Morgunblaðið - 07.07.1964, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.07.1964, Blaðsíða 6
e MORGU N BLAÐIÐ Þriðjudagur 7. jálí 1964 Happdrætti DAS FYRIR nokkru var dregið í 3. fl. Kappdrættis DAS um 200 vinn- inga og féllu vinningar þannig. Ibúð eftir eigin vali kr. 500.000,- kom á nr. 39157. Umboð Aðal- umboð. Opel Rekord fólksbifreið kom á nr. 40838. Umboð Neskaupstað Vauxhall Victor Super fólks- bifreið kr. nr. 35816, umboð Sig ríður Helgadóttir. Bifreið eftir eigin vali kr. 130.000,- kom á nr. 53567. Um- boð Aðalumboð. Bifreið eftir eigin vali kr. 130,000,- kom á nr. 34756. Um- boð Aðalumboð. Húsbúnaður eftir eigin vali kr. 25.000,- kom á nr. 18520. Um- boð Aðalumboð. Húsbúnaður eftir eigin vali kr. 15.000,- kom á nr. 314. Umboð Aðalumboð og m-. 59858. Umboð Fáskrúðsfj örður. Húsbúnaður eftir eigin vali kr. 15.000,- kom á nr. 2327. Um- boð Hreyfill og 36414 og 39425. Umboð Aðalumboð. Eftirtalin númer hlutu hús- búnað fyrir kr. 10.000,- hvert: 4073, 4557, 8664, 10286, 13740, 15830, 23444, 37690, 42141, 48880 Eftirtalin númer hlutu húsbún- að fyrir kr. 5.000,- hvert: 109 247 531 2344 2398 2454 2681 3197 3373 3845 4124 4412 4632 5047 5358 6183 6184 6206 6367 6805 7110 7292 7498 8107 8954 9655 9864 10000 10319 10505 10570 10646 10892 10985 10997 11482 11564 12058 12656 12778 13089 13143 13508 13541 14705 15154 15875 16017 17151 17154 17317 17442 17547 18991 19699 20085 20777 21878 22024 22269 22391 222536 23830 24111 24432 24477 24578 24803 24869 25468 25482 25768 25828 26015 26092 26232 26255 27040 27970 28275 29365 29555 29605 30241 30383 30949 31128 31229 31483 31831 33031 33300 33321 33718 33910 34369 34943 35687 35843 35973 36054 36331 36522 36655 37138 37948 38834 38847 39084 39216 39263 39287 40151 40360 40563 40907 41599 41637 41698 41964 42137 42437 44439 45948 46114 46478 46525 47331 48008 48624 48666 48670 48799 49904 49933 50992 51620 51641 51974 52130 52226 52418 52537 52581 52692 53017 53226 53625 53892 53914 54380 54968 55046 55205 57202 57321 57825 57903 58306 58671 59253 59346 59774 59934 59989 60204 60273 60515 60850 60855 61727 61944 62455 62570 62924 63293 63475 63987 64194 (Birt án ábyrgðar) SPÁNVERJAR KATJPA HERSKIP ' Amsterdam, 3. júlí (NTB) • Amsterdam blaðið De Tele- graaf segir í dag að Spánverj- ar hafi í hyggju að fela holl- enzkum skipasmíðastöðvum smíði lítilla herskipa fyrir um 250 milljón gyllini (um þrjú þúsund millj. kr.). Fyrirhugað var að fá skipin smíðuð í Bretlandi, en hætt við það eftir að Ilarold Wilson, for- maður verkamanniifiokksinK, gagnrýndi brezku stjórnina fyrir of mikla velvild í garð Franco-stjórnarinnar á Spáni. Að lokinni sýningu Kíev ballettsins á sunnudagskvöld afhenti Guð- laugur Rosinkranz Viktor Gontar, óperustjóra, lárviðarsveig og þakkaði honum og geslnnum íyrir komuna, fyrir heillandi fram- komu og fagra list, sem þeir hefðu sýnt á sviði Þjóðleikhússins. Gontar þakkaði svo með snjallri ræðu. Siðasta sýning Kíev-ballets- ins var i gærkvóld og fcr listafólkið flugleiðis ti) DSnmerkur á miðvikudag. Myndin er frá alhendingu lárviðarsveigsins í þjóðleik- húsinu á sunnudagskv.iUl- Fjölmennt Jónsmessumót Arnesirrgaíélagsins í Reykjavtk ÁRNESINGAFÉLAGID í Reykja vík hefur allt frá árinu 1939 haldið Jónsmessumót í heima- héraði sínu. Fyrsta mótið var haldið á Þingvöllum. Frá árinu 1954 hefur samkoma þessi verið haldin á ári hverju. Lengi var mótið haldið á Þingvöllum, en síðustu þrjú ár hefur þeim verið skipt milli félagsheimila í sýsi- unni. Jónsmessumót Ámesingafé- lagsins var að þessu sinni haldið í félagsheimilinu Félagslundi í Gaulverjabæjarhreppi laugardag inn 1. júlí. Hófst samkoman með borð- haldi kl. sjö <um kvöldið, og var þar samankomin fjöldi Árnes- inga, heimamanna og brott- fluttra. Þykir fólki skemmtilegt að geta haldið við gömlum kynn Rætt um kennslu afbrigöilegra barna Á F U N D I borgarstjórnar sl. fimmtudag var til umræðu til- laga, er Adda B. Sigfúsdóttir (K) flutti þess efnis, að fræðsluráði yrði falið að beita sér fyrir því, að haldið yrði námskeið á kom- andi skólaári fyrir kennara af- brigðilegra barna og það skipu- lagt með hliðsjón af tillögum þeim, sem samþykktar voru á fundi Stéttarfélags barnakennara 11. maí 1964. Auður Auðuns (S) vakti at- hygli á því, að tillögur Stéttarfé- lags barnakennara hafi þegar verið teknar til meðferðar í fræðsluráði Reykjavíkur. Öllum um, treyst þau og jafnvel stofn- að til nýrra. Árnesingum, búsett um í Reykjavík, er einnig mikil ánægja að líta heimabyggð sína augum í sumarskrúða. Stefán Jasonarson í Vorsabæ ávarpaði gesti fyrir hönd heima- manna. Formaður Árnesingafé- lagsins í Reykjavík, Ingólfur Þorsteinsson, yfirvarðstjóri hjá Rannsóknarlögreglunni, og Ólaf- ur Þorsteinsson á Syðra-Velli í Gaulverjabæjarhreppi mæltu fyrir minnum heiðursgesta, sem voru þær Bjarnveig Bjarnadóttir og Kristín Andrésdóttir frá Framhald á bls. 21 fræðsluráðsmönnum hefði þótt einsýnt, að þar sem slík nám- skeið væru liður í menntun kennara, væri það fyrst og fremst hlutverk ríkisins að annazt það verkefni, en ekki einstakra sveit- arfélaga. Fræðsluráð hefði þvl vísað málinu áfram til fræðslu- málastjórnarinnar með tilmæl- um um, að slíkt námskeið yrði haldið. Fræðsluráð myndi að sjálfsögðu fylgjast með málinu og reyna að gera sitt til, að eitt- hvað yrði framkvæmt. Þá skýrði Auður Auðuns frá því, að á vegum fræðsluráðs Reykjavíkur starfaði nú nefnd þriggja manna, sem hefði það verkefni að undirbúa tillögur um kennslu þeirra barna, sem að einhverju leyti eru afbrigðileg. Væri von á tillögum þeirra inn- an skamms. Hinu væri hinsvegar ekki að leyna, að skoðanir sér- fræðinga um mál þessi væm mjög skiptar og erfitt fyrir leik- menn að skera úr þeim ágrein- ingi. Einnig tók til máls í umræð- um þessum Kristján Benedikts- son (F). Tillögu Öddu Báru var að lok- um vísað frá, þar sem fræðslu- ráð hefði þegar tekið mál þetta upp og því tillöguflutningur um það óþarfur. Hér kemur bréf frá lesanda, sean kaupir lika Þjóðviljann: • HVER KOM f HEIM SÓKN? „Mikið lifandis skelfing eru kommúnistar sárir og gramir yfir heimsókn hertogans af Edinborg. í>eir gera sér nú grein fyrir því að nú er vetur- inn í samskiptum íslands og Bretlands liðinn, eins og eitt blaðanna komst að orði — og það verður kommúnistum æ erfiðara að aila á hatri í garð Breta vegna landhelgisdeilunn ar forðum. Annars var það út af fyrir sig merkilegt rannsóknarefni að lesa Þjóðviljann þá daga sem hertoginn af Edinborg dvaldist hér. Gremjan brauzt út í einhverjwm háfleygum vangaveltum um blaðamenn á öðrum blöðum. Og þeir, sem eru svo ógæfusamir að lesa Þjóðviljann einan blaða, hafa varla áttað sig á því sem í raun og veru var að gerast. Þeir halda auðvitað ennþá, að það ha.fi verið einhverjir blaða menn, sem voru í heimsókn. Að visu hafa verið einbverj ir blaðamenn, sem væru í heimsókn. Að vísu finnst mér, sem kaupi Þjóðviljann fyrir sakir forvitni, að þeir Þjóðvilja- menn viti ekki einu sinni sjálf ir hvað er að gerast í heimin- um — og Þjóðviljanum fer á líkan hátt og Pravda og pólsfcu blöðunum, sem t.d. minntust ekki á heimsókn Roberts Kennedys til Póllands á dögun um. Þrátt fyrir að þarlend blöð skýrðu ekki frá heimsókn inni komu tugir þúsunda manna til að fagna Kennedy — og það hefur senni/.ega farið jafnmikið í taugamar á pólsk- um kommúnistum — og ein- laegar móttökur og fögnuður sá, sem hertoginn af Edin- borg hlaut hér, hefur farið í taugarnar á Þjóðviljafjölskyld unni. Ekki sízt, þegar hertog- inn ávarpaði íslendinga af svöl um Alþingishússins. Það var ógleymanleg stund öllum, sem viðstaddir voru. Það var gam- an að sjá andlit fclksins þá stundina, óvenjuleg sjón hér á landi. • PAKKASÚPA FRÁ KREML Úr því að ég er farinn að skrifa þér á annað boi-ð, kæri Velvakandi, þá get ég varla látið hjá líða að nota tækifær ið til þess að benda yfirkokkn um í Þjóðviljaeldlhúsinu á það, að gott sé að hvíla taugamar eftir „Hertogaspennuna“ með þvi að skrifa eitthvað fallegt um Kúbu. Eins og margir muna, sendi kokkurinn frá sér í bókarformi nokkur „sann- leikskorn" um Kúbu. En hinn kommúniski sann'eikur er al- veg eins og veðurfréttirnar, sem sjaldnast eru réttar — og breytast á hverjum degi í þokkabót. Nú hefur systir Castros, Juanita Castro Riz, lát ið til sín heyra og sagt að bróðir hennar, sem bauð Magn úsi Kjartanssyni heim forðum, sé svikari við byltinguna. Hún segir m.a. að leynilögregla Castros „sé í alla staði sam- bærileg við það andstyggileg- asta í GESTAPO Hitlers“. Og ennfremur: „Eyjan er öll eitt ailsherjar fangelsi umgirt hafi.“ Það er því greinilega kom- inn tími til að Þjóðviljaflokkur inn fari að sjóða saman eitt- hvað af viti um Kúbu. Þessi gamla lygasúpa er ekkert ann að en pakkasúpa frá Kreml, sem enginn lifandi maður þrífst á — enda virðist hún miklu fremur ætluð afturgöng um til eldis og andlegs við- halds." • AÐ LIFA OG SKRIFA Vtf vakandi fær jafnan mörg bréf þar sem fólk segir álit sitt á dagblöðunum. Ótrúlega margir virðast lesa blöðin staf fyrir staf og fólk, sem hefur ákveðnar skoðanir á hlutimum lætur oft heyra til sin, þegar því likar ekki hvemig blöð og blaðamenn matreiða fyrir les- endur. Eitt af þvi, sem mjög er gagnrýnt — og efcki að ástæðu ilausu, er sú furðulega smekk- leysa sumra, sem í blöð sfcrifa að taka upp það, sem aðrir hafa skrifað á íslenzku eða þeir þýða úr erlendu máli — og setja síðan nafnið sitt undár með nokkrum athugasemdum. Slíkir Sá gjaman birta mynd af sér með framleiðslunni. — Ein slík grein birtist í blaði um helgina. Mér var bent á þetta og samkv. athugun reyndust 168 línur ai 240 vera hafðar eftir öðrum, auðvitað innan gæsalappa. Ég er ekki að segja, að það sé slæmur h'utur að vitna í orð annarra. Hitt er svo annað mál, að noti rithöfundar eða blaðamenn að staðaldri skrif annarra sem meginuppistöðu í sínar greinar þá er tun mikinn skort á anda gift að rasða — og ljóst er, að slikir skrifa til þess að lifa en lifa ekki til að skrifa. • LANDSPRÓFIN Og loks er hér bréf frá móð ur í Reykjavík: „í Tímanum sl. fimmtudag er skýrt frá úrslitum prófa í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og Gagnfræðaskólanum við Vonarstræti. Það vefcur sér- staka athygli, að einungis um 50% landsprófsnemenda I Gagnfræðaskólanum við Von- arstræti hlaut framhaldseink- unn á móti 81% landsprófs- nemenda í. Hagaskóla, Réttar- holtsskóla og sjálifsagt flestra annarra. Ekki er getið um tólu landsprófsnemenda í Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar eða hve mangir hafa biotið fram- haldseinkunn þar. — Og hvað eiga foreldrar að gera, sem verða — vegna búsetu — að senda börn sín í skóla þar sem kennslan er fyrir neðan allt lágmark Er engra annarra kosta völ? — Húsmóðir. Sjálfvirka þvottavclin LAVAMAT „nova 64“ Fullkomnari en nokrku sinni. Óbreytt verð. AEG-umboðið Söluumboð: HÚSPRÝÐI h.f. Sími 20440 og 20441

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.