Morgunblaðið - 12.05.1964, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.05.1964, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLADIO Þrið]udagwr Í2. maí 1964 Hermann Guðmundsson setur þingið. Stofnþing Verkamannasambands íslands: Lýsir yfir ánægju með almennar viðræður fulitrúa ASl og ríkisstjórnarinnar STOFNÞING Verkamannasam- bands íslands var sett í félags- heimili Dagsbrúnar og Sjó- mannafélags Reykjavíkur að Lindargötu 9 kl. 2 e. h. laugar- daginn 9. maí. Hermann Guð- mundsson, formaður Verka- mannafélagsins Hlífar í Hafnar- firði setti þingið með ávarpi. Síð- an flutti Hannibal Valdimarsson, forseti Alþýðusambandsins, kveðju- og árnaðaróskir Alþýðu- sambandsins. Þá fór fram athugun kjör- bréfa. 23 félög höfðu tilkynnt þátttöku í stofnun sambandsins, en á þinginu voru mættir 43 full- trúar frá 22 félögum og voru kjörbréf þeirra samþykkt. For- setar þingsins voru kjörnir Björgvin Sigurðsson, Stokkseyri, Guðmunda Gunnarsdóttir, Vest- mannáeyjum og Sigfinnur Karls- son, Neskaupstað. Ritarar voru kjörnir: Tryggvi Emilsson, Rvík og Hallgrímur Pétursson, Hafn- arfirði. Þá flutti Björn Jónsson, for- maður Einingar á Akureyri, fram sögu um hlutverk og starfsemi sambandsins, lög þess og fjár- hagsáætlun. Hófust síðan almenn ar umræður um þennan dag- skrárlið, er stóðu fram að kvöld- verðarhléi. Var þá málinu vísað til 2. umræðu og nefndar. Þingið kaus þrjár starfsnefndir, laga- og fjárhagsnefnd, kjaranefnd og uppstillinganefnd. f upphafi kvöldfundar á laug- ardag flutti Eðvarð Sigurðsson, form. Dagsbrúnar, framsöguræðu um viðhorfin í kjaramálunum. Að loknum almennum umræðum var málinU vísað til 2. umræðu og nefndar. Fyrir hádegi á sunnudag störf- uðu nefndir, er klukkan 2 e. h. hófust þingfundir að nýju, og flutti þá Benedikt Gunnarsson, byggingafræðingur, erindi um vinnurannsóknir og vinnuhag- ræðingu og svaraði fjölda fyrir- spurna þingfulltrúa. Voru þá tekin fyrir nefndar- álit og fyrst samþykkt lög og fjárhagsáætlun fyrir sambandið og síðan ályktun um kjaramál. Þá var kosin stjórn fyrir sam- bandið og er hún þannig skipuð: Formaður Eðvarð Sigurðsson, Reykjavík, varaformaður Björn Jónsson, Akureyri, ritari Her- mann Guðmundsson, Hafnar- firði, gjaldkeri Björgvin Sigurðs- son, Stokkseyri og meðstjórnend- ur: Guðmunda Gunnarsdóttir, Vestmannaeyjum, Sigfinnur Karlsson, Neskaupstað og Óskar Garibaldason, Siglufirði. í vara- stjórn voru kjörnir: Guðmundur J. Guðmundsson, Reykjavík, Margeir Sigurðsson, Sandgerði og Jón Ásgeirsson, Hrísey. Formaður, varaformaður og ritari sambandsins mynda fram- kvæmdanefnd sambandsins. Samþykkt var að næsta þing sambandsins skuli haldið í maí- mánuði 1965 og að þau félög sem ganga í sambandið fyrir þann tíma eða á því þingi skuli teljast stofnfélög. Meðlimafjöldi þeirra félaga er að stofnun sambandains standa er um 8500. Sambandinu- bárust kveðjur og árnaðaróskir frá ýmsum verka- lýðsfélögum, þ.á.m. frá fulltrúa- fundi Alþýðusambands Vest- fjarða. í lok þingsins ávarpaði hinn nýkjörni formaður sambandsins, Eðvarð Sigurðsson, þingfulltrúa og þakkaði þeim störf þéirra á þinginu. _ Meðfylgjandi ályktun um kjaramál samþykkti þingið ein- róma. ÁLYKTUN UM KJARAMÁL Stofnþing Verkamannasam- bands íslands haldið í Reykjavík 9.—10. maí 1964 telur að stefna sambandsins í kjaramálum verka manna og verkakvenna nú og í næstu framtíð hljóti mjög að markast af þeirri þróun, sem í þeim efnum hefur orðið á síðari tímum. Megindrættir þessarar þróunar verða ljósir af þeim staðreyndum að frá lokum síðari hejmsstyrjaldar heft|t ekki, þeg- ar á heildina er litið, verið um að ræða neinar hækkanir raun- tekna miðað við vinnuframlag og vinnutíma hjá verkamanna- stéttinni og hvað lægstu laun þeirra snertir hefur verið um verulegar launaskerðingar að ræða. Mismunur milli launa verkamanna og annarra stétta, einkum hinna hsest launuðu, hef- ur farið vaxandi og alveg sér- staklega síðUstu 4—5 árin. Vinnu tími hefur lengst langt úr hófi fram svo að vinnuþreki, heilsu og eðlilegum lífsháttum er ógn- að. Þessu hefur farið fram þrátt fyrir mjög auknar þjóðartekjur og þar með vaxandi getu þjóð- félagsins til þess að bæta hag vinnustéttanna, sem að -réttu hefði átt að nýta til þess að bæta hag hinna lægst launuðu verka- manna og verkakvenna, sem flestum 'fremur hafa staðið und- ir aukinni framleiðslu þjóðar- innar og þar með bættum hag hennar sem heildar. Þessi þró- un á sér því ekki stoð í neinu réttlæti og er auk þess andstæð þjóðarhagsmunum þar sem hún hrekur vaxandi fjölda dugmik- illa starfskrafta frá undirstöðu- atvinnuvegunum. Verkamannasamband fslands mun skoða það sem meginverk- efni sitt að einbeita kröftum fé- laganna, sem að því standa og samtakamætti þeirra til þess að hér verði gerbreyting á: Að sem jafnaStar og öruggast- ar kjarabætur til handa verka- mannastéttinni komi árlega til framkvæmda, vinnutími verði styttur í áföngum og án skerð- ingar heildartekna, fullkomnu launajafnrétti kvenna og karla verði komið á á sem allra skemmstum tima, orlofsréttindi aukin og hlutur verkamanna- stéttarinnar miðað við aðrar launastéttir verði bættur. Nú um sinn telur Verkamanna- samband fslands að megin- áherzlu beri að leggja á stöðvun verðbólgu og sívaxandi dýrtið- ar jafnhliða raunhæfum aðgerð- um í framangreinda átt. Stofn- þing sambandsins lýsir því fyllsta stuðningi sínum við ný- lega gerða ályktun ASÍ um kjara mál og við þann grundvöll, sem þar er lagður að samkomulagi og samstarfi við ríkisvaldið um stöðvun verðbólgunnar samhliða aðgerðum til raunhæfra kjara- bóta. Vill þingið lýsa ánægju sinni yfir því að alvarlegar við- ræður eru nú hafnar um þessi mál milli fulltrúa ASÍ og ríkis- stjórnarinnar og telur brýna nauðsyn á að þeim viðræðum verði lokið hið fvrsta með já- kvæðum árangri. Þá vill þingið ennfremur lýsa fvllsta stuðningi við þau veraklýðsfélög á Norð- ur- og Austurlandi, 23 að tölu. sem nú eiga í sameiginlegum samningúm við atvinnurekendur og telur málstað þeirra sinn mál- stað. sem það vill styðja af fremsta megni. Fari svo, mót von þingsins, að ekki reynist sá vilji til sam- starfs og óhjákvæmilegra að- gerða fyrir hendi hjá ríkisvald- inu og samtökum atvinnurek- enda, er einsætt að eins ög nú er komið málum er þá sá einn kóst- ur fyrir hendi að verkalýðshreyf- ingin beiti öllum mætti samtaka sinna til þess að fá hlut umbjóð- enda sinna réttan. í því sam- bandi varar þingið ríkisvaldið af fullkomnum alvöruþunga við öllum hugsanlegum tilhneiging- um eða tilraunum til valdbeit- ingar, gegn frjálsum samnings- og samtakarétti verkalýðssam- tak.anna og lýsir yfir því að slíkt verður ekki þolað af hálfu Verka mannasambandsins hvorki í lengd. eða bráð. í samræmi við framangreinda stefnu Verkamannasambandsins í kjaramálum og henni til stuðn- ings felur stofnþingið væntan- legri stjórn sambandsins að gæta sameiginlegra hagsmuna sam- bands félaganna með sem nán- ustu samráði við Alþýðusam- Skipstjóra vantar nú þegar á 100 smál. síldarbát. Umsækj- endur sendi nöfn sín til Morgunblaðsins fyrir n.k. fimmtudag merkt: „Skipstjóri 9712“. Óskum að taka á leigu í einn mánuð Traktor með ámoksturstækjum. Uppiýsingar í símum 32676 og 16354. Höfum opnað bílaleigu að Skipholti 21. Vinsamlegast reynið viðskiptin. BÍLALEIGA MAGNÚSAR Skipholti 21. — Sími 21190. band íslands og við þau verka- lýðsfélög sem nú eiga í samn- ingum eða undirbúa nú samn- ingsgerð við samtök atvinnurek- enda. Kastaði flösku í bifreið — og var sleginn í rot fyrjr AÐFARANÓTT laugardags barst lögreglunni tilkynning um að maður hefði verið sleginn niður í Lækjargötu og lægi þar í roti. en árásarmaðurinn hefði haldið af staðnum í bíl. Við athugua kom í ijós, að sá meðvitundar- lausi, sem var drukkinn, hafðl kastað tómri flösku beint fram- an á bíl, sem ekið var eftir göt- unni. Snaraðist þá einn farþeg- anna, einnig við skál, út úr bíln um og rétti þeim sem kastaði svo vel úti látið högg að hann rotaðist. Maður þessi náðist skömmu síðar og viðurkenndi að hafa. slegið hinn. — Þess skal geta að sá, sem barinn var, gerir engar kröfur vegna þessa, sök- um málsatvika. JOHANN ragnarsson héraðsdómslögmaður Vonarstræti 4. — Suni 19085. Hópferðabilar allar stærðir e ínrimaK Sími 32716 og 34307 MÚRBOLTAR í öllum stærðum Vald. Poulsen hf. Klapparstíg 29. — Sími 13024 ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er langtuim ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrurn blöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.