Morgunblaðið - 07.07.1964, Side 11

Morgunblaðið - 07.07.1964, Side 11
Þriðjudagur 7. júlí 1964 MORGUNBLAÐIÐ 11 Kýpurviðræður í Genf Ttiomioja ekki bjarlsýnn Skemmtiferðir Langholtssafnaðar London og Genf, 6. júlí (AP) SAKARI Xuomioja, sáttasemjari Sameinuðu þjóðanna á Kýpur, er i Genf þar sem hann mun rae'ða við deiluaðila um iausn Kýpurvandamálsins. Sagði hann í dag við fréttamenn, að erfitt muni að finna lausn á næstunni. Viðræðurnar i Genf eru haldn- ar .samkvæmt ósk Tuomioja, og koma þangað fulltrúar frá Grikk landi og Tyrklandi. Auk þess senda Bretar fulltrúa til Genf, og er það Hood lávarður, aðstoðar- utanrikisráðherra. Dean Acheson, fyrrum utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, er einnig kominn til Genf á vegum Johnsons forseta Kraninn flytur hús AKRANBSI, 6. júlí. — Gamla hús vörubílstöðvarinnar hérna niðri við höfnina hefur verið selt. Kaupandinn er gamall skipstjóri, Elías Benediktsson, seglagerðar- maður, og ætlar hann að nota það fyrir verkstæði. Kom nú enski kraninn sér vel, sem síldar- og fiskimjölsverksmiðjan keypti. Kraninn lyftir 15 tonnum, og (það var hann, sem tók vörubílstöðvar húsið upp i einu lagi og flutti það á nýjan stað. O. fSAFIRÐI, 3. júlí — 33 Vest- íjarðabátar eru gerðir út á síld 1 sumar. Munu tveir bætast við i þessum mánuði. Heildarafli þeirra á hádegi á fimmtudag var orðinn 110 þús. mál og voru hæst nýju skipin: Helga Guð- •nundsdóttir frá Patreksfirði 11.350 og Óiafur Friðbertsson NÝLEGA var kveðinn upp í Hæstarétti dómur í máli, er Sig- urður Teitsson, Reykjavík, höfð- aði gegn Gunnarl Eliassyni, Reykjavík, til greiðslu skaðabóta •ð fjárhæð kr. 6.167,50, auk vaxta og málskostnaðar. Mál þetta reis út af bifreiðaárekstri. Málsíttvi'k eru sem hér greinir: Hinn 21. október 1961 var unn- lð að gatnagerð á syðri akbraut Miklubrautar austan Stakkahlíð- er. Komið hafði verið fyrir a.m.k. einum „búkka“ með rauðu blossa íjósi á syðri akibrautinni við mót Miklubrautar og Stakkahliðar. Tvístefnuakstur hafði verið tek- inn upp á nyrðri brautinni og Ihefur af hálfu stefnda I máli þessu verið haldið fram, að skilti hafi verið við nyrðri akbrautina, þar sem tekið hafi verið fram, að é brautinni væri tvístefnuakstur. Var eigi ætlazt ti.1 þess, að al- menn umferð yrði um syðri ak- brautina en einhver umferð mun hafa verið þar vegna öku- tækja í samibandi við gatnagerð- ina. Stefnandi f máli þessu kvaðst hafa unnið þama við gatmagerð- ina og um kl. 19.00 áðurnefndan dag kvaðst hann, er hann hafi ver ið að koma frá vinnu sinni, hafa ekið bifreið sinni R-2189 vestur syðri akbrautina með 25—30 km. hraða. Við gatnamót Stakkahlíð- er og Miklubrautar kvaðst hann hafa ekið áfram. Hafi þá bifreið- inni R-10599 verið ekið austur Miklubraut og aðeins hægt ferð eína við áðurnefnd gabnamót, en siðan tekið beygju og ekið hik- iaust í veg fyrii' bifreið áina og til að fylgjast með viðraeðunnm. í gær ræddi Tuomioja við Spyros Kyprianou, utanríkisráð- herra Kýpur, sem kom við í Genf á leið sinni til London. Fulltrúar Grikkja hafa neitað því að setjast að samningaborði með tyrkneskum fulltrúum í Genf, svo ekki er vitað hvernig viðræðunum þar verður háttað, en þær hefjast á fimmtudag. — Tyrkneska stjórnin tilkynnti í dag að fulltrúi hennar verði Nihat Erim, prófessor í alþjóða- lögum, en hann er formaður ut- anríkisnefndar þingsins og átti sæti í nefndinni sem stóð að samningum í London og Zúrich um stofnun lýðveldis á Kýpur. Leiðtogar grískra manna á Kýpur halda fast við kröfur sín- ar um sameiningu Kýpur og Grikklands, eða „Enosis“, eins og þeir nefna það. Georg Grivas hershöfðingi, sem áður var leið- togi EOKA-samtakanna er börð- ust við Breta fyrjr sjálfstæði eyj- unnar, er á Kýpur og hefur hald- ið þar ræður hvað eftir annað að undanförnu til stuðnings kröf- unni um Enosis. Avarpaði hann í dag fulltrúa grískra Kýpurbúa í þinginu í Nicosia, og lýsti því yfir að ef ekki næðust samningar um sameiningu á friðsamlegan hátt, þýddi það styrjöld ■— „og þá styrjöid munum við vinna“. frá Súgandafirði með 10.850 mál. Alimargir bátar frá Vestfjörð- um stunda humarveiðar í sumar, en afli hefux verið tregur. Gylfi hefur komið 4 sinnum til ísafjarð ar með samtals 15 lestir af óslitn- um humar, sem unninn hefur verið hér. — H.T. hafi sér ekki tekizt að fbrða árekstri. Bifreiðin R-10599 var eign stefnanda, Gunars Elíassonar. Hanm skýrði svo frá, að hann hefði í umrætt sinn ekið austur Miiklubraut. Þegar hann hefði komið að gatnaimótum Miklu- brautar og Stakkablíðar kvaðst hann hafa ekið mjög hægt eða með ferð fótgangandi manins og síðan beygt til hægri, þar sem hann hefði ætlað suður Stakka- hlíð. Hann kvaðst hafa séð til ferðar bifreiðar, sem kom á móti hönurn norður Stakkaihlið og hafi athygli hans beinst að bifreið þessari. Hann kvaðst hafa verið kominin út á syðri akbraut Miklu brautar, er hann hefði séð til ferða R-2189, sem komið hafi á lítilli ferð.. Hann kvaðst hafa hemlað, en er bifreið hans hafi verið rétt að stöðvast, hefði á- rekstuirinn orðið. Stefnandi byggði kröfur sínar á því, að stefndi ætti aila sök á árekstrinum, þar sem hann hefði eigi gætt umferðar eftir syðri ak braut Mikluibrautar. Hefði það verið freklegt umferðarbrot af hans hendi, þar sem um aðal- braut hefði verið að ræða. Taldi stefnandi, að þrátt fyrir búkk- arm á syðri akbrutinni og tví- stefnuakstuarinn á hinni nyrðri hefði syðri brautinni ekki verið lokað, enda hefði „búkkinn" með rauða ljósinu ekki verið lokunar merki. Umferð hefði aðeins ver- ið skipt á akbrautirnar. Hefði hin nyrðri átt að vera fyrir almenna umferð, en hin syðri fyrir umferð vegna gatnagerðarkuiair. Það SUMARSTARF Langholtssafnað- ar hefur verið unnið af miklum dugnaði og ósérhlífni á þessu vori. Reiðhjólakennsla barnanna hef ur áður verið í hávegum höfð, eins og vera bar, og væri vel, ef þessi lofsverða nýjung mætti verða öðrum til eftirbreytni. Nú nýlega hefur sumarstarfs- nefnd safnaðarins boðið yngsta og elzta hluta Langholts-safnað- ar í skemmtiferðir, til óblandinn ar ánægju allra, sem nutu. Fyrst var farið með börn og unglinga í tveggja daga ferð vestur á Snæfellssnes, en aldraða fólkinu var boðið i hópferð um Akra- nes og suðurhluta Borgarfjarðar, 1. júlí sl. og tóku um 100 manns þátt í þeirri för. Bifreiðastöðin „Bæjarleiðir" við Langholtsveg ‘hefði því ekki staðið til að af- nema aðalakbrautarrétt syóri ak brautar Miklubrauitarinnar. Stefndi krafðist aðallega sýknu í málinu og studdi þá kröfu sína þeim rökum, að syðri akbraut Miklubrautar hefði veiið lokuð fyrir umferð, enda hefði „búkk- inn“ með rauðu blossaljósinu og tvístefnuaksturinn á nyrðri ak- brautimni ekki getað þýtt annað. Stefnanda hefði því borið skylda til að bíða. Til vara krafðist stefn andi þess, að stefnukrafan yrði stórlækkuð, þar sem stefnandi ætti a.m.k. meginsök á árekstr- inum. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu, að leggja alla sök á stefnanda og sitefndi var þvi sýknaður í málinu. Var talið, að stefnanda hefði borið biðskylda gagnvart stefnda eins og atvikum var háttað. Hæstiréttuir komst aS nókkuð annarri niðurstöðu og segir svo í forsendum að dómi hans: „Stefndi átti að sjálfs sín sögn daglega leið um gatnasvæði það, sem um er að tefla, og hlaut því að þekkia aðstæður á þessum slóðum. Þegar til þessa er litið svo og þess, að skyggni var slæmt, er stefndi beygði bifreið sinni af Miklubraut suður Stakka hlíð, þykiir hann ekki ha.fa gætt fyilstu vaniðar í akstri, sbr. b.c. og n. liði 49. gr. laga nr. 26.1958 og því eigi að bæta (stefnanda) tjón hans að hluta. Samkvæmt rökum þeim, er greinir í héraðsdómi, teist (stefn- andi) hins vegar eiga meginsök á árekstrinum. Eins og atvikum er háttað, verð ur stefnda dæmd að bæta (stefn anda) tjón hans að hluta. Óve- fengt er, að tjón (stefnanda) hafi numið kr. 6.167,50 og ber stafnda þ\ú að greiða (stefnanda) kr. 1.541.88 með vöxtum eins og kraf izt er. Rétt þykir að málskostnaður i hóraði og f. Hæstarétti íalli niðua:“. sýndi þá rausn, að aka öllum hópnum endurgjaldslaust í sín- um ágætu bifreiðum og kunnum við þeim alveg sérstakar þakkir fyrir þann höfðingsskap. A Akranesi tók sóknarprest- urinn, sr. Jón Guðjónsson, á móti ferðafólkinu við kirkjudyr og bauð hópnum inn að ganga, en sóknarpresturinn okkar, sr. Árel íus Níelsson, stjórnaði þar stuttri helgiathöfn. Að því loknu sagði sr. Jón ferðafólkinu ágrip af sögu kirkjunnar. Guðmundur Jakobsson, húsameistari í Reykja vík, byggði þessa fallegu kirkju jarðskjálfta-sumarið 1896. Er engu líkara, en þær „fæðingar- hríðir" hafi hert hana í að stand ast tímans tönn, því hvergi er aldurinn sjáanlegur á þessari fyrstu kirkju á Akranesi. Áður var kirkja og prestsetur í Görð- um austar á Skaganum, en þar stendur enn lítið steinhús, sem presturinn byggði sér til íbúðar* og nú er notað fyrir byggðasafn, sem sr. Jón Guðjónsson hefur lagt óþreytandi elju í að safna til og byggja upp, m.a. með því að viða að sér lýsingum gamals fólks á ýmsum merkum bæjum sýslunnar og gera svo sj&lfur myndir af þeim, eftir að þeir eru horfnir af sjónarsviðinu. f>etta fyrrverandi prestshús mun vera elzta steinhús í sveit á íslandi. í kirkjunni sagði sr. Jón einnig frá því, að Þórarinn Guðmunds- son tónskáld hefði samið lag til kirkjunnar, sem faðir hans var að byggja. er hann fæddist þar á Akranesi 1886, og gefið kirkj- unni iagið. Að lokinni ágætri máltíð í hinu vistlega hóteli, var svo ekið norð ur í Lundarreykjadal, þar sem drukkið var síðdegiskaffi í fé- lagsheimilinu að Brautatungu. Munu góðgerðir þær hafa verið frá Kvenfélagi Langholts-safnað ar. Naut ferðafólkið þarna á- nægjulegrar hvíldar við ágætar veitingar og almennan söng, sem er. Árelíus hvatti til og stjórnaði, af sinni alkunnu röggsemi og fékk að lokum ökumenn leiðang ursins til að syngja eina frá leik sviðinu, er hann heyrði hversu góðir raddmenn þeir voru. Loks var haldið heimleiðis yfir óbyggðir: Uxahryggi, Kaldadal og Mosfellsheiði, með stuttri við- dvöl á Þingvöllum, en þar var eini þurri staðurinn á allri leið- inni! Þrátt fyrir þessa rigningu tókst okkar ágæta fræðimanni Árna Óla að miðla samferðafólk inu furðu miklum fróðleik ijm það, sem fyrir augu bar, en sem dæmi um skyggnið má geta þess að þótt ekið væri sunnan undir Akrafjaili á leið til Akíaness, þá sáum við aldrei fjallið! Þótt veðrið drægi vitanlega úr ánægjunni af þessari velheppn- uðu ferð, lét það enginn á sig fá, því öllum mun hafa tekizt að Á sunnudagskvöldið um kl. 9 lentu þrír bílar í árekstri á mótum Hverfisgötu og Smiðju stígs. Leigubíll, sem var á leið niður Smiðjustíg, stanzaði við Hverfisgötu. Ók þá Volkswag- en aftan á hann, og lögreglu- bíll kom aftan á Fólksvagjg- inn. — Fólksvagninn, sem klemmdist á milli „risanna", skemmdist mikið. — (Ljósm.: Geir Þormar). hafa „sólskin innra fyrir andann" eins og presturinn hvatti okkur jafnan tiL Átti hann ásamt Krist- jáni Erlendssyni, formanni sum arstarfseminnar, mestan þáttinn í að gera þessa för svo skemmti- lega í trássi við veðurguðina á- samt Árna Óla, sem áður er get- ið. Þátttakendur voru þarna af mjög misjöfnum aldri, allt upp í miðjan 10. tuginn og bar ekki á að aldursforsetinn drægi þá „ungu“ neitt niður! Vil ég svo fyrir hönd allra þátt takenda bera fram innilegar þakk ir fyrir þetta veglega boð til allra þeirra, er að því unnu og bið Guð að gleðja góðan gefanda. Eru slíkar hópferðir ómetanlegaT til aukinna kynna og samheldni innan þessa stærsta safnaðar fé íslandi. Einn þakklátur. * Utvarps- frásögn FRÉTTARITARI blaðsins sagCi 3. þ.m. frá þættinum „Á blað®- mannaifundi“ frá 29. júní, oig bætti við nokkrum orðum ftá eigin brjósti. Eftir að hafa borið Þorsteón Thorarensen fyrir þeim ummæi- um, „að landshöfðingjavaldjð kynni að hafa teflt Hannesi fram, til! að forðast að skelegg- ari maður settist í ráðherrastól- inn“, segir fréttaritarinn sjálífur: ,,Sú tillaga er ekki aðlaðándi fyrir þá, sem telja sig mesta að- dáéndur Hannesar Hafstein og liklega hefðu nútímamenn ald- rei borið hana fram, ef Sigurður A. Magnússon hefði ekki skrifað hinn fræga ritdóm sinn um bók Kristjáns Albertssonar". Sigurður A. Magnússon hafði þannig frásöign bókarinnar, af orðum og atferli andstæðinga Hannesar Hafstein, að styðjast við, en hverjar voru heimildir Þorsteins Thorarensen, því ekki upplifði hann endalok „lands- höfðingjava)ldsins“, frekar en Sigurður? Andsvar við ritdómi Sigurðar geta þessi tilfærðu ummæli Þor steins ekki talizt, nema heimild sé rakin til „landshöifðingja- valdsins" sjálfs; en sem orðróm ur úr herbúðum andstæðinga Hannesar Hafstein styrkja þau vissulega málstað Sigurðar, að andstæðingarnir hafi ekki verið sérlega vanidir að meðölum í árásinni á persónu Hannesar Hafstein. Ásgeir Þorsteinsson. Síldarafli Vestfjarða- báta 110 þús. mál 'm wr Bótomól vegno biheiðanreksturs >

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.