Morgunblaðið - 03.07.1964, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.07.1964, Blaðsíða 3
3 Föstudagur 3. júíí 1964 MORGUNBLAÐIÐ niiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiL | SÍÐASTLIÐINN miðvikudag £ var skiphöfninni á snekkju = brezku konungsfjölskyldunn- M ar, Britannia, boðið í kynnis- = ferð um Þingvelli og til Hvera = gerðis. Ferðaskrifstofa ríkis- = ins sá um ferðina, sem farin S var í þremur langferðabifreið- S um. Leiðsögumenn voru dr. = Gunnlaugur Þórðarson, Valtýr S Pétursson, listmálari, og kona = hans, Herdís Vigfúsdóttir. — £ Veður var hið versta, rign- = ingarsúld og kaldi, þegar lagt £ var af stað frá Loftsbryggju. Blaðamaður Morgunblaðs- Floti hennar hátignar að Lögbergi. Valtýr Fétursson heldur tölu um sögu staðarins. £ ins, sem var með í förinni, sat = fyrsta spöl leiðarinnar í bíl S dr. Gunnlaugs. Þar voru ein- £ göngu yfirmenn í flota henn- £ ar hátignar. Dottuðu sumir = þeirra, er ekið var inn Suður- £ landsbraut og Gunnlaugur = sagði sögu Reykjavíkur, benti £ á „skýjakljúfana" og útskýrði = hitaveituna. „Hvað gerið þið £ við vatnið, þegar þið eruð £ búnir að nota það til að kynda £ upp húsin?“ spurði einn „Við £ hendum því í sjóinn til að- £ stoðar golfstraumnum", svar- £ aði blaðamaður. „Það er gott £ að vita að þið styrkið gott mál £ efni. Skotarnir fá víst leifarn- £ ar af golfstraumnum eftir ykk £ ur“, sagði þá liðsforinginn og £ brosti breitt. „Ekki veitir £ þeim af greyjunum, þeir £ ganga í pilsum og eru buxna- = lausir undir“. „Þér eruð greini £ lega ekki Skoti“. „Nei, ég er £ Lundúnabúi, eða réttara sagt £ var það. Nú á ég heima á H snekkjunni og hún er á sí- §§ felldri hreyfingu um allan £ heim. Heimili okkar allra er E sem sagt í Reykjavíkurhöfn £ núna“. Hinir hlógu og einn £ þeirra sagði: „Mér lízt nú bara prýðilega á Reykjavík. Þetta er með allra fallegustu bæjum, sem ég hef séð. En ég Loksins kom gosiff. ^ er ekki dús við sumarveðrið ykkar. Er það alltaf svona?“ Við svöruðum því neitandi og Gunnlaugur sagði fallegar sög ur af vetrarveðrinu á íslandi. Þegar við ókum Þingvalla- veginn fram hjá Mosfelli tók Gunnlaugur að segja Bretun- um frá Agli Skallagrímssyni og eftir það dottaði enginn. Þeir skemmtu sér vel, þegar þeir heyrðu af fyrstu afrek- um hans í bernsku, einkum er hann drap leikbróður sinn 7 ára. „Þetta hefur verið mesti efnispiltur", varð ein- hverjum'á orði. Margir höfðu heyrt minnzt á Egil áður, en þegar við keyrðum framhjá Gljúfrasteini, kom það upp úr kafinu, að enginn hafði heyrt Laxness getið. í Almannagjá var numið staðar. Stýtt hafði upp og voru sjóliðarnir mjög hrifnir af staðnum. Valtýr Pétursson hélt tölu, fræddi þá um sögu Alþingis hins forna og sýndi þeim helztu staði, svo sem Lögberg og búðarústit. Er haldið var af stað aftur og Gunnlaugur benti á Drekk- ingarhyl ofan við Öxarár- brúna, lét hann fylgja, að þar hefði þeim konum verið drekkt forðum daga, sem reynzt hefðu ótrúar eigin- mönnum sínum. „Þetta ætti að gera við sjómannskonur í Englandi“, sagði einn skip- verja. „Valhöll var bústaður guð- anna“, sagði Gunnlaugur, er við nálguðumst hótelið. „Þar börðust framliðnir við guðina á daginn, en drukku með þeim dýrar veigar á nóttunni. = Við drekkum' samt bara te £ núna“. £ Teið var drukkið í Valhöll £ og síðan haldið áfram förinni. £ Vorum við nú í bíl Valtýs. £ Hans bíll var fullur af sjólið- £ um, sem voru mjög áhuga- £ samir og spurðu margra spurn £ inga um allt, sem á vegi þeirra £ varð. Útsýnið var mjög slæmt £ eins og áður. Valtýr lýsti því, £ sem ekki sást vegna skýja, £ svo sem Heklu og sveitunum §§ austan Hvítár. Segir fátt af £ ferðum okkar fyrr en komið £ var til Hveragerðis. Þar var £ fyrst skoðuð gróðrarstöðin £ Edin. „Það þýðir samt ekkert = að svipast um eftir Evu“, £ sagði Valtýr. „Hún er í fríi“. £ Sjómennirnir létu í ljós undr- £ un sína yfir öllum þeim plönt- £ um, sem þarna þrífast. Á £ dauða sínum höfðu þeir átt £ von á íslandi, en ekki banön- £ um og vínþrúgum. Þá var gengið að borholu £ nokkurri í Hveragerði. Valtýr £ sagði Bretunum, að ekki þyrfti £ annað en að setja dálítið af £ karbíti í holuna til þess að £ upp gysi gufan í miklum £ strók. Bað hann menn að vera £ vel á verði og dreifði hópur- £ inn sér áveðurs við opið. Kom £ nú kona nokkur með karbít- S fötu og lét smáslatta detta = niður í holuna. Flýttu menn jjf sér að færa sig fjær og voru £ Við öllu búnir, en ekkert £ skeði. Lengi stóðu menn þarna £ á öndinni og biðu. Svo var far £ ið að rigna. Konan með karbít = ið setti annan skammt í opið. £ Framhald á bls. 15 iiiiiiiiiiiiimiiimuiiimiiimiiiimiiiiiiiiimnumiimiiimiiiiimmiuimiiiiiiiiimMmiiiiimiiiiiimiimiiiimiMiiim STAKSTEINAR Framsóknarmenn og Austurland I tíð núverandi rikisstjórnar hafa miklar framfarir orðið i Austurlandskjördæmi. Atvinnu- v uppbygging hefur verið geysimik il og sanijgöngur batnað til muna. IJagur fólksins þar stendur nú yfirleitt með miklum blóma. En um leið og þessari þróun er " fagnað, er ástæða til þess að minnast þess, að Austurland er sá landshluti, þar sem framfarir bafa verið minnstar á íslandi undanfarna áratugi. Uppbygging í sveitunum fyrir austan er að- eins nýlega hafin, enda hafa bændur þar átt í erfiðleikum vegna þess að búin hafa verið of lítil. Þessi staðreynd er því athyglis verðari, þegar það er haft í huga, að Austurland hefur verið höfuð- vigi Framsóknarflokksins um ára tugaskeið og þar hefur Eysteinn ríkt og stjórnað. Á þessum tima befur Eysteinn verið ráðherra nær óslitið um tveggja áratuga skeið. Er það ekki furðulegt, að bann skuli ekki hafa beitt hin- um miklu áhrifum sinum til þess a.m.k. að Austurland drægist ekki aftur úr öðrum landshlut- um í atvinnulegri uppbyggingu? En það hefur hann ekki gert. Á valdatímum Eysteins Jónssonar gerist ekkert á Austurlandi. At- vinnuuppbygging lítil og sam- göngur slæmar. Það er ekki fyrr en með valdatöku núverandi rík isstjórnar, að það fer að birta til á> Austurlandi og fjör færist í atvinnulífið, hagur fólksins batn ar. Hvers vegna gerði Eysteinn ekkert? Það er því engin furða, þótt Austfirðingar spyrji:: Hvað var Eysteinn Jónsson að gera þessa tvo áratugi, sem hann sat í ríkis- stjórn? Hvers vegna vann hann ekki betur að framfaramálum þeirra, sem sýndu honum mestan trúnað? Framsóknarmenn og Eysteinn Jónsson geta engan veginn snúið sig út úr því, að á Austurlandi, höfuðvígi þeirra um ára tuga skeið verða litlar sem engar fram farir á mesta valdatíma þeirra sjálfra. Það er vissulega ástæða til þess fyrir Austfirðinga að velta þessu fyrir sér, íhuga orsak ir þess. Sannleikurinn er sá, að ástand- ið á Austurlandi á valdatímum Framsóknarflokksins og Eysteins Jónssonar er einkennandi fyrir það ástand, sem Framsóknar- menn vilja viðhalda. Þeir vilja höft og ófrelsi, svo að fólk sé þeim háð. Þeir vilja halda fólki niðri. Þeir vilja gera það sér og sínum flokki háð. Framsóknarböndin bresta Það er vissulega ánægjulegt, að valdatímabil Framsóknarflokks- ins er nú á enda. Enda létu Aust- firðingar ekki á sér standa, þegar þeir losnuðu úr Framsóknarviðj- unum. Atvinnuuppbygging er þar nú geysiör bæði til sjávar org til sveita. Ungir menn brjótast áfram af miklum dugnaði við að koma sér upp atvinnufyrirtækjum, bátum, ,• söltunarstöðvum og myndarleg- um búum. Þar með er hin at- vinnulega einokun Framsóknar- flokksins rofin, en hvergi á ís- landi hefur misnotkun Framsókn arflokksins á samvinnuhreyfing- unni verið eins mikil og þar. í þeim efnum gerast raunar hlutir enn þann dag í dag, sem menn liéldu að ekki gerðust lengur á íslandi. En Framsóknarmenn cru alltaf samir við sig hvar sem þeir geta. því við komiö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.