Morgunblaðið - 03.07.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.07.1964, Blaðsíða 1
24 síðuf Mannréttindalögin samþykkt (Ljósm. Mbl.: Ól.K.M.) = Við fuglaskoðun á Mývatni í nánd við Höfða. Philip prins situr skuti bátsins. I Fálkahreiður jók | vatnsferðarinnar | Philip prins flaug sjálfur | ‘Vorinu4 til Reykjavíkur á ánægju Mý |j A Ð sjálfsögðu ber öllum H saman um, sem voru í för § með hertoganum af Edin- jj§ borg í Mývatnssveit í gær, 1 að dagurinn hafi verið hinn g ánægjulegasti og hafi her- SE toganum líkað sveitin og = fuglalífið mjög vel. Veður = var nú hið bezta eftir und- S| anfarandi stórrigningar. — IEkki sá þó ýkja oft til sól- ar, en rigning var að heita _ engin, en hinsvegar góður H andvari, sem hélt mývargin = niðri og mun hann lítt = eða ekki hafa angrað gest- 1 ina. Forseti íslands, herra Ás- Igeir Ásgeirsson, tjáði frétta- manni Morgunblaðsins um miðjan dag, að veðrið og Mý = vatnssveit hefði tjaldáð sínu % fegursta, eins og hann orðaði p það. Sagði forsetinn Philip = mjög ánægðan með Það sem hann sá hér og sömu sögu sögðu aðrir. Er prinsinn fór héðan í flug vél Björns Pálssonar á fimmta tímanum í gær, virtist hann í sólskinsskapi, veifaði og brosti jafnvel undir lokin framan í ljósmyndavélar, og þótti mörgum það stinga i stúf við það sem á undan var gengið, en að vera ljósmynd- ari í Mývantssveit í gær var starf, sem enginn þyrft; að öfunda neinn af. ★ ★ Komu hertogans hingað á miðvikudagskvöld seinkaði mikið sökum veðurs. .Varð hann að aka frá Akureyri, þar eð flugveður var ekki. Kom hann hingað kl. hálf tvö í fyrrinótt. Tóku á móti hon- um sýslumaður Þingey- inga, Jóhann Skaftason, dr. Finnur Guðmundsson, fugla- fræðingur og fleiri. Hélt prins inn þegar til hvílu, enda hafði hann þá verið á látiausu ferða lagi í nítján klukkustundir. Forseti íslands ræddi stundarkorn við fréttamenn, er að Hótel Reykjahlíð kom. Hann sagði meðal annars, að hann hefði innt Philip eftir því, hvort hann vildi hætta við Mývatnsferðina vegna veðurs, en prinsinn hefði lagt mikla áherzlu á að kom- ast hingað. Þá sagði for- setinn að Philip hefði hugað að fuglum alla leiðina frá Akureyri og spurt margs um landið, sem honum hafi likað vel þrátt fyrir rigninguna. ★ ★ Kl. 9 í gærmorgun snæddu prinsinn og forseti ásamt föru neyti þeirra morgunverð að Hótel Reykjahlíð. Ráðgert' hafði verið að hádegisverður yrði snæddur þar kl. hálf eitt, eh að ósk Philips var því breytt. Fengu þeir með sér nesti frá hótelinu og snæddu það síðar um daginn í Höfða, sumarbústað 'Héðins heitins Valdimarssonar skammt frá Reykjahlíð. Að morgunverði loknum var haldið af stað í hringferð umhverfis Mývatn, undir leiðsögn dr. Finns Guðmunds sonar. Lögreglubíll ók fyrir bil prinsins og á eftir fylgdi föruneytið. Milli þessarar lest ar og bíla blaðamanna var komið fyrir þremur lögreglu- bílum til þess að blaðamenn kæmust hvergi nærri. Hélzt þetta fyrirkomulag allan tím ann og vorum við yfirleitt um kílómetrá á eftir hertog- anum, ef ekki meira. Var því oft erfitt um vik. Á leið sinni nam prinsinn staðar nokkrum sinnum og hugaði að fuglum, en lengst staldraði hann við, þar sem Laxá í Þingeyjarsýslu fellur nr vatninu. Þar gengu þeir dr. Finnur um góða stund, og sáu bæði straumendur og hús endur, en þær andartegúndir verpa ekki annars staðar í Evrópu. Lék prinsinum því mikill hugur á að sjá þær og mynda. Var þetta því há- punktur ferðalagsins, að því ef til vill undanskildu er prinsinn skoðaði fálkahreiður í Dimmuborgum síðar um daginn. " Frá upptökum Laxár var síðan ekið í átt til Skjól- brekku og þar nam prinsinn enn staðar og tók myndir út um gluggann. Áður hafði það gerzt við Laxá, að Philip bað bílstjórann að víkja úr sæti og settist sjálfur undir stýri. Ók hann síðan sjálfur það, sem eftir var. Við Skjólbrekku gerðist það og, að Philip sá ljós- myndara í 70—80 metra fjar- lægð frá sér á þjóðveginum. Var hann þá að ganga niður að vatninu en snerist á hæli, benti og veifaði og fór inn i bilinn, en fylgdarmenn hans Framh. á bls. 10 liimmiiimimmiiiiiuiiiiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimmmiiiiiiimiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiimiiiuiiimiimiiiiiiHiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimmiiiiiimmmiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimiiiiiimi 289 með á móti 126 — Víðtækasta mann- réttindalöggjöf USA frá því á árunum eftir borgarastyri öldina 1861 - 65 Washington, 2. júlí. AP-NTB. • í KVÖLD kl. 6.45 að staðartíma (kl. 22.45 að ís- lenzkum tíma) undirritaði Lyndon B. Johnson, forseti Bandaríkjanna, lögin um auk in réttindi hlökkumanna — mannréttindalögin („Civil Rights“), sem John F. Kenne- dy, forseti, lagði fyrir Banda- ríkjaþing fyrir rúmu ári. Er hér um að ræða víðtækustu mannréttindalöggjöf, sem sett hefur verið í Bandaríkjunum frá því á árunum eftir borg- arastyrjöldina 1861—65. • Fyrr í dag hafði frumvarp ið verið samþykkt í fulltrúa- deild þingsins með 289 at- kvæðum gegn 126. Lögin tóku þegar gildi, er Johnson hafði undirritað þau. Var útvarpað og sjónvarpað Jrá þeirri at- höfn, er fram fór í Hvíta hús- inu. • Leiðtogi hlökkumanna, séra Martin Luther King, hef- ur lýst því yfir, að hann muni þegar á morgun veita himun nýju lögum eldskírn. Hyggst hann fara ásamt nokkrum öðr um vinum sínum til hádegis- verðar í veitingahúsið í St. Augustine í Florida, þar sem hann var handtekinn í síð- Framh. á bls. 15 Dómur í móli Helonders í dog Stokkhólmi, 2. júlí NTB • Á morgun, föstudag, verður kveðinn upp dómur í máli Dicks Ilelanders, biskups — og verður sá dómur væntanlega hinn end- anlegi í þessu dramatíska máli. Nær ellefu ár eru liðin frá því Helander biskup var í fyrsta sinn sekur fundinn um að hafa skrifað hin nafnlausu bréf og dreift þeim fyrir biskupskjörið í Strængnæs biskupsdæmi árið 1952. f haust var málið tekið fyrir af Lögmannarétti Stokkhólmsborg- ar „Svea Hovrætt“, að boði hæsta réttar, pg stóðu réttarhöldin yfir í sjö mánuði. Fjórir dómarar hafa sl. þrjá og hálfan mánuð athugað dómskjölin og ákveðið dómsúr- skurðinn. Upphaflega voru þeir fimm, en formaður réttarins Carl Axel Durling lö'gmaður, fékk aðkenningu að slagi og varð að láta af störfum fyrir nokkru.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.