kristinn Zophoníasson og
Eyjólfúr Sigurðsson. Varamenn:
Pétur Ágústsson og Árni Guð-
mundsson.
í „Farfuglinum“, blaði BÍF, er
greint frá sumaráætlun Far-
fugladeildar Reykjavíkur. Ferð-
ir eru um hverja helgi og auk
þess þrjár sumarleyfisferðir,
vikudvöl í Þórsmörk 11. — 19.
júlí, 9 daga ferð í Amarfell hið
mikla og nágrenni 18. — 26. júlí
og 12 daga ferð um Vestfirði
5. — 16. ágúst.
Gunnar Friðriksson end-
urkjörinn forseti SVFÍ
SLYSAVARNAFÉLAG íslands
hélt áfram þingstörfum sunnud.
10. maí. Fastanefndir skiluðu
álitum og voru margar tillögur
samþ. Frá allsherjarnefnd var
samþykkt svo'hljóðandi tillaga:
12. landsþing Slysavarnafél.
íslands vill að fenginni skýrslu
forseta félagsins við þingsetn-
ingu og að athugaðri skýrslu
félagsstjórnarinnar, fyrir árin
1962-1963, með samanburði við
ályktanir 11. landsþings 1962,
votta forseta félagsins og stjórn
félagsins þakkir fyrir árvakra og
farsæla stjórn á málum félags-
ins, út á við og inn á við, þessi
ár, frumkvæði að ýmissi þarfri
nýbreytni og árangursríkri bar-
áttu fyrir málefnalegri og félags-
legri eflingu samtakanna.
Að öðru leyti verða tillögur
þingsins birtar síðar.
Gestir þingsins, sem fluttu er-
indi, voru forstjóri landhelgis-
gæslunnar Pétur Sigurðsson um
kennslu í björgun, Ólafur Jóns-
son, fulítrúi lögreglustjóra, um
umferðarmál, Sigurður Þorkels-
son yfirverkfræðingur um fjar-
skipta þjónustu og dr. Gunnlaug-
ur Þórðarson, sem sýndi og
skýrði tæki til kennslu í lífgun
úr dauðadái.
Þingfulltrúar þáðu á föstudag
boð forstjóra land'helgisgæsl-
unnar og skoðuðu bækistöðvar
hennar á Reykjavíkurflugvelli.
Ennfremur á sunnudag boð
félagsmálaráðherra í Ráðherra-
bústaðnum við Tjarnargötu.
Að lokum fór fram stjórnar-
kjör. Gunnar Friðriksson var ein
róma endurkjörinn forseti félags
ins.
Úr stjórninni áttu að ganga frú
Gróa Pétursdóttir, Rannveig
Vigfúsdóttir og Baldur Jónsson.
Frú Rannveig baðst undan endur
kosningu . Endurkjörin voru
þau Gróa Pétursdóttir og Baldur
Jónsson, en í stað Rannveigar
var kjörin frú Hulda Sigurjóns-
dóttir, Hafnarfirði.
Fyrir voru í stjórninni: Árni
Árnason, gjaldkeri, og Sæmund-
ur Auðunsson, skipstjóri. Einnig
Árni Sigurjónsson, sem komið
hafði inn í stað Jóns Halldórs-
sonar skipstj., Hafnarfirði, er
látizt hafði á kjörtímabilinu.
í varastjórn voru kjörin Jón-
ína Guðjónsdóttir Keflavík, Ein-
ar Sigurjónsson skipstj. Hafnar-
firði, frú Ingibjörg Pétursdóttir,
Reykjum, Sólveig Eyjólfsdóttir,
frú, Hafnarfirði og Geir Ólafsson,
Reykjavík. Sigurjón Einarsson
skipstj. baðst undan endurkosn-
ingu. i
Kjósa átti stjórnarmenn fyrir
Gunnar Friðriksson.
Austfirðingafjórðung og Suður-
land. Endurkjörin voru fyrir
Austfirðingarfj. Árni Vilhjálms-
son erindreki Reykjavík og frú
Þórunn Jakoibsdóttir, Neskaup-
stað, en fyrir Suðurland voru
endurkjörin frú Sigríður Magn-
úsdóttir, Vestmannaeyjum og
Bergur Arinbjarnarson, Akra-
nesi.
Þinginu lauk með hófi í Slysa-
varnahúsinu á sunnudagskvöld
og voru þar flutt mörg ávörp og
ræður.
MálflutmngssKntsloía
Sveinbjörn Dugfinss. hri.
og Einar Viðar, ndl.
Hafnarstræti 11 — Simi 19406
Benedikt Blöndal
heraðsdomslogir.aður
Austurstræti 3. — Simi 10223
1. England 68 st
2. Bandaríkin 57 —
3. Frakkland 47 —
4. Svíþjóð 46 —
5. Egyptaland 46 —
6. Suður-Afríka 45 —
7. írland 40 —
8. Belgía 33 —
9. Venezúela 36 —
10. Danmörk 35 —
11. Kanada 31 —
12. Argentína 23 —
13. Mexíkó 19 —
14. Bermúda 17 —
ÍTALÍA sigraði Frakkland með
41 stigi gegn 10. Spilið, sem hér
fer á eftir, er frá þessum leik og
við annað borðið sátu ítölsku
heimsmeistararnir Forquet og
Garozzo N.—S. og þar gengu
sagnir þannig:
Vestur Norður Austur Suður
1 lauf pass 2 lauf 2 hjörtu
pass 2 grönd pass 3 lauf
pass v * hjörtu Allir pass
A Á742
V 6 5 4
♦ 542
♦ ÁK9
áKD
V K 9 3
♦ K D 10
* D 10 7 6 5
4. 10 8 5
V D 8
♦ G 9 6
♦ G 8 5 3 2
AG963
V Á G 10 7 2
♦ Á 8 7 3
A —
Vestur lét út tígulkóng cg
Garosso. sem var sagnhafi gaf
þann slag, en drap næst með
tigulás, þegar Vestur lét út tigul-
drottningu. Spaði var látinn út,
drepið i borði með ás, laufás og
kóngur teknir og tveir tiglar
látnir í heima. Næst var hjarta
látið út úr borði, drepið heima
með 10 og Vestur fékk slaginn
á kónginn. Vestur lét út lauf, sem
trompað var heima og spaða 6
látið út og Vestur drap með
kóngi og lét út tigul, sem tromp-
aður var heima.
Garosso tók nú hjartaás, og
féll þá drottningin hjá Austur í,
næst tók hann hjartagosa og átti
2 síðustu slagina á spaða.
Frönsku spilararnir á hinu
borðinu spiluðu einnig 4 hjörtu,
en töpuðu tveimur svo spilið var
afar slæmt fyrir frönsku sveit-
ina.