Morgunblaðið - 03.07.1964, Side 23
Föstudagur 3. júTT 1964
MORGUNBLAÐIÐ
23
Nú eru Frakkamir, sem aetla að senda upp eldflaugar á Mýrdalssandi, komnir með tvær flug-
véiar tii flutninga á farangri. Geta vélar þessar lent á stuttum fiugbrautum.
Ben
tögl
Bella hefur
og hagldir
í Aures-fjöllum
Algeirsborg, 2. júlí. — NTB.
0 í morgun tók Amar Mellah,
ofursti, við yfirstjóm fjórða her-
svæðisins í ALsír, er var undir
stjón Mohammed Chaabani, of-
ursta — og hefur stjórnarherinn
nú tögl öll og hagldir í héruð-
unum í Aures-fjöllum og norður-
hluta Sahara. Héraðsstjórnir þar
hafa lýst yfir hollusitu við Ben
Bella forseta — en að undan-
förnu hafa borizt fregnir um vax
andi óánægju íbúanna í Aures-
fjöllum í garð stjórnarinnar í
Algeirsborg.
Ben Bella lýsti því yfir í gær,
að Chaabani hefði unnið að und
irbúningi uppreisnar og iþví hefði
honum verið vikið úr fram-
kvæmdastjórn Þjóðfrelsisflokks-
— Flugfloti
Framhald af bls. 24.
ur jafnan verið hin bezta sam-
vinna um sjúkrafiugið.
Flugvélarnar, sem bera ein-
kennisstafina TF-JMD og TF-
JME, eru af gerðinni Beechcraft-
C-45 H, hafa hvor um sig tvo
450 hestafla hreyfla, fullkomin
(blindflugstæki og fjarskiptabún-
að og ísvarnartæki á vængjum,
stéli og skrúfublöðum. Þær taka
8—9 farlþega auk farangurs og
sæti eru fyrir 2 flugmenn. Þær
eru smíðaðar 1954, en lítið not-
aðar. í vor voru þær endurbætt-
ar mjög og skipt um ýmsa hluta
þeirra, svo sem hreyfla, ^væng-
stýri, hjólbarða og fleira.
Fréttamaður Mbl. náði snöggv-
ast tali af Col. Perdue, er han,n
var nýstiginn á fast land og
spurði um ferðalagið til íslands.
— Jú, það gekk mjög vel. Þetta
eru ágætis vélar. Engin bilun
varð alla leiðina, sagði Col. Perd
ue og klappaði á herðarnar á
Birni Sveinssyni, flugvirkja. —
Við vorum ekkert að flýta okk-
ur, flugum ekki með fullum
hraða. Það sparaði benzán. Við
lögðum upp frá Alabama-ríki og
böfðum 'viðkomu í Washington
D.C., New York, Maine, Goose
Bay, Saglik og Frobisher Bay í
Kanada; Syðra Straumfirði, Cul
usuk og Reykjavík. Við fengum
ágætt veður alla leið, nema í
gærkvöldi á leiðinni yfir Græn-
landshaf. Við ætluðum að fljúga
ihingað beint frá Culusuk, en urð
uin að lenda í Reykjavík vegna
dimmviðris hér. — Já, það er
óhætt um það, vélarnar eru góð-
ar. Ég veit um flugfélag í Flórida
South Central Airlines, sem á tíu
svona vélar og gengur prýðilega.
— Ég er sérstaklega hrifinn af
og þakklátur fyrir hve margt
íólk er komið hingað til að taka
á móti okkur og fagna komu okk
ar. Það sýnir að almenningur
fylgist af áhuga með starísemi
Tryggva, sem ég tel líka hina
merkustu. Það verður líka á-
reiðanlega nóg handa flugvélun-
um að gera eftir því sem mér
skilst, bæði leiguflug, sjúkraflug
og síldarleit.
Að svo mæltu klappaði Col.
Perdua vélinni vinalega, eins og
íslenzkur bóndi kla-ppar klárnum
sínum á lendina, þegar hann hef
ur tekið út úr honum og sleppir
houuiu lausum eftir góðan sprett.
Sv. P.
ins s.l. þriðjudag. Hafði hann
haft á hendi yfirstjórn hersins
í Aures-fjöllum og átt sæti í
framkvæmdastjórninni frá því í
janúar s.l.
1 tilkynningu alsírska landvarn
arráðuneytisins í dag segir, að
liðssveitir stjórnarinnar hafi kom
ið til héraðanna Biskra, Bou
Sadaa og Djelga í morgun og
Amar Mellah tekið við yfirstjórn
þar. Sé nú hafin alger endur-
skipulagning alls herliðs á svæð-
inu.
Franska fréttastofan AFP seg-
ir, að skipzt hafi verið á skotum
í Bou Sadaa, er stjórnarherinn
kom þangað. í Biskra hafði hins
vegar ekki komið til átaka, því
að hermenn, sem þar voru hlið-
hollir Chaabani, ofursta, voru
þegar á brott.
Dönsk stúlka
kjörin „Ungfrú
Sameinuðu
Þjóðanna4í
PALMA, Mallorca (AP). Dönsk
PALMA, Mallorca (AP). —
Dönsk, ljóshærð námsmær, Suan
Holmquist, var kjörin „Ungfrú
Sameinuðu þjóðanna“ s.l. fimmtu
dag. 27 stúlkur tóku þátt í keppn
inni, þar á meðal íslenzka fegurð
ardrottningin Thelma Ingvars-
dóttir.
Dómnefndin var skipuð 17
mönnum frá ýmsum löndum. —
Dómarar kusu jafnframt fjórar
hirðmeyjar í hirð drottningar-
innar og urðu þessar fyrir valinu:
Diana Wesfibury, Englandi;
Marion Zota, Þýzkalandi, Moni-
que Lemire, Frakklandi og Pat-
ricia Romani, ítalíu.
Sigurvegarinn hlaut í verðlaun
2000 dollara og fimmtán daga
ferðalag til Parísar.
Laxveiðin að glæðast
Ö8 laxar veiddir í Elliðadnum
ÞAÐ lítur vel út með veiði í
ánum í sumar, að því er Þór Guð
jónsson, veiðimálastjóri tjáði
blaðinu í gær. Laxinn er farinn
að koma í talsverðu magni í
Elliðaárnar. Um hádegi í gær
var búið að veiða 68 laxa og 195
höfðu farið gegnum teljarann og
var fossinn fullur af laxi í gær-
morgun.
í mánaðarlokin voru ekki
nema 50 veiddir laxar og 120
höfðu farið gegnum teljarann.
Þetta er miklu betra en í fyrra,
þegar laxveiðin fór ekki að glæð
ast fyrr en upp úr miðjum júlí.
Þá höfðu 24 laxar veiðst um mán-
aðamótin júní—júlí og tala
veiddra laxa komst ekki upp
fyrir 100 fyrr en eftir miðjan
júlí. Aftur á móti var talan kom
in^upp í 210 viku seinna.
Annars hafa árnar sunnan-
lands verið með minnsta mótí
vegna þurrkanna og lítill lax
gengið upp í þær í júni. Frétzt
hefur að í Laxá í Kjós hefðu
veiðzt nokkrir laxar, þar á meðal
einn með merki af seiði, sem
sleppt var í fyrra. í fyrradag
fengust 15 laxar í net í ölfusá
107 fórust
í fellibyl
Manila, 2. júli NTB
• Vitað er nú, að 107 menn lét-
ust af völdum fellibylsins
, Winnie“, sem geisaði yfir Fil-
ippseyjar sl. mánudag. Fjórtán
manna er saknað, og er talið lí'k-
legt, að þeir hafi einnig látizt.
De Gaulle til Bonn
— í fylgd níu franskra rdðherra
Bonn, 2. júlí. — NTB.
er andstæð stefnu Bandaríkj-
hjá Selfossi. Og borizt hafa góðar
fréttir af laxveiði í Stóru Laxá.
Fréttir hafa borizt um góða
netaveiði í Borgarfirðinum.
Komið er töluvert af laxi í
Hvítá og er farin að batna mikið
netaveiðin við suðurbakka árinn
ar, en þar er Grímsárlaxinn
venjulega heldur seinna á ferð-
inni. I Norðurá voru á svæði
Stangaveiðifélagsins veiddir 93
laxar laugardaginn 27. júní og
í síðustu viku var góð veiði
a.m.k. hjá einum veiðimanna-
flokknum, fengust 44 laxar á 3
dögum.
Af Norðurlandsánum er það
að frétta, að fyrir nokkrum dög
um fréttist af ágætri veiði í Laxá
í Þingeyjarsýslu. í Miðfjarðará
voru komnir 70 laxar þann 23.
júní og höfðu þá veiðzt 30 laxar
síðustu vikuna og reiknað með
batnandi veiði. Að undanförnu
hefur verið góð veiði í Blöndu,
áin hefur verið alveg tær og
komið góðir veiðidagar.
DE GAULLE, forseti Frakklands
og niu ráðherrar úr frönsku
stjórninni koma til Bonn á morg
un, föstudag, tii viðræðna við
v-þýzka ráðherra. Eru viðraeður
þessar í samræmi við fransk-
þýzka vináttusáttmálann, þar
sem svo var kveðið á, að leiðtog-
ar Frakklands og Y-Þýzkalands
9kuli hittast tvisvar á ári og ein-
hverjir ráðherrar stjörnanna
ræðast við þriðja hvern mánuð.
Frakkar hafa lagt sérstaka á-
herzlu á, að ákvæði vináttusamn
ingsins séu haldin.
Ekki er reiknað með sérstökum
árangri af heimsókn de Gaulle
til Bonn nú, en góðar heimildir
í stjórnarbúðum V-þýzkalands
herrna, að þar séu menn uggandi
um að Frakklandsforseti reyni að
nota tækifærið til að hvetja til
enn aukinnar einingar, eins kon-
ar „sameiningar Evrópu, er að-
eins taki til Frakklands og V-
Þýzkalands". Mun það álit
frönsku stjórnarinnar að ko'mast
verði úr þeirri sjálfheldu, sem
afstaða Hollendinga og Belga til
evrópskrar einingar hefur skap-
að.
V-þýzka stjórnin er að sinni
ekki sögð reiðubúin til frekara
samstarfs við frönsku stjórnina.
Er ástæðan einkum sú, að hún
óttist að Bandaríkjastjórn líti á
það sem stuðning við stefnu de
Gaulle í þeim efnum, sem -hún
14 ára blökku-
piltur liengdur
Atlanta, 2. júlí NTB— AP
• í dag fannst fjórtán ára blökku
piltur, Eerry Maxey að nafni
hangandi í eikartré í skóginum
utan við Atlanta í Georgia. Xal-
ið er líklegt, að hann hafi verið
myrtur — en lögreglan hefur
enga hugmynd um hver eða
ltverjir hafi verið þar að verki.
Pilturinn kjó í útjaðri Atlanta,
í hverfi þar sem bæði búa hvítir
ntenn og blakkir og er ekki vitað
til að sérstök vandræði hafi ver-
ið í samskiptum þeirra að undan
förnu.
Taylor tekur við sendi
herraembættinu
Leiðrétting
í FRÉTT um heimsókn Philips
prins til Akureyrar í blaðinu í
gær varð prentvilla, þar sem ótti
að standa , Ingólfur Árnason, 2.
varaforsefi bæjarstjórnar Akur-
eyrac.
Washington, 2. júlí AP.NTB.
• MAXWELL Taylor, hers-
höfðingl sagði í dag form
lega af sér embætti sem yfir-
maður herráðs Bandaríkj-
anna og tók við embætti sendi
herra lands sins í S-Vietnam.
Taylor var leystur frá em-
bætti við hátíðlega athöfn í
landvarnarráðuneytinu í Was-
hington. Sæmdi landvarnaráð
herrann Robert McNamara
hann heiðursmerkinu „Dist-
inguisherd Service Medal“ o>g
er það í fjórða sinn, sem
hann er sæmdur því merki.
Nokkru síðar skipaði Johnson
forseti Táylor í sendiherraem-
bættið við hátiðlega athöfn í
Hvíta húsinu. Hélt forsetinn
stutta ræðu við þetta tæki-
færi og sagði, að markmið
Bandaríkjanna varðandi Suð-
Austur Asíu væri að semja
frið, er þeim væri til heiðurs.
Bandaríkjastjórn stæði fast
við hlið þeirra, sem vildu
verja sjáifstæði sitt og frelsi.
Þetta er í annað sinn, sem
Taylor lætur af starfi fyrir
herinn. Fyrra sinnið var árið
1961, er John F. Kennedy, for
seti, gerði hann að sérstökum
ráðgjafa sínum í hermálum.
Ári síðar skipaði Kennedy
hann yfirmann herráðsins.
Maxwell Taylor er 62 ára að
aldri.
Þá er v-þýzka stjórnin sögð
vænta þess, að de Gaulle lýsi því
yfir, að Frakkar muni fyrir sitt
leyti rifta Bernarsáttmálanum,
sem hefur komið í veg fyrir, að
Frakkar og önnur ríki Atlants-
hafsbandalagsins veiti kommún-
istaríkjunum í A-Evrópu lán til
lengri tíma en fimm ára.
Skothríð
á landamærum
ísraels og Sýrlands
Tel Aviv, Damaskus,
2. júlí. — NTB.
• Landamæraverðir Sýrlands og
ísraels skiptust á skotum í dag og
sakar hvor aðilinn hinn uni upp
tökin.
í fregnum ísraelsmanna segir,
að þrír ísraelskir hermenn hafi
verið skotnir til bana og tveir
særðir, og auk þeirra hafi ísraebík
ur bóndi særzt lífshættulega. Enn
fremur segir, að Sýrlendingar
hafi hafið skotárás á hermennina
er þeir voru-í venjulegri könnun-
arferð á landamærunum norðan.
Geneseret-vatns, og samtímis
skotið á saklausa bændur að störf
um. Hafi Sýrlendingar virt að
vettugi tilmæli eftirlitsmanna
S.þ. um að skothríð yrði hætt, og
haldið áfram til kl. sex síðdegis.
í fregnum Damaskus-útvarps-
ins segir hins vegar, að hlé hafi
verið gert á skotbríðinni í nokkr
ar klukkustundir, en svo hafi
ísraelsmenn aftur hafizt handa
Segir útvarpið ísraelsmenn hafa
átt upptökin, með því að skjóta
á árabíska verkamenn, er voru
við vinnu við ána Jórdan.
— Veglegar gjafir
Frahamhald af bls. 13
ir og séra Grímur Grímsson,
gáfu kirkjunni 10 sálmabækur í
vönduðu bandi og áletraðar
kirkjunni.
Krossinn á kirkjuna smíðuðu
og gáfu bræðurnir Haukur og
Hrafnkell Þórðarsynir frá Látr-
um, til minningar um ömmu sína
og afa, Gíslínu Gestsdóttur og
Jón Magnússon, Látrum. 'Kross-
inn er víravirkiskross, tinhúðað-
ur.
Hitunartæki gaf kirkjunni Jón
Guðmundsson, forstjóri Belgja-
gerðarinnar, en hann er gamall
Breiðvíkingur.
Ljósatæki öll í kirkjuna gáfu
börn og tengdabörn Gíslínu Gests
dóttur og Jóns Magnússonar,
Látrum, til minningar um þau,
þar á meðal 8 vegglampa úr
brenndu járni, smíðaða af sonar-
syni þeirra, Hauki Þórðarsyni.
Jóhanna Árnadóttir frá Kefla-
vík gaf kirkjunni kr. 10.000,00 til
minningar um foreldra sína,
Dómhildi Ásbjörnsdóttur og
Árna Árnason, og móðurforeldra
sína, Jóhönnu Einarsdóttur og
Ásbjörn Ólaísson.
Ættingjar af Kollsvíkurætt
gáfu kirkjunni kr. 12,000,00 til
minningar um Trausta Ólafsson,
sem samdi og gaf út ættartölu
þeirrar ættar.
Sparisjóður Rauðasandshrepps
gaf kirkjunni kr. 10,000,00 og
sveitarsjóður sama hrepps gaf kr.
5,000,00 til fegrunar kirkjunni.
Auk framanskráðra gjafa hef-
ur þessari kirkjubyggingu verið
veitt margháttuð fyrirgreiðsla ó-
keypis, og mikil vinna, sem ekki
hefur komið til reiknings. Allar
þessar veglegu gjafir og fyrir-
greiðslu, þakkar sóknarnefnd og
söfnuður innilega, og biður gef-
endunum gæfu og gengis.
Látrum 23. 6. 1964.
í sóknarnefnd Breiðavíkursóknar
Daníel Eggertsson,
Ásgeir Erlendsson,
Þórður Jónsson.