Morgunblaðið - 03.07.1964, Síða 12

Morgunblaðið - 03.07.1964, Síða 12
r 12 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 3. júlí 1964 IRttgmtlftifrifr Útgeíandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Auglýsingar: Útbreiðslustjóri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Askriftargjald kr. 90.00 1 lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. -Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. HÚSNÆÐISUMBÆTUR OG MJÓLKURLÆKKUN ITiðreisnarstjórnin hefur ný- * lega beitt sér fyrir tveim- ur ráðstöfunum í framhaldi af samningunum um vinnu- frið. Hún hefur aukið niður- greiðslu á mjólkurverði þann ig að það lækkar um 40 aura líterinn, og samtímis lagt á 1% launaskatt, sem aflar 70— 80 millj. kr. árlegs framlags til stuðnings við íbúðabygg- ingar í landinu. Enda þótt segja megi að meginhluti atvinnureksturs í landinu og þá sérstaklega út- flutningsframleiðslan, sé lítt fær um að taka á sig auknar byrðar, munu atvinnurekend- ur ekki hafa talið 1% launa- skattinn, sem þeim ber að greiða, sér óhagstæðan, þeg- ar á allt er litið. Hann var veigamikið atriði í samkomu- laginu um vinnufrið, og ís- lenzkt atvinnulíf þarfnaðist umfram allt friðar milli verkalýðs og vinnuveitenda. Hið lánlausa kapphlaup milli kaupgjalds og verðlags á sl. ári hafði í för með sér stór- fellda erfiðleika í efnahags- málum þjóðarinnar. Slíkt kapphlaup mátti ekki endur- taka sig. Almennur skilning- ur hafði skapazt á nauðsyn þess að nú yrðu farnar nýjar leiðir, þar sem í senn væri freistað að gæta hagsmuna launþega og koma í veg fyrir að bjargræðisvegunum yrði íþyngt um of. Kjarni málsins er, að verka lýður og vinnuVeitendur hafa, fyrir farsæla meðalgöngu ríkisstjórnarinnar, náð sam- komulagi um eins árs vinnu- frið án grunnkaupshækkana. En ríkisstjórnin hefur skuld- bundið sig til þess að gera ýmsar ráðstafanir sem verða öllum almenningi til hags- bóta. Mjólkurlækkunin og aukinn stuðningur við hús- næðisumbætur í landinu eru veigamiklir liðir í þessum ráðstöfunum. Margt bendir til þess að við íslendingar munum á næst- unni hallast frekar að því að fylgja fordæmi frændþjóða okkar á Norðurlöndum í kaup gjalds- og verðlagsmálum, en trúnni á víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags og eyðileggjandi verðbólguflóð í kjölfar þeirra. Væri það vissulega vel farið. Höfuð- áherzlu ber að leggja á aukn- ingu framleiðslunnar, þannig að meira komi til skiptanna milli einstaklinga, stétta og starfshópa. Jafnvægi verður að nást í íslenzkum efnahags- málum. Verðbólgan má ekki halda áfram að rýra gildi ís- lenzkrar krónu og skapa van- traust á hinn íslenzka gjald- miðil innanlands sem utan. Sem betur fer virðist nú á- stæða til nokkurrar bjartsýni í þessum efnum. ISLENZKIR NORÐURLANDA- MEISTARAR igur íslenzku stúlknanna á N or ðurlandameistar amót- inu í útihandknattleik var glæsilegur og ánægjulegur. Hann er enn ein sönnun þess, að íslenzk æska er í dag hraust og þróttmikil. Þessi sigur leiðir einnig athyglina að gildi íþrótta fyrir andlegt og líkamlegt heilbrigði unga fólksins. Þeim tíma er vel varið, sem unga fólkið eyðir til hverskonar íþróttaiðkana. Þess vegna ber hinum ís- lenzka skóla að stuðla að því eftir fremsta megni að æska hans verji tómstundum sín- um við íþróttir. Mens sana in corpore sano var máltæki hinna fornu Róm verja. Það þýðir: heilbrigð sál í hraustum líkama. Þetta spak mæli er í eins fullu gildi nú og það var fyrir þúsund ár- um. Hraustur líkami er oftast eitt af frumskilyrðum andlegs atgjörvis, jafnvægis og heil- brigði. Iðkun íþrótta er þess vegna eitt af grundvallarat- riðum uppeldisins í nútíma menningarþjóðfélagi. íslendingar samfagna hand knattleiksstúlkunum með sig- ur þeirra um leið og þeir gleðj ast yfir því að eiga hrausta og glæsilega æsku, sem geng- ur þróttmikil og djörf móti framtíðinni. . HEIMSÓKN KIEV-BALL- ETTSINS Tleimsókn rússneska ball- ettsins frá Kiev hingað til lands er merkur við- burður í listalífi þjóðarinnar. Almennt mun nú talið, að rússneski ballettinn sé bezti ballett í heimi, eða a.m.k. meðal þeirra sem allra fremst standa á sínu sviði. Hér á ís- landi hefur þessi listgrein ennþá náð skammt. Sætir það vissulega engri furðu. Við höfum aðeins átt ballettskóla í nokkur ár og höfum því ekki haft aðstöðu til þess að iðka þessa fögrulíst. Dr. Lubke endurkjörinn forseti V-Þýzkcalands Hlaut 710 atkv. af 1024 DR. HEINRICH LÚBKE, forséti V-Þýzkalands, var í dag endurkjörinn til næstu fimm ára. Forsetakjörið fór fram í Vestur-Berlín, svo sem fyrirhugað hafði verið, þrátt fyrir mótmæli Sovét- stjórnarinnar og bar ekki til tíðinda. Forseti Þýzkalands er kjör- inn af 1042 kjörmönnum, þar af 521 þingmanni Sambands- þingsins í Bonn og jafnmörg- um fulltrúum einstakra ríkis- þinga sambandslýðveldisins. I tilkynningu forseta Sambands þingsins, Ernst Gerstemeiers, að kjöri loknu, var sagt, að Dr. Lúbke hefði verið kosinn við fyrstu atkvseðagreiðslu, hlotið 710 atkvæði af 1024 er greidd voru — en honum nægðu 523 atkvæði til að ná kjöri. Framboð dr. Lúbkes var stutt af flokki Sósíaldemó kr-ata jafnt sem Kristilegra demókrata en af hálfu Frjálsra demókrata var í framboði Ewald Bucher, dómsmálaráð- herra Vestur-Þýzkalands. — Hlaut hann 123 atkvæði. 187 Dr. Heinrieh Lúbke. kjörseðlar voru auðir og 4 ógildir. Lúbke var fyrst kosinn for- seti V-Þýzkalands árið 1959 — og tók hann þá við embætti af Theodor Heuss, fyrsta forseta sambandslýðveldisins. Lúbke sat á þingi þegar Hitler komst til vaida en’ var fljótlega úti- lokaður frá allri pólitískri starfsemi og handtekinn hvað eftir annað. Sat hann m.a. í fangelsi í Q0 mánuði árin 1934 —1935. Árið 1937 hóf hann störf hjá byggingarfyrirtæki í Berlín, en starfaði á styrjaldar árunum sem tæknifræðingur í eldflaugatilraunastöð. Hefur það starf hans orðið tilefni harðra árása a-þýzku stjórnar innar. Árið 1946 var Heinrich ■Lúbke kosinn á þing í Nord heim-Westfalen og þrem ár- um síðar tók hann sæti á sam bandsþinginu. Árið 1953 var hann skipaður landbúnaðar- ráðherra í ráðuneyti Aden- auers. Sem fyrr segir fóru forseta kosningarnar fram í Vestur- Berlín. Sovétstjórnin hafði mótmælt þeirri ráðstöfun kröftuglega, talið hana nýja storkun af hálfu V-Þjóðverja til þess eins fallna að gera Berlínar- og Þýzkalandsmálin enn örðugri úrlausnar. - í tilkynningu dr. Gerste- meiers, þingforseta í dag, var þessum mótmælum Sovét- stjórnarinnar vísað algerlega á bug — og sagt, að hér væri ekki um að ræða að storka neinum, heldur lýsa stuðningi og hollustu við sögu Berlínar og þýzku þjóðarinnar. Flóttamenn fluttir til í Afríku • Flóttamenn fluttir til í Afríku í LOK maí var gerður samningur um flutning 10.000 flóttamanna frá Burundu til Tanganjíka. Aðilar að þessum samningi eru forstjóri flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóð anna, Felix Schnyder, sam- bandslýðveldið Tahganjíka- Zanzibar og Lútherska heims- sambandið.* Samningurinn er liður í víðtækri áætlun um að finna þessum flóttamönnum varanleg heimkynni í Mið- og Austur-Afríku. Flóttamanna- hjálp Sameinuðu þjóðanna hefur ákveðið að leggja fram 750.000 dollara til aðstoðar flóttamönnum frá Rúanda. Flóttamannahjálp SÞ hefur ennfremur skorað á ríkis- stjórnir aðildarríkjanna að taka upp frjálslynda innflytj- endastefnu gagnvart flótta- mönnum, einkum þeim sem hafa örkumlazt eða eru ófær- ir til vinnu. Rúmur helmingur örkumla flóttamanna í Ev- rópu hefur átt þess kost að setjast að í nýjum heimkynn- um, en horfur þeirra, sem eft- ir eru, munu vera mjög slæm- ar eða því sem næst vonlaus- ar. Hér er um að ræða 202 fjölskyldur, alls 417 einstakl- inga, og eru margir meðal þeirra heilir heilsu, en geta sig hvergi hreyft vegna þeirra meðlima fjölskyldúnnar sem Síðan Þjóðleikhúsið tók til starfa hefur það haft eðlilega og sjálfsagða forgöngu um margskonar aukna f jölbreytni í íslenzku listalífi. Það hefur gefið þjóðinni kost á að kynn- ast ýmsu því bezta í list ann- arra þjóða. Er vissulega rík ástæða til þess að fagna því. örkumla eru. í hópnum eru líka allmargir einstaklingar, sem hafa komizt undir manna hendur eða þjást af geðveilun. Á síðustu árum hafa 462 ein staklingar í fjölskyldum, þar sem a.rfi.k. einn meðlimur er alvarlega örkumlaður, átt þess kost að festa rætur í nýj- um heimkynnum. Belgía hef- ur tekið við 133 þessara manna, Svíþjóð 83 (þeirra á meðal voru allmargir geðtrufl aðir), Ástralía 50, Kanada 42, Danmörk og Noregur hvort 16, svo að dæmi séu nefnd. Frá því hefur verið skýrt ný- lega, að Belgía og Svíþjóð hafi afráðið að veita viðtöku allmörgum örkumla flótta- mönnum til viðbótar. • Kongó-búum vex smám saman fiskur um hrygg VEGNA þeirrar þjálfunar og menntunar, sem Samein- uðu þjóðirnar hafa á undan- förnum árum beitt sér fyrir í Kongó, eru Kongó-búaf nú farnir að taka við ýmsum hlut verkum, sem alþjóðlegir sér- fræðingar hafa gegnt síðan 1960. Þó mun enn um nokkurt l, árabil verða þörf fyrir fjölda erlendra sérfræðinga í Kongó. Þetta kemur fram í skýrslu sem nýlega var birt um (við- leitni Sameinuðu þjóðanna í Kongó árið 1963. í fyrra störf- uðu 631 sérfræðingur og tæknifræðingur frá 48 löndum í Kongó. Þeir voru sendir þangað af Sameinuðu þjóðun- um og sérstofnunum þeirra. Verkefni þeirra snertu öll svið þjóðlífsins. Tveir sérfræðing- anna voru frá Danmörku, tveir frá Finnlandi, fimm frá Noregi og átta frá Svíþjóð. Þó upp kæmu ýmsir efna- hagsörðugleikar við og við á órinu 1963, telur skýrslan ekki aðeins fært að halda starfsem- inni áfram, heldur einnig aS færa allverulega út kvíar hennar á mikilvægum svið- um, einkum í sambandi við fjármálastjórnina, efnahags- lega samræmingu og opinber- an rekstur. Þær breytingar sem orðið hafa til b^tnaðar i landinu síðustu árin háfa ver- ið hægar, en þeirra sér vissu- lega stað. Einkum var 1963 ár áberandi 'framfara. Samkvæmt skýrslunni hef- ur uppfræðslan verið höfuðat- riðið í öllum greinum. Með námsstyrkjum frá Sameinuðu þjóðunum og sérstofnunum þeirra gafst 1300 Kongó-búum tækifæri til að stunda nám i heimalandinu árið 1963. Auk þess voru veittir 47 styrkir til námsdvalar erlendis. Árangurinn af þessari víð- tæku viðleitni var sá, að á liðnu ári var unnt að fá hæf- um Kongó-búum í hendur margvísleg verkefni, sem ver- ið höfðu í höndum alþjóð- legra sérfræðinga, m.a. í póst- þjónustunni, veðurþjónust- unni, fjarskiptaþjónustunni og farþegafluginu. Á árinu komu heim fyrstu 55 innlendu læknarnir eftir nám erlendisí á vegum Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar (WHO). Á skólaárinu 1963—64 var tala nemenda í framhaldsskól- um 85.000, en hafði verið að- eins 28.900 skólaárið 1959—60. Þessi mikla aukning á m.a. rætur að rekja til þess, að Menningar- og vísindastofnun SÞ (UNESCO) sendi til Kongó 801 kennara frá 29 löndum. Eins og stendur eru nú í Kongó samtals 3300 er- lendir kennarar í ýmsum greinum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.