Morgunblaðið - 03.07.1964, Blaðsíða 10
10
MORCUNBLAÐIÐ
Föstudagur 3. júlí 1964
luiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiititiiiiiiiiitr
1— Hclmsókn Philips prins
Frarahald af bls. 1.
bönduðu ljósmyndurum að
hafa sig á brott. Eftir þetta
og allan daginn líktist starf
Ijósmyndara meira skotgrafa
hernaði en fréttaljósmyndun.
f>eir urðu að dyljast í runn-
um, bak við steina í gjótum
og sprungum og reyna að
taka myndir. Kom mönnum
saman um að til þess að geta
Ijósmyndað prinsinn þyrfti
helzt að hafa til að bera þá
eiginleika kamelljónsins áð
geta skipt um lit eftir um-
hverfinu.
Frá Skjólbrekku var ekið
áfram og að höfða einum
skammt frá Grænalæk, en
þar beið bátur eftir prins-
inum og fylgdarliði. Bátnum
stjórnaði Jón Sigtryggsson í
Syðri-Neslöndum, sem flutt
hefur fólk um vatnið um ára
tugi. Báturinn er hið merk-
asta far og sagði dr. Sigurður
Þórarinsson fréttamanni Morg
unblaðsins, að hann væri .um
34 ára gamall. Gengur hann
enn fyrir sömu vélinni og í
honum var upphaflega. Bát-
urinn var á sínum tíma not-
aður til þess að flytja fólk
frá Skútustöðum til Reyni-
hlíðar, þegar vegurinn náði.
ekki nema til Skútustaða.
í bát þessum sigldi prins-
inn, forsetinn og föruneyti
um vatnið, fóru út fyrir Hrút
ey og í vogana meðfram Kálfa
strönd og að Höfða. Á þessari
leið gat að líta ýmsar fugla-
tegundir sem halda sig lengra
úti á vatninu, svo sem hrafns-
önd og hávellu. Dr. Finnur
Guðmundsson tjáði frétta-
manni Morgunblaðsins, að
þeir prinsinn hefðu séð flest-
ar þeirra 15 andategunda sem
verpa við Mývatn. Finnur
kvað prinsinn mjög fróðan
um fugla og allt sem að þeim
lýtur. Hann hefur fyrir
nokkrum árum skoðað fugla
á Lake Rudolf í Afríku, en
þar er fuglalíf mikið. Finnur
sagði að Philip hefði haft
mikla ánægju af því að bera
saman fugla á vatni svona
langt í norðri og hinu í hita-
beltinu.
í Höfða var ákveðið þessu
næst að halda í Dimmuborg-
ir. Þar er fálkahreiður og
hafði Sverrir Tryggvason,
bóndi að Víðihlíð við Reyni-
hlíð, farið að hreiðrinu um
morguninn og séð að ungarn-
ir voru við það ennþá, svo og
foreldrarnir.
í Dimmuborgir fóru aðeins
fimm menn, prinsinn, Chec-
hetts sveitarforingi, dr. Finn-
ur, dr. Sigurður Þórarinsson
og Sverrir Tryggvason. Blaða
mönnum og öllum öðrum var
harðbannað að koma nálægt
Dimmuborgum og skýrði lög-
reglan frá því, að fyrr um
daginn hefðu lögreglumenn
farið um svæðið til að hyggja
að ferðafólki og halda því í
hæfilegri fjarlægð, en þar var
þá enginn í Dimmuborgum.
Þeir fimmmenningarnir
gengu síðan um 20 mínútna
gang að hreiðrinu og voru
tveir ungar af þremur við
það og foreldrarnir. Dr. Finn
ur sagði að það sjaldgæfa
hefði gerzt, að annar fálka-
unginn, sem er orðinn fleyg
ur, hefði ekki flogið upp
heldur bókstaflega setið
fyrir meðan prinsinn
ljósmyndaði hann í bak og
fyrir úx lítilli fjarlægð.
Var hann mjög ánægður með
þessa Dimmuborgarferð, að
sögn fylgdarmanna hans.
Á meðan prinsinn var 1
þessari för, dvaldi forseti ís-
lands í Höfða.
★ ★
Aliðið var orðið er prins-
inn kom úr Dimmubor-gum
eða um kl. 4, en þá átti hann
að Jeggja af stað flugleiðis til
Reykjavikur og var sagt að
hann hlakkaði mjög til þeirr-
ar ferðar. Skammt frá Reykja
hlíð eru brezkir námsmenn í
tjöldum og starfa þeir við að
safna jurtum fyrir náttúru-
fræðideild British Museum.
Var jafnvel búizt við því að
hertoginn mundi heilsa upp
á þá, en úr því varð ekki, trú-
lega vegna tímaskorts. Þá
hafði einnig verið ráðgert að
fara til Námaskarðs en að ósk
prinsins var því sleppt, svo
hann hefði sem mestan tíma
við fuglaskoðunina.
Laust eftir kl. 4 fór hertog-
inn síðan á flugvöllinn við
Reykjahlíð, eftir að hafa skipt
um föt á hótelinu. Þar heils-
aði hann þeim Birni Pálssyni
og Jóhannesi Snorrasyni, flug
stjóra, en síðan kvöddu prin^-
inn og forseti þá sem fylgt
höfðu þeim um sveitina og
stigu um borð í Vor, Bonaza-
vél Björns. Lagði flugvélin af
stað um 20 mínútur yfir fjög
ur og skömmu síðar fór Dúfa,
einnig í eigu Björns Pálsson-
ár, með fylgdarlið og var þá
lokið Mývantsheimsókninni.
Eftir að flugvélarnar voru
farnar átti fréttamaður Morg-
unblaðsins stutt samtal við
dr. Finn Guðmundsson. Hann
sagði að ferðin hefði að
mörgu leyti tekizt vel. „Ég er
-vel kunnugur hér við Mývatn,
og ég tel að varðandi fugla-
lífið hefði ekki getað hitzt
betur á um þetta leyti sum-
ars, enda tel ég að prins-
inn hafi verið hinn ánægðasti.
Prinsinn er maður mjög
fróður um fugla. Hann tók
mikið af myndum í allan dag,
allar svarthvítar, og vafa-
Philip prins kemur i ReykjahlíS og heilsar sýslumanni Þingeyinga, Jóhanni Skaftasyni. Ásgeir
Ásgeirsson, forseti, sést á milli þeirra. Og lengst til vinstri dr. Sigurður Þórarinsson.
.
Girðingar flækjast fyrir prinsinum eins og öðrum. Þarna eru fuglaskoðararnir á ferðinni við
upptök Laxár.
laust hafa margar þeirra ver-
ið góðar, ekki sízt myndirnar
sem hann tók af fálkaungan
um í Dimmuborgum. Það má
teljast heppni að hafa eina
klukkustund til umráða og £á
fálka bókstaflega til þess að
sitja fyrir á þeim tíma.“
Loks sagði dr. Finnur að
hertoginn hafi verið ákaflega
blátt áfram, laus við alla til-
gerð og hinn skemmtilegasti
maður. Því má bæta við, að
hann leyfði leikmönnum að
Philip prins tekur með sér myndavél með stórri aðdráttarlinsu, er hann stígur út úr bílnum við
Skjólbrekku, til að skoða fugla undir leiðsögn dr. Finns Guðmundssonar, fuglafræðings.
- . - • • ■ ••« - *V •pr—
WMk':
m&wi
hefur sennilega haldið að þar
færi hinn tigni gestur.
Philip prins sleppti stýrinu
skömmu áður en lent var á
Reykjavíkurflugvelli og tók
Björn þá við stjórn. Prinsinn
fór síðan um borð í snekkju
Sína. í gærkvöldi bauð hann
forseta íslands, ríkisstjórn,
forseta Alþingis, borgar-
stjóra, brezka sendiherranum
hér, ráðuneytisstjóra utanrík
isráðuneytisins, lögreglu-
stjóra og forsetaritara ásamt
frúm þeirra til kvöldverðar
um borð í Britanniu. For-
seti íslands flutti honum
ræðu og þakkaði komuna til
landsins og sagði m. a., að
hann hefði í dag séð hann í
hlutverki bílstjóra, flugmanns
og nú síðast flotaforingja.
Philip prins svaraði og sagði,
að ef allar heimsóknir, opin-
berar eða ekki, væru jafn-
skemmtilegar og þessi vildi
hann alltaf vera að ferðast.
hwBmMbBHHEBBwBkbBwBhHÍBbmS
ljósmynda sig á hlaðinu í
Reynihlíð og þakkaði öllu
starfsfólki með handabandi.
Flaug sjálfur suður
Flugferðin frá Mývatni til
Reykjavíkur tók klukkutíma
og tuttugu mínútur og var
flugið sérlega skemmtilegt.
Veður var ákjósanlegt, létt-
, skýjað og skyggni gott og var
flogið lágt til að njóta útsýn-
isins. Hertoginn af Edinborg
tók við stjórn flugvélarinnar
strax eftir flugtak og flaug
Vorinu alveg suður yfir Mos-
fellssveit. Hann er flugmað-
ur sjálfur og þykir gaman að
fljúga. í Vorinu með honum
voru forseti íslands, Sigurður
Þórarinsson og flugmennirnir
tveir, Björn Pálsson og Jó-
hannes Snorrason. En aðrir úr
fylgdarliði hans flugu með
Lóunni á eftir.
Flogið var suður yfir
Ódáðahraun og Sprengisand,
hjá Arnarfelli og skoðað gæsa
varpið. Voru fældir upp hóp-
ar af heiðargæsum, svo Philip
prins getur skilað kveðjum
frá þeim til vinar síns Scotts,
sem skrifaði bók um þessar
gæsir“ Ten Thousand Geeze“.
Þá var flogið vestur yfir há-
lendið milli Hvítárvatns og
Hagavatns og yfir Þingvelli,
sem sýndu nú betri hlið á sér
' en daginn áður, þegar prins-
inn kom þar. Seinni flugvél-
in flaug aðeins sunnar og sáu
farþegar Gullfoss með regn-
boga yfir og Geysir sendi
þeim gos, er þeir flugu yfir,
llllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllIllllllllllllilllllHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIiHIHIIIIIIIIIIIIIIIIItlllHIMÍ