Morgunblaðið - 26.06.1964, Blaðsíða 2
2
MORCU N BLADIÐ
ITSstudagur 28. jfiní 1984
Ekki er að vísu byrjað að salta fyrir alvöru fyrir norðan. Þó er þetta fyrsta síldarsöltunin á Siglu-
firði, nánast æfing. Saltaðar voru 10 tunnur til einkaafnota í einnisöltunarstöðinni á Siglufirði á
þriðjudagsmorgun. — (Ljósm.: SK)
Hertoginn af Edinborg
kemur á þriðjudag
SVO sem áður hefir verið skýrt |
frá mun Hans Konunglega Tign
Hertoginn af Edinborg koma í
heimsókn til íslands á snekkju
konungsfjölskyldunnar „Brit-
annia* og dvelja hér 30. júní til
3. júlí.
Hertoginn mun stíga í land á
Loftbryggju kl. 17, þriðjudaginn
30. júní og verður ekið þaðan til
Alþingishússins, þar sem hann
gengur fram á svalirnar ásamt
forseta íslands. Þar býður for-
setinn hann velkominn,, en her-
toginn svarar með stuttri ræðu.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
þjóðsöngva beggja landanna við
þetta tækifæri.
Miðvikudaginn 1. júlí verður
farið til Þingvalla og í Borgar-
fjörð og dvalið þar fram eftir
degi. Þennan dag kl. 19.00 mun
hertoginn, ásamt forseta Ísland3
koma með flugvél til Akureyrar.
Verður ekið í Lystigarðinn þar
sem forseti bæjarstjórnar býður
hertogann velkominn til Akur-
eyrar, en hann svarar.
Að morgni föstudagsins 3. júli
mun hertoginn fara í heimsókn
í brezka sendiráðið og hitta þar
brezka þegna á íslandi og heldur
síðan flugleiðis heim á hádegi
þann dag.
(Fréttatilkynning frá skrif-
stofu forseta íslands).
Fjórðungsmót hestumannu við
Húnaver um næstu helgi
Veður ágætt og skipin að kasta
í GÆRKVÖLDI var veður ágætt
á sildarmiðunum og skipin mikið
að kasta. Leitarflugvélin fór á
loft kl. 7 og hafði séð torfur á
svæðinu 18—43 míiur austur af
Bjarnarey. í gærmorgun var
bræla á miðunum og því ekki
veiði fyrr en í gærkvöldi.
Á Raufarhöfn eru allar þrær
full.tr og biðu löndunar í gær-
kvöldi Þórsnes með 600 mál,
Grundfirðingur II með 250, Dofri
með 350, Reykjanes með 650,
Hólmanes 800, Fjarðaklettur 700.
Fjarðaklettur hafði veitt næst
landi, og var síldin úr honum
rannsökuð. Reyndist 65—70% af
sítdinni hafa 21—22% fitumagn
og lengdin var 36—38 sm.
Síldarleitinni á Raufarhöfn
var kunnugt um afla þessara
skipa frá kl. 7 í gærmorgun:
Guðmundur Péturs 900, Har-
aldur AK 900, Sigurpáll 800, Hall
dór Jónsson 700, Pétur Jónsson
350, Guðbjörg Ólafsfirði 700,
Fjarðaklettur 700, Húni 600, Ak-
urey RE 900. Faxaborg 750,
Reykjanes 650, Guðrún GK 700,
Pétur Sigurðsson 500.
90 þúsund mál þegar
brædd á Siglufirði
Siglufirði. — Nýlokið er
bræðslu í síldarbræðslum Síldar-
verksmiðja ríkisins og Rauðku,
en þar hefur verið unnið á vökt-
um allan sólarhringinn undan-
farið. Hafa SR á Siglufirði þegar
brætt um 53 þús. mál og Rauðka
milli 37 og 38 þús. mál.
í kvöld og nótt er von á nokkr-
um skipum til Siglufjarðar og
hafa m.a. eftirfarandi skip til-
kynnt komu sína til Rauðku:
Bergur VE, Guðmundur Péturs
ÍS, Gjafar VE, Árni Magnússon
GK og Sólrún ÍS.
Ein söltunarstöð saltaði fyrir
nokkru í 10 tunnur, nokkurs kon-
ar tilraunasöltun, stóra síld og
fallega. Mun það vera fyrsta
Norðurlandssöttunin á sumrinu.
Fólk hér tekur niðurstöðum
úr samrannsókn norsk-íslenzk-
rússneska leiðangursins misjafn-
lega. Flestir eru þó bjartsýnir á
sumarið, telja niðurstöður benda
til hagstæðari sjávarhita, vaxandi
átu og svifs í sjónum, sem þýða
muni jákvæðari líkur til góðrar
síldveiði út af Norður- og Norð-
austurlandi.
Allmörg skip munu hugsa til
þess að ísa síldina, til þess að
geta flutt hana lerigra til söltun-
ar, m.a. skip Haraldar Böðvars-
sonar frá Akranesi, en hann rek-
ur söltunarstöð hér á Siglufirði.
— Stefán.
Landanir á Norðfirði
Neskaupstað, 25. júní — Síð-
asta sólarhring hafa eftirtalin
skip komið hingað með síld:
Skagaröst 750 mál, Guðbjartur
Kristján 1000, Sigurður SI 700,
Rán SU 650, Rifsnes 800, Mímir
500, Vörður 300, Sigurvon AK
700, Stjarnan 600, Jón á Stapa
700, Páll Pálsson 700.
Ágætt veður er nú á miðunum
og gott útlit með veiði. Tungu-
foss lestar hér í dag um 600 tonn
af síldarmjöli. — Ásgeir.
Gert við fiskleitartæki
á Vopnafirði
Vopnafirði, 25. júní. — Frá sl.
laugardegi hafa 26 skip komið
með 18 þús. mál til Vopnafjarð-
ar. Aflahæstu skipin eru: Jón
Jónsson 522 mál, Sólfari 1126,
Guðbjörg GK 1205, Faxaborg
545, Sigrún AK 1070, Ársæll Sig-
urðsson 876, Steinunn 744, Straum
nes 782, Friðbert Guðmundsson
676, Árni Geir 702, Hafrún ÍS
1150, Sunnutindur 800. Þessi
skip eru búin að landa. Hér bíða
Skarðsvík 1100, Vigri 1250, Arn-
kell 900, Ársæll Sigurðsson 800.
Þegar landað hefur verið úr þeim
bátum sem bíða, hefur verksmiðj
an tekið á móti 65.400 málum.
Tunnuskip er hér í dag með
tómar tunnur og salt. Þá verður
sú nýbreytni á þessari síldarver-
tíð, til bættrar þjónustu við síld-
veiðiskipin, að viðgerðarmenn
verða hér, sem annast viðgerð á
ratsjám og fiskleitartækjum,
bæði fyrir Decca Elak og Simrad
greðir. Viðgerðarmaður Decca er
þegar kominn og hefur ærði nóg
að starfa. En Simrad-viðgerðar-
maðurinn kemur ekki fyrr en í
næsta mánuði.
Sérstök veðurbliða hefur ver-
ið hér, það ser» af er vikunni.
— S. J.
Landanir á Eskifirði
Eskifirði, 25. júní. — Þessir
bátar hafa landað hér í dag eða
liggja inni og bíða löndunar:
Vattarnes með 1200 mál, Jón
Kjartansson 1500, Steingrímur
trölli 1150, Ögri 1100, Seley 800,
Auðunn 750, Akurey SF 2000,
Blíðfari 350.
Bræðslan á Seyðisfirði
gengur sæmilega
Seyðisfirði. — Bræðslan hér
er nú farin að ganga sæmilega,
skilaði 3500 mála afköstum sl.
sólarhring. Virðist hún því vera
að komast í dag. Hér bíða núna
í kvöld 2500 mál í skipum. — f
kvöld eru skipin í síld í Vopna-
fjarðardýpi og veður orðið sæmi-
legt, en í morgun var bræla á
miðunum. — S.G.
VÍÐAST um landið er slá.ttur nú
bjrjaður, og þrátt fyrir slæmt
gróðrarverður um mestallt land-
ið í vor, mun sláttur ekki al-
mennt byrja seinna nú en í
maðalári. Fréttamaður Mbl. hitti
Gísla Kristjánsson í gær og
spjallaði um þetta við hann, en
hann hefur mikið samband við
Lændur um land allt.
Beztu staðirnir, þar sem fyrst
var byrjag að ilá, voru Mos-
fellssveitin og er verið að hirða
af fyrstu túnum þar núna.
Nokkru síðar var farið að slá
í Eyjafirði og í lágsveitum Sunn-
anlands. Og er iláttur nú sem
sagt byrjaður víðast hvar, þó
I með nokkrum undantekningum.
Þurrkar og kuldar hafa staðið
I fyrir sprettu víðast hvar í vor,
/ svo að á mörgum stöðum var það
BLÖNDUÓSI, 25. júní — Bún-
aðarfélag íslands og Lands-
samband hestamannafélaga
gengst fyrir fjórðugsmóti hesta-
manna, er haldið verður að Húna
veri næstkomandi laugardag
og sunruidag. En fjórðungsmót
eru haldin 5. hvert ár til skiptis
í fjórðungum. Fara þar fram
kappreiðar og sýningar góð-
hesta og kynbótahrossa. Nær 50
hestar eru skráðir á kappreið-
arnar og verða þeir bæði af
Norðurlandi og Suðurlandi. Á
sýningunni verða um 50 góð-
hestar og 60 kynbótahross.
Undanrásir í kappreiðunum
fara fram kl. 17 á laugardag, en
að öðru leyti fer sá dagur í dóm-
arastörf. Mótið verður sett kl.
Skólaneínd Carð-
yrk juskólans og
stjórnarnefnd
Laxveiðistöðvar-
innar
FYRIR nokkru skipaði landbún-
aðarráðherra eftirtalda menn í
skólanefnd Garðyrkjuskóla rík-
isins, Reykjum Ölfusi: Hafliði
Jónsson, garðyrkjustjóri, formað
ur, Jón H. Björnsson, skrúð-
garðaarkitekt, og Ragna Sigurð-
ardóttir frú, Þórustöðum ölfusi.
Ennfremur hafa eftirtaldir
menn verið skipaðir í stjórnar-
nefnd Laxeldisstöðvarinnar í
Kollafirði: Þór Guðjónsson,
veiðimálastjóri, Jón Sigurðsson,
deildarstjóri, Sigsteinn Pálsson,
bóndi, Blikastöðum, Svanbjörn
Frímannsson, bankastjóri og
Guðmundur R. Oddsson, for-
stjóri.
(Frá landbúnaðarráðuneytinu).
orðið áhyggjuefni. En nú undan-
farna daga hefur hið langþráða
regn komið og vaxtarskilyrði
vtrið ágæt Norðanlands að und-
anförnu. Er gróður því kominn
vel áleiðis og horfur orðnar góð-
ar. En alltaf er eitthvað að, og
undanfarið hefur sums staðar
eins og t. d. í Skagafirði verið
svo hvasst að varla hefur verið
hægt að ver* í heyi.
Þó horfur séu orðnar góðar
um slátt, er það þó ekki alveg
biettalaust alls staðar á landinu,
því mjög kalt hefur verið á nótt-
unni og sums staðar á Norður-
og Austurlandi farið niður fyrir
frostmark Hefur Gísli haft spurn
ir af því að á hluta af Héraði
hafi frostði farið niður í 6 stig
að nóttu 16. jú»í og féllu kart-
öflugrös.
11 á sunnudaginn af Einari G»
Sæmundsen, formanni Lands-
srmbands hestamannafélaga.
Þorsteinn Sigurðsson, formaður
Búnaðarfélags íslands flytur
ræðu. Karlakór Bólstaðahlíða-
hiepps syngur. Dansleikir verða
í Húnaveri bæði kvöldin.
Munu hestame»n koma mjög
víða að, einkum af Norðurlandi,
en einnig úr Reykjavík og Ár-
nessýslu. Verður komið fyrir
stórri tjaldbúð og einnig dansað
í tjaldi þar. Hafa verið fengnar
tvær hljómsveitir til að leika
l'yrir dansi. — B.B.
Lögreglan bjar«;ar
koiiu úr höfninni
í FYRRINÓTT bjargaði lögregl-
an konu úr höfninni. Þetta gerð-
ist um kl. 2 um nóttina. Lögreglu
menn á eftirlitsferð sáu til konu
á Verbúðarbryggjunni. Allt í
einu kastaði hún sér í sjóinn.
Einn lögreglumannanna hljóp til
og kastaði sér á eftir henni, náði
henni og hélt henni uppi, en
djúpt var þarna og ekki hægt að
komast upp.
Hinir lögreglumennirnir náðu
í lóðsbátinn og drógu konuna og
lögregluþjóninn upp í hann. Kon
an var miður sín af áfengis-
neyzlu.
Bjarni Benedikts-
son frá Húsavík
látinn
BJARNI Benediktsson, fyrrver-
andi póstafgreiðslumaður á
Húsavík, lézt í gær á 87. aldurs-
ári. Hann rak um fjölda ára
verzlun og gistihús á Húsavík
og var þjóðkunnur maður. Bjarni
hefur átt heima í Reykjavík
síðan 1954.
Kvæntur var Bjarni Þórdísi
Ásgeirsdóttur frá Knarranesi a
Mýrum. Eignuðust þau 15 börn
og eru 13 þeirra á lífL
UM HÁDEGI var lægð yfir rigningu annað slagið suð-
Grænlandshafi og önnur að vestan lands. Á meginland-
myndast um 500 km. suðvest- inu austan hafs er nú bjart
ur af Reykjanesi. Mun hún og hlýtt veður, t. d. 22 stiga
fara hratt norðaustur yfir hiti í London og París og 18
landið og eru enn horfur á stig í Kaupmannahöfn.
Sláttur víðast byrjaður
Vaxtarskilyrði bötnuðu eftir kulda og þurrka